Þjóðviljinn - 13.06.1984, Síða 1
Miðvikudagur 13. júnl 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu:
Platini létti press-
unni af Frökkunum
Michel Platini sýndi í gærkvöldi
eina ferðina enn hversu dýrmætur
hann er franska landsliðinu í
knattspyrnu. Mark hans ellefu
mínútum fyrir leikslok gegn
Dönum á Parc-de-Princes
leikvanginum í París létti mikilli
pressu af Frökkum í riðlakeppni
úrsli tanna á EM - þeir þurfa að
sigra í riðlinum til að leika til
úrslita um Evrópumeistaratitilinn
og líkurnar á því jukust til muna
við 1-ð sigrinum í gærkvöldi.
3. deild
í knattspyrnu:
Leiftur
í efsta
sætið
Nýliðar Leifturs frá Ólafs-
firði tóku forystuna í NA-riðli 3.
deildarinnar í knattspyrnu á
föstudag er þeir unnu góðan
sigur á HSÞ-b, 2-1, í Mývatns-
sveitinni. Hafsteinn Jakobsson
skoraði sigurmark Leifturs
fimm mínútum fyrir leikslok,
með skalla segja Olafsflrðingar
sem horft hafa á atvikið af
myndbandi, með hendi segja
Mývetningar. Halldór Guð-
mundsson hafði komið Leiftri
yfir í fyrri hálfleik en Jón Gísla-
son jafnað fyrir HSÞ-b í þeim
seinni.
Mývetningar fengu síðan
uppreisn æru í fyrrakvöld er
þeir unnu óvæntan 2-1 sigur yfir
Hugin á Seyðisfirði. Ari Hall-
grímssonkom HSÞ-b yfir, Þórir
Olafsson jafnaði fyrir Hugin en
Þórhallur Guðmundsson
tryggði Mývetningum stigin
þrjú. Öll mörkin komu á
fimmtán mínútna kafla kring-
um miðbik seinni hálfleiks.
Austri vann Val frá Reyðar-
firði 3-0 á Eskifirði í gærkvöldi.
Þetta var baráttuleikur en sigur
Austra var fyllilega sanngjarn.
Sigurjón Kristjánsson skoraði
fyrst, 1-0 í hálfleik, en Bjarki
Unnarsson og Guðmundur
Árnason bættu við markatöl-
una í seinni hálfleik. Staðan í
NA-riðli er þá þannig:
Leiftur.............3 2 1 0 4-2 7
Austri..............4 1 3 0 6-3 6
Magni...............3 1 2 0 4-2 5
HSÞ-b...............4 12 15-55
Þróttur N...........2 0 2 0 3-3 2
Huginn..............3 0 2 1 4-5 2
ValurRI.............3 0 0 3 0-6 0
Grindavík og Fylkir gerðu
jafntefli, 1-1, í SV-riðlinum í
gærkvöldi. Sanngjörn úrslit,
Fylkir átti fyrri hálfleik og
komst yfir með marki Halldórs
en í þeim seinni sóttu Grindvík-
ingar látlaust og þá jafnaði
Hjálmar Hallgrímsson úr vít-
aspyrnu. Þetta eru fyrstu stigin
sem Fylkismenn tapa í riðlinum
en þeir eru áfram efstir með 10
stig gegn 7 hjá Víkingi Ólafsvík
og Reyni Sandgerði.
-Ig/VS
Danir vörðust vel og eiga hrós
skilið fyrir baráttuvilja sinn. Þeir
voru einnig ávallt hættulegir í
upphlaupum sínum, Preben El-
kjær átti tvær góðar marktilraunir,
Frank Arnesen og Klaus Berggren
eina hvor. En undiralda leiksins
var frönsk og eftir því sem á leið var
það aðeins spurning hvort Frakkar
héldu haus þegar markið lét á sér
standa, eða létu örvæntinguna yfir-
buga sig. Mark Platini kom á síð-
ustu stundu, það hefði getað reynst
Frökkum um megn að reyna að
knýja fram sigur á allra síðustu
mínútum leiksins.
Franska liðið lék á köflum skín-
andi knattspyrnu, hraður sam-
leikur og frábær knatttækni ein-
kenna leik þess. En eitt gæti orðið
þeim að falli; í þeirra herbúðum er
treyst á að miðjumennirnir snjöllu,
Platini, Tigana, Giresse og Fern-
andez sjái um mörkin því framherj-
inn er einungis einn, Lacombe. Út-
herjinn Bellone er fljótur og
skemmtilegur leikmaður en hann
er fyrst og fremst „matari“, hans
verkefni er að koma boltanum fyrir
markið. Vörnin er sterk en bræði
bakvarðarins Amarosar í lokin er
hann skallaði Jesper Olsen og fékk
fyrir það rauða spjaldið gæti reynst
dýrkeypt. Amaros er geysilega
fljótur og snjall bakvörður sem á
drjúgan þátt í mörgum sóknar-
lotum. Hann og Femandez voru
bestir Frakkanna í leiknum ásamt
Giresse.
Danir byggðu leik sinn útfrá
hörkugóðri vöm, þrír miðverðir og
einn bakvörður því vinstra megin (t
þurftu þeir ekki fastan bakvörð.
Lauridsen var síðan fimmti varnar-
maður þeirra í seinni hálfleik og
stóð sig með prýði. Ole Quist lék
frábærlega í markinu og gat ekkert
gert við sigurmarki Platinis.
Frammi var Elkjífr hættulegur og
danska liðið í heild er skipað mjög
góðum leikmönnum. En gegn
Belgum og Júgóslövum verða þeir
að sækja, leika til sigurs, og það
gæti reynst þeim erfitt og jafnvel
komið í veg fyrir að þeim takist að
vinna leik á mótinu. -VS
Simonsen brotinn!
Eíns og við sáum i beinu sjónvarpsútsendingunni frá leik
Frakka og Dana i Evrópukeppninni í knattspyrnu i gærkvöldi, var
Allan Simonsen, litli danski knattspyrnusnillingurinn, borinn af
leikvelli rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Hann var greinilega sárþjáður,
og það var ekki furða - í ljós kom að hann er fótbrotinn! Sperri-
leggurinn fór í sundur og hann heldur heim til Danmerkur í dag.
Mikið áfall fyrir Dani og ekki síst fyrir Simonsen sjáifan, úrslita-
keppnin í Frakklandi hefði verið glæsilegur endapunktur á
löngum ferli hans. , _ vS
2. deild í knattspyrnu:
Kristján Kristjánsson átti sannkallaöan stjörnuleik þegar
Þórsarar rótburstuðu KR-inga 5-2 á Laugardalsvellinum í
fyrradag. Sagt er frá leiknum og öörum í 1. deild á bls.
10-11. Mynd; -eik.
KSkáöl WP
__I m
■uð «
■ ■ b œ ® m
m IhiI
|T' “Ki 11 m w n IH l1 I
HOy>i wk 'é y» i HI h
Ingi Björn með tvö skallamörk - stórsigur Borgnesinga gegn Víði
Völsungur-Einherji 2-2
„Stig er alltaf stig, en við hefðum vel
þegið ÖU þrjú“, sagði Hreiðar Sig-
tryggsson þjálfari og markvörður Ein-
herja í samtali við Þjöðviljann eftir
leikinn. Vopnfirðingar fengu þarna sitt
fyrsta stig f 2. deildinni í ár, þeir áttu
það skilið fyrir mikla baráttu en Völs-
ungar sýndu þó betri knattspyrnu f
leiknum sem var slakur, enda leikinn á
þungum grasvelli. „Við spiluðum iUa,
þetta var með þvf slakara hjá okkur í
ár“, sagði Völsungurínn Helgi Helga-
son.
Jón Gíslason, vamarmaður Ein-
herja, var nánast úti á miðjum Skjálf-
andaflóa þegar hann gerði fyrsta mark-
ið á 17. mínútu. Hann tók aukaspyrnu á
eigin vallarhelmingi, Gunnar Straum-
land markvörður Völsungs varði skot
hans en fór með boltann innfyrir mark-
línuna að mati línuvarðar. Hinn línu-
vörðurinn kvittaði síðan fyrir tveimur
mínútum seinna, Hreiðar í Einherja-
markinu hélt þá ekki skoti Sigurgeirs
Stefánssonar og línuvörðurinn dæmdi
mark, 1-1.
Á 70. mínútu komst Einherji yfir á ný
er Stefán Guðmundsson skallaði í net
Völsunga eftir aukaspymu á hliðarlínu
(hún var dæmd vegna tveggja mínútna
þrákelkni línuvarðar!) en Kristján Ol-
geirsson jafnaði fyrir Völsung 7 mínút-
um fyrir leikslok, með stórglæsilegu
skoti úr aukaspymu af 35 m færi.
Framherjarnir lipm hjá Einherja,
Gísli Davíðsson og Baldur Kjartans-
son, vora bestir sinna manna en Krist-
ján og Hannes Karlsson hjá Völsung-
um.
-AB/Húsavík
Tindastóll-IBÍ 1-3
Eftir daufan fyrri hálfleik rifu ísfirð-
ingar sig í gang í þeim seinni og skoraðu
þrjú mörk á hans fyrstu 22 mínútum.
Kristinn Kristjánsson skoraði fyrst, síð-
an Atli Einarsson, og loks Guðmundur
Jóhannsson með góðu skoti eftir að
Tindastólsmenn höfðu lagt færið snyrti-
lega upp fyrir hann.
Þetta var þokkalegur leikur og Tind-
astóll hafði undirtökin undan golu og
úða í fyrri hálfleik. Birgir Rafnsson
skallaði í slá ísafjarðarmarksins á 8.
mínútu og átti gott skot sem var varið í
hom þremur mínútum síðar. Eftir
markasúpu ísfirðinga eftir hlé réttu
heimamenn aftur úr kútnum og Björn
Sverrisson minnkaði muninn í 1-3.
Vörn Tindastóls vargóð í leiknum en
framlínan léleg. Lið ísfirðinga spilaði
fast og barðist í seinni hálfleik og knúði
á því fram sigurinn.
-PS/Sauðárkróki
FH-KS 2-0
FH-ingar tryggðu sér þrjú dýrmæt
stig með 2-0 sigrí á KS á Kaplakríka í
gærkvöld. Ingi Björn skoraði bæði
mörkin með skalla, eftir aukaspyrnur.
Fyrra markið kom á 16. mínútu.
Viðar tók aukaspyrnu og Ingi Björn á
réttum stað og skallaði stöngin inn. KS-
menn réðu lengstum lögum og lofum á
miðjunni en þeim gekk erfiðlega að
skapa sér færi. Þó áttu þeir eitt skot í
þverslá í fyrri háfleik.
Sama sagan endurtók sig í síðari hálf-
leik. Siglfirðingar héldu miðjunni en
FH-ingar sköpuðu sér hættuleg færi
með skyndisóknum. Þeir hefðu vel get-
að bætt fleiri mörkum við en 2. markið
kom ekki fyrr en þremur mínútum fyrir
leikslok. Guðmundur Hilmarsson tók
þá aukaspyrnu og enn var Ingi Björn á
réttum stað og skallaði í netið. Sann-
gjarn sigur í nokkuð miklum sparkleik.
Ingi Björn og Guðmundur áttu best-
an leik FH-inga en í nokkuð jöfnu liði
KS stóðu þeir Baldur Benónýsson og
Hörður Júlíusson uppúr.
-Frosti/lg
Skallagrímur-Víðir 3-0
Heldur stór sigur Borgnesinga í frem-
ur jöfnum leik en þeir sóttu meira í fyrrí
hálfleik og vörðust vel ■ þeim síðarí.
Ómar Sigurðsson skoraði eina mark
fyrrí hálfleiks á 33. mínútu, fylgdi þá vel
eftir að skalli Björns Jónssonar hafði
verið varínn. Rétt áður hafði Ólafur
Jóhannesson komist einn innfyrir Vfðis-
vörnina sem klikkaði illa á rangstöðu-
taktík en Gísli Heiðarsson varði skot
hans.
Bjöm Axelsson kom Skallagrími í 2-
0 á 48. mínútu með skoti af markteig
eftir homspymu. Eftir það sótti Víðir
mjög og fékk ágæt færi, eitt sinn komust
tveir einir innfyrir vöm Skallagríms en
þvældust hvor fyrir öðram og ekkert
varð úr. Fimm mínútum fyrir leikslok
skoraði svo Garðar Jónsson þriðja
mark Skallagríms eftir góða skyndisókn
og þar við sat.
-VH/Borgamesi
Staðan í 2. dcild:
FH...................5 4 1 0 13-3 13
Völsungur............5 4 11 9-5 10
Njarðvík..............4 3 0 1 5-2 9
Skallagrímur..........5 2 2 1 9-6 8
KS...................4 2 11 7-4 7
(Bl.................. 5 2 0 3 9-10 6
Vfðlr.................5 1 1 3 4-10 4
IBV...................3 0 3 0 5-5 3
Tindastóll............5 1 0 4 4-15 3
Einherjl..............5 0 1 4 4-9 1
-VS
Léttur Blikasigur
Breiðablik vann öruggan sigur,
5:0 á Víði þegar félögin mættust í
bikarkeppni kvenna í knatt-
spymu í Garðinum í gærkvöldi.
Alda Rögnvaldsdóttir 2, Asta
Maria Reynisdóttir, Lára Ás-
bergsdóttir og ein Víðisstúlkn-
anna gerðu mörkin. Guðríður
Guðjónsdóttir, markvörður
Breiðabliks, spreytti sig á víta-
spyrau i leiknum en skaut fram-
fajá! _ ÞMB/Suðurnesjum