Þjóðviljinn - 05.02.1985, Síða 4
ÍÞRÓTTIR
Urslit
1. deild:
Arsenal-Coventry...............2-1
Aston Villa-lpswich............2-1
Everton-Watford................4-0
Leicester-Chelsea..............1-1
LutonTown-Tottenham............2-2
Manch. Utd-W.B.A...............2-0
Norwich-Nottm. Forest..........0-1
Q.P.R.-Southampton.............0-4
Sheff.Wed.-Liverpool...........1-1
Sunderland-Stoke City..........1-0
West Ham-Newcastle.............1-1
2. delld:
Cardiff-Middlesborough.........2-1
Carlisle-Oxford................0-1
Cr.Palace-Manch.City...........1-2
Fulham-Brighton................2-0
Grimsby-Sheff.United...........0-2
Huddersfield-Birmingham........0-1
NottsCounty-Shrewsbury.........1-3
Oldham-Leeds...................1-1
Portsmouth-Charlton............0-1
Wimbledon-Blackburn............1-1
Wolves-Barnsley................0-1
3. delld
Bolton-Doncaster...............3-1
Bournemouth-Bristol R..........1-0
Bradford City-Orient...........4-1
Brentford-Cambridge............2-0
BristolCity-Walsall............1-2
Burnley-Rotherham..............7-0
Gillingham-Swansea.............1-1
Lincoln-DerbyCounty............0-0
Millwall-Newport...............2-0
PrestonN.E.-Plymouth...........1-2
Reading-Hull City..............4-2
York City-Wigan................2-0
4. deild
Colchester-Norlhampton.........4-1
Crewe-Hartlepool...............2-0
Exeter-Southend................2-1
Halifax-Scunthorpe.............1-2
Stockport-Wrexham..............2-2
Chester-Blackpool..............0-0
Chesterfield-Bury..............0-1
Darlington-Aldershot...........1-1
Peterborough-Torquay...........1-0
PortVale-Hereford..............3-1
Rochdale-Tranmere..............2-1
Swindon-Mansfield..............1-0
Staðan
1. deild:
Everton 25 16 4 5 57-29 52
Tottenh 25 14 6 5 51-27 48
Man. Utd 25 13 5 7 48-30 44
Arsenal 25 13 4 8 46-32 43
Southmpt... 26 12 7 7 34-29 43
Sheff.Wed. 25 11 9 5 40-25 42
Liverpool . .. 25 10 9 6 34-23 39
Nott. For 24 12 3 9 37-34 39
Chelsea 25 9 10 6 41-30 37
Norwich 26 10 6 10 31-35 36
W.B.A 26 10 5 11 37-38 35
Aston Villa.. 25 9 7 9 36-39 34
West Ham .. 24 8 8 8 31-35 32
Q.P.R 26 7 10 9 32-43 31
Leicester. .. 25 8 6 11 43-46 30
Watford 24 7 8 9 45-46 29
Sunderland 25 8 5 12 29-36 29
Newcastle.. 25 7 8 10 38-50 29
Coventry.... 26 7 4 15 27-47 25
Ipswich 24 5 7 12 22-35 22
Luton 24 5 7 12 29-45 22
Stoke 25 2 6 17 17-53 12
2 deild:
Oxford 22 15 4 3 52-18 49
Blackburn... 25 14 7 4 48-24 49
Man. City.... 26 14 7 5 42-21 49
Birmingham 24 15 4 5 34-21 49
Portsmouth 25 11 9 5 39-33 42
Leeds 25 12 5 8 46-30 41
Barnsley 23 10 9 4 26-15 39
Fulham 25 12 3 10 45-44 39
Shrewsbury 25 10 8 7 46-37 38
Grimsby 25 11 4 10 47-42 37
Huddersf.... 25 11 4 10 33-36 37
Brighton 24 10 6 8 24-19 36
Wimbledon 25 9 5 11 43-52 32
Sheff.Utd.... 26 6 10 10 39-42 28
Carlisle 24 8 4 12 24-35 28
Charlton 25 7 6 12 32-37 27
Oldham 24 7 5 12 26-44 26
Middlesboro 25 6 6 13 28-40 24
Cr. Palace.. 23 5 8 10 28-36 23
Wolves 26 6 5 15 30-52 23
NottsC 26 4 5 17 22-52 17
Cardiff 24 4 4 16 27-52 16
3. delld:
Bradford C 26 17 5 4 44-21 56
Gillingham 25 14 4 7 46-39 46
HullCity 25 12 9 4 41-27 45
Bournemth 28 13 6 9 31-22 45
4. deild:
Bury 26 16 5 5 43-23 53
Chesterfld 26 14 8 4 42-25 50
Blackpool 26 14 7 5 41-24 49
Hereford 25 14 6 5 40-20 48
Markahæstir í 1. deild:
Kerry Dixon, Chelsea............16
Gary Lineker, Leicester.........16
Graeme Sharp, Everton...........15
Garry Thompson, WBA.............15
Mark Falco, Tottenham...........14
Gordon Strachan, Man.Utd........14
Imre Varadi, Sheff. Wed.........14
Enskar getraunir:
3 stig: nr. 4, 5, 9,11,19, 21,29, 37, 46
og 49.
2 stig: nr. 30, 35, 50, 54 og 55.
1 'h stig: nr. 7,8,13,14,16,17,18,20,
22, 27, 32, 36, 42, 45, 47, 52 og 53.
Enska knattspyrnan
Tvöfalt hjá
Everton?
Fjögurra stigaforskot á Spurs
Fjögur mörk ál9 mínútum
Brian Stein var skeinuhættur Totten-
hamvörninni og hann skoraði fyrra
mark Luton. Mynd: E.ÓI.
Gordon Strachan skoraði tvö góð
mörk fyrir Man. Utd. gegn WBA og
tryggði liðinu 2-0 sigur.
Þeir eru farnir að ræða um
það, ensku spekingarnir, hvort
Everton feti í fótspor Tottenham
og Arsenal og verði þriðja liðið á
þessari öld til að sigra tvöfalt í
ensku knattspyrnunni - verða
enskur meistari og bikarmeistari
sama árið. Líkurnar á því aukast
eftir því sem á líður - Everton
virðist eiga greiða leið í 8-liða úr-
slit bikarsins og á laugardaginn
náði félagið fjögurra stiga forystu
í 1. deild - malaði Watford 4-0 á
Meðan Tottenham rétt náði jafn-
tefli í Luton.
Mörkin fjögur á Goodison
Park komu á 19 mínútna kafla í
seinni hálfleik. Fram að því hafði
Watford verið síst lakari aðilinn í
leiknum og Jimmy Gilligan, Lut-
her Blissett og John Bames ógn-
uðu sterkri vörn Everton hvað
eftir annað. En á 56. mín. sáu 45
þúsund áhorfendur Paul Bracew-
ell snúa skemmtilega á varnar-
mann Watford og gefa á bak-
vörðinn Gary Stevens - hann
skaut, og af andstæðingi hrökk
knötturinn í netið, 1-0. Isinn var
brotinn og Stevens skoraði fljót-
lega aftur eftir góða sókn. Brac-
ewell gaf síðan á Kevin Sheedy
sem skoraði þriðja markið og
Trevor Steven skoraði,4-0,á 75.
mín. og haltraði síðan meiddur af
leikvelli. Sjöundi sigur Everton í
röð í deild og bikar.
Hálfleikarnir í sjónvarpsviður-
eign Luton og Tottenham vom
eins og svart og hvítt. Sá fyrri lé-
legur, sá seinni fjörugur, sér í lagi
síðustu 5 mínúturnar sem voru
ótrúlegar. Brian Stein kom
Luton yfir á 50. mín. eftir send-
ingu frá Emenka Nwajiobi en
fimm mínútum fyrir leikslok jafn-
aði Mark Falco fyrir Spurs. Nwa-
jiobi skoraði glæsilegt mark þeg-
ar tvær mínútur voru eftir, 2-1, og
sigur Luton blasti við - uns Gra-
eme Roberts bjargaði stigi í höfn
hjá Spurs þegar venjulegum
leiktíma var lokið.
Baráttugleði einkenndi leik
Manchester United gegn WBA
og með slíku framhaldi gæti liðið
veitt Everton og Tottenham
keppni um meistaratitilinn, þrátt
fyrir meiðsli lykilmanna. Gordon
„Þessi leikur mun skera úr um
hvort við séum nógu góður til að
berjast um efstu sætin“, sagði
Howard Wilkinson, stjóri Sheff.
Wed., fyrir leikinn við Liverpool
á Hillsborough. Strákarnir hans
stóðust prófið og vom nálægt
sigri frammi fyrir 49 þúsund á-
horfendum. Andy Blair tók
hornspyrnu á 58. mín., Lee
Chapman „flikkaði“ boltanum á
Brian Marwood sem kom Sheff.
Wed. yfir. Denis Law, sá gamal-
frægi skoski landsliðsmaður, var
við hlið þular BBC og sagði þegar
örfáar mínútur vom eftir að
leiknum væri ekki lokið, Liver-
pool væri aldrei búið að tapa fyrr
en flautað væri af. Hann hafði
varla sleppt orðinu þegar Mark
Lawrenson skoraði jöfnunar-
mark Liverpool á 86. mín., fyrsta
mark hans í vetur. „Gaman þegar
spádómarnir rætast hjá manni“,
sagði Law!
Don Howe, framkvæmdastjóri
Arsenal, ákvað eftir tapið lyrir
York í bikarnum að setja stjörn-
urnar Tony Woodcock og Charl-
ie Nicholas útúr liðinu, Nicholas
sem varamann. í staðinn fengu
Raphael Meade og Ian Allinson
tækifæri gegn Coventry - og
nýttu það til fullnustu, þeir gerðu
mörk Arsenal í 2-1 sigrinum.
„Þeir verðskulduðu að fá tæki-
færi - áhangendur Arsenal krefj-
ast þess að leikmenn liðsins gefi
100 prósent í hvern leik og því
valdi ég þá í staðinn fyrir Woo-
dcock og Nicholas. Markið hjá
Meade þar sem hann kastaði sér
fram og skallaði í netið sýnir einn
af hans hæfileikum, hann er
óhemju hugaður leikmaður“,
sagði Howe kampakátur eftir
leikinn.
Strachan gerði bæði mörkin í 2-0
sigrinum, það fyrra þegar hann
komst í gegnum vörn WBA eftir
snjalla hælsendingu frá Norman
Whiteside á 7. mín. og það seinna
á 42. mín. eftir undirbúning
Marks Hughes og Johns Gid-
mans. Derek Statham bjargaði á
marklínu WBA og Paul Barron
markvörður liðsins kom í veg
fyrir stærra tap með frábærri
markvörslu.
Þegar Southampton sótti QPR
heim á Loftus Road fyrir stuttu í
Mjólkurbikarnum hrósaði QPR
stórsigri, 4-0. Nú snerist dæmið
við, Southampton vann 0-4 á
gervigrasinu. Joe Jordan skoraði
í fyrri hálfleik og þeir David
Armstrong, Danny Wallace og
Steve Moran í þeim seinni. Sout-
hampton situr því á ný í fimmta
sæti.
Leicester hélt knattspyrnusýn-
ingu í fyrri hálfleiknum gegn
Chelsea en hefndist fyrir að skora
aðeins einú sinni - Gary Lineker
var þar á ferð eftir hornspyrnu
Ians Banks. David Speedie jafn-
aði úr vítaspyrnu fyrir Chelsea á
lokamínútu fyrri hálfleiks og eftir
að Lineker hafði klúðrað dauða-
færi á 47. mín. réð Chelsea^gangi
leiksins það sem eftir var. Urslit-
in 1-1.
Gordon Cowans skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Aston Villa í 18
mánuði þegar Villa sigraði
Ipswich 2-1. Colin Gibson
skoraði síðara mark Villa sem er
ósigrað á heimavelli síðan í sept-
ember.
Peter Davenport var hetja
Nottm. Forest í Norwich - hann
skoraði sigurmarkið, 0-1, þegar
þrjár mínútur voru til leiksloka.
David Hodgson færði Sunder-
land sinn fyrsta sigur síðan 15.
desember með því að skora eina
markið í leiknum gegn Stoke.
Alan Hudson hjá Stoke var rek-
inn af leikvelli fyrir munnsöfnuð
og ekkert nema 2. deildin bíður
botnliðsins.
Paul Allen kom West Ham yfir
gegn Newcastle og allt stefndi í
fyrsta heimsigur liðsins á árinu -
uns Chris Waddle jafnaði fyrir
Newcastle.
Oxford aftur
á toppinn
Oxford lék sinn fyrsta deilda-
leik síðan 1. janúar og með sigri í
honum, 0-1 í Carlisle, er liðið á
toppi 2. deildar á ný - efst fjög-
urra liða sem öll hafa 49 stig. Ke-
vin Brock skoraði markið á 42.
mín. eftir að Brian McDermott
hafði splundrað vörn Carlisle
með snilldarsendingu.
Enn vinnur Man. City - hefur
aðeins tapað einu sinni í síðustu
15 leikjunum. Andy Gray kom
þó Cr. Palace yfir með hjólhesta-
spyurnu sem hinn frægi alnafni
hans hjá Everton hefði verið
ánægðir með, en David Phillips
og Clive Wilson tryggðu City
sigur, 1-2.
David Geddis skoraði snemma
leiks fyrir Birmingham í Hudd-
ersfield og úrslitin 0-1. Blackburn
náði ekki að sigra og missti því
toppsætið. Jim Quinn kom þó lið-
inu yfir í London gegn Wimble-
don en Alan Cork jafnaði, 1-1.
Gamli bombarinn Peter Lorimer
kom Leeds til hjálpar í Oldham -
skoraði jöfnunarmark liðsins, 1-
1, úr vítaspymu þegar skammt
var til leiksloka.
Þó Wimbledon ynni Nottingham
Forest í bikarkeppninni í síðustu
viku hafði það ekki teljandi áhrif
á aðsóknina á leikinn yið Black-
burn, innan við 4 þúsund mættu.
Aðra sögu er að segja frá York
sem vann hinn frækna sigur á
Arsenal í bikarnum um síðustu
helgi. Þar urðu tafir á leik liðsins
gegn Wigan í 3. deildinni á
laugardaginn - og ástæðurnar
óvenjulegar - áhorfendaskarinn,
rúm 10 þúsund, þurfti tíma og
pláss til að koma sér fyrir! -VS
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 5. febrúar 1985