Þjóðviljinn - 05.02.1985, Page 3
Körfubolti
Körfubolti
IR-ingar ólíkir
sjálfum sér!
Sigruðu KR 105-103 eftir framlengdan leik
með varaliðið inná
Leikir ÍR í úrvalsdeildinni hafa verið mjög
spennandi að undanfornu, og leikur þeirra við KR í
Höliinni á sunnudagskvöldið var engin undantekn-
ing þar á. Að loknum venjulegum leiktíma var jafnt
96:96 og því framlengt. IR-ingar náðu þá að vinna
sigur, þrátt fyrir að hafa misst 5 menn útaf.
Leiknum lauk 105:103. í hálfleik var staðan 53:58
fyrir KR.
ÍR liðið var ólíkt sjálfu sér í byrjun þ.e.a.s. það
byrjaði vel, og komst í 10:2. ÍR-ingar héldu foryst-
unni 2-6 stig, þar til 2 mín. voru til hálfleiks og
staðan 51:48. Þá kom góður kafli hjá KR sem
breytti stöðunni í 53:58 í leikhléi.
ÍR-ingar sýndu vígtennurnar í seinni hálfleik og
eftir 10 mín. var staðan orðin 82:70. Þá verða
þáttaskil. Gylfi Porkelsson varð að yfirgefa leikinn
vegna meiðsla á andliti og stuttu síðar fékk Hjörtur
Oddsson sína 5. villu, og var þá ekki að sökum að
spyrja, KR-ingar söxuðu á forskotið og komust yfir
þegar 2 mín. voru eftir. Karl Guðlaugsson jafnaði
91:91 með 3ja stiga skoti og kom ÍR svo yfir 96:94
þegar 25 sek. voru eftir með öðru 3ja stiga skoti.
KR-ingar náðu þó að jafna og var það besti maður
þeirra, Birgir Mikaelsson, með 2 vítaskotum á síð-
ustu sekúndunni.
Karl byrjaði framlenginguna með 3ja stiga körfu
og Bragi Reynisson bætti 2 stigum við, og kominn 5
stiga munur 101:96. Það var of mikið þó að ÍR hafi
misst Hrein Þorkelsson, Björn Steffensen og
Ragnar Torfason útaf til viðbótar við hina 2. Hittu
KR-ingar ekki úr 3 vítaskotum á síðustu mínútum
og síðan misstu þeir boltann í sókn þegar 15 sek.
voru eftir. KR hafði því möguleika á að vinna, en
það hefði ekki verið sanngjarnt því ÍR átti sigurinn
sannarlega skilinn.
ÍR-liðið átti góðan leik með Gylfa í fararbroddi
meðan hans naut við. Aðrir áttu allir góðan leik,
m.a. Vignir Hilmarsson sem sýndi styrk sinn í
framlengingunni en hann skoraði 4 stig.
Tveir menn stóðu uppúr í KR, þeir Birgir og
Guðni Guðnason. Aðrir ná^i ekki að rífa sig upp.
Stig ÍR: Gylfi 27, Hreinn 18, Karl 14, Björn 12, Hjörturog
Ragnar 11, Vignir 8 og Bragi 4.
Stlg KR: Birgir 40, Guöni 25,'Ástþór Ingason 13, Por-
steinn Gunnarsson og Birgir Jóhannsson 8, Jón Sigurðs-
son 6 og Matthías Einarsson 3.
Dómarar voru Rob Iliffe oe Kristinn Albertsson
og stóðu þeir sig vel. _ gsm
Staoan
t urvalsdeildinni í körfuknatt-
leik eftir leiki helgarinnar:
Njarðvík.16 14 2 1448:1223 28
Haukar......16 12
Valur.......16 9
Kr..........16 7
Ir..........16 4
IS..........16 2
1345:1224 24
Stigahæstir:
Valur Ingimundarson, Njarðvík.383
PálmarSigurðsson, Haukum......346
IvarWebster, Haukum...........314
Guðni Guðnason, KR............303
Guðmundur Jóhannsson, IS......288
ísak Tómasson býr sig undir að skjóta á körfu Valsmanna - Jón Steingrímsson gerir sitt besta til að hindra hann. Valur
vann Njarðvík öðru sinni í vetur og eru það einu tapleikir meistaranna til þessa. Mynd - eik.
Frakklandsmótið
Er þetta hægt?
Engin skömm að tapa fyrir Tékkum...
Evrópuknattspyrnan
Anderlecht missir
Excelsior í fallhœttu — Barcelona vinnur
sög
Anderlecht mátti sætta sig við jafntefli gegn fall-
baráttuliði Lierse, 1:1, í belgísku 1. deildinni um
helgina. Við þetta vann Waregem á um eitt stig -
sigraði Kortrijk 2:0 á útivelli. Anderlecht er með 33
stig og er enn ósigrað en Waregem kemur næst með
28 stig og FC Liege hefur 26 stig. CS Brúgge, lið
Sævars Jónssonar, vann Lokeren 3:1.
Öll efstu liðin í Hollandi unnu sína leiki. Feyeno-
ord vann Breda 3:1 á útivelli, Ajax vann Maast-
richt 3:1 á útivelli og PSV Eindhoven vann Go
Ahead 3:1 heima. Ajax og PSV hafa 28 stig hvort
en Feyenoord 24 en PSV hefur leikið einum leik
fleira en hin tvö. Excelsior, lið Heimis Karlssonar,
steinlá fyrir nágrönnum sínum í Rotterdam, 4:0, og
er komið í mikla fallhættu - hefur aðeins fengið eitt
stig úr síðustu 9 leikjunum.
Barcelona vann Osasuna 2:1 á útivelli á Spáni og
úr þessu getur bara Atletico Madrid ógnað Venab-
les, Archibald og félögum. Atletico vann Murcia
1:0 og er með 29 stig úr 22 leikjum en Barcelona
hefur 38 stig úr 23 leikjum.
Bordeaux náði þriggja stiga forystu í Frakklandi
- vann 3:0 sigur á Brest á meðan Nantes gerði 1:1
jafntefli við Bastia á Korsíku. Bordeaux hefur því
37 stig gegn 34 hjá Nantes en Auxerre er í þriðja
sæti með 30 stig.
- VS
Að tapa fyrir Tékkum er langt
frá því að vera nokkur skömm
fyrir íslenska landsiiðið í hand-
knattleik. En að tapa 16 -17 eftir
að hafa fengið aukakast 7 sekúnd-
um fyrir leikslok í stöðunni 16 -
16 er í meira lagi gremjulegt - það
á nánast ekki að vera hægt. Is-
lenska liðið var innan við hárs-
breidd frá jafntefli eða sigri á
Tékkum - sigur hefði þýtt efsta
sætið í mótinu og með jafntefli
hefði liðið alltént verið það eina
Körfubolti
Blikar unnu Reyni
Blikar inn í sendingu, brunuðu upp og
Kristján Oddsson skoraði 3 stig. Úrslitin
voru þar með ráðin, en leiknum lauk 91:86
og Breiðablik komið í 8 liða úrslit.
Stigahæstir voru: Breiðablik: Hannes30,
Kristján Odds 29 og Kristján Rafnsson 14.
Reynir: Jón Sveinsson 23 og Sigurður Guð-
mundsson 20.
Fyrir 10 dögum léku KR-ingar við Snæ-
fell í bikarkeppninni. KR vann þar léttan
sigur, skoruðu 121 stig gegn aðeins 58 stig-
um Hólmara. - gsm
Annarar deildar lið Breiðabliks sló í t 1.
deildar lið Reynis, Sandgerði úr bikar-
keppni KKÍ, s.l. föstudag. Leikur liðanna
sem fór fram í Kópavogi var nokkuð*
skemmtilegur. Reynir hafði yfirhöndina,
35:41 í hálfleik, en snemma í síðari hálfleik
náðu Blikar að jafna og komast yfir. Héldu
þeir forystunni þar til 9 sek. voru eftir, en
þá jafnaði Sturla Örlygsson úr vítaskotum
76:76, og þurfti því framlengingu.
Staðan var 86:84 í framlengingunni og
Reynismenn með knöttinn - þá komust
til að taka stig af Tékkunum sem
stóðu uppi sem sigurvegarar með
10 stig úr 5 leikjum.
Þetta var hnífjöfn viðureign á
sunnudaginn og munurinn var
aldrei meiri en tvö mörk. Tékkar
komust í 0 - 2, 5 - 7 og 14 - 16,
íslandí 5-4, 9-8, 10-9og 11-
10, en annars var jafnt eða Tékk-
ar marki yfir. Staðan var 9 - 9 í
hálfleik og hasarinn í lokinn var
ótrúlegur. Þegar staðan var 14 -
15 fékk ísland tvö færi til að
jafna, Alfreð Gfslason skaut í
stöng og Kristján Arason lét Bar-
da verja frá sér úr hraðaupp-
hlaupi. í stöðunni 15 - 16 klúðr-
aði íslenska liðið tveimur hraða-
upphlaupum en síðan jafnaði
Þorgils Öttar, 16 - 16. Þá varði
Einar Þorvarðaeson glæsilega og
Tékkinn Novak var rekinn af
leikvelli. Sigur blasti við íslenska
liðinu - 7 sek. fyrir leikslok fékk
það aukakast. Kristján reyndi að
gefa inní vítateig Tékka á Pál Ól-
afsson, hann náði ekki boltanum
sem fór til Barda markvarðar -
hann gerði sér lítið fyrir og sendi
hann þvert yfir völlinn, yfir Einar
Þorvarðarson sem stóð of fram-
arlega og í netið. Tékkar höfðu
sigrað, 16 - 17! Góður leikur hjá
báðum, sérstaklega varnarleikur-
inn.
Páll Ólafsson skoraði 5 mörk,
Kristján Arason 4, Alfreð Gísla-
son 4, Þorgils Óttar Mathiesen 2
og Þorbjörn Jensson 1.
Á laugardagskvöldið vann ís-
land auðveldan sigur á b-liði
Frakka, 28 - 19, eftir að hafa
komist í 8 - 3 og leitt 14 - 10 í
hálfleik. Kristján Arason skoraði
síðasta mark leiksins á glæsilegan
hátt, beint úr aukakasti eftir að
leiktíma var lokið. Páll Ólafsson
og Kristján Arason skoruðu 8
mörk hvor, Valdimar Grímsson
5, Jakob Sigurðsson 3, Þorbergur
Aðalsteinsson 3 og Alfreð Gísla-
son 1.
Tékkar sigruðu því með fullu
húsi stiga, fengu 10 stig. íslands
náði öðru sæti með 6 stig þegar
Ungverjar sigruðu Frakka 23 -18
í síðasta leiknum. Ungverjar
urðu þriðju með 6 stig og Frakkar
fjórðu, einnig með 6 stig. ísrael
fékk -2 stig og b-lið Frakklands
tapaði öllum sínum leikjum.
-VS
Valsmenn á
uppleið
Alltaf yfir gegn Njarðvíkingum og sigurinn öruggur
þrátt fyrir 103-101 í lokin
Valsmenn, sem hafa verið á uppleið í úr-
valsdeildinni undanfarið, náðu að leggja
Njarðvíkinga að velli í góðum leik á sunnu-
dagskvöldið. Valsmenn sigruðu með 103 stig-
um gegn 101. Sigurinn var öruggari en töl-
urnar gefa til kynna þar sem Njarðvíkingar
gerðu 6 síðustu stig leiksins á síðustu 30 sek-
úndunum. Staðan var 55:45 í hálfleik.
Valsmenn, drifnir áfram af stórleik Krist-
jáns Ágústssonar, náðu forystu og um miðjan
hálfleikinn var staðan orðin 33:16. Sunnan-
menn tóku sig þá á í vörninni og minnkuðu
muninn í 49:43, en góður kafli Vals undir lok
hálfleiksins tryggði þeim 10 stiga mun í hlé,
55:45.
Valsmenn héldu 10:15 stiga forskoti þar til
um miðjan hálfleikinn að Njarðvíkingar
minnkuðu hanní 6stig75:69. Valur jók mun-
inn aftur í 14 stig, en þá komu 10 stig í röð frá
Njarðvíkingum og staðan 93:89 og 3 mín.
eftir. Þá kom Kristján inná aftur hjá Val eftir
hvfld og þegar 30 sek, voru eftir var staðan
103:95. Eftir það komust Valsmenn ekki í
sókn, en Njarvíkingar skoruðu úr vítum og
tóku fráköst sem skiluðu 6 stigum á þessari
hálfu mínútu.
Kristján Ágústsson var besti maður vallar-
ins í þessum leik, en aðrir Valsmenn voru
einnig góðir. Liðið hefur vaxið mikið að und-
anförnu, og þessi sigur mjög sanngjarn.
Njarðvíkingar voru daufir í vörninni á
köflum, en hittu þokkalega. Styrkur þeirra er
ekki síst í breiddinni, en nánast virðist sama
hvaða menn eru inná, allir eru það jafnir að
styrkleika. Það væri því ekki réttlátt að taka
einstaka menn fram yfir aðra í þessum leik.
Stig Vals: Kristján 38, Torfi Magnússon 15, Leifur Gúst-
afsson 14, Páll Arnar 9, Jón Steingrímsson 8, Einar Ólafs-
son 9, Jóhannes Magnússon 6 og Siguröur Bjarnason 4.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson 30, Isak Tómasson 20,
Ellert Magnússon 14, Hreiðar Hreiðarsson 13, Gunnar
Þorvarðarson 9, Teitur Örlygsson 7, Jónas Jóhannesson
og Helgi Rafnsson 4.
Leikinn dæmdu þeir Jón Otti og Rob Iliffe
og eiga þeir heiður skilinn fyrir góða frammi-
stöðu.
-gsm
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
V. -Þýskaland
Uerdingen stöðvaði sigurgönguna
Fyrsta tap Bremen í fjóra mánuði. Alltaf gaman að skora, segir Atli. Stuttgart endurheimtir
leikgleðina. Bayern með fimmframmi og opna vörn. Stórbrotin markvarsla hjá Immel og Franke.
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans I V.-Þýskalandi
Lárus Guðmundsson og fé-
lagar í Bayer Uerdingen halda
sínu striki í Bundesligunni í knatt-
spyrnu. Á laugardaginn stöðvuðu
þeir sigurgöngu Werner Bremen
sem ekki hafði tapað leik síðan
29. september - sigruðu 3:1 í Uer-
dingen og sýndu frábæran leik.
Wolfgang Scháfer var lélegasti
maður vallarsins þegar Uerding-
en tapaði 1:0 í Bremen í fyrstu
umferðinni. Nú var hann hins
vegar útnefndur maður dagsins
eftir að hafa gert öll þrjú mörk
Uerdingen. Mark númer tvö kom
eftir að Burdenski markvörður
Bremen hafði náð að flækjast
fyrir þrumuskoti Lárusar sem fór
í fætur hans og til Schafers.
Bruno Pezzey minnkaði muninn í
2:1 áður en Scháfer gerði þriðja
markið. Lárus var veikur, með
magakveisu daginn áður, en lék
samt ágætlega og fékk 3 í einkunn
hjá Kicker.
„Ég er ánægður með leik okkar
og það er alltaf gaman að skora.
Vonandi heldur það áfram. Á
góðum degi stendur ekkert lið í
vegi fyrir okkur“, sagði Atli Eð-
valdsson eftir að Dússeldorf
hafði sigrað Leverkusen 3:2.
Dússeldorf var mikið betra en
mörkin komu á síðustu 25 mínút-
unum. Waas fyrst fyrir Leverkus-
en en Thiele tvívegis fyrir Dúss-
eldorf og síðan skoraði Atli, 3:1,
með glæsilegum skalla eftir fal-
lega sókn og langa og nákvæma
sendingu frá Bommer. Götz svar-
aði mínútu síðar og lokastaðan
3:2. Atli fékk 4 í einkunn.
Úrslit urðu annars þessi í fyrstu
umferð ársins:
Uerdingen-Bremen..................3:1
Köln-Braunschweig.................1:0
Dusseldorf-Leverkusen.............3:2
Mannheim-Karlsruher...............3:0
Stuttgart-Kaiserslautem...........5:0
Bayern M.-Bielefeld...............3:3
Frankfurt-Bochum................. 1:1
Schalke-M.GIadbach................4:1
Hamburger-Dortmund................4:2
brotin tilþrif en voru þó í taplið-
um. Immel hjá Dortmund sá til
þess að lið hans tapaði 4:2 í stað
9:2 í Hamborg og Franke í marki
Braunschweig hélt tapi liðs síns í
1:0 í stað 10:0. Von Heesen
skoraði þrennu fyrir Hamborger
og í Köln gerði Littbarski eina
markið. Þar var Franke í slíkum
ham að hann varði sex sinnum frá
Lehnhoff og fjórum sinnum frá
öðrum, maður gegn manni!
Efstu og neðstu lið Bundeslig-
unnar eru þessi: BayernM 18 11 4 3 42:24 26
Köln .18 11 2 5 43:33 24
Bremen .18 8 7 3 52:31 23
Uerdingen .18 10 3 5 37:22 23
M.GIadbach .18 8 5 5 47:34 21
Hamburger .18 7 7 4 34:29 21
Bochum .18 6 8 4 28:25 20
Stuttgart .18 8 3 7 48:28 19
léku mjög vel í seinni hálf-
leiknum hjá KR, sem og Fríða í
markinu.
Mörk Vals: Erna 7, Guðrún 3,
Harpa Sigurðardóttir 3, Kristín
Arnþórsdóttir 3, Katrín Fredrik-
sen 2 og Soffía Hreinsdóttir 1.
Mörk KR: Karolína 7, Sigur-
björg 7, Jóhanna Ásmundsdóttir
4, Snjólaug Benjamínsdóttir 1 og
Nellý Pálsdóttir 1.
Fram vann yfirburðasigur gegn
Þór á Akureyri á föstudagskvöld-
ið, 35-18. Staðan var 18-7 í hálf-
leik. Guðríður Guðjónsdórrir
skoraði 15 mörk fyrir Fram og
hefur þá gert 28 í síðustu tveimur
leikjunum. Erla Rafnsdóttir
skoraði 9, Sigrún Blomsterberg
7, Þóra Gunnarsdóttir 2, Oddný
Karlsruher......18 3 6 9 25:50 12
Dortmund........17 5 1 11 22:37 11
Bielefeld.......17 1 9 7 19:38 11
Braunschweig....18 4 2 1 2 22:44 10
Fullt af frábærum leikjum um
helgina en áhorfendur stóðu sig
illa og aðsóknin var með lélegra
móti.
Sigursteinsdóttir 1 og Guðrún
Gunnarsdóttir 1.
Mörk Þórs: Þórunn Sigurðar-
dóttir 5, Inga Huld Pálsdóttir 4,
Þórdís Sigurðardóttir 4, Hanna
Rún Jóhannsdóttir 3 og Sigurlaug
Jónsdóttir 2.
FH fór einnig létt með sína
mótherja, ÍBV, í Eyjum. Úrslit
urðu 38-13 eftir 21-6 í hálfleik.
Mörk FH: Kristjana Aradóttir 7,
Margrét Theodórsdóttir 6, Anna
5, Kristín Pétursd 4, Sigurborg
Eyjólfsdóttir 4, Arndís Aradóttir
4, Hildur Harðardóttir 3, María
2, Heiða 2 og Inga 1.
Mörk ÍBV: Anna 5, Eyrún 3,
Ragna 1, Unnur 1, Andrea 1, Vil-
borg 1 og Ólöf 1.
-HrG/K&H/VS
Handbolti
Leikmenn Stuttgart virðast
loksins hafa endurheimt leikgleð-
ina sem þeir týndu eftir að hafa
orðið meistarar í fyrravor og nú
burstuðu þeir Kaiserslautern,
5:0. Alger yfirspilun, og sigurinn
byggðist á frábærri vörn og
heilsteyptum leik. Fyrst kom
sjálfsmark, þá skoraði Allgöwer,
síðan besti maður vallarins, Olic-
her, tvö og Reichert j>erði fimmta
markið eftir hlé. Ásgeir Sigur-
vinsson lék ekki með vegna
meiðsla.
Bayern Múnchen lék með 5
menn frammi gegn botnliði Biel-
efeld og það kostaði liðið stig í 3:3
jafntefli. Vörnin var galopin og
það nýtti Finninn Rautienen sér,
lagði upp 2 marka Bielefeld og
kom síðan liðinu í 2:3. Augen-
thaler, Lerby og Höness skoruðu
fyrir Bayern. Bielefeld fyrst til að
skora 3 mörk í Múnchen í þrjú ár.
Tveir markverðir sýndu stór-
Katrín
Naumt gegn KR —Gúrrí með 15 — Stórsigur FH
Valsstúlkurnar voru rétt búnar
að tapa dýrmætu stigi gegn KR í
1. deild kvcnna á sunnudaginn.
Þegar 18 sekúndur voru eftir sveif
Katrín Fredriksen innúr hægra
horninu og tryggði Val nauman
sigur, 21-20.
Valur var yfir allan tímann ,11-
7 í hálfleik og komst í 14-9. Sigur-
inn virtist ekki í hættu, uns Karo-
lína Jónsdóttir og Sigurbjörg Sig-
þórsdóttir fóru að raða mörkum í
gegnum hripleka Valsvörnina.
Karolína jafnaði, 20-20, tæpri
mínútu fyrir leikslok en Katrín
bjargaði stigunum fyrir Val.
Erna Lúðvíksdóttir var lang-
best í liði Vals en á óvart kom hve
Guðrún Kristjánsdóttir var lítið
notuð. Karolína og Sigurbjörg
Heilsugæsla
Vantar
lækna
á þrjá staði
Það er erfitt að fá lækni til
starfa á heilsugæslustövarnar á
Þingeyri, Hólmavík og Þórshöfn.
Ástæðan er bæði einangrun stað-
anna og kjaramál, sagði Ingimar
Sigurðsson hjá Heilbrigðis- og
tryggingarmálaráðaneytinu
varðandi niðurfellingu á héraðs-
skyldu lækna.
Á þessum þremur stöðum er
lítill íbúafjöldi og það er ekkert
launungarmál að með núverandi
I kerfi býður fámennið ekki upp á
| sömu tekjumöguleika og á stærri
| stöðum. I dag eru þó allar heilsu-
i gæslustöðvar á landinú mannað-
ar læknum þó ekki séu allir fast-
ráðnir. Mun verða kostað kapps
um að leysa vandamál þeirra
í stöðva sem erfitt hefur reynst að
manna á annan hátt eftir að hér-
aðsskylda lækna var felld niður
sem skilyrði fyrir takmörkuðu
læknaleyfi.
-aró
J
Egilsstaðakauptún
Nýr
sveitarstjóri
Hlutkesti réði
úrslitum
Frá Magnúsi Magnússyni, Eg-
ilsstaðakauptúni:
Á fundi hreppsnefndar Egilss-
taðahrepps sl. sunnudag var ráð-
inn nýr sveitarstjóri til hrepps-
nefndarinnar, en umsóknarfrest-
ur um starfið rann út á gamlárs-
dag. Ellefu umsóknir bárust.
Nýráðinn sveitarstjóri er úr
Mosfellssveit, Sigurður R.
Símonarson að nafni. Var hann
samþykktur með hlutkesti á móti
Helga Halldórssyni, yfirkennara
við Egilsstaðaksóla. Við átkvæð-
agreiðsluna fékk hvor þeirra 3
atkv. en einn sat hjá.
Sigurður R. Símonarson er
fæddur 8. apríl 1942. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um á Laugarvatni 1962 og kenn-
araprófi úr stúdentadeild Kenn-
araskóla fslands 1968. Árið 1975
réðist hann að æfinga- og tilraun-
adeild Kennaraháskóla íslands
þar sem hann starfar nú sem æf-
ingakennari.
Kvæntur er Sigurður R.
Símonarson Jóhönnu Jóhanns-
dóttur fóstru og eiga þau þrjú
börn.
- mm/mhg
Fuglafóður
Fuglarnir í
vellystingum
Meðan ekki eru jarð-
bönn halda snjótitt-
lingar sig í birkitrjám
utan byggða. Skógar-
þrestir í fjörunum.
Starinn heimsœkir
baklóðirnar
„Maðurinn er ekki beinlínis að
bjarga náttúrnni með því að gefa
FRÉTTIR
fuglafóður, en fólk hefur gaman
af þessu og ég held að þetta sé allt í
lagi, þótt það skipti í raun og veru
ekki sköpum“, sagði Ævar Pet-
ersen fuglafræðingur.
Ævar var spurður um hvort nú
væri ástæða til að gefa fuglum
fóður. Sagði hann að hægt væri
að hæna starana að bakgörðum
með gjöfum en snjótittlingar
komi ekki í bæina nema í jarð-
bönnum. Starar eru alætur en
snjótittlingar eru fræætur eru t.d.
á birkinu. Skógarþrestir eru fræ-
ætur og borða ýmislegt úr dýrar-
íkinu. Fara t.d. niður ífjöru og ná
sér í maðka þar. „Það er vel hugs-
anlegt að matargjafir mannsins
hafi orðið til þess að tegundir eins
og skógarþrösturinn haldist við
hér álandi yfir veturinn. Hann er
farfugl og mundi e.t.v. fara til
annarra landa ef ekki væri fóður
fyrir hann hér.“
- jp
Tóbakið
Fer heim
í frí-
mínútum
til að reykja
Samkvæmt upplýsingum, sem
Tóbaksvarnanefnd hefur afiað
sér frá öllum landshlutum er
framgangur laganna um tak-
markanir á rcykingum næstum
alger.
Fréttir hafa t.d. borist af al-
mennum stjórnmálafundi á ísa-
firði nú nýlega, þar sem enginn
maður reykti. í barnaskóla
nokkrum á Vestfjörðum reykir
einn maður. í stað þess að reykja
í skólanum fer hann heim til þess í
frímínútunum. Bæjarstarfsmenn
á Akureyri hafa sérstakt reyk-
ingaherbergi uppi á 4. hæð húss-
ins. Starfsfólk í bönkum, póst-
húsum og öðrum afgreiðslustofn-
unum segir að yfirleitt þurfi það
ekki að benda viðskiptavinum á
reykingabannið. Einhver við-
skiptamaður sé oftast fyrri til
þess. Á veitingahúsum hafa
veitingamenn sérstök, reyklaus
svæði. Yfirleitt biðja reykinga-
menn um leyfi til að reykja séu
þeir að reka einhver erindi þar,
sem reykingar eru ekki greinilega
bannaðar.
- mhg
Flugleiðir
Farþegum
fjölgaði um
nær 100 þús.
Félagið flutti 659 þús-
und farþega í áæt-
lunarflugi á liðnu ári
þar af rúm 200 þús.
innanlands.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
um farþegaflutninga Flugleiða á
síðasta ári, flutti félagið samtals
659 þúsund farþega í áætlunar-
flugi það ár. Fjölgun frá árinu
1983 nemur tæpiega 100 þúsund
farþegum.
fstórum dráttum, skiptist þessi
fjöldi eftir leiðum á þann hátt, að
í Norður-Atlantshafsflugi voru
farþegar 248 þúsund og hafði
fjölgað um 20% frá fyrra ári. Á
Evrópuleiðum voru fluttir 195
þúsund farþegar og er þar um að
ræða 26.7% fjölgun. í innan-
landsflugi voru farþegar 216 þús-
und talsins og hafði fjölgað um
7.3% frá árinu áður.
Á síðasta ári fluttu vélar Flug-
leiða samtals 10.315 tonn af frakt
og pósti og er þar um að ræða
nokkra aukningu frá fyrra ári.
Það sem af er þessu ári hafa verið
miklar annir hjá Flugleiðum. Frá
áramótum til 26. janúar, flutti fé-
lagið samtals nær 39 þúsund farþ-
ega í áætlunarflugi sem er 28.7%
aukning frá sama tíma í fyrra.
Húsavík
Mokveiði af
úthafsrækju
Togarinn Júlíus Haf-
stein kom með 30
tonn eftir 6 daga
veiðiferð
Mikil vinna er nú við rækju-
vinnslu á Húsavík og það svo að
varla hefst undan. Togaranum
Júlíusi Hafstein hefur gengið fá-
dæma vel á úthafstækjuveiðum í
haust og vetur. í vikunni kom
hann til hafnar með 30 tonn af
rækju eftir aðeins 6 daga veiði-
ferð.
Aflaverðmæti þessara 30 tonna
uppúr sjó er um 750 þúsund krón-
ur. Að sögn Hermanns Larsen
hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur
reikna þeir með 20% nýtingu og
taldi hann að útflutningsverð-
mæti aflans yrði þá um 150 þús-
und krónur.
- S.dór