Þjóðviljinn - 15.05.1984, Síða 1
Þriðjudagur' 15. maí 1984 ÞJÓÐVILiliNN *-• SÍÐA 9
Viðir Sigurðsson
Umsjon:
Cruyff
hættur
„Þetta er sorgardagur fyrir Feyeno-
ord og hollenska knattspyrnu," sagði
formaður hinna nýbökuðu tvöfoldu
meistara i Hollandi, Feyenoord, á sunn-
udaginn eftir að liðið hafði unnið
Zwolle 2-1 í síðustu umferðinni þar í
landi.
Sorglegt að sigra? Nei, ekki beint, en
snillingurinn Johan Cruyff hefur ákveð-
ið að hætta að leika knattspyrnu, 37 ára
gamall, og þetta var svanasöngurinn
hans. Þessi frábæri leikmaður, sem var
kjörinn þrívegis knattspyrnumaður
Evrópu á löngum og glæsilegum ferli
sínum, treystir sér ekki lengur að
standa í þessum stórræðum. Hann
kvaddi þó með stfl, var maðurinn á bak
við sigur Feyenoord í deild og bikar og
skoraði annað marka liðsins í loka-
leiknum. -VS
Sovetmenn
staðfesta
Sovétmenn staðfestu endanlega í
gær að þeir myndu ekki taka þátt í
Olympíuleikunum í Los Angeles í
sumar. Boðað var til blaðamanna-
fundar í Moskvu og var honum
sjónvarpað beint til Bandaríkjanna
og þar tilkynnti Marek Gramov,
formaður sovésku Olympíunefnd-
arinnar, að Sovétmenn myndu ekki
skipta um skoðun héðan af.
Gramov neitaði ásökunum um
að Sovétmenn væru að hefna sín
fyrir að Bandaríkjamenn skyldu
ekki mæta á leikana í Moskvu fyrir
fjórum árum. Hann sagði að þrátt
fyrir þetta, myndu Sovétmenn
senda fulltrúa á fund Alþjóða Ól-
umpíunefndarinnar í Lausanne í
Sviss á föstudaginn og ræða við
Samaranch forseta hennar. Samar-
anch bíður þess að fá áheyrn hjá
Chernenko forseta Sovétríkjanna.
Þá vísaði hann á bug fullyrðingum
þess efnis jið Austur-Evrópuþjóð-
irnar hygðust halda mikið íþrótta-
mót í Búlgaríu á sama tíma og Ól-
Ögmundur Krlstlnsson
Víkingar
í vanda
1. deildarlið Víkings í knatt-
spyrnu á í mikium markvarðar-
vandræðum þessa dagana. Ög-
mundur Kristinsson markvörður
er meiddur, lék þannig í Reykja-
víkurmótinu fyrir stuttu og lask-
aðist enn frekar. Varamaður
hans, Jón Otti Jónsson, er við-
beinsbrotinn en hann er aðal-
markvörður 2. flokks. Þá stendur
eftir óreyndur piltur, Axel, sem
er varamarkvörður í 2. flokki og
útlit er fyrir að hann verði í peysu
númer 1 þegar Víkingur mætir
KR í fyrsta leik Islandsmótsins á
fimmtudagskvöldið. - F/VS
Keegan
kvedur:
ympíuleikarnir stæðu yfir í Los
Angeles.
Víetnam, Lagos, Mongólía og
Afghanistan bættust um helgina í
hóp þeirra þjóða sem tilkynna að
þær muni fara að dæmi Sovét-
manna og sitja heima og búist er
við sams konar yfirlýsiqgum frá
Ungverjum, Pólverjum og Kúbu-
mönnum á hverri stundu. Yfirlýs'
ingin frá Asíuríkinu Lagos var á
annan hátt en frá öðrum þjóðum-
Lagosmenn sögðust ekki senda
keppendur á leikana þar sem hætta
væri á að þeirra íþróttafólk þyrfti
að etja kappi við bandaríska kepp-
endur á leikunum og slíkt vildu þeir
forðast!
Mullery farinn
frá Cr.Paláce
Alan Mullery hætti í gær störfum
sem framkvæmdastjóri hjá enska
knattspyrnuliðinu Crystal Palace
eftir tveggja ára dvöl. Paláce olli
mikium vonbrigðum í 2. deild sl.
vetur og lenti í fimmta nejðsta sæt-
Norður-
landa-
met!
45,36
OddurSigurðsson, ,
hlauparinn snjalli úr KR, er svo
sannarlega í ham þessa dagana.
Hann setti glæsilegt
Norðurlandamet í 400 m hlaupi
karla á frjálsíþróttamóti i
Austin í Texas á laugardaginn,
hljóp á 45,36 sek. og varð þriðji
í hlaupinu. A undan honum
urðu tveir sterkir
Bandaríkjamenn; Rod Jones
sigraði á 44,94 sek. sem er besti
tími í heiminum í ár og Alan
Ingram varð annar á 45,27 sek.
Oddur hefur þegar verið
valinn til keppni á
Ólympíuleikunum í Los Angeles
í sumar. Hann setti íslandsmet
hálfum mánuði fyrr, 28. apríl,
Oddur
Sigurðsson.
45,69 sek. og hefur þvl meira en
réttlætt útnefningu sína á
leikana. Oddur hefur sýnt
miklar framfarir á þessu ári og
með þessu áframhaldi er hann
til alls líklegur í sumar.
-VS
Ingi Þór Jónsson.
Ingi Þór utnefndur
Ingi Þór Jónsson frá Akranesi var um helgina út-
nefndur sem þriðji maður á lista Sundsambands ís-
lands fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles í sumar. Á
flmmtudag yar tilkynnt að Tryggvi Helgason og Guð-
rún Fema Ágústsdóttir myndu keppa fyrir Islands
hönd á leikunum og þá var einnig opinberað að Sund-
sambandinu hefði verið veittur viðbótarstyrkur að
upphæð kr. 20 þúsund án þess að tilgreint væri að
hann yrði látinn renna til ákveðins einstaklings. Það
má því telja fullvíst að Ingi Þór keppi á leikunum í Los
Angeles, en endanleg blessun Ólymípunefndar íslands
er enn ekki fyrir hendi. Talsverð átök voru innan
Sundsambandsins um hver skyldi skipa þriðja sætið á
listanum sem mjög hefur verið umdeildur meðal sund-
fólksins sjálfs. Ölymípunefnd á eftir að tilgreina fjóra
keppendur á leikana en líklegustu kandídatar á eftir
Inga Þór eru frjálsíþróttamennirnir Óskar Jakobsson
og Þráinn Hafsteinsson ásamt lyftingamanninum Har-
aldi Ólafssyni.
- VS
Lewis yfir 8,90 en
hárfínt ógilt!
Carl Lewis, bandaríski undramaðurinn, náði besta heimsárangr-
inum í langstökki karla á þessu ári í gær, stökk þá 8,71 m á móti í
Los Angeles. Lewis stökk 8,79 m í fyrra og er það hið næsta sem
nokkur hefur komist heimsmetinu „ódauðlega", 8,90 metrum, sem
Bob Beamon setti í Mexikó fyrir 16 árum. Lewis virtist setja heims-
met á mótinu, sveif yfir 8,90 m markið, en gerði hárflnt ógilt. Það
virðist aðeins tímaspursmál hvenær hann rýfur múrinn á löglegan
hátt. *
„Eins og ég væri að deyja“
Kevin Keegan, frægasti knattspyrnumaður
Bretlandseyja síðasta áratuginn og knattspyrnu-
maður ársins i Evrópu 1978 og 1979, lék sinn
síðasta leik i ensku knattspyrnunni á laugardag-
inn. Newcastle vann þá Brighton 3-1 að viðstödd-
um 37 þúsund áhorfendum á St James Park og
Keegan sjálfur skoraði fyrsta mark leiksins þótt
vafi væri á fram á síðustu stundu að hann gæti
leikið með vegna meiðsla.
Eftir leikinn voru senurnar á St. James Park ólýsan-
legar, Keegan var kvaddur með miklum grátstöfum
þannig að annað eins hefur vart sést. „Eg fylgdist
með klukkunni þegar dró að leikslokum og hugsaði
með mér, nú eru tíu mínútur eftir af ferlinum, nú eru
fimm eftir... Viðbrögð áhorfenda í leikslok voru ótrú-
leg, fólk sem er margfalt verr stætt en ég streymdi a b
með gjafir og kveðjuorð. Þetta var eins og ég væri ao
deyja, en ég er einungis að hætta að leika knatt-
spyrnu! En Newcastle er komið í 1. deild og ég vona
að liðinu vegni þar vel næsta vetur", sagði Keegan
sem nú ætlar að leggja fyrir sig hestamennsku. Á þar
þó mikið ólært að eigin sögn. -VS
Geir með
Stjörnuna
Geir Hallsteinsson var um helg-
ina ráðinn þjálfari hjá 1. deildarliði
Stjörnunnar í handknattleik. Geir
þarf ekki að kynna, hann var um
áraraðir okkar besti handknatt-
leiksmaður og hann hefur þjálfað
undanfarin ár með góðum árangri.
Undir hans stjórn var FH yfirburð-
alið I íslenskum handknattleik sl.
vetur og Stjanan hefur heldur betur
sett I feitt með þessari ráðningu.
Bróðir Zicos
með Brassana
Bróðir hins fræga Zico, Edu að
nafni, hefur verið ráðinn þjáifari
Brasilíska knattspyrnuliðsins til
reynslu. Ef hann stendur sig í
leikjunum gegn Englandi og fleiri
þjóðum í júlí verður hann ráðinn
framyfir næstu heimsmcistara-
keppni. Edu þjálfar brasilíska fé-
lagið Vasco de Gama.
-VS