Þjóðviljinn - 22.01.1985, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR
IÞROTTIR
Handbolti - karlar
FH álygnumsjo
Blikarnir yfirspilaðir í leik lélegra varna
FH-ingar áttu ekki erfitt með
að sigra Breiðablik í 1. deildar-
leik liðanna í Kópavogi. Yflr-
burðirnir voru miklir og lauk
leiknum 27:36.
Björn Jónsson skoraði fyrst
fyrir Blikana og var jafnt uppí
3:3, en þá fóru FH-ingar í gang og
juku bilið jafnt og þétt. í hálfleik
var staðan orðin 11:22 og um
miðjan síðari hálfleik var staðan
og allir
aðalmenn FH-inga teknir útaf.
Þá fóru Blikar að saxa á forskotið
og minnkuðu muninn í 9 mörk
áður en flautað var til leiksloka,
27:36.
Þetta var leikur lélegra varna.
FH-ingarnir hugsuðu of mikið
um sóknina og það bitnaði á
vörninni. En FH-sóknin var ein-
faldlega of sterk fyrir Blikana,
auk þess sem FH-ingar skoruðu
nær tíu mörk úr hraðaupphlaup-
um í fyrri hálfleik.
Blikarnir höfðu lítið að gera í
hendur Gaflaranna, og vantaði
mikið í leik þeirra. Bestur Blika
var Kristján Halldórsson. Þá átti
Björn Jónsson ágætan leik en
FH-ingar höfðu góðar gætur á
honum allan leikinn.
Þorgils Óttar var bestur FH-
inga og þá vakti athygli góð
frammistaða Óskars Þórs Ár-
mannssonar undir lok leiksins.
Mðrk UBK: Björn 6 (3), Kristján 5 (2), Aðal-
steinn 4, Alexander Þórisson og Kristján
Þór Gunnarsson 3, Einar Magnússon, Jón
Þ. Jónsson og Þórður Davíðsson 2.
Mörk FH: Kristján Arason 8 (4), Jón Erling
6, Þorgils Ó. 5, Hans Guðmunds og Óskar
Þór 4, Guðjón Guðmunds 3, Guðjón Árna-
son, Valgarður Valgarðsson og Sigþór Jó-
hannesson 2.
Dómarar voru Rögnvaldur
Rögnvaldsson og Gunnar Kjart-
ansson og virtust þeir stundum
bera fullmikla virðingu fyrir
skoðunum FH-inga. - gsm
Handbolti - karlar
Þórarar sprungu
Markmenn vörðu vel, - Sigmar skoraði
Torfi Magnússon og RagnarTorfason í baráttu undir ÍR
körfunni. Mynd: EOI.
Karfa-úrvalsdeild
Svona á ekki
að spila körfu
Valur vann ÍR eftir hlé
ÍR sótti ekki gull í greipar Valsmanna er liðin mættust í
Seljaskólanum á sunnudaginn. Þeir voru að vísu mun
betra liðið í fyrri hálfleik en í þeim seinni snerist dæmið
við. Valsmenn voru mun ákveðnari en lið IR heillum
horflð. í leikslok munaði 22 stigum á liðunum, 91:69 eftir
að ÍR-ingar höfðu verið sex stigum yfír í hálfleik og að
öllum líkindum þurfa ÍR-ingar að heyja baráttu við ÍS um
það hvort liðið heldur sér uppi.
ÍR var mun sterkara liðið í fyrri háifleik en tókst þó
aldrei að hrista Val af sér. í hléi var staðan 41:35 og
ÍR-ingar á áhorfendabekkjunum voru full bjartsýnir.
Von þeirra hrundi síðan til grunna fljótlega í seinni hálf-
leik en þá var aðeins eitt lið á vellinum. Valsmenn kom-
ust í 78:54 en slökuðu síðan á undir lokin. Lokatölur
91:69.
Tómas Holton og Kristján Ágústsson voru aðalmáttar-
stólpar Valsliðsins. Þá átti Einar Ólafsson ágæta spretti.
Hjá ÍR stóð Ragnar Torfason uppúr, aðrir leikmenn
nokkuð frá sínu besta. Seinni hálfleikur hjá liðinu var
einfalt kennsludæmi um það hvernig ekki á að spila
körfubolta, mikið um misheppnaðar sendingar og hittni
léleg enda var útkoma þeirra í seinni hálfleik afar slök,
aðeins 28 stig skoruð.
Stlg Vals: Tómas 23, Kristján 17, Jón Steingrímsson og Leifur Gústafs-
son 10, Einar Ólafsson 8, Jóhannes Magnússon 7, Torfi Magnússon og
Siguröur Bjarnason 6, Páll Arnar 5, Björn Zoéga 4.
Stig (R: Ragnar 20, Gylfi Þorkelsson 11, Hreinn Þorkelsson 9, Karl
Guðlaugsson 8, Björn Steffensen, Vignir Hilmarsson, Jóhannes Sveins-
son og Hjörtur Oddsson 4, Bragi Reynisson 3, Kristinn Jörundsson 2.
- Frosti
Haukar aðrir
4 stiga sigur gegn KR
Línur Úrvalsdeildarinnar skýrðust nokkuð á föstu-
dagskvöldið er Haukar sigruðu KR-inga í mikium bar-
áttuleik í Hagaskólanum, 73:69. Með sigrinum festu
Haukarnir sig betur í öðru sæti deildarinnar en KR og
Valur halda áfram baráttu sín á milli um þriðja sætið.
Fyrri hálfleikurinn var mjög sveiflukenndur, Haukar
náðu fljótlega forystunni, 8:2 og síðar 18:11. KR breytti
stöðunni í 26:20 sér í hag. Sex stiga forysta þeirra hélst
síðan fram að síðustu mínútum hálfleiksins er Haukarnir
röðuðu inn tíu stigum án svars og hálfleikstölur því þeim í
hag, 42:38.
Ivar Webester atkvæðamesti maður Hauka í leiknum
sankaði að sér fjórum villum í fyrri hálfleik og á áttundu
mínútu þess síðari þurfti hann að yfirgefa völlinn með
fimm villur. Þrátt fyrir þetta mótlæti tókst Haukum að
halda naumri forystu sinni alveg til enda, lokatölur 73:69.
Pálmar Sigurðsson var nokkur yfirburðamaður í
Haukaliðinu. ívar Webster var drjúgur í fyrri hálfleik,
skoraði þá 18 stig og lék vél í vörninni.
KR liðið var mjög jafnt. Guðni Guðnason var bestur
þeirra í fyrri hálfleiknum en auk hans voru þeir Birgir
Mikaelsen og Matthias Einarsson góðir. Barátta liðsins
var góð mest allan leikinn en nokkrir leikmenn léku
undir getu.
Stlg Hauka: (var W. 22, Pálmar 19, Henning Henningsson 8, Ólafur
Rafnsson og Eyþór Árnason 6, Ivar Ásgrímsson, Hálfdán Markússon og
Sveinn Sigurbergsson 4, Reynir Kristjánsson 2.
Stlg KR: Guðni 20, Birgir M. 16, Ólafur Guðmundsson 12, Matthías
Einarsson 10, Þorsteinn Gunnarsson 7, Jón Sigurðsson 6.
Dómgæslan var nokkuð gloppótt, hinn enski Bob
Ilieffe stóð sig ágætlega en Kristinn Albertsson var alltof
villuglaður. Fimm leikmenn fengu að sjá fimm villur áður
en leikurinn var úti og margar þeirra „umdeildar".
- Frosti
Karfa-1. d. karla
Fögnuðu
tvisvar
Keflvíkingar unnu Grindvík-
inga á föstudagskvöldið í 1. deild
karla, 94:71. Leikurinn var jafn
frammí seinni hálfleik þegar stað-
an var 43:41, en þá gerðu heima-
menn útum leikinn með 18 stig-
um á fimm mínútum. Guðjón
skoraði 32 stig og Jón Kr. 30 fýrir
Keflavík, Eyjólfur 32 stig og
Hjálmar 16 fyrir Grindavík.
Keflvíkingar fögnuðu, og í
búningsklefunum fögnuðu þeir
aftur þegar þær fréttir bárust að
enn einir Suðurnesjamennirnir
hefðu komið þeim til aðstoðar og
lagt Framara í Sandgerði, Reyn-
ir-Fram 60:53.
- m
Karfa - konur
KR efst
KR-liðið er eitt efst í 1. deild
kvennakörfu eftir þá leiki helgar-
innar sem úrslit hafa hafst úr.
KR-ingar sigruðu keppinautana
úr Haukum á laugardaginn með
52 stigum gegn 31, í hléi var stað-
an 25-15.
ÍR-ingar unnu tvo væna sigra
um helgina, þær unnu Njarðvík-
inga á föstudagskvöldið 26-21, og
á sunnudag lögðu ÍR-ingar stú-
denta með 42 stigum gegn 38.
Verðskuldaður sigur í báðum
leikjunum.
ÍR-stúIkur gætu enn blandað
sér í toppbaráttuna.en með sig-
rinum yfir Haukum er þó allt útlit
fýrir að bikarinn sé kominn hálfa
leið á Kaplaskjólsveginn.
Staðan
í úrvalsdeild körfunnar:
Njarðvík 13 12 1 1180- 962 24
Haukar..
Valur.
KR....
ÍR....
(S....
.14 11
1165-1063 22
1146-1085 14
1137-1091
1052-1186
Stigahæstlr:
Valurlngimundarson, Njarðvík....320
(varWebster, Haukum...........293
PálmarSigurðsson, Haukum......290
Guðni Guðnason, KR............259
Guðmundur Jóhannsson, ÍS......242
BirgirMikaelsson, KR..........214
Árni Guðmundsson, (S..........211
Tómas Holton, Val.............210
Ólafur Guðmundsson, KR........202
Kristján Ágústsson, Val.......201
Gylfi Þorkelsson, (R..........186
Hilmar Þorkelsson, ÍR.........185
í 1. deild karla:
Keflavík... 12 10 2 1066-806 20
Fram.......11 8 3 866-661 16
ReynirS....13 7 6 926-945 14
ÞórA....... 8 4 4 614-630 8
Grindavík.... 9 2 7 611-712 4
Laugdælir... 9 0 9 437-766 0
f 1. deild kvenna:
KR......
Haukar..
(R......
(S......
Njarðvík
...10 8
...10 7
...11 6
...10 4
... 9 0
m m
481-383
400-385
386-395
439-382
232-403
16
14
12
8
0'
Handbolti - karlar
Víkingur vann Prótt
Betri markvarsla og þéttari vörn
skóp öðru fremur sigur Víkings á
Þrótti er liðin mættust í 1. deild hand-
boltans f gærkvöldi. Eftir að skot-
heppni fyrrri hálfleiks lauk með
þriggja marka sigri Víkings, 17-14,
náði Þróttur að minnka muninn niður
f 20-19. Víkingsliðið hristi þá upp úr
erminni sex mörk án svars og eftir það
varð leikurinn einungis formsatriði.
Lokatölur 29-21.
Þorbergur Aðalsteinsson var fris-
kastur útispilara en þeir Karl Þráins-
son og Hilmar Sigurgíslason átti einn-
ig góðan dag. Kristján Sigmundsson
varði vel í seinni hálfleik.
Hjá Þrótti bar mest á Sverri Sverr-
issyni og þeir Konráð Jónsson og Páll
Ólafsson átu þokkalegan leik.
Mörk Vlkings: Þorbergur 9, Steinar
Birgiss. 5, Karl, Hilmar og Viggó Sig. 4,
GuomundurGuðm. 2, Einar Jóhanness. 1.
Mörk Þróttar: Sverrir 7, Páll og Konráö
4, Lárus Lár. 3, Gísli Ósk. 2, Birgir Sig. 1.
-Frosti
Eftir nokkuð jafnan fyrri hálf-
leik í leik Stjörnunnar og Þórs í 1.
deil í Digranesi var allur vindur
úr Eyjamönnum og Stjarnan
vann léttan sigur, 28-19. í hálfleik
var staðan 13-11. Þetta var nán-
ast endurtekning á leik Þórs við
Þrótt í síðustu viku.
Leikurinn byrjaði í jafnvægi og
á góðri markvörsiu hjá báðum
liðum. Þór náði að komast yfir
3-5, og fimmta markið gerði Sig-
mar Þröstur markvörður, sendi
boltann þvert yfir völlinn og
Brynjar Kvaran hafði farið of
langt út. Á næstu tíu mínútum
breyttu Stjörnumenn stöðunni í
9-6 og í hálfleik var staðan 13-11.
í síðari hálfleik var aldrei
spurning hvar sigurinn mundi
lenda. Staðan breyttist úr 14-12 í
23-14. Þegar tíu mínútur voru
eftir slökuðu Stjörnumenn á og
leikurinn var í jafnvægi það sem
eftir var, endaði 28-19.
Það var fátt sem gladdi augað í
þessum leik utan markvarslan hjá
Brynjari sem varði 18 skot, þaraf
2 víti, og hjá Sigmari Þresti sem
varði 16 skot, þaraf 3 víti.
Þórarar hjálpuðu Stjömunni
að sigra, til dæmis fóru 9 sending-
ar þeirra forgörðum, annaðhvort
beint í hendur andstæðinganna
eða beint útaf. Þetta nýttu
Stjörnumenn sér að sjálfsögðu.
Bestu menn Stjörnunnar vom
Brynjar og Magnús Teitsson.
Einnig átti Hermundur Sigmund-
son góðan leik.
Leikur Þórs var oft óagaður og
ráðleysislegur. Þó komu ágætis-
punktar inná milli. Bestur Þórara
var Sigmar Þröstur. Þá átti Elías
Bjamhéðinsson mjög góðan leik
í sókninni. Liðið líður mikið fyrir
að Gylfi Birgisson er meiddur og
getur ekki leikið.
Mörk Stjörnunnar: Guðm. Þórðarson 8
(2), Magnús 6, Eyjólfur 5, Hermundur 4,
Hannes Leifs 3, Sigurjón Guðmundsson 2.
Mörk Þórs: Elías 7, Páll Scheving 3
(11), Steinar 3, Óskar Freyr 2, Herbert,
Sigbjörn, Böðvar, Sigmar Þröstur 1.
-gsm
Knattspyrna
Páll dugði ekki Tý
Siglfirðingar, Grótta, Selfoss og Haukar uppí 1. deild
í innan húsboltanum
England
Um helgina var önnur og fjórða
deild karla í innanhússknatt-
spyrnu útkljáð í Laugardaishöll
og mikið sparkað. í hvorri deild
var keppt í fjórum riðlum og
unnu sigurvegarar í riðlunum sig
upp um deild, en neðstu liðin í 2.
deild féllu í þriðju. Grótta, Sel-
foss, Haukar og KS leika í 1. deild
að ári. Úrslit:
2. deild.
f A-riðli 2. deitdarinnar komst
Grótta upp á fullu húsi stiga en Njarð-
vík féll niður í þá þriðju. Ánnars urðu
úrslitin þessi:
Léttir-Austri.......................3-5
Njarðvík-Grótta.....................1-6
Austri-Grótta.......................3-5
Lóttir-Njarðvík.....................3-3
Njarðvik-Austri.....................5-6
Grótta-Léttir.......................5-3
f B-riðlinum var keppnin mjög tví-
sýn og aðeins tveimur leikjum í riðlin-
um Iyktaði með meira en eins marks
sigri. Selfyssingar, sem unnu alla leiki
sína með einu marki, komust upp í 1.
deild. Týr féll.
Leiftur-Bolungarvík.................4-5
Týr-Selfoss.........................4-5
Bolungarvík-Seifoss.................5-6
Leiftur-Týr.........................5-2
Týr-Bolungarvík.....................6-4
Selfoss-Leiftur.....................3-2
f C-riðlinum stóð baráttan á milli
Hauka og ÍR, Grindavík setti síðan
strik í reikninginn í síðasta leiknum
með sigri á ÍR og Haukar stóðu uppi
sem sigurvegarar.
Grindavik-Afturelding...............4-4
Haukar-(R...........................2-2
Afturelding-lR......................2-7
Grindavík-Haukar....................4-8
Haukar-Afturelding..................6-5
IR-Grindavík........................6-7
í D-riðlinum var KS óumdeilanleg-
ur sigurvegari. Eftir mikið basl í
fyrsta leik sínum gegn Ármanni, þar
sem þeir voru undir lengst af, voru
þeir illstöðvandi og unnu hin lið rið-
ilsins stórt.
Þróttur N.-Árroðinn.................6-0
KS-Ármann...........................4-4
Árroðinn-Ármann.....................4-3
ÞrótturN.-KS........................2-7
KS-Árroðinn.........................8-2
Ármann-Þróttur......................5-5
Það urðu því Grótta, Selfoss,
Haukar og KS sem komust upp í 1.
deildina en Árroðinn, Afturelding og
Njarðvík féllu niður í 3. deild.
4. deild
Uppúr 4. í 3. komust Vorboðinn,
Hafnir, Víkverjar og Leiknir. f A-
riðlinum varð Vorboðinn nokkuð ör-
uggur sigurvegari en keppnin um að
forðast fall var öllu tvísýnni. Baráttan
stóð á milli Geislans og Eyfellings og
tókst Geislanum að halda sér uppi á
betri markatölu.
Geislinn-Vorboðinn....................4-9
Eyfellingur-Stokkseyri...............2-8
Vorboðinn-Stokkseyri..................6-4
Geislinn-Eyfellingur..................7-7
Eyfellingur-Vorboðinn.................4-9
Stokkseyri-Geislinn...................7-3
f B-riðli voru Hafnir í nokkrum sér-
flokki, unnu alla sína leiki létt.
Hafnir-Mýrdælingur....................9-2
Sindri-Efling.........................3-7
Mýrdælingur-Efling....................4-5
Hafnir-Sindri.........................7-3
Sindri-Mýrdælingur....................7-2
Efling-Hafnir.........................5-9
í C-riðlinum voru Víkverjar nokkr-
um gæðaflokkum ofar en önnur lið og
markatala þeirra úr riðlinum var sér-
lega glæsileg, 35-9.
Hvöt-Ösp.........................14-2
Víkverji-Hveragerði................9-3
Ösp-Hverageroi....................4-9
Hvöt-Víkverji....................4-10
Víkverji-Ösp......................16-2
Hveragerði-Hvöt...................6-8
í D-riðlinum sem var jafnasti riðill
deildarinnar náðu leiknismenn sigri
þrátt fyrir tvö jafntefli en Vaskur sem
aðeins tapaði einum leik varð neðst í
riðlinum.
H.S.S-Vaskur......................7-7
Þór Þ-Leiknir R...................5-5
Vaskur-LeiknirR....................4-4
H.S.S.-ÞórÞ.......................6-2
ÞórÞ.-Vaskur......................9-6
LeiknirR-H.S.S....................7-4
-Frosti
Mjólkur-
dráttur
Fyrir helgi drógu enskir saman
undanúrslitalið í mjólkurbikarn-
um. Veðrið þar hefur þær afleið-
ingar að enn eru í keppni sjö lið og
ekkert vitað hvenær úr greiðist,
en uppúr hattinum kom þetta:
Norwich gegn Ipswich eða QPR,
Chelsea eða Sheffield Wednes-
day gegn Watford eða Sunder-
land.
Hart barist á Valslínunni: Jóhanna Pálsdóttir I markinu, Laufey Sigurðardóttir með boltann fyrir Akranes. Vamarmenn
Vals frá vinstri: Katrín Friðriksdóttir, Erna Lúðvíksdóttir, Helga Lúðvíksdóttir. Mynd: E.ÓI.
Sund
Atta Islandsmet
Eðvarð heim með silfur og brons
Fótbolti
Bautamot
KA heldur hið árlega Bauta-
mót sitt í íþróttahöllinni á Akur-
eyri helgina 9.-10. febrúar. Hei-
milt er að senda fleiri en eitt lið
frá hverju félagi á mótið. Þátt-
tökugjald er 2000 krónur á lið.
Þátttöku á að tilkynna fyrir mán-
aðamót til Stefáns Gunnlaugs-
sonar (h. 21717, v. 21818) eða
Indriða Jóhannssonar (h. 21913,
v. 23400), Akureyri.
íslensku keppendurnir á Gold-
en Cup-sundmótinu í Strassbourg
stóðu sig með mikill prýði. Eð-
varð Þ. Eðvarðsson vann tvisvar
verðlaun, silfur og brons, og þau
Ragnheiður Runólfsdóttir settu
alls átta íslandsmet á mótinu.
Nokkur þeirra voru skammlíf,
bætt á mótinu sjálfu. Af sjónar-
hóli sagnfræðinnar ber þar hæst
íslandsmet Eðvarðs í 200 m fjór-
sundi, - fyrra metið átti forn-
kappinn Guðmundur Gíslason og
var það sett 1972. Kominn tími
til. Þriðji keppandinn, Ragnar
Guðmundsson, var aftar í me-
rinni, en þó skammt frá úrslitum í
„gullna kflómetranum“.
Ragnar varð 22. af 28 í undan-
riðlum í 400 m fjórsundi á
5.09,26, 24. af 40 í 200 m skrið-
sundi á persónulegu meti,
2.04,71, og 10. af 20, tveimursæt-
um frá úrslitum, í 1000 m skrið-
sundi („gullna kílómetranum“).
Ragnheiður keppti fyrst í
undanriðlum í 200 m baksundi og
bætti þar eigið íslandsmet um
tæpar 3 sekúndur, 2.35,48. í
undanriðlum í 200 m fjórsundi
varð hún 8., synti á nýju meti,
2.32,03. Fyrra metið átti Þórunn
Alfreðsdóttir (2.32,50). í undan-
riðlum í 100 m baksundi lenti
Ragnheiður í 7. sæti á 1.19,01.
Hún komst í úrslit í tveimur
greinum af þremur. í 100 m
bringusundi varð hún aftur 7. á
1.18,75 og í 200 m fjórsundi 8., en
bætti íslandsmet sitt úr undan-
riðlum: 2.31,76.
Eðvarð Þ. Eðvarðsson keppti í
þremur greinum, náði silfri og
bronsi og setti íslandsmet í öllum
þremur. í undankeppni í 200 m
baksundi varð hann fyrstur á
metinu 2.11,99, átti sjálfur fyrra
met, 2.10,63. Hannvarðsjöundií
undanriðli í 200 m fjórsundi á ís-
landsmetinu 2.18,86, og sló þar
met Guðmundar Gíslasonar frá
'12 (2.19,00) og fyrstu í undan-
riðlum í 100 m baksundi á enn
einu meti, 1.01,07,áttisjálfur hið
fyrra (1.01,67).
í úrslitasundinu í 200 m bak-
sundi háði Eðvarð tvísýna keppni
við Frakkann Franck Horter,
Frakkinn vann á 2.09,60, en Eð-
varð fékk silfrið og bætti met sitt
frá undankeppninni: 2.10,63.
Tuttugu mínútum síðar kom að
úrslitum í 200 m fjórsundi,en þar
varð Eðvarð langt frá meti sínu
daginn áður og varð 7. á 2.21,42.
Hann náði hinsvegar bronsinu í
100 m baksundi á 1.00,62 og bætti
enn eigið met frá deginum áður.
Baksundið vanst á 1.00,26 og
annað sætið fékkst fyrir 1.00,42:
hörkukeppni.
Átta Islandsmet, eitt silfur og
eitt brons: frægðarför til Frans
undir stjórn þjálfarans Hafþórs
B. Guðmundssonar. Þetta var
sterkt mót. Þátttakendur voru
um 250 frá 22 þjóðum, þaraf
margir Ólympíufarar.
Keppt var í 50 m laug sem hér
fyrirfinnst ekki, en íslensku
keppendumir höfðu ráðrúm til
æfinga á mótsstað daga fyrir
keppnina. _ m
Badminton
Sigursælir tannlæknar
Hængur Þorsteinsson tann-
læknir og Þorsteinn Páll Hængs-
son sigruðu í fyrirtækja- og stofn-
anakepnni Badmintonsambands-
ins sem fram fór á sunnudaginn.
Kepp er í tvíliðaleik. í úrslita-
leiknum unnu þeir Hængur og
Þorsteinn lið frá annarri tann-
læknastofu, Friðleif Stefánsson
og Víði Bragason.
53 fyrirtæki tóku þátt og hefur
keppnin aldrei verið svo fjöl-
menn. Skartgripaverslunin Jón &
Óskar gaf öll verðlaun.
Borðtennis
Keppa í Danmörku
3. deild Evrópumóts hér í febrúar
Páll Pálmason kann fleira fyrir sér en að verja mark. Hér sést hann skora eitt með liði sínu Tý á móti Leiftri. En Týr tapaði leiknum og féll 13. deild. Mynd: E.ÓI.
Tíu manna hópur úr landslið-
inu í borðtcnnis fer í byrjun fe-
brúar til Danmerkur og keppir
þar við landslið Dana og þarlend
félagslið. Þessi ferð er liður í
undirbúningi fyrir 3. deild Evr-
ópukeppninnar í borðtennis sem
verður útkljáð hér á landi 15.-17.
febrúar.
Sten Kyst Hansen hinn danski
landsliðsþjálfari hefur valið eftir-
talda til keppni á Evrópumótinu:
Jóhannes Hauksson KR, Ragn-
hiidi Sigurðardóttur UMSB, Sig-
rúnu Bjarnadóttur UMSB, Stef-
án Konráðsson Stjörnunni, Tóm-
as Guðjónsson KR og Tómas
Sölvason KR.
Heimsmeistaramótið í borð-
tennis verður haldið í Gautaborg
28. mars til 7. apríl nk. og fara
væntanlega héðan 2 konur og 3-4
karlar en enn er ekki ákveðið
hverjir.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN! Þriðjudagur 22. janúar 1985
Þriðjudagur 22. janúar 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 11
Handbolti - konur
Eitt
mark
í hléi
Óbreytt staða eftir
stórsigra efstu liða.
Víkingur vann KR
naumlega
Efstu lið í 1. deild kvenna f hand-
boltanum áttu ekki í erfiðleikum upp-
við mörk andstæðinganna nú um
helgina. Rótburst í þremur leikjum,
Framarinn Guðríður Guðjónsdóttir
skoraði 17 mörk gegn Vestmannaey-
ingum og sýnist liðið geta sparað sér
umtalsverðan ferðakostnað með því
að senda hana eina sér útá land, -
sama markatala dugði Vfkingum til
sigurs á KR. Skagastúlkum tókst að
forða sér frá hinni algeru niðurlæg-
ingu f handbolta með því að troða inn
einu marki rétt fyrir leikhlé gegn Val,
staðan 17:1!
Fyrir norðan tapaði Þór fyrir FH,
22:45. í hálfleik var staðan 12:20.
Helstu skorarar Þórs: Þórunn S. 7,
Inga Huld 7, Þórdís 5. FH: Margrét
Th. 11, Kristjana 8, Sirrý 8, Kristín
Péturs 7, Arndís 4.
í Eyjum urðu heimamcnn engin
fyrirstaða toppliði Fram, töpuðu
15:38 (7:18). Markahæstar há Fram:
Guðríður 17 (7), Erla Rafns 10, Guð-
rún Gunnaras 5. Hjá ÍBV: Anna
Dóra 4 (2), Eyrún 3.
Víkingar mörðu sigur yfir KR í
Seljaskóla, 17:16 í jöfnum en ekki
jafn góðum leik. í hálfleik var staðan
10:9. Markahæst Víkinga: Inga Lára
9 (5). KR-inga: Karólína 6 (5), Jó-
hanna 4.
Alger einstefna á Akranesmarkið
þegar Valsarar buðu til kennslu-
stundar: 36:7, og 17:1 íhálfleik. Flest
mörk Vals: Kristín Arnþórsd. 9,
Guðrún Kristjáns 7, Erla L. 6, Magn-
ea 5, Soffía 4. í A: Ragna, Þórgunnur,
Sigurlín 2, Karítas 1.
Staðan f 1. deild kvenna eftir leiki
helgarinnar: Fram 9 9 0 0 288:134 18
Valur 9 8 0 1 207:138 16
FH 9 7 0 2 258:132 14
Vtkingur 8 4 0 4 130:153 8
KR 8 2 1 5 138:168 5
Þór, Ak 8 1 1 6 122:212 3
Akranes 8 1 0 7 106:229 2
(BV 9 0 2 7 131:214 2
HrG/JR/m
Blak
Hressir frá
Norðfirði
Þróttur, Neskaupstað heldur
áfram frægðarferli sínum í blaki.
Norðfirðingamir unnu tvo flokka
af fimm í hraðmóti Blaksam-
bandsins (yngri flokkar), og urðu
aðrir í einum flokkinum enn.
Úrslit: 1. flokkur pilta: 1.
Þróttur N, 2. HK, 3. Þróttur R. 3.
flokkur pilta: 1. Þróttur N, 2.
Þróttur R.-l, 3. Þróttur R-2, 4.
Stjarnan. 4. flokkur pilta: 1.
Stjarnan, 2. HK. 2. flokkur
stúlkna: 1. HK-1,2. Þróttur N, 3.
HK-2, 4. Fram. 3. flokkur
stúlkna: 1. HK-1,2. HK-2. Mótið
fór fram í desember.
Getraunir
Tveir með
tólf
í 21. leikviku Getrauna komu
fram tveir seðlar með 12 réttum
og var vinningur fyrir hvora röð
204.825 krónur. 38 seðlar höfðu
11 rétta, vinningur 4.620 á seðil
Vinningsröðin er birt með úrslit-
um og stöðu í enska boltanum á
næstu síðu, en draga varð um
flesta leikina.
J