Þjóðviljinn - 26.06.1984, Page 4

Þjóðviljinn - 26.06.1984, Page 4
ÍÞROIflR Völsungur- KS Húsvflúngar fengu óskabyrj- un, strax á annarri mínútu lagði Kristján Olgeirsson knöttinn fyrir Svavar Geirfinnsson sem sendi flrnafasta bíru í netið af vítateigshorni, óverjandi. En á 39. mínútu varð keðja vamarmistaka Völsunga til þess að Siglfirðingar náðu að jafna. Sigurður Sigurjónsson fékk bolt- ann frá varnarmanni, sendi inní vítateiginn þar sem Björn Ingi- marsson náði að koma boltanum í netið, 1-1. Þegar sjö mínútur vom liðnar af síðari hálfleik tók Beggi í Skálabrekku (Kristján) horn, sendi hátt fyrir mark KS og Sig- mundur Hreiðarsson hinn há- vaxni kjötiðnaðarmaður skallaði Kristján Olgeirsson skoraöi þriðja mark Völsungs boltann í jörðina og inn, 2-1. Á 79. mínútu innsiglaði svo Krist- ján sigurinn, fékk boltann frá Birni bróður sínum og skoraði með þrumuskoti frá vítateig, 3-1. Sanngjarn sigur Völsunga sem spiluðu oft laglega og sýndu meiri hugmyndaauðgi í sóknarleik sín- um en áður. Þeir eru nú komnir að hlið FH á toppnum og frammi- staðan er framar öllum vonum. Kristján og Sigmundur voru bestu menn liðsins. Bretarnir Colin Thacker og Darren Southern léku í fyrsta sinn með KS. Báðir voru fremur hlédrægir og óstyrkir en einkum Southern, sem er mjög teknískur leikmaður, gæti reynst liðinu vel. Ómar Guðmundsson markvörð- ur var einna bestur í jöfnu liði. - AB/Húsavík 2. deild í knattspyrnu: Húsvíkingar halda sínu striki Komnir að hlið FH sem tapaði á heimavelli gegn Víði Eyjamenn litlausir á Króknum og eru í þriðja neðsta sœti Njarðvík n M Tindastóll ÍBÍ Skallagrímur Æmm * ÍBV UmU Einherji 0-0 Leikurinn einkenndist af miklu miðjuþófi og festu en lítilli knatt- spyrnu, í sólskini og góðu veðri. Þrátt fyrir sigur heimamanna sem nú þok- ast ofarlega í deildina átti Skallagrím- ur heldur fleiri tækifæri. Snemma í fyrri hálfleik bjargaði Sigurður ísleifsson Njarðvíkingur á línu eftir skot Gunnars Orrasonar. Nokkrum mínútum síðar komst Gunnar innfvrir vörn Njarðvíkur og skaut en Olafur Birgisson varði meistaralega. Á 25. mínútu var brotið á Hauki Jóhannssyni fyrir innan vítateig Skall- agríms og var hiklaust dæmt víti sem FreyrSverrisson skoraði úr. Borgnes- ingar voru mjög óhressir með þennan dóm. Fátt markvert gerðist síðan fyrr en á 75. mín. en þá tókst Hauki Jóhanns- syni að sóla í gegnum vörn Skalla- gríms og skora, 2-0. Þrátt fyrir tveggja marka mun gáfust Borgnes- ingar engan veginn upp, með þeim árangri að á 87. mínútu tókst Gunnari Jónssyni að skora með fallegu skoti frá vítateig, 2-1. Ekki munaði nema hársbreidd að Skallagrími tækist að jafna þegar Gunnar Jónsson slapp í gegnum vörnina en Ólafur kom út á réttum tíma og varði fast skot hans. Hjá Njarðvík voru Guðmundur Sighvatsson, Freyr og Ólafur mark- vörður bestir en Gunnar Jónsson, Gunnar Orrason og Kristinn Arnar- son markvörður hjá Skallagrími. -ÞBM/Suðurnesjum Tindastólsmenn fengu þá dags- skipun að gefa Eyjamönnum aldrei frið og það gekk vcl, gest- irnir virtust langtímum saman sáttir við að halda boltanum að- gerðarlaust hjá sínum öftustu mönnum. Lið ÍBV olli miklum vonbrigðum, var mun slakara en lið ísflrðinga sem kom hingað síð- ast og fer ekki upp í 1. deild með svona áframhaldi. Marktækifæri voru af skornum skammti, enda var leikurinn eitt miðjubasl. Sigurfinnur Sigur- jónsson fékk gullið færi á 20. mín- útu en skaut yfir opið Eyjamark- ið. Á fyrstu mínútu síðari hálf- leiks skaut Bergur Ágústsson í stöng Tindastólsmarksins og þá er allt upptalið. Aðeins tveir Eyjamenn, Lúð- vík Bergvinsson og Þórður Hall- grímson virtust mættir á staðinn til að berjast til sigurs. Hjá Tind- astól stóð Rúnar Björnsson sig einna best, duglegur sóknarbak- vörður. Heimamenn eru ánægðir með stigið, hið fyrsta sem þeir hljóta á heimavelli í 2. deildinni. - PS/Sauðárkróki Hreiðar Sigtryggsson, sem um árabil varði mark ísfirðinga, kom með núverandi lærisveina sína, Einherja frá Vopnaflrði, í heimsókn á laugardaginn og hélt heim ansi lukkulegur með eitt stig í pokahorninu. Ísfirðingar sóttu látlaust, ef upphafsmínúturnar eru undan- skildar, en gegn Hreiðari og hans sterku og baráttuglöðu vörn gekk ekkert þótt lengi vel virtist aðeins tímaspursmál hvenær markið kæmi. Bestu færi komu á 14. mín- útu, dauðaséns eftir horn, og á 75. mínútu er Guðmundur Jó- hannsson skallaði rétt yfir. Guð- mundur Magnússon var felldur á vítateig á 69. mínútu en ekkert dæmt. Atli Einarsson, Kristinn Krist- jánsson og Benedikt Einarsson stóðu uppúr í liði ÍBÍ. Hreiðar stóð sig með prýði í Einherja- markinu og Gísli Davíðsson var bestur útispilaranna að austan. - GK/ísafirði SV-riðíll Fylkir VíkingurÓ Fylkismenn voru betri aðilinn í leiknum en það eru mörkin sem telja og með þessum sigri eru Vík- ingar búnir að koma sér hagan- lega fyrir á toppi riðiisins. Þeir léku þarna sinn fjórða leik á átta dögum en herjuðu út sigur þrátt fyrir þreytuna. Á 31. mínútu var Ólafur Magnússon markvörður Fylkis með knöttinn við tærnar er Pétur Finnsson laumaðist að honum, náði af honum boltanum og var í þann veginn að skora er Ölafur braut á honum. Vítaspyrna, sem Gunnar Örn Gunnarsson skoraði úr. Viðar Gylfason kom síðan Víkingi í 0-2 fyrir hlé með marki eftir skyndisókn. Hilmar Árna- son minnkaði muninn fyrir Fylki en enn náðu Ólsarar góðu upph- laupi, Pétur renndi á Loga Úlf- ljótsson sem skoraði, 1-3. §ig- hvatur Bjarnason minnkaði mun- inn fyrir Fylki með hörkuskalla eftir hornaspyrnu fimm mínútum fyrir leikslok én Víkingar héldu út og sigurinn var þeirra. Snœfell Reynir S. Snæfellsmenn börðust vel en það dugði ekki til að hamla veru- lega á móti sterkum Sandgerð- ingum. Þórður Ólafsson bak- vörður skoraði fyrsta markið eftir 20 mínútur og Ómar Björnsson bætti öðru við úr vítaspyrnu skömmu fyrir hlé. Fljótlega í síðari hálfleik skoraði Jón Guð- mann Pétursson þriðja mark Reynis og þar við sat. 3. deild í knattspyrnu: Víkingarnir stálu sigri í Árbænum! Gunnar Örn Gunnarsnon og Pétur Finnsson komu mjög við sögu í sigri Víkinga á Fylki. Grindavík Stjarnan Bakvörðurinn Sigurður Ólafs- son skoraði eina mark leiksins eftir mjög skemmtilega sóknar- lotu heimamanna á 37. mínútu. Grindvíkingar voru meira með boltann í fyrri hálfleik, síðan var jafnræði framan af þeim síðari en síðasta hálftímann sótti Stjarnan látlaust og voru heimamenn heppnir að halda stigunum þrem- ur. Selfoss HV Páll Guðmundsson, hinn korn- ungi framlínumaður, færði Sel- fyssingum forystuna strax á fyrstu mínútu með góðu skoti. Þórarinn Ingólfsson kom heimamönnum í 2-0 á 35. mínútu með skalla eftir varnarmistök Skagaliðsins. Magnús Ingvason (MING) slapp einn innfyrir vörn Selfyssinga á 55. mínútu og minnkaði muninn í 2-1. HV sótti nokkuð eftir það en Stefán Halldórsson þjálfari færði sig þá úr framlínunni á sinn gamla stað í vörninni og Selfoss hélt sín- um hlut. Staðan í SV-riðli: VfkingurÓ...........6 5 10 15-6 16 ReynirS.............5 4 1 0 12-1 13 Stjarnan............6 4 0 2 17-4 12 Fylkir..............5 3 1 1 14-6 10 Selfoss............5- 2 0 3 6-8 6 Grindavík..........5 1 2 2 6-7 5 HV.................5 1 1 3 7-11 4 ÍK................5 0 1 4 3-17 1 Snæfell............6 0 1 5 3-23 1 Markahæstir: Gunnar Örn Gunnarsson, Víkingi.4 Ómar Björnsson, Reyni..........4 Þórhallur Guðjónsson, Stjörnunni.4 mark fyrir Hugin, beint í sam- skeytin eftir aukaspyrnu. Þá fengu Reyðfirðingar tvær víta- spyrnur og Gústaf Ómarsson skoraði úr báðum en Sveinbjörn jafnaði fyrir Huginn með lang- skoti og Arnar Jónsson kom Seyðfirðingum 3-2 yfir fyrir hlé. Kristján Jónsson skoraði síðan snemma í seinni hálfleik, 4-2. Þá fengu Kuginsmenn á sig slysa- mark, markvörður þeirra missti knöttinn milli fóta sér og Lúðvík Vignisson skoraði, 4-3, og Sigurbjörn Marinósson jafn- aði loks, 4-4, með skoti beint úr aukaspyrnu fimm mínútum fyrir leikslok. Fyrsta stig Reyðfirð- inga. Þróttur N. Leiftur NA-riðill: Huginn M M Valur Rf. Átta mörk í leik tveggja neðstu liðanna á Seyðisfirði og Sveinbjörn Jóhannsson gaf tón- inn í byrjun er hann skoraði gull- Nýliðar Leifturs frá Ólafsfirði halda sínu striki og náðu góðu og verðskulduðu stigi í Neskaup- stað. Þróttarar voru heldur sterk- ari framan af og í byrjun síðari hálfleiks fengu þeir vítaspyrnu sem Birgir Ágústsson skoraði úr. Eftir markið pressuðu Ól- afsfirðingar stíft og þeir uppskáru fljótlega jöfnunarmark er Krist- inn Björnsson þjálfari þeirra skallaði í netið eftir hornspyrnu. FH Víðir Víðismenn uppskáru þennan ágæta sigur á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði á laugardaginn með því að spila skynsamlega, berjast vel og nýta færin sem gáfust. Fyrsti ósigur FH í deildinni í ár, en Víðir komst úr fallsæti með sigrinum. Víðir tók forystu á 16. mínútu er Guðmundur Jens Knútsson skallaði fallega í mark FH eftir aukaspyrnu. FH pressaði stíft það sem eftir var fyrri hálfleiks en vörn Víðis og Gísli Heiðarsson markvörður léku mjög vel og bægðu allri hættu frá. Leikmenn Víðis drógu sig til baka í síðari hálfleik og FH komst lítt áleiðis, uns Pálma Jónssyni tókst að jafna á 60. mínútu. Hann fékk boltann óvaldaður frá Sigur- þóri Þórólfssyni og skoraði af ör- yggi. Við þetta fóru Garðspiltar að sækja meira og þeir uppskáru sigurmark sjö mínútum fyrir leikslok. Bakvörðurinn Ingi- mundur Guðmundsson skaut þá frá vítateig, og í bláhorninu hafn- aði knötturinn. Gísli markvörður, Marteinn Geirsson þjálfari sem hélt vel utanum varnarleikinn, Guð- mundur Jens og Grétar Einars- son voru bestir hjá Víði en Sigur- þór og Magnús Pálsson léku best hjá FH. Það háði Hafnarfjarðar- liðinu að Dýri Guðmundsson lék ekki með vegna meiðsla og vörn liðsins og miðja voru í slakara lagi. -«g Staðan í 2. deildarkeppninni i knattspyrnu: FH..................7 5 1 1 15-5 Völsungur...........7 5 1 1 14-7 Njarövik...........7 4 1 2 8-5 Skallagrímur.......7 2 2 3 10-9 KS.................6 2 2 2 9-8 ÍBÍ................7 2 2 3 11-12 Viðir..............7 2 2 3 8-13 ÍBV................6 14 1 7-7 Tindastóll.........7 2 1 4 8-16 Einherji...........7 0 2 5 5-13 Markahæstir: Haukur Jóhannsson, Njarðvík...... Ingi Björn Albertsson, FH........ Svavar Geirf innsson, Völsungi... Sigurjón Kristinsson, ÍBV........ Guðmundur Jóhannsson, ÍBI........ Pálmi Jónsson, FH................ Guðmundur Jens Knútsson, Viði..... Garðar Jónsson, Skallagrími...... Sigurf innur Sigurjónsson, Tindast... 16 16 13 8 8 8 8 7 7 2 .6 .6 .5 .4 .4 .4 .4 .4 .4 HSÞb Magni Jón Kr. Gíslason landsliðs- maður í körfuknattleik dvelur í Mývatnssveitinni í sumar og þangað tók hann með sér fót- boltaskóna. Hann gerði eina markið á glæsilegan hátt um miðjan fyrri hálfleik, með hörku- skoti af 25 m færi. Mývetningar áttu mun meira í leiknum og Ari Hallgrímsson átti t.d. skot í þver- slá Magnamarksins. Staðan í NA-riðli: Leiftur............5 3 2 0 8-3 11 Þróttur N..........5 2 3 0 11-7 9 Magni..............6 2 2 2 8-7 8 HSÞ.b..............5 2 2 1 6-5 8 Austri..............5 13 1 6-6 6 Huginn..............5 0 3 2 9-12 3 ValurRf.............5 0 1 4 6-14 1 Markahæstir: Guðmundur Ingvason, Þrótti.....3 Hafsteinn Jakobsson, Leiftri...3 Kristján Kristjánsson, Þrótti..3 Þórhallur Guðmundsson HSÞ.b....3 Næstu leikir: Heil umferð verður leikin í A- riðli annað kvöld. Þá leika HV- Grindavík, ÍK-Snæfell, Reynir S.-Selfoss og Stjarnan-Fylkir. - VS. 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 26. júní 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.