Þjóðviljinn - 06.09.1984, Qupperneq 10
Sýsluritið
Skaftfellingur
IV. árg. 1984,253síður, kom útíjúlís.l. Áðurút
komiðlll. árg. 1982,253 síður; II. árg. 1980,
216 síður og I. árg. 1978 (nú uppseldur).
Verð IV. árg. kr. 400. II. og III. árg. kr. 300 (hvor
bók).
Jafnframt hefur Sýslufélagið gefið útbókina
„AtvinnuhættirAustur-Skaftfellinga“.
Höfundur PáU Þorsteinsson fyrrv.
alþingismaður. Verð þeirrar bókar er kr. 300.
Framangreind rit eru til sölu á
sýsluskrifstofunni Höfn og bókabúð KASK.
Pantanir sendar samkvæmtsímtali.
Fræðist um sögu og sérkenni Austur-Skaftafellssýslu
svo og menn og málefni í héraði.
Ritnefndar- og útgáf ustjórn
Austur-Skaftafellssýslu.
TOSHIBA stærstir í örbylgjuofnum
BESTU KAUPIN
ÖRBYLGJUOFN
frá TOSHIBA Japan
• Steikir sunnud. lærið á 40 mín.
• Sýður fisk á 5—6 mín.
• Poppar á 3 mín.
Kr. 10.250
stgr.
Góöir
greiösluskilmálar
• Bakar kartöflur á 5 mín.
• Steikir roastbeaf á 20 mín.
• Bakar sandköku á 6 mín.
Fáöu þér Toshiba örbylgjuofn, — ofn frá stærsta framleiðanda
heims á örbylgjuofnabúnaöi. Frá Toshiba koma nýjungarnar. Þaö
nýjasta, ofnar meö DELTAWAVE dreifingu, meö eöa án snún-
ingsdisks. Ofnar búnir fullkomnustu öryggjum sem völ er á.
Fáðu þér ofn meö þjónustu: 190 blaösíöna matreiðslubók og
kvöldnámskeiö fylgir. Fullkomin námskeiðsgögn á íslensku. Opinn
símatími og upplýsingar frá sérfræöing okkar í matreiðslu í ör-
bylgjuofnum, Dröfn H. Farestveit hússtjórnarkennara, menntaöri
frá Tilraunaeldhúsi Toshiba í Englandi.
Fullkomin þjónusta og þú færö fullkomiö gagn af Toshiba
örbylgjuofnunum. 5 geröir fyrir heimili, 2 gerðir fyrir hótel og
mötuneyti.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995
Útsölustaðir á Austurlandi:
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga, Höfn
Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum
Kaupfélag Héraðsbúa, Seyðisfirði
MANNLÍF
Björn Grétar Sveinsson: Við höfum sett okkur það markmið að byggja 4 íbúðir á
ári, næstu fjögur árin.
Pólitíkin á Höfn
Alþýöubandalagið
hefur stuðlað að
auknum félags-
legum aðgerðum
- Ég er alinn upp á Eskifirði,
þar átti Alli ríki allt. Hér er kaupfé-
lagið alls ráðandi, það er ólíkt
betri kostur. Ég vildi alla vega
ekki skipta, sagði Björn Grétar
Sveinsson, lagermaður og smið-
ur hjá RARIK, þegar Þjóðviljinn
heimsótti hann í þeim tilgangi að
forvitnast um pólitíkina á Höfn í
Hornafirði.
Alþýðubandalagið á tvo menn
í hreppsnefnd og er þar í meiri-
hluta ásamt Framsóknarflokki
sem á þrjá fulltrúa. Björn Grétar
hefur búið á Höfn í 6 ár og er
fulltrúi AB í stjórn verkamanna-
bústaða og formaður stjómarinn-
ar, auk þess sem hann er formað-
ur Knattspyrnudeildar Sindra.
- Sterkari staða Alþýðubanda-
lagsins í hreppsnefnd hefur
óneitanlega aukið félagslegar að-
gerðir í bænum, sagði Björn
Grétar, þar má t.d. nefna bygg-
ingu verkamannabústaða og
ráðningu félagsráðgjafa til
hreppsins. Við þurfum að byggja
við barnaskólann og dagheimilið
er allt of lítið. En hér er góð
heilsugæslustöð, sem er bein af-
leiðing laga Magnúsar Kjartans-
sonar um heilsugæslustöðvar á
landsbyggðinni. Okkur vantar
bara legupláss fyrir sjúklinga.
- Hvað hefur verið byggt hér af
verkamannabústöðum?
- Við byggðum 8 íbúðir í sam-
býlishúsum hér fyrir 4 árum og nú
er bygging fjögurra íbúða í gangi.
Við höfum sett okkur það mark-
mið að byggja 4 íbúðir á ári,
næstu 4 árin. Það er mikil eftir-
sókn í þessar íbúðir, þrír til fjórir
um hverja íbúð, mest ungt fólk og
einstæðar mæður.
- Hér var farið í myndarlega
friðargöngu 1981. Hvað segja
menn um hersetuna og herstöðina
sem er hér við bæjardyrnar?
- Andstaðan er hér talsverð
gegn hersetunni og menn voru
agndofa yfir þátttökunni í göng-
unni 1981, en annars eru þessi
mál lítið rædd hér og lítið ber á
hermönnum í bænum. Þessi ár-
lega barnasamkoma þeirra er
reyndar bölvuð óþrif. Hér hafa
þó nokkrir atvinnu hjá hemum
og þeir hafa skikkanlegan vinnu-
tíma. Það er eitt gott sem við get-
um af þeim lært.
- Að lokum, Björn, hvað seg-
irðu um fyigið við núverandi rík-
isstjórn?
- Byggðastefnan er greinilega
farin út í hafsauga, og það hefur
m.a. orðið til þess að margir
Framsóknarmenn eru hreinir
stjórnarandstæðingar. Alþýðu-
bandalagið mundi vinna á hér í
kosningum nú. Landsbyggðin
getur ekki stutt stefnu Verslun-
arráðs eða ráðherra sem hugsa
ekki inn fyrir Elliðaár.
- Ég vil bara að lokum skora á
alla vinstri sinnaða Framsóknar-
menn hér í sýslunni að stuðla að
því að koma þessum fulltrúum
Verslunarráðs frá, þeir eiga eng-
an fulltrúa sem hefur áhrif í þess-
ari ríkisstjóm. GGÓ
Verkamannabústaðirnir á Höfn eru sórkennilegar og skemmtilegar byggingar.
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. september 1984