Þjóðviljinn - 13.06.1984, Blaðsíða 4
12 SIÐA - ÞJOÐVILJINN Migvikudagur 13. júní 1984
íþróttir Vfðir Sigurðsson
Frakk-
land
Besti árangur: 4. sæti 1960 (2-0
tap fyrir Tékkum). Þurfti ekki að
leika í undankeppninni vegna
gestgjafahiutverksinis. Spá Þjóð-
viljans: Evrópumeistari.
Belgía
Besti árangur: 2. sæti 1980 (tap-
aði 1-2 fyrir V.Þjóðverjum). Sló
Sviss, Austur-Þýskaland og Skot-
land út í undankeppninni. Spá
Þjóðviljans: 4. sæti.
Júgó-
slavía
Besti árangur: 2. sæti 1960 (tap-
aði 1-2 fyrir Rússum) og 1968
(tapaði 1-1, 0-2 fyrir ítölum). Sló’
Wales, Búlagríu og Noreg út í
undankeppninni. Spá Þjóðvilj-
ans: 5.-6. sæti.
Dan-
mörk
Besti árangur: 4. sæti 1964 (tap-
aði 1-3 fyrir Ungverjum). Sló
England, Ungverjaland, Grikk-
land og Luxemburg út í undan-
keppninni. Spá Þjóðviljans: 7.-8.
sæti.
Evrópu-
keppni
lands-
liða
1984
Evrópukeppni landsliða í knatt-
spyrnu - úrslitakeppni - hófst í
Frakklandi í gærkvöldi með leik
gestgjafanna Frakka og Dana.
Þessi keppni fer nú fram í sjöunda
skiptið en hún hófst árið 1958 með
undankeppni fyrir úrslitakeppnina
sem einmitt fór fram í Frakklandi
sumarið 1960.
Sovétmenn urðu fyrstu Evrópu-
meistararnir, sigruðu Júgóslavíu 2-
1 í úrslitaleik. Þeir léku einnig til
úrslita á Spáni 1964 en biðu þá
lægri hlut fyrir gestgjöfunum sjálf-
um, 1-2. Arið 1968 fóru úrslitin
fram á Ítalíu og aftur hrósaði
heimaliðið sigri; ítalir unnu Júgósl-
avíu 2-0 eftir að liðin höfðu skilið
jöfn, 1-1. Belgía var vettvangurinn
1972 og þá unnu Vestur-Þjóðverjar
Sovétmenn 3-0 í úrslitaleik.
Leikurinn barst til Júgóslavíu 1976
og þá urðu Tékkar Evrópumeistar-
ar, sigruðu Vestur-Þjóðverja í
vítaspyrnukeppni eftir að staðan
hafði verið 2-2 eftir venjulegan
leiktíma og framlengingu. Vestur-
Þjóðverjar léku svo sinn þriðja úrs-
litaleik í röð á Ítalíu 1980 og þá
náðu þeir titlinum á ný, sigruðu
Belga 2-1.
Þrjátíu og tvær þjóðir hófu Evr-
ópukeppnina fyrir tveimur árum
og léku í 7 riðlum. Frakkar voru
einir undanskildir, þeir komust
beint í úrslitakeppnina þar sem
þeir eru gestgjafarnir að þessu
sinni. Margt óvænt gerðist í undan-
keppninni, heimsmeistarar ítala
biðu mikiar hrakfarir og sitja nú
heima ásamt fleiri kunnum knatt-
spyrnuþjóðum, svo sem Sovét-
mönnum, Englendingum og Hol-
lendingum. Þeir síðastnefndu virt-
ust þó öruggir í úrslit þar til Spánn
vann Möltu 12-1 í lokaleik 7. riðils
og komst þar með uppfyrir Hol-
land á markatölu. Vestur-Þjóð-
verjar mega hrósa happi með að fá
að verja titil sinn í Frakklandi, þeir
töpuðu tvívegis fyrir Norður-írum
sem voru með fádæmum óheppnir
að sigra ekki í 6. riðli.
í Frakklandi er þjóðunum átta
sem eftir eru skipt í 2 riðla. Frakk-
ar, Belgar, Júgóslavar og Danir
leika í A-riðli en V.-Þjóðverjar,
Spánverjar, Rúmenar og Portúgal-
ir í B-riðli. Sigurvegarar riðlanna
leika til úrslita um Evrópumeist-
aratitilinn í París þann 27. júní.
Hér á síðunni er stutt kynning á
þeim landsliðum sem þreyja úr-
slitakeppnina og spádómur, hávís-
indalegur, um hver lokastaðan
verður. Frakkar eru bestir í Evr-
ópu um þessar mundir og leika á
heimavelli; hverjum öðrum er
hægt að spá sigri?
- VS.
Vestur-
Þýskal.
Besti árgangur: Meistari 1972
(vann Rússa 3-0) og 1980 (vann
Belgíu 2-1). Sló N.-írland,
Austurríki, Tyrkland og Albaníu
út í undankeppninni. Spá Þjóð-
viljans: 2. sæti.
Spánn
Besti árangur: Meistari 1964
(vann Rússa 2-1). Sló Holland, ír-
land, Island og Möltu út í undan-
keppninni. Spá ÞjóðvUjans: 3.
sæti.
Rúm-
enía
(tapaði 0-2, 0-3 fyrir Tékkum) o
1972 (tapaði 1-1, 2-2, 1-2 fyri
Ungverjum). Sló Svíþjóð, Tékkt
slóvakíu, Itah'u og Kýpur út
undankeppninni. Spá Þjóðvil
ans: 5.-6. sæti.
Portú-
gal
Besti áragnur: 8-liða úrslit 1960
(tapaði 2-1, 1-5 fyrir Júgóslavíu).
Sló Sovétríkin, Pólland og Finn-
land út í undankeppninni. Spá
Þjóðviljans: 7.-8. sæti.