Þjóðviljinn - 06.11.1984, Qupperneq 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Priðjudaour 6. nóvember 1984 217. tölublað 49. áraangur
MðDVIUINN
Fatlaðir
Skólinn
starfar
ekki!
Skóli fatlaðra hefur ekki starf-
að í vetur. í fyrra voru 2 nám-
skeið í gangi sem miðuðu að því
að undirbúa fólk undir þátttöku í
atvinnulífinu. 9 manns sem þá
voru í skólanum hafa sótt um
framhaldsnámskeið og 15 sóttu
um byrjendanámskeið þegar aug-
lýst var í haust. Rauði krossinn
hefur séð um skóla fatlaðra.
„Þetta var tilraun í fyrra og
gekk hún ljómandi vel“, sagði
Jón Ásgeirsson framkvæmda-
stjóri Rauða krossins við Þjóð-
viljann. „Við fengum inni hjá
Iðnskólanum endurgjaldslaust
og kennarar tóku ekkert fyrir
vinnu sína. Sumir nemendanna
eru nú komnir út í atvinnulífið og
aðrir í framhaldsnám þrátt fyrir
erfiðleikana við að stunda svona
nám. Við kenndum á tölvur, bók-
færslu, stærðfræði og margt
fleira.
Við viljum gjarnan halda þessu
áfram en viljum frekar fara okkur
hægt og gera þetta almennilega
og þess vegna erum við ekki byrj-
uð enn þrátt fyrir að 24 nemendur
sóttu um þegar við auglýstum í
haust.“
Jón Ásgeirsson sagði skóiann
ágætt verkefni fyrir Rauða kross-
inn, sem hefur verið helsti
styrktaraðili skólans og séð um
framkvæmd hans. Ekki hefur
verið sótt um fjárveitingu frá
hinu opinbera til að reka
skólann. -jp
Hjalti Gunnarsson skipstjóri frá Reyðarfirði, er einn af þingfulltrúum á 43. Fiskiþingi. í gær þegar
þingið var sett átti Hjalti 70 ára afmæli og var honum færð þessi blómakarfa á þinginu í tilefni
dagsins.(Ljósm.-Atli)
Launadeildin
Svarar
ekki
í símann
Útborgun launa til ríkisstarfs-
manna hefur dregist á langinn
eftir mánaðamótin eins og fram
hefur komið í fréttum og er fólk
orðið harla óþolinmótt að bíða
eftir þeim eins og gefur að skilja.
Maður einn hafði sambandi við
Þjóðviljann í gær og sagðist hafa
hringt stöðugt í tvo tíma í launa-
deildina fyrir konu sína en alltaf
hafi verið á tali. Gafst hann að
lokum upp og hringdi í 05 til að
spyrja hvort ekki væri allt í lagi
með símann í launadeildinni. Þar
fékk hann þau svör að síminn
væri í lagi en svo virtist sem tólið
væri ekki á. Launadeildin hefur
því að öllum líkindum gefist upp
á að svara óþreyjufullu launa-
fólki í síma.
-GFr,
Jón Magnússon skipstjóri
Lélegum fiski hent
í stómm stíl
Ástœðanfyrir því aðfiskgœði jukust á síðustu vetrarvertíð
Enn
fafntefli
í Moskvu
Tuttugustu og annarri einvígis-
skák þeirra Karpovs og Kaspar-
ovs lauk með jafntefli í gær eftir
20 leiki, og mun þetta vera það
13. í röð. Kasparov sem hafði
hvítt beitti nú Catalan byrjun í
annað skipti í einvíginu og hefur
greinilega fengið sig fullsaddan af
drottningarindverskri vörn
heimsmeistarans. í áttunda leik
breytti Kasparov út af fyrrnefndri
skák. Þetta virtist koma Karpov í
opna skjöldu því að strax í tíunda
leik hugsaði hann sig um í 30 mín-
útur þrátt fyrir að staðan væri
honum vel kunnug. Hann tefldi
framhaldið af öryggi og þó staða
hans væri þröng svarf hann
broddinn úr sókn áskorandans
með fyrrgreindum afleiðingum.
Svo virðist sem Kasparov hafi
endanlega ákveðið að þreyta
andstæðing sinn án þess að taka
hina minnstu áhættu sem leitt
gæti til taps. Það er ljóst að með
einu tapi enn yrði staða hans
harla vonlítil.
Næsta skák verður ekki tefld
fyrr en á föstudag þar eð sovét-
menn halda miðvikudaginn 7.
nóv. hátíðiegan í tilefni byltingar-
innar 1917.
Hvítt: Kasparov. Svart: Karp-
ov. Catalan byrjun: l.d4 Rf6 2.
c4 e6 3. g3 d5 4. Bg2 Be7 5. Rf3
O-o 6. 0-0 dxc4 7. Dc2 a6 8. a4
Bd7 9. Dxc4 Bc6 10. Bg5 a5 11.
Rc3 Ra6 12. Hacl Dd6 13. Re5
Bxg2 14. Kxg2 c6 15. Bxf6 gxf6
16. Rf3 Hfd8 17. Hfdl Db4 18.
Da2 Hd7 19. e3 Had8 20. Ha2 og
hér var samið um jafntefli.
r *
Iræðu Halldórs Asgrímssonar
sjávarútvegsráðherra á Fiski-
þingi í gær kom fram að fiskgæði
á síðustu vetrarvertíð hefðu verið
betri en árið á undan og þakkaði
ráðherra það kvótakerfínu.
Jón Magnússon skipstjóri og
útgerðarmaður frá Patreksfirði
lagði spurningar fyrir ráðherra og
þar á meðal hvað hann hefði fyrir
sér í þessu máli. Sagði Jón að
sannleikurinn væri sá að framan
af vetrarvertíð meðan afli var
góður hefðu sjómenn hent lakari
aflanum. Það væri skýringin á því
að gæðamat var betra. Enda væri
staðreyndin sú að gæðamat var
ekki betra síðari hluta vertíðar,
enda dró þá úr afla og menn hirtu
allt sem veiddist, sagði Jón
Magnússon.
Þá sagði Jón að ráðherra væri
búinn að lýsa því yfir í ræðu sinni
að kvótakerfið yrði notað áfram.
Samt væri það mál aðal mál Fiski-
þings. Þetta taldi Jón móðgun við
þingið.
Halldór Ásgrímsson sagði í
svari sínu að það væri Alþingis að
ákveða stjórnun fiskveiða og það
hefði enn ekki tekið sína ákvörð-
un. Þá sagðist Halldór ekki trúa
því uppá sjómenn að þeir hefðu
hent fiski í stórum stfl.
í þessu sambandi er rétt að geta
frétta um þetta mál í Þjóðviljan-
um frá sl. vetri þar sem það var
haft eftir mörgum sjómönnum að
lakasta netafiskinum væri hent
fyrir borð, til þess að skerða ekki
kvóta bátanna með 2. eða 3ja
flokks fiski.
-4S.dór
Fréttir
Ekki heil bm
Fréttaritari Ritzau mótmœlir rangsnúningi á fréttaskeytum
til Norðurlanda
Þetta er tómt kjaftæði og ekki
heil brú í þessu hjá honum:
sagði Magnús Guðmundsson,
fréttaritari Ritzau-fréttastofunn-
ar dönsku um útvarpsfrásögn af
Loðnan
Afurðir
hækka
erlendis
í gær var verðlagsráð sjáv-
arútvegsins kallað saman til
að ræða kaupauka til loðnu-
sjómanna. Ástæðan er sú, að
verð á loðnuafurðum erlendis
hefur upp á síðkastið hækkað
til muna. En til að hægt væri
að láta loðnusjómenn njóta
hækkaðs verðs er nauðsynlegt
að verðlagsráðið fjalli um
það.
sinum
fréttaskeytum hans til Norður-
landa í verkfalli BSRB.
Gissur Pétursson flutti í síðustu
viku pistil frá Kaupmannahöfn í
kvöldfréttum útvarpsins og fjall-
aði þarumfréttirfrá íslandií verk-
fallinu. Gissur sigði Ritzau-
fréttastofuna meðal annars hafa
flutt þau tíðindi frá íslandi að
valdarán væri yfirvofandi og
kennarar hygðust hernema út-
varpið til að senda þaðan áróður
yfir þjóðina.
Magnús sagði að í fréttaskeyt-
um sínum í upphafi verkfalls
hefði hann fjallað um það ástand
sem skapaðist eftir að fjölmiðlar
lömuðust allir í verkfallsátökun-
um. Hann hefði sagt að ísland
hefði á skammri stund breyst úr
upplýstu samfélagi í samfélag
kjaftasögunnar („ryktesam-
fund“) og nefndi tvær furðusögur
sem honum hefðu borist til
eyrna: valdaránssöguna og sögu í
kjölfar kennaramótmæla við
fjármálaráðuneyti um að þeir
hygðust taka útvarpið.
„Ég leyfi mér að fullyrða að
allar mínar fréttir eru híutlægar
óháðar" sagði Magnús við Þjóð-
viljann í gær, og sagði fréttaflutn-
ing útvarpsins koma sér mjög illa -
og skerða álit sitt og traust sem
blaðamanns.
Peter Scháfer er ritstjóri er-
lendra frétta hjá Ritzau, og sagði
hann við Þjóðviljann í gær að
fréttastofan hefði þegar beðið um
fréttapistil Gissurar skriflegan.
Hann sagði að fréttaþjónusta
Magnúsar væri að sínu áliti góð,
traust og yfirgripsmikil, og hvergi
bæri á óhlutlægni né æsistfl. -m
ASÍ - VSÍ
Samningar í nánd
Það er verið að vinna í sérsamning-
um, mest við ríkisfyrirtækin,
sagði Guðmundur J. Guðmundsson í
viðtali við Þjóðvfljann í gærkvöldi og
kvaðst ekki vi(ja fúUyrða að það yrði
samið í nótt
Samkvæmt heimildum Þjóðviljans
mun samstaða fyrir því að samrings-
tímabilið nái fram að áramótum 1985-
86, en þó verði hægt að segja samn-
ingunum upp 1. september.
Prósentuhækkanir sem samið
verður um em taldar liggja nálægt
þeim sem fólust í BSRB samningun-
um, en em þó öðm vísi. Þannig er
mun meira af hækkununum fólgið í
flokkatilfærslum.
Ákvæði um kaupmátt verða tæp-
ast betri en þau sem samdist um í
BSRB samningunum og munu tals-
menn VSÍ mjög ákveðnir í að hleypa
ASÍ samböndunum ekki út með betri
kaupmáttartryggingu.
,J3etta er eins og að renna í
steinvegg", sagði einn af samninga-
nefitdarmönnum ASÍ við Þjóðvilj-
ann.
-OS