Þjóðviljinn - 11.08.1984, Side 13
KVIKMYNDIR
Óspennandi
spennumynd
Einn gegn öllum
(Against All Odds. USA 1983)
Handrit: Eric Hughes
Stjórn: Taylor Hackford
Kvikmyndun: Donald Thorín
Leikendur: Rachel Ward, Jeff Brid-
ges, James Woods, Richard Wid-
mark. Sýnd í Stjörnubíói.
Pað er vandséð hvað olli því að
þessi draugur var vakinn upp -
nema mynd Jacques Tourneurs
frá 1947, Out of the Past, hafi ver-
ið svo góð (ég hef því miður ekki
séð hana) að þeir hjá Columbia
hafi ætlað sér að endurtaka grínið
og græða vel með lítilli fyrirhöfn.
Utkoman er hörmuleg, þrátt fyrir
fræga leikara. Ospennandi
spennumynd.
Atvinnumaður í fótbolta missir
vinnuna vegna meiðsla og tekur
með semingi að sér vinnu fyrir
skúrkinn í myndinni, sem er næt-
urklúbbseigandi og hefur týnt
kærustunni sinni og fær nú fót-
boltahetjuna til að finna hana
fyrir sig gegn ríflegri þóknun.
Kærastan er voða rík og falleg og
hefur falið sig í Mexico, fótbolta-
hetjan finnur hana og tekur hana
fyrir sig, sem var náttúrlega ekki
meiningin. Skúrkurinn sendir
annan mann að leita, sá finnur
hetjuna og stúlkuna, og svo ák-
veðin er stúlkan í að snúa ekki
aftur til skúrksins að hún drepur
þennan seinni útsendara hans.
Síðan lætur hún fótboltahetjuna
um að husla hræið, en á meðan
stingur hún af - og hvert haldið
þið? Jú, til skúrksins. Ja, þetta
kvenfólk, hugsar maður.
Móðir stúlkunnar og stjúpfaðir
eru gríðarlega vont fólk, ríkt og
spillt. Þau er með puttana í öllu,
aðallega þó fótbolta og fasteigna-
braski, skilst manni. Fótbolta-
hetjan berst vasklega „einn gegn
öllum", gegn skúrkinum og fast-
eignabröskurunum, en hefur
varla erindi sem erfiði, nema
kannski veika von um að fá stúlk-
una aftur einhverntíma í framtíð-
inni.
Þetta er afspyrnu heimskuleg
saga og vantar í hana flest það
sem gerir sögu áhugaverða. Jeff
Bridges hefur ýmislegt ágætt gert
(minnistæðastur er hann mér
fyrir leik sinn í The Last Picture
Show, 1971) en fótboltahetjan
Terry Brogan er ekki hlutverk
sem býður upp á mikla mögu-
leika. Ég efast um að nokkrum
leikara hefði tekist að gera þá
persónu áhugaverða. Sama er
reyndar að segja um allar aðrar
persónur myndarinnar. Rachel
Ward er afar fönguieg stúlka og
eflaust frábær ljósmyndafyrir-
sæta, en hún getur ekki leikið, því
miður. Það er alltaf gaman að
Fanny og
Alexander
Loks er hún komin myndin
sem allir kvikmyndaunnendur
hafa beðið með óþreyju, síðasta
meistaraverk Ingmars Bergman.
Fanny og Alexander er stórkost-
leg kvikmynd, listræn upplifun
sem aldrei gleymist. í myndinni
lýsir Bergman lífi stórrar merki-
legrar fjölskyldu frá sjónarhóli 10
ára drengs. Frásagnarlist sænska
snillingsins jaðrar við galdur og
hefur sjaldan notið sín betur.
Sven Nykvist sýnir og sannar
að hann er einhver snjallasti
kvikmyndatökumaður sem nú er
uppi og leikurinn er frábær enda
koma við sögu margir af bestu
leikurum Svíþjóðar. Fanny og
Alexander er kvikmynd sem eng-
inn má missa af. Sýnd í Regnbog-
anum.
INGIBJORG
HARALDSDÓTTIR
horfa á fallegt fólk, og kannski
bjargaði það því sem bjargað
varð og gerði þessa tvo klukku-
tíma í Stjörnubíói bærilega, þrátt
fyrir allt, að Jeff og Rachel eru
huggulegt par og myndast ágæt-
lega.
Skúrkinn Jake Wise leikur
James Woods, sem einnig leikur
eitt af aðalhlutverkunum í Einu
sinni var I Amerfku. Það er sama
sagan þar: ágætur leikari en öm-
urlegt hlutverk, og það gildir líka
um gamla ljónið Richard Wid-
mark sem leikur stjúpföðurinn og
Jane Greer sem leikur mömmuna
vondu.
Maðurinn sem berst einn gegn
Jeff Bridges og Rachel Ward - huggulegt par og myndast vel.
öllum er sígild persóna í banda-
rískum kvikmyndum og margar
frábærar myndir hafa verið gerð-
ar um hann - sú fyrsta sem kemur
upp í hugann er auðvitað High
Noon, með Gary Cooper. En til
þess að slík persóna verði eftir-
minnileg þarf hún auðvitað að
hafa eitthvað til að bera og helst
þarf hún að hafa málstað að berj-
ast fyrir - þó ekki sé nema þá
hugsjón að halda uppi lögum og
reglu eða einhverju álíka. Hér er
engu slíku til að dreifa - við erum
bara að horfa á rugludall sem
vantar peninga og lætur teyma sig
út í einhverja vitleysu. Samt er
hann ekki andhetja - til þess er
hann alltof myndarlegur og það
er greinilega ekki ætlunin.
Þegar upp er staðið er þetta
húmorlaus og óspennandi mynd
og engin ástæða til að eyða í hana
kvöldstund.
Kanntu táknmál næturlífsins ?
YPSÍLON
* ÖLKRÁ:
VINLISTI:
MATSEÐILL:
MIÐNÆTUR
MATSEÐILL:
DISKÓTEK:
Alþjóðlegt fyrirbæri.
Nú loksins í Kópavogi.
Skrá yfir lystauka og borövín
(hvít og rauö) af ýmsu tagi.
Skrá yfir ómótstæðilega
forrétti, aöalrétti og eftirrétti.
Sjaidgæfur, en ómissandi
þáttur í næturlífinu.
Snúningsaöstaöa fyrir alla.-
Lengi tekur gólfiö við,-
BORÐAPANTANIR: Hjá okkur tekur
yfirþjónninn viö
™ pöntunum í síma 72177
Veitingastaðurinn YPSÍLON býður uppá öll tákn næturlífsins.
Býöur nokkur betur?
•ölkráin opin í hádegi og frá kl. 18.00.*
Diskótek opnar kl. 22.00 fyrir aðra en matargesti.
YPSILON
Smiðjuvegi 14d, Kópavogi. Við hliðina á Smiðjukaffi.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13