Þjóðviljinn - 10.04.1984, Page 3
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 10. aprfl 1984
Þriðjudagur 10. aprfl 1984 þjÓÐVILJINN - SÍÐA 11
íþrottir
3. úrslitaumferð 1. deildar karla í handknattleik í Laugardalshöll:
Gelr Hallsteinsson þjálfarl FH faðmar þá Kristján Arason og Valgarð Val garðsson að sér ettir sigurlnn á Stjörnunni. Hans Guðmundsson, Guðmund ur
Magnússon og Atli Hilmarsson eru greinilega ekki síður ánægðir með unnið afrek. Mynd: -eik
Úrslitin þegar ráðin
,k . r k • inga, yfirferð hans á línunni var
Tiu stiga forysta FH fyrir sioustu umferoma m\ö.z ™k,i °g hans
^ y / rnjog góð. Peir Atli Hilmarsson,
Hans Guðmundsson og Pálmi
FH-Valur - 23-22
Valsmenn hófu leikinn með því
að taka Atla Hilmarsson úr um-
ferð, það ráð virtist þó ekki duga
iValsmönnum mikið í byrjun því
FH náði fljótlega góðri forystu.
Þeir komust í 6-1 og síðar 9-3, en þá
VÖknitfS;; Valcmann til lífcinc oo
náðu að skora næstu 4 mörk og
munurinn þá 2 mörk, 9-7. Leikur-
inn var síðan í jafnvægi það sem
gftir lifði hálfleiksins. Forskot FH
eitt mark í hálfleik, 13-12.
Valsmenn komust yfir í fyrsta
sinn í leiknum 14-13 en því var
svarað með 4 mörkum FH, 17-14.
FH tókst að halda þeim mun allt
þar til 4 mínútur voru til leiksloka
en þá jöfnuðu Valsmenn 22-22.
Sfðustu mínúturnar voru síðan æs-
ispennandi. Kristján Arason kom
FH aftur yfir og mínútu síðar mun-
aði minnstu að Hansa Guðmunds-
syni tækist að auka forskotið í 2
mörk fyrir FH en skot hans fór í
stöng. Valsmenn fengu síðan gullið
tækifæri til að jafna rétt fyrir leiks-
lok er Þorbjörn Jensson sendi háa
sendingu inn í vítateig FH þar sem
Jakob Sigurðsson kom svífandi en
skot hans var varið. Lokatölur því
23-22 FH í hag, þriðji leikur FH í
úrslitakeppninni sem þeir sigra
með eins marks mun en sigur
þeirra var sanngjarn engu að síður.
Kristján Arason, Þorgils Óttar
og Sverrir markvörður voru bestu
menn FH liðsins. Pálmi Jónsson og
Sveinn Bragason áttu einnig ágæta
sprétti.
Hjá Val var Einar Þorvarðarson
bestur, Stefán Halldórsson, Jakob
Sigurðsson og Þorbjörn Guð-
mundsson sýndu einnig ágætis
takta.
Mörk FH: Kristján A. 6/2v, Þorgils Óttar
5, Pólmi 4, Sveinn B. og Atli Hilmarsson
3/2v, Valgarður Valgarðsson og Guðjón
Arnason 1.
Mörk Vals: Stefán H. 5/1 v, Þorbjörn G.
5/2v, Jakob Sig. og Júlíus Jónasson 3,
Steindór Gunnarsson og Valdemar
Grfmsson 2, Þorbjörn J. og Ólafur H.
Jönsson 1.
Dómararnir, þeir Guðmundur
Kolbeinsson og Þorgeir Pálsson
skiluðu hlutverki sínu sæmilega.
Víkingur-Stjarnan 32-23
Leikur þessi einkenndist af
áhugaleysi beggja liðanna. Leikur-
inn var jafn framan af, Víkingar þó
ávallt með frumkvæðið, þeir kom-
ust x 8-4 en Síjarnan jafnáði 8-8.
Það sem eftir lifði hálfleiksins var
eign Víkings, þeir skoruðu 6 mörk
gegn einu marki Stjörnunnar og
staðan í hálfleik því 14-9. í síðari
hálfleik juku Víkingar muninn
fljótlega í 7 mörk, 16-9 og síðar
20-13. Stjarnan minnkaði muninn í
3 mörk 20-17, aðallega fyrir frum-
kvæði Bjarna Bessasonar sem
skoraði grimmt. Þá tóku Víkingar
af skarið, komust í 25-29 og er upp
var staðið var 9 marka Víkingssigur
staðreynd.
Bestir Víkinga voru þeir Hilmar
Sigurgíslason sem að þessu sinni
tók sér frí af línunni og sýndi hæfi-
leika sína sem útispilari og Karl
Þráinsson. Þá var Steinar Birgisson
drjúgur í seinni hálfleiknum. Ó-
reyndari leikmenn liðsins fengu
einnig að spreyta sig og ljóst er að
Víkingar eiga framtíðarskyttu þar
sem Siggeir Magnússon er.
Bjarni Bessason virðist nú loks-
ins vera farinn að sýna sínar réttu
hliðar og sjálfsagt ekki seinna
vænna, mótið að verða búið! Þá
gerðu þeir Gunnar Einarsson og
Skúli Gunnsteinsson fallega hluti.
Mörk Víkings: Hllar 9, Stelnar 7, Karl
Þráins 5, Hörður Haröarsson og Guö-
mundur Guðmundsson 3, Ólafur Jóns-
son 2, Sigurður Gunnarsson 2/1 v, Slggeir
Magnússon 1.
Mörk Stjörnunnar: Bjarni Bessason
9, Gunnar Einarsson 5/2v, Skúll Gunn-
steinsson 3, Hermundur Sigmundsson 2,
Eyjólfur Bragason, Magnús Teitsson og
Sigurjón Guðmundsson 1.
FH-Stjarnan 34-26
FH-ingar tryggðu sér sigur í mót-
inu með sigrinum í þessum leik.
Útlitið var þó heldur dökkt hjá
þeim áfyrstu mínútunum, Stjarnan
komst í 4-1, en þá fór FH „ma-
skínan“ í gang svo um munaði. Þeir
skoruðu 8 mörk gegn aðeins einu
marki Stjörnunnar og breyttu
stöðunni í 9-5. Stjarnan minnkaði
muninn í 10-8 en FH svaraði með 7
mörkum í röð, 17-8. Staðan í hálf-
leik 18-11. FH-ingar juku muninn
síðan í síðari hálfleik, Hans Guð-
mundssoa var um tíma óstöðvandi
og FH komst í 26-17. Stjörnumenn
skoruðu næstu 4 mörk en það var
aldrei nein spurning um úrslitin. Er
upp var staðið höfðu FH-ingar gert
34 mörk gegn 26 „Stjörnumörk-
um“. Fagnaðarlæti leikmanna og
stuðningsmanna liðsins voru mikil
eftir leikinn. Þeir „tolleruðu" Geir
Hallsteinsson og aðstoðarmann
hans, Helga Ragnarsson, eftir
leikinn og það svo hátt að ljósabún-
aður Laugardalshallar var í stór-
hættu.
Þorgils Óttar var bestur FH-
Staðan
í urslitum deildakeppni karla á ís-
landsmótinu í handknattleik:
1. deild - efri:
FH................9 9 0 0 256-212 18
Vfkingur..........9 4 0 5 226-228 8
Valur.............9 3 1 5 204-204 7
Stjarnan..........9 1 1 7 202-244 3
Markahæstir:
Gunnar Einarsson, Stjörnunni......69
Sigurður Gunnarsson, Víklngi......53
Kristján Arason, FH...............51
Stefán Halldórsson, Val...........47
Þorgils Óttar Mathiesen, FH.......47
Atli Hilmarsson, FH...............43
Steinar Birgisson, Vfkingi........39
Pálmi Jónsson, FH.................37
1. deild — neðri:
Þróttur........23 12 4 7 526-523 28
KR.............23 11 4 8 440-417 26
Haukar.........23 6 1 16 496-574 13
KA............23 0 3 20 427-531 3
2. deild - efri:
ÞÓrVe........23 20 0 3 548-446 40
Breiðablik...23 17 0 6 514-464 34
Grótta.......23 12 1 10 510-477 25
Fram..........23 10 1 12 495-506 21
Jónsson áttu ágæta spretti.
Hjá Stjörnunni var Magnús
Teitsson yfirburðamaður. Bjarni
Bessason og Gunnar Einarsson
ágætir.
Mörk FH: Þorgils Óttar 8, Hans 7/2v,
Atli H. og Pálmi 5, Valgarð 4, Guðjón Árna-
son 2, Jón Ragnarsson og Kristján Ara-
son 1.
mörk stjörnunnar: Magnús Teits 9,
Bjarni Bessa 5, Gunnar Einarsson 4/1v,
Gunnlaugur Jónsson 3, Eyjólfur Braga-
son 2, Guðmundur Þórðarson, Skúli
Gunnsteinsson og Blrkir Sveinsson 1.
Valur-Víkingur 29-22
Fyrri hálfleikur var mjög jafn,
Víkingar yfirleitt fyrri til að skora,
þeir komust í 6-4 en Valsmenn
náðu síðan að komast í 8-7. Víking-
ar náðu að jafna 8-8 og 9-9. Vals-
menn skoruðu næstu 2 mörk, stað-
an þá 11-9 og þeim mun héldu þeir
til loka hálfleiksins, staðan þá 14-
12.
Síðari hálfleikur var síðan „ein-
stefna“. Valsmenn röðuðu inn
mörkum án neinna teljandi svara
frá Víking. Þeir náðu yfirburðafor-
ystu 24-15, Víkingar klóruðu í
bakkann með þeim árangri að
minnka muninn niður í 7 mörk fyrir
leikslok. Lokatölur 29-22 Val
íhags.
Einar Þorvarðarson brást Vals-
mönnum ekki frekar en fyrri dag-
inn. Hann varði vel á þýðingar-
miklum augnablikum og Elías Har-
aldsson leysti hann síðan af hólmi
um miðjan síðari hálfleikinn og
varði ágætlega. Þá átti Þorbjörn
Guðmundsson ágætan leik svo og
þeir Jakob Sigurðsson og Valde-
mar Grímsson.
Ellert Vigfússon sýndi á köflum
snilldarmarkvörslu en „datt niður“
þess á milli. Ólafur Jónsson,
Steinar Birgisson og Sigurður
Gunnarsson áttu ágæta kafla.
Mörk Vals: Þorbjörn Guðmundsson 7,
Valdemar og Jakob 6, Stefán H. 5, Björn
Björnsson 3, Þorbjörn Jensson og
Stelndór Gunnarsson 1.
Mörk Víkings: Steinar 6, Sigurður G.
5/2v, Guðmundur Björn 3, Hörður Harðar-
son, Guðmundur Þór og Ólafur Jónsson
2, Siggeir Magnússon, Karl Þrálnsson 1.
-Frosti
breiðabhk
í 1. deild
Breiðablik úr Kópavogi leikur í 1. deild karla í
handknattleik næsta vetur í fyrsta skipti. Þriðja
úrslitaumferð 2. deildar af fjórum fór fram í Di-
granesi um helgina og á heimavelli tryggðu Blik-
arnir sér annað sætið, fylgja Þór Eyjum í 1. deild.
Hins vegar komst á hreint að Haukar falla með KA
2. deild en þriðja umferð fallkeppninnar í 1. deil
fór fram í Seljaskóla.
Breiðablkik byrjaði á stórsigri gegn sjáifum
Þórurum, 32-23, og 1. deildarsætið komst síðín í
höfn með 22-21 sigri á Gróttunni. Síðan slökuðu
Blikarbur á og töpuðu 26-31 fyrir Fram. Þór vann
Fram 34-26, Grótta vann Fram 26-24 og Grótt
sigraði loks Þór 27-19.
Hauar féllu strax á föstudagskvöld er þeir töpu-
ðu fyrir Þrótti 24-28. Þeir unnu síðan KA 27-26 en
töpuðu 15-23 fyrir KR. KR og Þróttur skildu jöfn,
20-20, KR vann 20-12 og Þróttur vann KA 28-23.
Zola orðin
breskur þegn
Zoia Budd, hin 17 ára gamla hlaupadrottning
frá Suður-Afríku, fékk breskan ríkisborgararétt á
föstudaginn. Tugþúsundir bíðí eftir slíkum rétt-
indum en Zola varð færð fram fyrir alla þannig að
rniklar líkur eru á að hún keppi fyrir hönd Breta á
Ólympíuleikunum í Los Angeles í sumar. Hún á
besta tíma í heimi í 5000 m hlaupi kvenna og er
fjölhæf á styttri vegalengdunum , en árangur henn-
ar til þessa hefur ekki verið viðurkenndur þar sem
Suður-Afríka er ekki aðili að alþjóða frjálsíþrótt-
asambandinu.
Leyfisveitingin er mjög umdeiid í Bretlandi,
bæði innan frajálsíþróttasambandsins, svo og hja
öllum almenningi. Zola þarf nú að ná vissum ár-
angri á mótum í Bretlandi til að verða valin en það
ætti henni að takast. Mikil óánægja ríkir meðal
annarra breskra hlaupastúlkna sem telja sína
möguleika minni fyrir vikið. Mary Decker, hin
bandaríska stjórsnjalla hlaupastúlka sem Zola
gæti ógnað all verulega í Los Angeles, sagði hins
vegar: „Eg er mjög ánægð fyrir hennar hönd og
býst við afar harðri keppni við hana á leikunum í
sumar.“ -HB/Englandi
Lemgo að
sleppa
Lemgo, lið Sigurðar Sveinssonar, vann góðan
sigur á Huttenberg, 21-20, í vestur-þýsku Bundesl-
igunni í handknattleik á laugardaginn. Lemgp á
því orðið alla möguleika á að bjarga sér frá fallinu
sem blasað hefur við í allan vetur. Sigurður
skoraði 8 mörk og hefur að undanförnu verið með
8-12 mörk í leik með Lemgo. -JHG/Þýskalandi
Aðalsteinn
úr leik
Aðalsteinn Aðalsteinsson, knattspyrnumaður-
inn kunni úr Víkingi, leikur ekki með félagi sínu í
Reykjavíkurmótinu, missir af Belgíuferðinni síðar
í þessari viku og gæti einnig verið frá þegar 1.
deilarkeppnin hefst eftir rúmar fimm vikur. Lið-
þófi í hné rifnaði í æfingaleik FH og Aðalsteinn var
skorinn upp við þeim meiðslum fyrir helgina.
-VS
Haukur Sigurðsson lyftir bikarnum sem sveit Sparisjóðs Ólafsfjarðar hlaut fyrir sigur í
sveitakeppninni. Meðgöngusveinar hans, Finnur V. Sigurðsson og Ingvi Óskarsson, lyfta minni
bikurum og Halldór Matthíasson, sem sigraði í 10 km göngu karla, er annar frá vinstri.
Mynd:-mó
Sigurbjörg Helgadóttir lauk ein
i kvenna keppni á þessari vegalengd
og fékk tímann 1,22:07,3 klst.
Haukur Eiríksson sigraöi í 21 km
flokki karla, gekk þá 10 km sem
lokið varð á 24:47,2 mín. Grete Er-
ichsen frá Noregi sigraði í kvenn-
aflokknum á 32:30,1 mín. Halldór
Matthíasson sigraði í 10 km flokkn-
um, gekk þá vegalengd á 26:46,8
mín, en Guðbjörg Haraldsdóttir
var fyrst kvenna þar, fékk tímínn
37:46,8 mín.
Loks fór fram sveitakeppni og
þar sigraði Sparisjóðs Ólafsfjarðar
en hana skipuðu Haukur Sigurðs-
son, Finnur V. Gunnarsson og Ing-
vi Óskarsson. Tfu sveitir tóku þátt,
þrír í hverri, en í einstakling-
skeppni luku rúmnlega 100 manns
göngunni.
-mó/VS
Völsungsstúlkur unnu tvöfalt:
Stúdentar byrjaðir
að safna á ný!
ÍS og Völsungar urðu á laugardag-
inn bikarmeistarar karla og kvenna
í blaki. ÍS sigraði þá íslands- og
fráfarandi bikarmeistara Þróttar
3-1 í úrslitaleik í karlaflokki í Haga-
skóla og Völsungur frá Húsavík sig-
raði Breiðablik 3-2 í kvennaflokki í
Digranesi.
Þróttarar byrjuðu vel gegn ÍS og
unnu fyrstu hrinuna af öryggi, 6-
15. Þá kom Studentasigur, 19-9 og
staðan jöfn. ÍS komst í 12-3 í þriðju
hrinu var staðan legni 13-11 fyrir
ÍS, taugatrekkjandi fyrir alla aðila
meðan uppgjafir gengu á milli liða,
en ÍS náði síðan tveimur síðustu
stigunum, 15-11 og bikarinn íhöfn.
Stúdentar þar með byrjaðir að
safna í tóma bikargeymsluna á ný -
öllum bikurum félagsins var stolið
fyrir skömmu!
íslandsmeitarar Völsungs voru
langr frá sínu besta lengi vel gegn
Breiðabliki en unnu Þór 15-9 í
fyrstu hrinu. Breiðablik jafnaði
með 13-15 sigri og komst 1-2 yfir
með því að sigra 16-18 í hálftíma
langri þriðju hrinu. Þá voru Kópa-
vogsstúlkurnar hins vegar sprung-
nar, þær húsvísku lyftu loks sínum
hangandi haus og jöfnuðu með að-
eins 11 mínútna langri fjórðu hrinu
sem endaði 15-3 og úrslitahrinuna
15-8. Tvöfaldur sigur Völsungs,
gæáoæeg vertíð á enda.
-VS
Fréttir úr ensku knattspyrnunni:
Hreppir Totten-
ham Strachan?
Tottenham er nú talið líklegsta liðið
til að hreppa Gordon Strachan, skoska
landsliðsmanninn frá Aberdeen, þegar
samningur hans við skoska félagið
rennur út í júnflok. Arsenal og Newc-
astle eru einnig inni í myndinni, svo og
ítölsku félögin Verona og Genoa sem
munu reiðubúin til að greina 700 þús-
und pund. Tottenham er hins vegar tal-
ið munu bjóða allt að einni miljón
punda. Vestur-þýska félagið Köln hefur
einnig fylgst með Strachan að undan-
förnu.
Terry Venables, framkvæmdastjóri
QPR, er orðaður við stjórnstöðuna sem
losnar hjá Tottenham í vor. Sepp Piot-
ek, hinum vestur-þýska landsliðsþjálf-
ara Dana var boðið staðan en hann tók
danska liðið framyfir. Ensku blöðin eru
mjög jákvæð í garð Keith Burkinshaw,
telja að sériunaðir leikmenn og meiðsli
lykilpersóna hafi gert honum mjög erf-
itt um vik í embætti sínu hjá Totten-
ham. 2 deildarlið Barnsley mun vera
búið að hafa samband við Burkinshaw
sem er fæddur og uppalinn þar í borg,
en Jack Charlton er einnig orðaður við
Barnsley.
Arthur Cox, stjóri Newcastle, er
mjög valtur í sessi og missir örugglega
stöðu sína ef liðinu mistekst að komast í
1. deild. Margir í þeim herbúðum vilja
fá gamla markakónginn Malcolm Mac-
Donald fyrir stjóra en hefur náð góðum
árangri með Fulham.
Sheff.Wed. sem stendur mjjög vel að
vígi í 2. deild, varð fyrir miklu áfalli
þegar heslsi markaskorari liðsins, Gary
Bannister, slasaðist ill a gegn Portsmo-
uth á laugardaginn. Hann leikur vart
meira á þessu keppnistímabili.
-HB/Englandi
Lava-Loppet í Bláfjöllum:
Arvnes sigraði
öðru sinni
Norðmaðurinn Björn Arvnes
sigraði í Lava-Loppet, alþjóðlegu
göngunni sem haldinn var í Blá-
fjölluni á laugardaginn, en hann
vann einnig er ganga fór fyrst fram
í fyrra. Vonskuveður skall á þegar
gangan var nýhafin og kalla varð
keppendur inn eftir fyrsta hring-
inn. Þá höfðu Arvnes og félagar
sem ganga áttu 42,3 km, lokið 13
km en aðrir flokkar 10 km. Arvnes
fékk tímann 50:28,4 mín, Harald
Grönningen, „EIgurinn“, frá Nor-
egi varð annar á 56:15,1 mín. og
Sigurður Aðalsteinsson þriðji á
58:00,8 mín.
Stuttgart drifið áfram af stórleik Ásgeirs:
Fær alls staðar
hæstu einkunn!
Frá Jóni H. Garðarssyni
fréttamanni Þjóðviljans í V-
Þýskalandi:
„Stuttgart var miklu betri
aðilinn og liðið var drifið áfram af
stórleik Asgeirs Sigurvinssonar.“
Um þetta atriði eru vestur-þýsku
blöðin sammála eftir jafnteflisleik
Bayern og Stuttgart, 2-2, í
Múnchen á laugardaginn. Ásgeir
fékk alls staðar einn, bestu
einkunn, nema í Bild sem gaf
honum tvo en hjá því blaði fékk
reyndar enginn leikmaður bestu
einkunn. Það var Ásgeir sem
skoraði jöfnunarmark Stuttgart 2-
2 með þrumufleyg.
Wolfgang Grobe náði tvívegis
forystunni fyrir Bayern í leiknum,
úr vítaspyrnu í síðara skiptið. Arm-
in Jáger var þá nýkominn í mark
Stuttgart eftir að Helmut Roleder
aðalmarkvörður hafði meiðst eftir
árekstur við Karl-Heins Rummen-
igge og verið fluttur á spítala. Jáger
lék vel, en felldi Dieter Höness og
Grobe skoraði úr vítaspyrnunni.
Karl Heinz Förster jafnaði fyrir
Stuttgart í fyrra skiptið en Ásgeir í
það síðara, boltinn hrökk þá út til
hans eftir hornspyrnu frá Her-
manni Ohlicher.
Fyrir leikinn var nokkuð rætt um
einvígi Norðurlandabúanna, Ás-
geirs og Sörens Lerby hjá Bayern.
Það er enginn vafi á hvor vann það
einvígi. Asgeir var alls staðar tek-
inn framyfir Felix Magath þar sem
valið var í lið vikunnar í blöðunum,
en Magath var besti maður Ham-
burger sem gerði 1-1 jafntefli í Boc-
hum. Það var uppselt á leikinn, 78
þúsund áhorfendur voru á Ólympí-
uleikvanginum í Múnchen, og mið-
ar voru seldir „á svörtu“ á 50 mörk
stykkið.
Fjórar gamalkunnar stjörnur í
vestur-þýskri knattspyrnu, Paul
Breitner, Sepp Maier, Gerd
Múller og Franz Beckenbauer,
voru meðal áhorfenda og voru þeir
allir ánægðir með leikinn, sögðu
hann vel leikinn og skemmtilegan.
„Þetta var slappt hjá okkur,"
sögðu Pétur Ormslev og Atli Eð-
valdsson um 0-0 jafntefli Dússel-
dorf gegn Bielefeld á föstudags-
kvöldið. Báðir léku þeir allan
leikinn, Pétur var ágætur og fékk 3
í einkunn en Atli náði sér aldrei á
strik. Dússeldorf á í miklum vand-
ræðum, einungis 10 leikmenn eru í
raun heilir og liðið því sjálfvalið.
Pétur og fyrirliðinn Gerd Zewe
fengu bestu marktækifærin í
leiknum fyrir Dússeldorf en mark-
vörður Bielefeld varði vel í bæði
skiptin.
Bremen sigraði Uerdingen 5-2
(Völler 2, Reinders 2 og Pezzey
skoruðu, en Mönchengladbach
varð að sætta sig við 1-1 jafntefli
heima við Frankfurt. Önnur úrslit:
Offenbach-Leverkusen 0-2,
Mannheim-Kaiserslautern 2-0,
Köldn-Núrnberg 3-1 (Engels, Fisc-
her og Littbarski skoruðu fyrir
Köln) og Braunschweig-
Dortmund 5-0.
Bayern og Mönchengladbach
hafa 38 stig hvort á toppnum, Stutt-
gart 37, Hamburger 36 og Bremen
24 stig. Dússeldorf er í áttunda sæti
með 27 stig úr jafnmörgum
leikjum. Neðst eru Frankfurt með
20 stig, Offenbach með 15 og
Núrnberg með 14.
-JHG/VS
KR og Valur náðu
í tvö stig hvort
Þó aðstæður á Melavellinum gamla og góða á sunnudaginn væru
betri fyrir sundgarpa en knattspy rnumenn, tókst KR og Val að sýna sex
marka leik, 3-3, I fyrsta leik ReyKjavíkurmótsins. Fyrir vikið fengu
bæði lið 2 stig, aukastig er geflð í mótinu fyrir að skora 3 mörk í leik.
KR var komið í 3-0 eftir rúmar 20 mínútur, enda reyndu Vesturbæ-
ingar ekki hið ömögulega, nett spil við þessar aðstæður, eins og Vals-
menn, heldur börðust af krafti og byggðu upp á löngum sendingum.
Willum Þórsson skoraði fyrst með ágætu skoti og síðan þeir Sverrir
Herbertsson og Óskar Ingimundarson af stuttu færi báðir.
Valsmenn sýndu hins vegar á sér aðra og betri hlið í seinni hálflcik og
höfðu jafnað, 3-3, eftir 20 mínútur. Hilmar Sighvatsson skoraði tvíveg-
is, annað markið úr vítaspyrnu, og Bergþór Magnússon sá um það
þriðja eftir góða sókn.
Áhorfendur skemmtu sér oft konunglega yfir magalendingum leik-
manna í drullupollunum fjölmörgu og sumir höfðu á orði að útsendar-
ar sundfélagsins Ægis hefðu betur verið að fylgjast með...
-VS
Þjóðviljinn á Anfield Road:
Liverpool hélt knatt-
spyrnusýningu!
Frá Heimi Bergssyni frétta-
manni Þjóðviljans í Englandi:
Eg brá mér til Liverpool á
laugardaginn og sá Englands-
meistarana gjörsigra West Ham 6-0
á Anfield í frábærum leik. Liver-
pool hélt hreina knattspyrnusýn-
ingu, leikmenn West Ham voru
spilaðir uppúr skónum hvað eftir
annað og oft endaði 20 sendinga
sókn með marki eða góðu tækifæri.
Kenny Dalglish og Ian Rush
léku snilldarlega í framlínu Liver-
pool og sterkir varnarmenn West
Ham áttu aldrei möguleika gegn
þeim. Fjögur mörk fyrir hlé ogtvöí
síðari hálfleik (sjá bls. 12) og þau
hefðu hæglega getað orðið mun
fleiri, vörn West Ham var galopn-
uð eins og eftir kennslubók með
stuttu millibili.
Það er erfitt að tína út einstaka
leikmenn hjá Liverpool, allt liðið
lék mjög vel frá upphafi. Dalglish
og Rush eru þegar nefndir. Ronnie
Whelan vann mjög vel, Phil Neal
var góður, svo og John Wark sem
fellur vel inní leik Liverpool-
liðsins. Blöðin hér í Englandi gæla
við þá hugmynd að hann eigi að
leysa Graeme Souness af hólmi,
Souness notfæri sér klausu í samn-
ingi sínum við Liverpool í vor sem
gerir honum kleift að fara til
meginlands Evrópu. Það er senni-
legra enn erfiðara að meta leik-
menn West Ham, þeir komu ekki
við boltann á löngum köflum. Bar-
áttujaxlinn Geoff Pike var þeirra
frískastur og fékk dauðafæri á
markteig en þrumaði beint í fang
Bruce Grobbelaar markvarðar
sem þá glotti all ógurlega.
„Þetta var snilldarleikur hjá
mínum mönnum en ég átti aldrei
von á að West Ham gæfi okkur eins
mikið rúm til að spila og byggja
upp og raunin varð,“ sagði Joe
Fagan framkvæmdastjóri Liver-
pool eftir leikinn.
Aberdeen eykur
forystuna á ný
Aberdeen jók á ný forystu sína í
skosku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu, vann þá lið Jóhannesar Eð-
valdssonar, Motherwell, 2-1 á
heimavelli. Mark McGhee og Gor-
don Strachan skoruðu mörkin í
fyrri hálfleik, en Rafferty minnkaði
muninn fyrir Motherwell.
Á meðan náði Celtic aðeins
markalausu jafntefli við St. John-
stone á útivelli og Dundee United
féll 1-0 í Edinborg gegn Hibernian
ámarki Bills Jamieson. Rangersog
Hearts gerðu markalaust jafntefli
og Frank McDougall skoraði tvö
mörk þegar St. Mirren vann góðan
útisigur í Dundee, 5-2.
Aberdeen ...27 ... 29 20 17 4 6 3 6 64-15 64-32 44 40
Dundee United... ...26 15 6 5 51-25 36
Rangers ...29 13 7 9 45-35 33
Hearts ...30 9 12 9 33-42 30
St. Mirren ..30 8 12 10 47-47 28
Hibernian ..32 12 4 16 41-50 28
Dundee .... 29 9 2 18 43-66 20
St. Johnstone.... ... 30 9 2 19 31-70 20
Motherwell .... 30 3 7 20 26-63 13
-AB/VS