Þjóðviljinn - 06.09.1984, Síða 9

Þjóðviljinn - 06.09.1984, Síða 9
( réttinni við Tjörn á Mýrum. Guðmundur Bjarnason bóndi í Holtahólum beitir klippun- um fimlega. Aðstoðarmaður Vífill Karlsson. Sólskinsdagar í Austur- Skaftafellssýslu Blaðamaður Þjóðviljans flakkaði um sveitir Austur-Skaftafellssvslu og Höfn í sólskininu síðari hluta ágúst s.l. Landið og mannlífið skartaði sínu fegursta eins og endra nær. Hvítir jöklarnir skáru sig úr svörtum söndunum og grængresinu. Heyskapurinn var um garð genginn í öllum sveitum sýslunnar og hlöðurnar yfirfullar og vel það. Á Höfn glöddust menn yfir góðri humarvertíð og biðu spenntir eftir síldinni sem helst þarf að verða meiri að magni en nokkru sinni fyrr svo fjárhagur og atvinnuástand verði rétt af. Meðfylgjandi efni er meðal annars afrakstur ferðarinnar. Atvinnumál á Höfn Batnandi mannlíf í kjölfar minna vinnuálags S.l. tvö ár hefur þetta mikla álag sem hér var minnkað tals- vert. Hér var fólk sem vann hreinlega allan sólarhringinn í fiskinum, t.d. á vetrarvertíð. Það var unnið til miðnættis dag eftir dag. Þetta var allt of mikið álag, sagði Sigurður Hannesson starfsmaður og formaður Verka- lýðsfélagsins Jökuls í A- Skaftafellssýslu, í samtali við Þjóðviljann. - Þetta ár hefur svona rétt verið nóg að gera. Vinnan mátti minnka, en þó ekki meira en orð- ið er. Hér er ekki atvinnuleysi en aðkomufólki hefur fækkað. Mannlífið hefur aftur á móti batnað við minnkandi vinnuálag. Hér er mikið félagslíf og nú gefa menn sér frekar tíma en áður til að dunda í görðunum sínum. Hér var sóðalegt, menn höfðu ekki tíma til að snyrta til í kringum sig. - Hvað um næsta vetur? - Nú stóla allir á sfld í haust, ef hún bregst veit ég ekki hvað verð- ur. Humarvertíðin í sumar hefur verið þokkaleg, en miklu minna af öðrum fiski en áður. Næsti vet- ur þarf að verða betri en sá síðasti var. - Hefur verið reynt að auka fjölbrevtni atvinnulífsins hér? - Atvinnulífið hér er allt of ein- hæft, í rauninni ekkert nema fisk- urinn og þjónusta við sveitirnar í kring. Hér hefur verið rætt um togarakaup hjá Kaupfélaginu. Við þurfum meiri jöfnun í hrá- efnisöflun og auk þess meiri fjöl- breytni í atvinnulífið. - Hvaða möguleikar eru hér í þeim efnum? - Hér kemur mikill fjöldi ferðamanna á sumrin, það mætti bæta ferðamannaþjónustuna hér. Svo eru áreiðanlega ekki slæm skilyrði fyrir fiskirækt í lón- unum hér innan við sandana. - Verkalýðsfélagið hér hefur sagt upp samningum, hverju spá- ir þú í haust? - Ég vona í lengstu lög að ekki þurfi að koma til verkfalla. Ég hef trú á því að atvinnurekendur úti um land skilji að launin þurfa að hækka og er því bjartsýnn. Ég er nokkuð ánægður með tillögur Verkamannasambandsins um röðun starfa í launaflokka. Ég hef annars mestar áhyggjur af af- komu sjómanna. Þeirra kjör hafa versnað mest með minnkandi afla. Það vilja orðið engir vera á sjó. Annars er þetta bara allt of fá- mennur hópur sem sækir fundi hjá félaginu og tekur ákvarðanir. En mér finnst nú fólk miklu á- kveðnara síðustu mánuði, en það hefur verið. Fólk ætlar að ná ein- hverju fram í haust og vill leggja eitthvað á sig til þess, sagði Sig- urður. GGÓ Sigurður Hannesson formaður Verkalýðsfélagsins Jökuls: Ég hef trú á því að atvinnurekendur úti um land skilji að launin þurfa að hækka og er því bjartsýnn. UMSJÓN: JÓNA PÁLSDÖTTÍR Flmmtudagur 6. september 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.