Þjóðviljinn - 08.05.1984, Blaðsíða 3
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNj Þriðjudagur 8. maí 1984
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Steingrímur tryggði
KA sigur gegn Púr
Byrjad á grasi
á Akureyri
Allar Iflcur eru á að byrjað verði á grasi
á Akureyri þann 20. maí þegar fyrsti
leikurinn þar í 1. deildarkeppninni í
knattspyrnu á þessu sumri fer fram. Ak-
ureyrarliðin KA og Þór eiga þá að leika
saman, og verði aðalleikvangurinn ekki
tilbúinn, verður leikið á grasvelli KA-
manna. „Wembley" Akureyrínga var
kominn í mjög gott ástand um mánaða-
mót en kuldahretið á dögunum kom sér
illa og tefur fyrir gróandanum þar.
-K&H/Akureyri
Völsungur fékk
Víkurblaðsbikar
Völsungur og Tindastóll, sem bæði
leika í 2. deildinni í knattspyrnu, léku tvo
leiki á Húsavík fyrir skömmu. Völsungur
vann báða, 3-2 og 2-0, og hlaut fyrír vikið
Víkurblaðsbikarínn. KS frá Sigluflrði
átti að taka þátt í þessu Víkurblaðsmóti
en hætti við vegna samgonguerfíðieika.
-AB/Húsavík
KA varð sigurvegari í KR-mótinu í
knattspyrnu sem lauk um helgina með
úrslitaleik KA og Þórs. KA dugði jafn-
tefli en sigraði 1-0 og skoraði Steingrím-
ur Birgisson markið eftir skyndisókn tíu
mínútum fyrir leikslok. Lítið var um færi
í leiknum, Þórsarar fengu þau tvö bestu.
Þorvaldur Jónsson í KA-markinu varði
fyrst vei frá Jónasi Róbertssyni og síðan
skaut Bjarni Sveinbjörnsson yfir úr upp-
lögðu færi. Mikil barátta einkenndi
leikinn og jaðraði við slagsmál.
Fyrir helgi vann KA Vask 4-0. Njáll
Eiðsson skoraði úr tveimur vítaspyrnum
og Steingrímur og Erlingur Kristjánsson
gerðu sitt skallamarkið hvor. KA fékk
því 4 stig, Þór 2 en Vaskur ekkert.
-K&H/Akureyri
Guðjón missir
fyrstu leiki
Guðjón Guðmundson, hinn mark-
sækni leikmaður 1. deildarliðs Þórs í
knattspyrnu, meiddist illa f keppnisferð
liðsins á höfuðborgarsvæðið um mánaða-
mótin. Lærvöðvi slitnaði og hann missir
líklega af fyrstu leikjum Þórsara í 1.
deildinni. Miðvörðurínn Þórarínn Jó-
hannsson fór úr axlarlið í sömu ferð en
ætti þó að vera klár í slaginn þann 20.
maí.
-K&H/Akureyri
Sigurjón vann
Sigurjón Gíslason, Golfklúbbnum
Keili, sigraði í Snoker-open golfkeppn-
inni sem GK stóð fyrir á Hvaleyrarvellin-
um um heigina. Þetta var punktakeppni
og hlaut Sigurjón 75 punkta. Annar varð
Hörður Morthens, GR, með 72 punkta og
þriðji Magnús Jónsson, GS, einnig með
72 punkta.
Blakliðin á
Úrslit ráðast víða í Evrópu:_
Juventus, Benfica og
Feyenoord meistarar
Skjöldur áfram
Reynir með lið
Skjöldur Vatnar Bjömsson var endur-
kjörínn formaður Blaksambands íslands
er ársþing sambandsins var haldið í Þrótt-
heimum í Reykjavfk á laugardaginn.
Á þinginu kom fram að Reynir Ár-
skógsströnd mun leika í 1. deild karla
næsta vetur, ekki bið svonefnda lið
„Reynivíkur“ sem var sameiginlegt lið
Reynis og Dalvíkinga.
Stjóm BLÍ fékk heimild til að láta leika
í einni deild í karlaflokki næsta vetur ef
þátttaka gæfí tilefni til.
Maggi og kó
í 1. deildina
Magnús Bergs
og félagar í Real
Santander tryggðu
sér 1. deildarsæti í
spænsku knatt-
spyrnunni um
helgina er þeir
gerðu 0-0 jafntefli
við Elche i 2. deild.
Magnús verður
fyrsti íslendingur-
inn til að leika í
spænsku 1. deild-
inni.
Tveir austan-
menn til ÍS
Allt bendir til að bikarmeistarar ÍS I
blaki karla fái tvo unglingalandsliðsmenn
frá Neskaupstað, Martein Guðgeirsson
og Víði Ársælsson, til liðs við sig næsta
vetur.
Aberdeen
hætt komið
Nýkrýndir Skotlandsmeistarar í knatt-
spymu, Aberdeen, voru hætt komnir á
heimavelli gegn Hibernian f úrvals-
deildinni á laugardaginn. Edinborgarar
skomðu tvívegis með skömmu millibili og
vom þar að verki John Geachie og Brían
Wright. Billy Stark lagaði stöðuna fyrir
Aberdeen og þannig stóð fram á sfðustu
spyrnu leiksins er varamaðurínn Ian
Porteus jafnaði, 2-2.
Willie gamli Johnston jafnaði fyrir He-
arts sem gerði 1-1 jafntefli við Celtic.
Dundee United var hætt komið en gerði
2-2 jafntefli við St.Mirren. Enn var 2-2,
hjá Rangers og Dundee, en St. Johnstone
sigraði Motherwell 3-1 og getur enn hald-
ið sér uppi á kostnað Dundee.
Staðan þegar ein heil umferð er eftir í
úrvalsdeildinni:
Aberdeen..........33 25 5 3 76-18 55
Celtlc............35 21 7 7 79-40 49
Dundee United...33 18 9 6 65-36 45
Rangers...........33 14 10 9 51-40 38
Hearts............34 9 15 10 36-46 33
St.Mlrren.........35 8 14 13 52-57 30
Hibernian.........35 12 6 17 45-55 30
Dundee............34 10 4 20 47-73 24
SUohnstone........35 10 3 22 36-79 23
Motherwell........35 4 7 24 31-74 15
Morton og Dumbarton hafa tryggt sér
sæti í úrvalsdeildinni.
-AB/VS
Það var mikið um að vera víða á
meginlandi Evrópu um helgina. Úrslit
um meistaratitiana í Hollandi, Portúgal
og á Ítalíu réðust endanlega og í Belgíu
og á Spáni voru bikarmeistarar krýndir.
Juventus er ítalskur meistari og kem-
ur engum á óvart. Næstsíðasta umferðin
þar í landi var leikin á sunnudag og Ju-
ventus fékk Avellino í heimsókn. Paolo
Rossi kom Juventus yfir í fyrri hálfleik
eftir sendingu frá Zbigniew Boniek hin-
um pólska en Avellino tókst að jafna í
síðari hálfleik. Það kom ekki að sök,
jafnteflið dugði Juventus til sigurs. Fyrir
síðustu umferðina er Juventus með 43
stig en fráfarandi meistarar AS Roma
með 39; þeir síðarnefndu gerðu 2-2 jafn-
tefli við Fiorentina. Luther Blissett,
enska landsliðsmanninum, tókst að
komast á blað, skoraði sigurmark AC
Mílanó gegn Pisa, 2-1.
Benfica tryggði sér portúgalska
meistaratitilinn með því að gera 1-1
jafntefli við Sporting Lissbon í
næstsíðustu umferð. Sporting hafnaði í
þriðja sæti deildarinnar en það telst
meirháttar áfall í þeim herbúðum.
Framkvæmdastjórinn, Josef Venglos,
rekinn og John Toshack, sá kunni Wal-
esbúi, er talinn líkelgasti arftaki hans.
Feyenoord kom hollenska titlinum
endanlega í höfn, það var nánast form-
satriði, en liðið vann Willem Tilburg 5-
0. PSV Eindhoven tryggði sér annað
Zola Budd - myndin var tekin í fyrsta
hlaupi hennar í Bretlandi fyrir skömmu en
þar notaöi hún hlaupaskó í fyrsta skipti.
Paolo Rossi - þýðingarmikiö mark.
sætið með 6-1 sigri á Den Bosch en Ajax
tapaði fyrir Spörtu frá Rotterdam og má
gera þriðja sætið sér að góðu.
Hrikalegur hasar
á Spáni
Bikarúrslitaleikurinn á Spáni, milli
Atletico Bilbao og Barcelona, er einn sá
hrikalegasti sem um getur. Allt logaði í
illindum, „slátrarinn“ Goicoechea hjá
Bilbao sem braut Maradona fyrr í vetur,
sparkaði hressilega í hann öðru sinni
þannig að þræða þurfti í iegg þess arg-
entínska með tveimur sporum. Bilbao
vnn leikinn 1-0 og sigraði því tvöfalt,
bæði deild og bikar. Keppni í deildabik-
arnum hófst á Spáni á sunnudaginn og
þá gerðu Madrid-liðin Atletico og Real
jafntefli, 1-1, í 1. umferð.
Gent er belgískur bikarmeistari, sigr-
aði Standard Liege 2-1 í úrslitaleiknum.
Standard var án þeirra 7 leikmanna sem
dæmdir voru í keppnisbann vegna mút-
umálsins en var þó alls ekki langt frá
sigri. Einn sökudólganna, Jos Derden,
hefur reyndar verið seldur til Roda í
Hollandi en þeir mega leika utan Belg-
íu.
Monaco og Metz leika til úrslita um
franska bikarinn. í undanúrslitunum um
helgina tapaði Monaco 1-2 í Toulon en
sigraði 5-3 samanlagt. Metz sigraði
Nantes 1-0 og komst áfram á útimarki,
tapaði fyrri leiknum í Nantes 1-2.
-VS
Gott hlaup
Zolu í Osló
Zola Budd, hin 17 ára umdeilda
suður-afríska stúlka sem fékk breskan
rikisborgararétt á mettíma fyrir
skömmu éins og frægt er orðið, varð
þriðja í frábæru 10 km götuhlaupi I Osló
um helgina. Tvær norskar stúlkur urðu
á undan henni, Ingrid Christiansen og
Grete Waitz, heimsmethafinn í mara-
þonhlaupi kvenna.
Þær þrjár voru hnífjafnar þar til 2 km
voru eftir. Þá kom erfið brekka og í
henni stakk Ingrid hinar af og lauk
hlaupinu á 31, 29 mín. sem er besti tími
konu í heimi á þessari vegalengd. Ekki
viðurkennt heimsmet þar sem hlaupið
er á götum, upp og niður erfiðar brekk-
ur og í ótal krókum. Zoia fékk tímann
31,42 mín. sem er það besta sem svo ung
stúlka hefur náð fyrr eða síðar. Góð
frammistaða hjá henni, aðalgreinar
hennar eru 3000 og 5000 m hlaup.
-VS
NM í haust
Landsiið karla óg kvenna í blaki taka
þátt í Norðurlandamótunum í haust.
Karlarnir keppa í Osló í konurnar á Á-
landseyjum. Mótin fara fram á sama
tíma, í byrjun október. Þá mun ÍS halda
Háskólamót Norðurlanda í blaki og
körfuknattleik í lok september. Að auki
eru fyrírhuguð aukin samskipti við Fære-
yinga þannig að næg vcrkefni blasa við
blakfólki.
Gísli til ÍBÍ
Gísli Magnússon frá Vestmannaeyjum
hefur tekið við þjálfun 2. deildarliðs ís-
firðinga í knattspyrnu en Martin Wilkin-
son, hinn enski þjálfari þeirra hætti við að
koma til þeirra öðru sinni. Gísli hefur
tvívegis áður þjálfað þar vestra.
Siggi með tvö
Slguröur Grét-
arsson.
Sigurður Grét-
arsson, knatts-
pyrnumaðurinn
kunni úr Kópavog-
inum skoraði tví-
vegis fyrir Tennis
Borussia Berlín
um helgina er liðið
vann 3-1 sigur á
Spandauer í áhug-
amannadcildinni
vestur-þýsku.
Tennis Borussia er
í öðru sæti í sínum
riðli en á litla
möguleika á að ná efsta sætinu og komast
í úrslitakeppnina um 2. deildarsæti.
Ormond látinn
Willie Ormond, fýrrum landsliðs-
einvaldur Skota í knattspyrnu, er látinn,
59 ára að aldri. Hann lék sjálfur með
Hibemian og spilaði sex landsleiki fyrír
Skotlands hönd á árunum 1954-59 en var
eftir það framkvæmdastjóri hjá nokkrum
skoskum liðum og landsliðinu.
Ford verður að
sitja heima
_ Michelle Ford, eini gullverðlaunahafl
Ástrala í einstaklingsgrein í sundi á Ól-
ympíuleikunum í Moskvu, verður að sitja
heima þegar leikarnir í Los Angeles í
sumar fara fram. Ólympíunefnd Ástralíu
valdi hana ekki til fararinnar og miðaði
þá við árangur á úrtökumóti sem fram fór
fyrír tveimur mánuðum. Þá var Ford illa
upplögð en hefur síðar náð fímmta besta
tima í heimi í 800 m skriðsundi á þessu
ári. Samt vill nefndin ekki endurskoða
afstöðu sína og lýsti þvi yflr nú um helgina
að til þess að komast á leikana yrði Ford
að gjöra svo vel og setja eitt stykki heims-
met nú á næstunni.
Andrés þjálfar
Léttismenn
Andrés Krístjánsson, fyrrum leikmað-
ur með ÍBÍ, FH og Víkngi í knattspym-
unni, þjálfar 4. deildarlið Léttis úr
Reykjavík í sumar og leikur jafnframt
með því.
Þriðjudagur 8. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Magnús áfram
með Ólsarana
Magnús Teitsson (til vinstri)
hefur verið endurráðinn þjálfari
hjá 3. deildarliði Víkings, Ólafs-
vík, í knattspyrnu. Víkingur
hafnaði í 6. sæti SV-riðils 3.
deildar sl. sumar.
Einvígi HSV og Stuttgart um vestur-þýska meistaratitilinn framundan:
Öruggur sigur
hjá Sigfúsi
„Ég er þokkalega ánægður með þennan tíma, hann er um hálfri
mínútu frá Islandsmeti Ágústs Ásgeirssonar á þessari vegalengd. Mót-
vindur á Kleppsvegi setti strik í reikninginn og þá fékk ég enga keppni
um efsta sætið,“ sagði Sigfús Jónsson, hinn gamalreyndi hlaupari úr ÍR
eftir að hafa sigrað á Mcistaramóti íslands í 25 km götuhlaupi á
sun nudagsmor gun inn.
Hlaupið fór fram í austurhluta Reykjavíkur, byrjað og endað á
Laugardalsvellinum. Sigfús fékk tímann ein klukkustund, 23,59 mín-
útur. Steinar Friðgeirsson, ÍR, varð annar á 1:26,07 klst. og Stefán
Friðgeirsson, ÍR, þriðji, 8 mínútum á eftir Steinari. Fimmtán manns
luku keppni en 17 lögðu af stað.
Þetta hlaup fór nú í fyrsta skipti fram í Reykjavík, var haldið á
Hvolsvelli í fyrra og á Suðurnesjum þar á undan. Astæðan var sú að í
sumar fer Kalott-keppnin fram í Reykjavík og þá þyrfti 25 km hlaupið
að vera haldið innan borgarmarkanna. Brautin reyndist vel og verður
sennilegast notuð í Kalott-keppninni, er reyndar sú eina í Reykjavík
sem kemur til greina. _vs
„Þið getið haldið áfram
að grenja í Miinchen“!
Alfreð mistókst vítið
og Essen varð númer tvö - Kiel í fjórða sæti
Frá Jóni H. Garðarssyni
fréttamanni Þjóðviljans í
v.Þýskalandi:
Ásgeir Sigurvinsson er heldur
betur í formi þessa dagana eins og
lið hans, Stuttgart. Félagið heldur
efsta sætinu í vestur-þýsku Bund-
esligunni í knattspyrnu eftir 5-1
sigur á Kickers Offenbach á föstu-
dagskvöldið og skoraði Asgeir tvö
markanna. Hann var valinn í lið
vikunnar í níunda skiptið í vetur
hjá Kicker, því virta íþróttablaði.
Bild tók sig einnig til og lofaði
Ásgeir í hástert. „Þið getið haldið
áfram að grenja í Múnchen“, skrif-
aði einn íþróttafréttamanna blaðs-
ins og enn er því stráð salti í sár
Bayern Múnchen sem seldi Ásgeir
til Stuttgart. Blaðið greip líka
gömlu rulluna sem gengið hefur
um allt í vetur og sagði að því miður
fyrir vestur-þýska landsliðið væri
besti leikmaður Bundesligunnar
íslendingur.
Ásgeir lék mjög vel og hann og
Guido Buchwald voru bestu menn
Stuttgart. Þeir eru nú ávallt sam-
herjar í liði vikunnar hjá Kicker.
Ásgeir átti góðar sendingar og
sýndi einnig ýmiskonar brögð, svo
mjög að sum blöðin lýstu leik hans
sem hreinni sýningu. Hann gerði
tvö síðustu mörkin, það fyrra úr
vítaspyrnu en þá hafði Peter
Reichert verðið brugðið eftir góða
sendingu Ásgeirs, og það síðara
Aukastig
Valsara
Valur fékk dýrmætt aukastig á
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í
gærkvöldi, vann þá Fylki 3-1 á
Melavellinum. Valsmenn standa
því mjög vel að vígi í mótinu. í
kvöld mætast Víkingur og Þróttur.
eina ferðina enn, og skoraði að
vanda, á 76. mínútu. Spennan eftir
það var gífurleg en með Stein hinn
sjalla sem bakhjarl hélt HSV út.
Atli Eðvaldsson náði að skora
mark er Fortuna Dússeldorf tapaði
3-4 heima gegn Bremen. Það var
fyrsta mark leiksins, úr vítaspyrnu,
en Atli fékk laka dóma fyrir
leikinn, hlaut 5 í einkunn. Neu-
barth kom Bremen yfir með
tveimur mörkum en Fach jafnaði
íyrir Dússelforf, 2-2. Meier og Lel-
lek komu þá Bremen í 2-4 en Fach
lagaði stöðuna fyrir heimaliðið á
síðustu mínútu leiksins.
Önnur útslit urðu þessi:
Bielefeld-Braunschwelg 0-0
Frankfurt-Núrnberg 3-1
Kaiserslautern-Köln 2-2
Uerdingon-Bochum 1-2
Leverkusen-Mannhelm 0-1
Staða efstu liða er þessi:
Stuttgart.........31 18 9 4 75-29 45
Hamburger.........31 19 6 6 68-33 44
Bayern............31 18 6 7 75-36 42
M.GIadbach........31 18 6 7 69-46 42
Bremen............31 17 7 7 69-40 41
Þrjár umferðir eru eftir og því má
segja að baráttan um meistaratitil-
inn sé orðin að einvígi milli Stutt-
gart og Hamburger. Liðin mætast í
lokaumferðinni í Stuttgart þann
26. maí og það gæti hæglega orðið
hreinn úrslitaleikur. Um næstu
helgi leikur Stuttgart heima gegn
Frankfurt, sem er í þriðja neðsta
sæti, en Hamburger sækir
botnliðið Núrnberg heim. í
næstsíðustu umferð á svo Stuttgart
erfiðan heimaleik í Bremen en
Hamburger leikur þá heima við
Frankfurt. Takist Stuttgart að sigra
Frankfurt og ná öðru stiginu eða
báðum í Bremen, dugir liðinu jafn-
tefli við Hamburger til að hreppa
meistaratitilinn. Vinni Hamburger
báða og Stuttgart tapi í Bremen
dugar Hamburger hins vegar jafn-
tefli í þeim leik. Líkurnar á
hreinum úrslitaleik virðast vera 90
prósent og vel það en vestur-þýsku
blöðin vilja flest meina að Hamb-
urger muni ná meistaratitlinum
vegna mikillar reynslu.
-JHG/VS
Janus að
ná sér
Frá Jóni H. Garðarssyni
fréttamanni Þjóðviljans í
V.Þýskalandi:
Janus Guðlaugsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, er óðum að
ná sér eftir meiðslin sem hann varð
fyrir snemma í vor. Hann losnaði
úr gipsi fyrir nokkru og er farinn
að skokka til að koma sér í gang á
ný. Hann mun þó ekki leika meira
með Fortuna Köln í 2. deildinni á
þessu keppnistímabili; félagið er í
níunda sæti og hefur ekki að neinu
að keppa þannig að Janus stefnir á
að ná sér algerlega. Hann á eitt ár
eftir af samningi sínum við félagið
og nokkur bjartsýni ríkir í herbúð-
um þess fyrir næsta vetur. Margir
lykiimenn hafa verið meiddir að
undanförnu og það kom í veg fyrir
að liðið blandaði sér í baráttuna
um sæti í Bundesligunni.
hreppti þá annað sætið. Lemgo, lið
Sigurðar Sveinssonar, beið lægri
hlut gegn Hofweier, 22-21, Sigurð-
ur og Schuppl voru markahæstir í
liði Lemgo, gerðu 5 mörk hvor og
báðir 3 þeirra úr vítaköstum.
Góður sigur
hjá Fam!
Framarar styrktu stöðu sína á
Reykjarvíkurmótinu í knattspyrnu
á sunnudaginn er þeir sigruðu Vík-
inga 2-1 á Melavellinum. Ómar Jó-
hannsson skoraði fyrir Fram í fyrri
hálfleik en Ómar Torfason jafnaði
fyrir Víking úr vítaspyrnu um
miðjan þann síðari. Tíu mínútum
fyrir leiksiok tryggði Kristinn Jóns-
son síðan Frömurum sigur og eftir
það óðu þeir bláklæddu í dauða-
færum án þess þó að bæta við
markatöluna.
Á laugardaginn áttust við KR og
Ármann og mörðu KR-ingar 2-1
sigur á 4. deildarliðinu baráttu-
glaða. Gunnar Gíslason skoraði
sigurmark KR-inga í leiknum en
þeir léku án þriggja leikmanna sem
voru að taka út eins leiks bann,
höfðu allir verið reknir útaf í
leikjum mótsins. _VS
með „poti“ af stuttu færi. Hans-
Peter Makan, Buchwald og
Reichert sáu um hin þrjú mörkin.
Sjónvarpið lét sitt ekki eftir liggja í
hrósyrðunum um Ásgeir, annað
eins hól hefur vart heyrst um einn
leikmann úr þeim herbúðum.
HSV heppið
Hamburger SV vann geysiþýð-
ingarmikinn 2-1 sigur á Bayern
Múnchen í Hamborg og veitir því
Stuttgart keppni um meistaratitil-
inn, eitt liða úr þessu;
Mönchengladbach fékk skell í
Dortmund, 4-1, og voru leikmenn
liðsins greinilega þreyttir eftir
bikarleikinn mikla gegn Bremen í
síðustu viku.
Sigur Hamburger var með
nokkrum heppnisbrag og Uli Stein
markvöruður liðsins sýndi stór-
brotna markvörslu. Hann var val-
inn maður dagsins af Kicker og ein-
kunninn var einn, heimsklassi.
Leikmenn Bayern mættu til leiks í
brasilíska landsliðsbúningnum en
það dugði ekki til. Jimmy Hartwig
hjá Hamburger sýndi þeim „Bras-
ilíutakta" er hann kom liði sínu yfir
í fyrri hálfleik; vippaði boltanum
yfir varnarmann og negldi síðan í
netið hjá Bayern. Manfred Kaltz
kom síðan HSV í 2-0 úr vítaspyrnu
eftir að Milewski hafði verið
brugðið. Dieter Höness kom þá
inná sem varamaður hjá Bayern,
Frá Jóni H. Garðarssyni
fréttamanni Þjóðviljans:
Essen, lið Alfreðs Gíslasonar,
missti naumlega af vestur-þýska
meistaratitlinum, tapaði 13-11
fyrir Schwabing á útivelli í loka-
umferðinni. Sigur í leiknum hefði
þýtt sigur í deildinni fyrir Essen og
fímm mínútum fyrir leikslok í
stöðunni 11-11 var Alfreð falið að
taka vítakast. Markvörður Schwa-
bing varði og heimaliðið gerði tvö
síðustu mörkin. Alfreð gerði 3
mörk í leiknum.
Grosswallstadt tryggði sér á
meðan meistaratitilinn, sigraði
Gummersbach 18-16 á heimavelli.
Schwabing hafnaði í þriðja sætinu
en Kiel, undir stjórn Jóhanns Inga
Gunnarssonar, sigraði Dankersen
20-17 og náði þar með fjórða sæt-
inu. Góður árangur hjá Jóhanni
Inga en í fyrra kom Kiel mjög á
óvart undir hans handleiðslu og
Sigfús Jónsson á lokaspretti 25 km hlaupsíns á sunnu
daginn. Mynd: - eik.