Þjóðviljinn - 10.04.1984, Side 4
Kt .JMffÍa - ^ÍUiV'ðÖfí iWt fi-Kjfc .Oi waBfaujSsh<í
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 10. aprfl 1984
Það var heldur en ekki gaman að
sitja með gamla radíóið sitt og
hlusta á ensku þulina skýra frá
leikjunum á laugardaginn. Liver-
pool gekk berserksgang á heima-
velli sínum gen West Ham. Enginn
var í betra formi en sjálfur snillin-
gurinn Kenny Dalglish. Það er að
æra óstöðugan að finna lýsingarorð
yfir þennan töframann. Undirrit-
aður hafði ekki við að færa mörk
Liverpool inn á skýrslu sína. I hálf-
leik var staðan orðin 4-0 og hefði þó
hæglega getað verið 8-0. Ian Rush
skoraði fyrsta markið eftir góðan
undirbúning Dalglish. Kenny karl-
inn var sjálfur á ferðinni með sitt
150. mark fyrir Liverpool. Rush og
Whelan komu Liverpool í 4-0 og
átti Dalglish heiðurinn af þeim báð-
um. Staðan semsagt orðin 4-0 eftir
20 mínútur og áhorfendur fóru að
telja leikmenn Liverpool, yfirburð-
irnir voru algjörir. Phil Parkes
fann lúkurnar sínar í seinni hálfleik
og tvívegis náði hann að verja
bylmingsskot frá sókndjörfum
Lifrarpúlungum. En Souness snéri
upp á yfirvaraskeggið á sér og
þrumaði inn tveimur boltum um
miðjan seinni hálfleik, 6-0, og „that
was that“ eins og bretinn segir. Frá-
bær frammistaða Liverpool, meist-
aratitillinn hlýtur að lenda á Anfi-
eld.
Á meðan Liverpool skoraði sex
mörk tókst leikmönnum Manch
Utd aðeins að skora einu sinni á
Old Trafford gegn Birmingham.
En talandi um snillinga er rétt að
nefna nafn Bryan Robson. Hann
var mikið í sviðsljósinu á laugar-
daginn. Ekki nóg með að eiga stór-
leik og skora eina mark leiksins.
Giovanni Trappatoni þjálfari Ju-
ventus var mættur til að fylgjast
með Mönsunum og þó einkanlega
Robson. Orðrómur hefur verið um
að Robson sé á förum til Ítalíu og
breski þulurinn Stewart Hall
spurði Trappatonihvort Juventus
ætlaði að kaupa Robson. Sá ítalski
yppti öxlum og sagði að það kæmi í
Ijós 30. júní hvort af þeim kaupum
yrði. Upphæðin ku vera 66 billjónir
líra og reikni menn nú.
En snúum okkur að leiknum
sjálfum. Ray Wilkins átti einnig
snjallan leik og það var einmitt
hann sem tók vinstri fótar „inn-
svingaða" hornspyrnu á 28. mín.
Margir fætur voru á lofti og á milli
læra og leggja, kálfa og kolla lau-
maðist Robson með hausinn sinn
og kinkaði kolli í knöttinn, „heims-
klassamark". 18. mark Robson í
vetur. Norman Whiteside átti af-
leitan leik og varskipt útaf 10. mín
fyrir Mark Hughes. Sá hafði varla
dregið andann inni á vellinum er
hann kiksaði í dauðafæri. Undir
lok leiksins fékk United vítaspyrnu
og 39 þúsund áhorfendur sáu Wilk-
ins gera í buxurnar. Tvítekin víta-
spyrna og í bæði skiptin varði Cot-
on markvörður.
Þeir kvörtuðu ekki strákarnir á
pöbbunum í Norwich eftir að
heimamenn höfðu lumbrað dug-
lega á Watford. Aumingja Steve
Sherwood hefur áreiðanlega sötr-
að teið sitt í betra skapi en í hálf-
leiknum. Karlálftin var mikill
klaufi í leiknum og snemma leiks
mátti hann hirða boltann úr netinu.
Chris Woods í Norwichmarkinu
átti langa spyrnu frá marki sem
hafnaði inni í vítateig Watford. Þar
plataði John Deehan Sherwood
illilega og skoraði fyrsta mark
leiksins. Nokkru síðar var Sher-
wood að skafa undan nöglunum
sínum þegar Gregg Downes sendi
laufléttan bolta í netið. John Dee-
han kom heimamönnum í 3-0 með
glæsilegu marki eftir góða aðstoð
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Enska knat
og Liverpool
burstaði / p
í wm Æ
West Ham l
.Éj®
6-0
Mikka Channon. Áður en tlautað
var til hlés afgreiddi George Reilly
ágæta sendingu á vin sinn Mo
Johnston sem skoraði og lífsmark
færðist í Watford. í byrjun seinni
hálfleiks fékk Watford vítaspyrnu
en Chris Woods gerði sér lítið fyrir
og varði spyrnu George Reilly.
John Deehan sýndi síðan Reilly
hvernig framkvæma á vítasprynur
og skoraði tvö mörk úr slíkum
spyrnum og þar með 4 mörk í
leiknum. Áður en yfir lauk hafði
Norwich bætt ó. márkinu við.
Glæsilegasta markið í leiknum leit
dagsins ljós með skoti John Devine
af 25 metra færi og aumingja
Sherwood mátti enn hirða boltann
úr netinu, 6-1. Watford var aldrei
fimm mörkum lakari en Norwich.
Reilly vann alla bolta í loftinu, Cal-
laghan var óvenju daufur á hægri
vængnum, Johnston ekki nógu gír-
ugur í teignum og um slöttólfana í
vörninni þarf ekki að fara mörgum
orðum.
Everton krækti í góð úrslit í Luton
en tölurnar gefa þó ekki alveg rétta
mynd af leiknum. Mun betur þurfa
leikmenn Everton að spila nk.
laugardag í undanúrslitum bikars-
ins gegn Southampton ef þeir ætla
að kreista fram hagstæð úrslit þar.
Leikurinn gegn Luton einkenndist
af Ijótum brotum og fríspörkum.
Mal Donaghy hjá Luton var rekinn
útaf fyrir ljótt brot á Adrian Heath
er kominn var á auðan sjó. Hinn
ungi miðvörður Derek Mountfield
skoraði fyrsta markið um miðbik
síðari hálfleiks. Adrian Heath
gerði hin tvö, það fyrra eftir herfi-
leg varnarmistök en hið síðara eftir
vítaspyrnu. Þegar hér var komið
sögu hefði Luton hæglega verið \
búið að skora tvö mörk. Hinn átján
ára Mark Stein bróðir Brians skaut
grjóthörðu skoti í þverslá og Tre-
vor Aylott lét Southall verja
meistaralega frá sér úr upplögðu
færi. Terry Curran lék nú með
Everton að nýju eftir 6 mán. fjar-
veru en hann skortir töluvert að
komast í æfingu. Andy Gray var
meiddur en verður að líkindum til-
búinn í slaginn nk. laugardag.
Leicester liðið dafnar vel þessa
dagana eins og ráðherra í íslenskri
ríkisstjórn. Liðið leikur hinn þokk-
alegasta bolta. Leicester náði stigi
á The Dell og voru betra liðið lengi
framan af. Það var ekki fyrr en
Gary Lineker hafði komið þeim
yfir að líf komst í Southampton.
Danny Wallace jafnaði þá 1-1. Þá
dúndraði Steve Moran í þverslána
og svo fast var skotið að Mark
Wallington borgarmaðurfékk hell-
ur fyrir eyrun. En þær fuku
skömmu síðar þegar Wallington
fór að fagna marki Linekers sem
kom Leicester yfir eftir góða sam-
vinnu Allan Smith. Þeir ku þykja
snjallir saman. Nú töldu menn
leiknum lokið, Stebbi Vilhjálms
ekki heill heilsu og Worthington
hafði haltrað útaf. En undir leiks-
lok náði Southampton góðri sókn-
arlotu. Wright skallaði þversend-
ingu Dennis fyrir fætur Moran og
bang, fastur skalli hans hafnaði
fyrir aftan Wallington, 2-2.
Nottingham Forest sýndi allar
sínar bestu hliðar gegn vaxandi
West Bromwich og náði nú loks að
skora meira en eitt mark í heila tvo
mánuði. Paul Barron hélt WBA á
floti með góðri markvörslu og á 8.
mín. gerði hann sér lítið fyrir og
varði vítaspyrnu Colin Walsh.
Walsh fékk aftur tækifæri til að
skora úr víti 15 mín. síðar og þá
tókst honum betur upp. Um það bil
er flauta dómarans gall við til
merkis um leikhlé skoraði Viv
Anderson með skalla og Forrest
var komið vel á skrið. Allur annar
bragur var á leik WB A í seinni hálf-
leik. Fyrri hálfleikurinn hafði farið
meira í að kýla löngum boltum inn
á miðherjana Regis og Thompson,
en nú komu tengiliðir Albion
meira inn í myndina. Thompson
minnkaði muninn og leikurinn var í
iárnum. Níu mín. fyrir hlé náði Ian
Bowyer að pota boltanum inn eftir
mikinn darraðardans í markteig
WBA, 3-1. Peter Davenport átti
stórleik með, Nottinghamliðinu.
Aumingja Úlfarnir biðu enn eina
ferðina ósigur og það sem verra er
að einungis 7.481 komu til þess að
sjá leikinn gegn Notts County og er
það minnsti áhorfendafjöldi í heil
46 ár. Dave Hunt gerði mark Co-
unty. Coventry getur bókstaflega
ekkert þessa dagana eftir góða
byrjun. Aston Villa vann öruggan
sigur með mörkum Brendan Orms-
by og Paul Birch. Ipswich er enn í
mikilli fallhættu eftir ósigurinn í
Lundúnum gegn Q.P.R. Clive All-
en skoraði mark Q.P.R. og áttundi
ósigur Ipswich á útivelli í röð leit
dagsins ljós. Mark Falco kom
Spurs snemma yfir í leiknum gegn
Sunderland, Tryggva nágranna
mínum til mikillar gleði. Sú gleði
var skammvinn því Colin West
náði að jafna metin, 1-1. Þá er loks
eftir að geta leiks Arsenal og
Stoke. Fyrri hálfleikurinn var
markalaus en Charlie Nicholas,
Paui Mariner og Tony w'oodeock
afgreiddu Stókara í seinni hálfleik.
Mark Stoke skoraði Mark Chamb-
erlain.
Þrjú efstu liðin í 2. deild unnu öll
sína leiki á laugardaginn. Sheff
Wed var mörgum mörkum betra
en Portsmouth. Á 11. mín. kom
fyrra mark Wednesdey. Mike
Lyons skallaði vel fyrir mark Ports-
mouth eftir langt innkast Nigel
Worthington. Gary Shelton kom á
11 kflómetra hraða og negldi bolt-
ann í netið. Það var síðan frábær
markvarsla Allan Knight í Ports-
mouth markinu sem kom í veg fyrir
að markataflan fylltist. Cunning-
ham átti skot sem bjargað var á
línu, Varadi átti bíru í stöng og enn
héldu leikmenn Sheffield áfram að
níðast á Portsmouth. Það var ekki
svo fyrr en á 70. mín. að Sheffield
bætti við öðru marki og var það
meira en lítið ásjálegt. Mel Ster-
land sýndi snyrtilega út á hægri
vænginn til Imre Varadi og Varadi
spyrnti lágum bolta fyrir beint á
ristina á Sterland sem fíraði í netið,
2-0.
Lundúnaeinvígið á milli Chelsea
og Fulham endaði með góðum sigri
Chelsea. Colin Lee, Dave Speedie
úrslit...úrslit...úrslit..
1. deild:
3-1 2-0 6-0 0=3 2. deild: Biackburn-Midd lesbro 3. deild: 0-1 4. deild: Biackpool-Bury
Rrartford-fihpff Utrt 2-1 Chester-Hereford 0-1
Brighton-Grimsby Cambridge-Leeds Bristol Rov-Boumemouth..... 1-1 Chesterf ield-Hartlepool Colchester-Tranmere 0-1
Carlisle-Cardiff 1-0 Crewe-Peterbro
1-0 Charlton-Newcastle 1-1 Darlington-Torquay
6-1 Chelsea-Fulham fr. Northampton-Hallfáx
3-1 3-0 4-0 Reading-Brlstol City 2-0
1-0 0-1 3-0 Rochdale-Wrexham 1-2
2-2 0-1 1-1 Stockport-Mansfield
1-1 Sheff .Wed-Portsmoúth 2-0 Walsall-Oxford Swindon-Aldershot
0-1 Swansea-Manch.City Wimbledon-Huil City York-Doncaster......
og Kerry Dixon skoruðu í fyrri
hálfleik og Dixon var aftur á ferð-
inni í þeim síðari, 4-0. Lengi leit út
fyrir að stigunum í leik Charlton og
Newcastle yrði bróðurlega skipt.
Aðeins 2 mín. voru til leiksloka og
staðan 1-1, Dowman fyrir Charlton
og Waddle fyrir Newcastle. En Ke-
vin Keegan í sínum síðasta
Lundúnaleik átti stórsnjalla send-
ingu á Terry McDermott og Terry
karlinn skoraði með öflugu skoti.
Mínútu sfðar var Newcastle enn á
ferðinni er Peter Beardsley
skoraði.
Manc City er ekki alveg út úr
myndinni ennþá. Derek Parlane og
Steve Kinsey skoruðu gegn Swans-
ea. Allan Young afgreiddi
Grimsby með tveimur mörkum
fyrir Brighton. Athyglisverðustu
úrslitin voru samt í Derby þar sem
Roy McFarland sem nýtekinn er
við Derbyliðinu gerði sjö breyting-
ar fyrir leikinn gegn Crystal Palace.
Það bar heldur en ekki árangur því
Andy Garner ungur 18 ára nýliði
sem Peter Taylor fyrrverandi stjóri
gat ekki notað, gerði sér lítið fyrir
og skoraði öll mörkin þrjú.
-AB/Húsavík.
Staðan
1. deild:
Liverpool .34 20 9 5 59-24 69
Manch.Utd 19 10 5 64-33 67
Nottm.For....^. .34 18 6 10 58-36 60
Q.P.R .35 17 6 12 54-31 57
Southampton. .33 16 8 9 41-32 56
West Ham 16 7 11 55-44 55
Arsenal .35 15 6 14 61-50 51
Tottenham .35 14 9 12 54-52 51
AstonVilla .35 14 9 12 51-50 51
Watford 14 6 15 61-67 48
Everton 12 11 10 32-35 47
Luton 13 8 14 45-51 47
Norwich 12 10 12 42-36 46
Leicester .35 11 11 13 57-57 44
Birmingham... .35 12 8 15 35-39 44
W.B.A .34 12 6 16 40-52 42
Coventry 10 10 15 46-55 40
Sunderland.... . 35 9 12 14 34-47 39
Stoke .35 10 8 17 33-58 38
Ipswich 10 6 19 41-51 36
Notts.Co .34 8 9 17 41-60 33
Wolves .34 5 9 20 25-65 24
Markahæstir:
lan Rush, Liverpool..............25
Gary Llneker, Leicester..........19
Paul Mariner, Arsenal............17
Tony Woodcock, Arsenal...........17
Steve Archlbald.Tottenham........16
Terry Gibson, Coventry...........16
Maurice Johnston, Watlord........16
2. deild:
Chelsea........ 35
Sheff.Wed.....33
Newcastle.....35
Manch.City....35
Carlisle......35
Grimsby.......34
Blackbum......35
Charlton......35
Brlghton......35
Leeds.........35
Shrewsbury....35
Portsmouth....35
Huddersfield... 34
Cardlff.......34
Bamsley.......34
Fulham........35
Middlesbro....35
Cr.Palace.....34
Oldham........35
Derby.........34
Swansea.......35
Cambridge.....35
19 12
20 9
21 6
18 8
16 13
16 11
15 13
15 9
14 8
13 9
12 10
13 5
11 11
13 4
12 6
10 12
10 10
9 10
10 7
8 8
5 7
2 10
4 /thjf 89
4 62-29 69
8 70-46 69
9 54-39 62
6 41-24 61
7 51-40 59
7 47-38 58
11 46-49 54
13 57-49 50
13 45-47 48
13 36-45 46
17 60-50 44
12 42-41 44
17 45-52 43
16 49-46 42
13 48-46 42
15 35-40 40
15 33-43 37
18 39-61 37
18 31-61 32
23 29-68 22
23 25-67 16
Markahæstir:
Kevin Keegan, Newcastle............23
Kerry Dixon, Chelsea...............21
Mark Hateley, Portsmouth...........18
Mike Quinn, Oldham.................18
3. deild:
Oxford.........38 24 7 7 76-43 79
Sheff.Utd......39 19 11 9 73-47 68
Wimbledon......38 20 8 10 84-69 68
HullCity.......36 18 12 6 57-31 66
Walsall........39 19 8 12 59-53 65
BrlstolR.......38 18 10 10 58-45 64
4. deild:
YorkCity.......38 25 7 6 79-34 82
Bristol C.....40 20 8 12 60-40 68
Doncaster......37 18 13 6 64-46 67
Reading.......38 18 12 8 71-47 66
Aldershot.....38 1 9 8 11 62-55 65
Enskar getraunir
Stig fyrir leiki á Vernons - og
Littlewoods-getraunaseðlunum:
3stig: nr. 9,10,14,15,24,26,32,38,51
og 53.
2 stig: nr. 49 og 50.
lVístig: nr. 4,11, 17,18, 20,21,23,27,
30, 31, 33, 35, 36, 37, 40, 41, 44, 47 og
52.