Þjóðviljinn - 22.01.1985, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 22.01.1985, Blaðsíða 4
Úrslit 1. deild Chelsea-Arsenal...............1-1 Coventry-Aston Villa...........0-3 Ipswich-West Ham...........trestað Liverpool-Nonwich..............4-0 Newcastle-Leicester........frestað Nottm. For.-Sheff. W.......frestað Southampton-Sunderland.....frestað Stoke-Luton................frestað Tottenham-Everton..........frestað Watford-Manch. Utd.........frestað WBA-QPR....................frestað 2. deild Barnsley-Grimsby...........frestað Birmingham-Oldham..........frestað Blackburn-Cr. Palace.......frestað Brighton-Carlisle..........frestað Charlton-Carditf...........f restað Leeds-Notts County.............5-0 Manch. City-Wimbledon..........3-0 Middlesboro-Portsmouth.........0-0 Oxford-Huddersfield........frestað Sheff. Utd.-Wolves.........frestað Shrewsbury-Fulham..........frestað 3. deild Bristol R-Ðurnley..........frestað Cambridge-Gillingham.......frestað Derby-Preston..............frestað Doncaster-Reading..............0-4 Hull-Bolton................frestað Orient-Millwall............frestað Plymouth-Lincoln...........frestað Rotherham-Bournemouth..........1-0 Walsall-Bradford...........frestað Wigan-Brentford...............1-1 Newport-York...............frestað 4. deild Aldershot-Halifax..........frestað Blacpool-Colchester........frestað Bury-Chester...............frestað Hartlepool-PrtVale.............2-2 Hereford-Crewe.............frestaö Mansfield-Peterboro........frestað Northampton-Darlington.....frestað Scunthorpe-Exeter..........frestað T orquay-Swindon...........frestað Tranmere-Stockport.........frestað Wrexham-Rochdale...........frestað Staðan 1. deild Everton 24 15 4 5 53-29 49 Tottenham.... 24 14 5 5 49-25 47 Manch.Utd... 24 12 5 7 46-30 41 Sheff.Wed ... 24 11 8 5 39-24 41 Arsenal 24 13 3 8 44-31 40 Liverpool 24 10 8 6 33-22 38 Southampton 24 10 7 7 29-29 37 Chelsea 24 9 9 6 40-29 36 Nottm. For. .. 23 11 3 9 36-34 36' Norwich 25 10 6 9 31-34 36 W.B.A 24 10 4 10 37-36 34 AstonVilla ... 24 8 7 9 34-38 31 WestHam.... 23 8 7 8 30-34 31 Q.P.R 24 7 9 8 32-39 30 Watford 23 7 8 8 45-42 29 Leicester 24 8 5 11 42-45 29 Newcastle.... 24 7 7 10 37-49 28 Sunderland.. 23 7 5 11 28-35 26 Coventry 25 7 4 14 26-45 25 Ipswich 23 5 7 11 21-33 22 Luton 23 5 6 12 27-43 21 Stoke 24 2 6 16 17-52 12 2. deild Blackburn 24 14 6 4 47-23 48 Oxford 21 14 4 3 51-18 46 Manch.City.. 25 13 7 5 40-20 46 Birmingham 23 14 4 5 33-21 46 Portsmouth .. 24 11 9 4 39-32 42 Leeds 24 12 4 8 44-29 40 Grimsby 24 11 4 9 47-40 37 Huddersfield 24 11 4 9 33-35 37 Barnsley 22 9 9 4 25-15 36 Brighton 23 10 6 7 24-17 36 Fulham 23 11 3 9 42-41 36 Shrewsbury 23 8 8 7 40-35 32 Wimbledon... 24 9 4 11 42-51 31 Carlisle 23 8 4 11 24-34 28 Oldham 23 7 4 12 25-43 25 Sheff. Utd 24 6 9 10 35-40 24 Charlton 23 6 5 12 31-37 23 Cr. Palace.... 22 5 8 9 27-34 23 Middlesboro 24 6 6 12 27-38 24 Wolves 24 6 4 14 28-49 22 Notts. C 24 4 4 16 21-48 16 Cardiff 23 3 4 16 25-51 13 3. deild: BradfordC.. ...24 16 4 4 39-19 52 HullCity .... 24 12 9 3 39-23 45 Gillingham.. ....24 14 3 7 45-38 45 Rotherham. ...24 13 5 6 36-22 44 4. deild: Bury ...24 15 5 4 42-22 50 Hereford ...24 14 6 4 39-17 48 Blackpool... ...25 14 6 5 41-24 48 Chesterfield. ...24 13 8 3 41-24 47 íslenskar getraunir: (dregið í 9 leikjum): XI 1-2X2-X1 X-IXX Enskar getraunir: 3 stig: nr. 1,22,23,28,32,34,36, 37, 45, 50. 2. stig: nr.7, 15, 19, 21. lVistig: nr. 3,8,12,24,26,38,39, 41, 46, 52. ÍÞRÓTTIR John Wark: 15. markið í vetur. Enska knattspyrnan Eyjólfur að hressast hjá Liver- pool Ensku deildirnar á laugardag: frestað, frestað, frestað... Stórsigur hjá Leeds. Snautlegt á Highfield Road. Uppgjör toppliðannafór forgörðum ísnjónum. Gottí sjonvarpinu Heidur var hann bragðdaufur laugardagurinn fyrir sparkunn- endur. Þrátt fyrir að veður skáni nú ögn eru knattspyrnuvellirnir hjá cnskum í heldur bágbornu á- sigkomulagi. Af 96 liðum íensku deildunum fjórum voru aðeins 20 í eldlínunni. Stóri leikurinn í Lundúnum á milli Tottenham og Everton var einn hinna fjölmörgu leikja sem þurfti að fresta. Chelsea og Arsenal áttust við í eina leiknum í London og þrátt fyrir skítakulda mættu 35 þúsund áhorfendur sem er þriðji mesti áhorfendafjöldi á Stanford Bri- dge í vetur. Það hékk allt á blá- þræði hvort leikurinn gæti farið fram en vallarstarfsmenn á Stan- ford Bridge unnu nótt sem nýtan dag til að svo gæti orðið. Kostn- aðurinn hljóðaði uppá tíu þúsund pund, þannig að mikið var á sig lagt. Því miður eyðilagði slæmur völlur leikinn, en bæði þessi Iið geta leikið stórkemmtilegan fót- bolta. Hið unga og efnilega lið Chelsea var mun betra framanaf leiknum og tvívegis þurfti hinn óhemjulangi markvörður Arse- nal að lauma lúkunum fyrir skot framsóknarmanna Chelsea. í seinni hálfleik breytti Don Howe, stjóri Arsenal, um taktík og fyrir vikið lagaðist leikur liðs- ins. Hinn röggsami fyrirliði Arse- nal, Kenny Sansom, notfærði sér fum og fát í Chelsea-vörninni og sendi pottþéttan bolta á hausinn á Paul Mariener og sá var ekki í vandræðum með framhaldið. Fyrsta mark Marieners í tíu leikjum. Trevor Brooking, hinn margfrægi garpur, var á meðal þula BBC. Hann heldur því fram að Arsenal-liðið leiki núna betri fótbolta en fyrr á leiktímabilinu. Brooking er sérstaklega hrifinn af bakvörðum liðsins, þeim Kenny Sansom og Viv Anderson. Með tilkomu Steves Williams á miðjuna ætti leikur liðsins að lagast mikið, því drengur sá kann eitt og annað fyrir sér í sparkinu. En Arsenal náði ekki að komast í þriðja sætið, því að á síðustu mín- útunni tókst David Speedie að jafna leikinn, og þarvið sat. Englandsmeistararnir í Liver- pool byrjuðu sparkvertíðina öm- urlega og voru lengi framanaf í neðri huta deildarinnar. Þá var Ian Rush á sjúkralistanum og ekki heil brú í leik liðsins. En Rush hefur fengið heilsuna aftur, og gömlu Iðunnarskórnir hans reynast enn brúklegir. Á laugar- daginn var Norwich í heimsókn á Anfield. Liverpool komst snemma í 1-0 þegar John Wark afgreiddi sendingu Steves Nicholl í möskvana. Þetta var 15. mark Warks í vetur. Á síðasta kortér- inu bættu Lifrarpollungar við þremur mörkum. Ian Rush tví- vegis og Kenny Dalglish. Gamlir Liverpool-aðdáendur við Skjál- fandaflóann eru nú farnir að brosa útí bæði, og eru ekki í nokkrum vafa um að liðið verður í einu af þremur efstu sætunum. Sem stendur er liðið í sjötta sæti, 11 stigum á eftir Everton. Þridji leikurinn í fyrstu deildinni var háður á Highfield Road í Co- ventry og áttust þar við heima- menn og Aston Villa. Coventry sem rak stjórann sinn um daginn hefur verið í nokkurri sókn og meðal annars unnið þrjá síðustu leiki. Heldur var hún snautleg frammistaða heimamanna í leiknum, og Aston Villa átti ekki í neinum vandræðum, vann stór- an sigur, 3-0. Hinn knái útherji Villa, Mark Walters, skoraði tví- vegis, og var fyrra markið einkar glæsilegt, vinstrifótarbíra af löngu færi. Paul Rideont gerði þriðja markið, ellefta mark hans á leiktímabilinu. I annarri deild voru einnig þrír leikir, og komst Manchester City í þriðja sætið eftir sigurinn á Wimbledon. Gordon Smith var fyrstur til að finna netmöskvana og á eftir fylgdu mörk Daves Phillips og Grahams Baker. City hefur heldur betur tekið sig á eftir óbeysna frammistöðu fyrr í vet- ur. Liðið hefur alla burði til að komast uppí fyrstu deild. Liðið varð þó fyrir áfalli þegar Jim Mel- rose meiddist og varð að flytja kauða á slysavaröstofuna. Gamla goða Leeds United held- ur áfram að vera ljósið í tilver- unni. Á laugardaginn burstaði liðið Notts County 5-0, og ætti nú að vera óhætt að taka fram Leeds-trefilinn. Hinn kornungi og stórefnilegi Tommy Wright var heldur en ekki í formi og skoraði þrennu, en piltur hélt uppá 19 ára afmælið sitt fyrir nokkrum dögum. John Sheridan og Dennis Irwine bættu við mörkum. Til að gera illt verra fyrir County var Ian MacParland rekinn útaf seint í leiknum. Middlesboro og Portsmouth áttust við í markalausum leik. Þar bar helst til tíðinda að Kevin Bill- on hjá Portsmouth var rekinn útaf fyrir ljótt brot á gamla stríðs- jálknum Irwing Nattrass. Tweir ieikir voru leiknir í skosku úrvalsdeildinni. Stóri leikurinn var í Aberdeen þarsem heima- menn tóku á móti Rangers. Aberdeen rúllaði Rangers upp og vann 5-1. Frank McDougall skoraði þrívegis, og Eric Black og Tommy McQueen (úr víta- spyrnu) bættu við mörkum. Eina mark Rangers gerði Robert Prýz með sannkölluðum þrumufleyg. Tveir leikmenn voru reknir útaf á 25. mínútu, þeir Alli Dawson og Stewart McKinney. að lokum: Bestu þakkir til Bjarna Fel, höfuðkempu enska boltans, fyrir augnakonfektið á laugardaginn. Leikur Spurs og United frá árinu 1970 var frábær, meira af slíku, Bjami. AB/Húsavík Paul Mariner: skalli gegn Chelsea, fyrsta markið í tíu leikjum. 12 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 22. janúar 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.