Þjóðviljinn - 11.08.1984, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 11.08.1984, Qupperneq 14
MENNING LÝÐVELDI í40 ÁR Á ÞING VÖLL Sumarferð Alþýðubandalagsins á Þingvöll verður laugardaginn 18. ágúst. Brottför úr Reykjavík verður kl. 9.00 árdegis frá Umferðarmiðstöðinni. Aðaláningarstaður ferðarinnar verður á Efri- völlum. Þaðan verða skipulagðar gönguferðir og þar verður flutt fjölbreytt dagskrá. Dagskrárkynnir verður Ásdís Þórhallsdóttir. Meðal dagskráratriða í sumarferð Alþýðubanda- lagsins má nefna: I.Séra Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður ávarpar far- þega. 2. Þytur - lítið einieiksverk fyrir trompet eftir Atla Heimi Sveinsson tónskáld. Frumflutningur:Ásgeir Steingríms- son. 3. Haildór Laxness rithöfundur les kafla úr íslandsklukk- unni. 4. Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins flytur ávarp. 5. Kórsöngur, blandaður kór undir stjórn Sigursveins Magnússonar. 6. Fjöldasöngur 7. Vinningsnúmer ferðahappdrættisins kynnt. Dagskrá og leikir fyrir börn á öllum aldri verða í umsjá félaga í Alþýðubandalaginu í Hafnarfirði. Heimferð verður kl. 18.00 en einnig geta þeir sem þess óska komist heim kl. 16.00. Aðalfararstjóri verður Jón Böðvarsson. Honum til aðstoðar verða að vanda valinkunnir leiðsögumenn í hverjum bíl. Forsala farmiða og skráning farþega fer fram á skrifstofu Al- þýðubandalagsins að Hverfisgötu 105. Síminn er 17500. Verð farmiða er kr. 300.- fyrir fullorðna og kr. 150.- fyrir börn sem taka sæti. Takið helgina strax frá, merkið við á almanakinu og skráið ykkur í síma 17500. Ferðanefnd 411984 * ÞINGVELLIR LÝÐVELDIÐ 40ÁRA Rjóminn Listasafn íslands er 100 ára á þessu ári. Það var stofnað af Birni Bjarnasyni í Kaup- mannahöfn árið 1884 og danskir listamenn gáfu mest- an hlutann af stofni safnsins. Ognú 100árumsíðarefnir Listasafnið til afmælissýning- ar og þar sýna 5 af þekktustu myndlistarmönnum Danaalls 89 myndir. Það ervel við hæfi. Á sýningunni sem opnuð verð- ur í dag, laugardag, að viðstödd- um forseta íslands sýna þeir listmálararnir Mogens Andersen Ejler Bille, Egill Jacobsen og Carl-Henning Pedersen og myndhöggvarinn Robert Jaco- bsen. Allir eru þeir af elstu kyn- slóð núlifandi danskra lista- manna, löngu víðkunnir fyrir list sína og hafa verið stefnumark- andi í sínu heimalandi. Verkin á sýningunni eru unnin á tímabi- linu 1938-1984 og eru ýmist úr eigu listamannanna sjálfra eða úr ýmsum söfnum og einkaeigu. Sá þekkti listasafnsmaður Steen Bjamhof hefur verið innan hand- ar að fá þessa sýningu hingað. í tilefni sýningarinnar hefur verið gefin út vönduð sýninga- skrá með fjölda ljósmynda, svart- hvítra og í lit og þar er einnig að finna greinar um listamennina á íslensku og ensku auk ýtarlegrar æviatriðaskrár. Þess skal getið að tveir listamannanna þeir Mogens Andersen og Egill Jacobsen verða viðstaddir opnun sýningar- innar. Ýmsir aðilar hafa styrkt sýn- inguna svo sem Eimskipafélagið, Flugleiðir, Menntamálaráðu- neyti Dana og Danmarks Nation- albanks Jubileumsfond. Mogens Andersen er fæddur árið 1916 og lærði fyrst hjá Peter Rostrup Böyesen í Kaupmanna- höfn en dvaldi síðar í mörg ár í París. Hann var undir sterkum áhrifum frá Braque og Juan Gris. Hann hefur sýnt víða um heim og hlotið mörg verðlaun. Andersen 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 11. ágúst 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.