Þjóðviljinn - 05.02.1985, Síða 1
Kristján Arason^sJlÉ
- markahæstur
og annar besti útleikmaðurinn,
Skíði
Hess er byrjuð!
Svisslendingar safna gulli
Erika Hess frá Sviss tók i gær
upp þráðinn þar sem hún hætti
síðast á heimsmeistaramótinu í
Austurríki fyrir þremur árum.
Þá varð hún þrefaidur
heimsmeistari og á HM í Borm-
eo á Italíu í gær tryggði hún sér
sigur i tvíkeppni, bruni/svigi,
með því að sigra glæsilega í svig-
inu. Hún hafði orðið 16. í brun-
inu sl. fimmtudag en vann það
upp með frábærum árangri í
gær. Sylvia Eder, 19 ára stúlka
frá Austurríki varð önnur og
Tarnara McKinney frá Banda-
ríkjunum þriðja.
Svisslendingar hafa því feng-
ið öll fjögur gullin sem keppt
hefur verið um á mótinu til
þessa. Michela Figini fékk sitt
annað gull með sigri í bruni
kvena á laugardag og Pirmin
Zurbriggen sigraði í bruni karla
á sunnudag. Ekki nóg með það,
Ariane Ehrat frá Sviss varð
önnur í bruni kvenna og Peter
Miiller frá Sviss annar í bruni
karla! - VS
V. Þýskaland
Janus bitinn!
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Janus Guðlaugsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, varð fyrir
þeirri sérstöku lífsreynslu að vera
bitinn af hundi öryggisvarðar rétt
fyrir leik Fortuna Köln gegn
Hessen Kassel í Kassel á laugar-
daginn. Læknir Fortuna bannaði
Janusi að leika með af þessum
sökum, hundurinn beit hann í
lærið, en Janus telur að þetta
muni ekki eiga sér nein eftirköst.
Hann varð þó að sleppa æfingu í
gær.
Janus hefur kært eiganda
hundsins en skylda er að hund-
arnir séu múlbundnir. Þá hefur
Fortuna kært leikinn, sem Hess-
en vann 2-1, og vinnur sennilega
þá kæru. Þetta er stórfrétt í blöð-
um hér í landi og V.Þjóðverjar
líta mjög alvarlegum augum að
svona nokkuð skuli geta gerst.
Körfubolti
Njarðvík-Haukar
Tvö efstu lið úrvalsdeildarinnar í
körfuknattleik, Njarðvík og Haukar,
drógust saman þegar dregið var tii
8-liða úrslitanna í bikarkeppni KKÍ f
gær. Njarðvíkingar hafa mjög gott
tak á Haukunum og hafa sigrað í
öllum níu úrvalsdeildarleikjum félag-
anna frá því í fyrrahaust.
Þessi lið drógust saman:
Valur-KR.a
Mörg
verðlaun
Kristján Arason stóð uppi sem
markahæsti leikmaður Tournoi
de France handknattleiksmóts-
ins. Hann gerði 37 mörk í leikjun-
um fimm, eða rúm 7 að meðaltali
í leik. Kristján var í mótslok kjör-
inn annar besti útileikmaður
mótsins, á eftir Ungverjanum Ko-
vacs. Páll Ólafsson var kjörinn
þriðji besti leikmaðurinn og Ein-
ar Þorvarðarson annar besti
markvörðurinn, á eftir Tékkan-
um Barda. Loks var íslenska liðið
kjörið það prúðasta á mótinu -
sannarlega glæsilegur árangur
þegar upp er staðið, en íslands,
hafnaði eins og kunnugt er í öðru
sæti á þessu sterka móti.
- VS
Þorbjörn Jensson
„Æfa aðferðir
gegn maður-á-mann“
Bogdan með góðar hugmyndir. Frakkaleikurinn betri en
Tékkaleikurinn - markið ótrúlegt, segir Þorbjörn.
IBK-Breiðablik
Fram-KR.b
Njarðvík-Haukar
í bikarkeppni kvenna leika saman í
undanúrslitunum ÍR-Haukar og
Njarðvík-ÍS. Leikjum bikarkeppn-
innar, í karla og kvennaflokki, skal
vera lokið fyrir næstu mánaðamót.
-VS
„Við eigum verðugt verkefni
framundan, og það er að æfa
leikaðferðir sem duga gegn
maður-á-mann vörn sem mikið
var beitt gegn okkur í Frakklandi
og er verða mjög algeng. Við höf-
um orðið góð tök á leikkerfum
gegn eðlilegum vörnum en ekki
þessu, en Bogdan þjálfari er með
góðar hugmyndir í þessu sam-
bandi sem þarf að taka fyrir og
leggja mikla áherslu á nú á næst-
unni. Júgóslavar munu örugglega
beita þessari varnaraðferð gegn
okkur í næstu viku,“ sagði Þor-
björn Jensson fyrirliði landsliðs-
ins í handknattleik í samtali við
Þjóðviljann við komuna frá
Frakklandi í gær.
„Annað sætið á Tournoi de
France er að mínu áliti góður ár-
angur. Við töldum okkur örugga
með að ná 3. sæti fyrirfram en í
lokin vorum við skammt frá efsta
sæti. Við hefðum þurft að sigra
Tékka með tveimur mörkum í
lokakleiknum til þess.
Toppurinn hjá okkur var í
fyrsta leiknum, gegn Ungverjum.
Það var sætur sigur því þeir hafa
ávallt verið okkur sérstaklega
erfiðir. Menn gerðu sér ekki háar
hugmyndir um árangur í þeim
leik en voru ákveðnir í að selja sig
dýrt. Síðan finnst mér leikurinn
við a-lið Frakka hafa verið næst-
besti ieikurinn, betri en við
Tékka. Frakkaleikurinn bauð
uppá meiri og betri handbolta og
gat þróast á hvom veginn sem
var. Hann var jafn þar til í lokin
að við misstum tökin á honum en
það hefði allt eins getað kömið
fyrir Frakkana og okkur. Tékka-
leikurinn var baráttuleikur en
gæðin ekki mikil. Þar vomm við
hræðilega óheppnir - þetta mark
hjá markverðinum Barda í lokin
er ótrúlegt - hann kastaði boltan-
um í blindni yfir völlinn og hafði
heppnina með sér. Einar Þor-
varðarson markvörður reiknaði
með að boltinn færi yfir markið,
eins og við hinir, og hætti að
bakka en þá dettur boltinn undir
þverslána og í netið. Við vorum
hreinlega lamaðir af undmn.
Þetta breytti engu, við áttum ekki
möguleika á að skora 2 mörk
þarna í lokin.
Ég er ánægður með þessa ferð
- þetta er mjög góður hópur og
góður andi ríkjandi í honum, allir
vilja fóma sér fyrir þau verkefni
sem við blasa“, sagði Þorbjörn
Jensson.
Ólympíumeistarar Júgóslava
koma hingað til lands í næstu viku
og ieika hér þrjá landsleiki, á
þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag.
Sagt er frá leikjunum við
Tékka og Frakkland-b á bls. 10-
11.
- VS
Getraunir
I 23. leikviku Getrauna kom
fram 3 seðlar með 12 réttui
leikjum og var vinningur fyr
hverja röð kr. 159,655. Með 1
rétta reyndust vera 118 raðir (
var vinningur fyrir hverja röð k
1.739.
Páll Ólafsson - þriðji
besti útleikmaðurinn.
Einar Þorvarðarson -
annar besti markvörð-
urinn.
Landsliðið
i
-
5
1
J
UMSJÓN: VÍÐIR SIGURÐSSON
Þriðjudagur 5. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9