Þjóðviljinn - 06.09.1984, Page 5

Þjóðviljinn - 06.09.1984, Page 5
Beinagrindur Hetmenn úr ísraelska hemum: Tregir á að tala um það sem gerðtst fyrir 35 árum. og aðeins verið skotið á eftir her- mönnum á undanhaldi. Ýmsir ísraelskir sagnfræðingar draga þessar frásagnir herforingj- anna mjög í efa, og upplýsa að þegar haustið 1948 hefðu yfir- menn ísraelska hersins vitað að fjöldamorð hefðu átt sér stað í Daweima. Telja þeir frásögn þorpsstjórans rétta í öllum aðal- atriðum, nema tala myrtra hefði sennilega verið talsvert lægri en hann giskaði á, og innan við hundrað. (Eftir „Le Monde“ og ,,Libération“). Gömul fjöldamorð fram í dagsljósið ísraelskir hermenn myrtu tugi ogjafnvel hundruð Palestínuaraba í þorpinu Daweimafyrirvestan Hebron í „sjálfstæðisstyrjöldinni" haustið 1948, að sögn ísraelska blaðsins Hadashoth. Um þennan atburð hafði verið þagað í 36 ár, en blaðið dró hann fram í dagsljósið í greinum, sem birtust 24. og 26. ágúst, og birti bæði frásögn þorpsstjórans, sem nú dvelst í flóttamannabúðum í grennd við Hebron, myndir af beinum sem fundustástaðnum. Hafaþessar af hjúpanir vakið mikla athygli í ísrael. Samkvæmt frásögn þorpsstjór- ans komu ísraelsku hermennirnir í þorpið Daweima, þar sem engir arabískir hermenn voru til stað- ar, 28. október 1984. Peir skutu á allt sem fyrir var og myrtu 75 öldunga í bænahúsi staðarins. Síðan fundu þeir 35 fjölskyldur sem höfðu leitað skjóls í helli í nágrenninu og stráfelldu allt það fólk með vélbyssum. Neyddu hermennirnir menn til að koma út úr hellinum og skutu þá um leið. Stúlka ein slapp undan með því að látast vera dauð, og sagði síðan frá atburðum. Taldi þorps- stjórinn, sem missti marga ætt- ingja sína í hellinum, að yfir 500 menn hefðu látið lífið í þessum fjöldamorðum. Nóttina eftir komu þeir þorpsbúar, sem enn voru á lífi, aftur til heimkynna sinna og greftruðu lík fallinna í brunni, að sögn þorpsstjórans. Þar voru beinin síðan grafin upp í viðurvist blaðamanna Hadas- hoth. Um það leyti sem þessir at- burðir gerðust var fyrsta styrjöld ísraelsmanna og Araba í há- marki, og beittu ísraelsmenn ekki aðeins nýstofnuðum her sín- um heldur einnig hryðjuverka- samtökunum Stern og Irgún, sem voru undir stjórn Menahem Beg- ins og Yitsak Shamirs, en þeir urðu síðar báðir forsætisráðherr- ar. Þann 9. apríl 1948 ruddust menn úr Stern og Irgún inn í þorpið Deir Yassim, rétt fyrir vestan Jerúsalem, og myrtu þar 250 þorpsbúa. Arabar svöruðu í sömu mynt með fjöldamorðum á Gyðingum og má telja að atburð- irnir í Daweima hafi verið fram- hald þessara hryðjuverka. En hvað gerðist nákvæmlega í Daweima? Blaðamenn Hadas- hoth hafa leitað uppi hermenn og herforingja, sem börðust á þess- um slóðum í október 1948, og gefa þeir yfirleitt loðin svör. Einn þeirra sagði aðeins: „Hvaða gagn er að því að grafa þetta mál úr gleymsku nú?“ Einn af yfir- mönnum herflokksins, sem rudd- ist inn í Daweima, sagði að þar hefðu einungis geisað bardagar en engin fjöldamorð verið fram- in, og annar hélt því fram að Daweima hefði verið mannlaust þorp, þegar herinn kom þangað, Kanínur Þrátt fyrir öryggisráðstafanir fara geislavirk efni í sjóinn Yfirvöld enn treg að gefa upplýsingar um hœttursem af þeim stafa Sjóslysið undan strönd Belgíu 25. ágúst, þegarfranskt skip sökk með farm af geislavirkum efnum eftir að hafa lent í árekstri við ferju, sýnir að sú venja er býsna lífseig að gefa sem minnstar upplýsingar um slík mál og þagga þau helst niður. í fyrstu var ekkert gefið upp um eðli farmsins, og það var ekki fyrr en „Grænfriðungar" fóru að halda því fram að franska skipið hefði að öllum líkindum verið á leið til Sovétríkjanna með geislavirk efni,aðfrönskyfirvöld viðurkenndu loksins- rúmum sólarhring eftir slysið - að í skipinu hefðu verið 450 tonn af úraníumhexaflúoríð, sem er bæði geislavirkt og eitrað. En þótt yfirvöldin hefðu orðið að skýra frá því hvers eðlis farm- urinn hefði verið, héldu þau samt uppteknum hætti að gefa eins litl- ar og loðnar upplýsingar og hægt var. Þess vegna hafa ýmsar bolla- leggingar komið fram um að fleiri geislavirk efni hafi verið í skipinu en úraníumhexaflúoríð eitt. Ekki getur hjá því farið að þessi tregða til að gefa upplýsing- hættir að treysta yfirvöldum: trúanleg, spyrja menn, fyrst meira en þau eru beinlínis neydd ar leiði til þess að almenningur Hvaða ástæða er til að taka þau reynslan sýnir að þau segja aldrei til og gefa ekki meiri upplýsingar í slíkum tönkum er úraníumhexaflúoríð flutt frá Frakklandi til Sovétríkianna. en þegar hafa komið fram annars staðar? Jafnvel er hætta á því að sá grunur komi upp, að yfirvöldin hugsi meira um að fela fyrir al- menningi allt sem snertir geisla- virk efni heldur en fylgja öllum öryggisreglum. Málið er mjög al- varlegt, þar sem stöðugt er verið að flytja geislavirk efni: Franska blaðið „Le Monde“ hefur t.d. skýrt frá því að ein miljón tonna af geislavirkum efnum séu flutt um Frakkland eða milli staða í Frakklandi ár hvert og sé heildar- vegalengd þessara flutninga sam- tals um 5,4 miljónir kílómetra. Ferill farmsins, sem var í skipinu, sem sökk undan strönd- um Belgíu, er gott dæmi um slíka flutninga og þær hættur, sem af þeim geta stafað. í kjarnorkuver er notað úraníum 235, sem er samsæta venjulegs úraníums og unnið úr því. Framleiðsla þess er vandasöm, því að fyrst þarf að breyta úraníum í úraníumhexa- flúoríð, sem verður að lofttegund við aðeins 56 stiga hita, og síðan er úraníum 235 unnið úr því. Lengi vel höfðu Frakkar ekki nægilegan tæknibúnað til að ann- ast þessa framleiðslu sjálfir, og j UMSJÓN: EINAR MÁR JÓNSSON Fimmtudagur 6. september 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍDA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.