Þjóðviljinn - 08.03.1985, Qupperneq 6
ÞJÓÐMÁL
Fjörugur fundur Alþýðubandalagsins í fyrrakvöld
Hreyfiaflið er frelsi
einkagróðans
Þinghólsfundur AB: spurt um
ránskjaravísitölu, skattamál, hús-
nœðismál, skoðanakannanir, kaup
þingmanna, vinstri viðrœður, mál-
efni fatlaðra, atvinnumál, vexti.
Frelsi einkagróðans er
hreyfiaflið í íslensku samfélagi
um þessar mundir og þeir sem
ekki dansa eftir þeim takti
hreyfast ekki úr stað. Hver otar
sínum tota og andskotinn er
látinn um að hirða þann aft-
asta. Undirstöðuatvinnuveg-
irnir hafa stöðvast enda Seðla-
bankinn ráðgjafinn varðandi
lántökur í dollurum. Viðskipta-
hallinn er 4800 miljónir eða
sem svarar 100.000 krónum á
hverja 5 manna fjölskyldu.
Skattfrjáls skuldabréfakaup
eru látin viðgangast og stór-
gróðamenn aðstoðaðir eftir
föngum við að hirða eignir af
almenningi. Lögbirtingarblað-
ið er órækasta sönnun þess. Á
hinn bóginn stofnar ríkis-
stjórnin ráðgjafarþjónustu við
Húsnæðisstofnun til að
leiðbeina fólki við að hagræða
snörunni um hálsinn.
Á þessa leið mæltist Geir
Gunnarssyni alþingismanni á
fjörugum fundi Alþýðubanda-
lagsins í Þinghóli í Kópavogi í
fyrrakvöld. Tæplega 100 manns
héldu upp stemmningu með stöð-
ugum fyrirspurnum og ábending-
um til alþingismannanna Geirs,
Svavars, Ragnars, Helga, Stein-
gríms og Guðrúnar Hallgríms-
dóttur. Fundurinn var enda-
punktur yfirferðar forystu
Alþýðubandalagsins um Kópa-
vog, en fyrr um daginn höfðu
menn heimsótt yfir 50 vinnustaði
í bænum og rætt við hundruð
starfsmanna um stjórnmálin í
landinu.
Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins hélt einnig
ræðu á fundinum. Hann kvað
Bókamarkaður
Máls og Menningar
Líkamsrækt - Jane Fonda
ásamt kassettu eða plötu.
á aðeins kr. 598.-
Bókaveisla fjölskyldunnar
Bókabúð
LMÁLS & MENNINGAR J
LAUGAVEG118-101 REYKJAVÍK SÍMAR: 24240 - 24242
6
SlÐA - ÞJÓÐVILJINN
Um 100 manns komu á fundinn í Kópavogi en fyrr um daginn hafði forystusveit
Alþýðubandalagsins heimsótt um 50 vinnustaði í bænum. Ljósm. E.ól.
og atvinnuveganna, 2) auka
framleiðslu og framleiðni og
nefndi hann sem dæmi að full nýt-
ing sjávarafla gæfi þjóðarbúinu 5-
6 miljarða króna í tekjur á ári 3)
skera yrði niður yfirbygginguna í
einkageiranum og gróða millilið-
anna en kaffibaunamál SÍS væri
gott dæmi um falinn gróða afæt-
uaflanna í þjóðarbúinu.
Á fundinum kom fram fjöldi
fyrirspurna. Spurt var um tillögur
Álþýðubandalagsins varðandi
málefni fatlaðra og rakti Helgi
Seljan tillögur og framkvæmdir í
þeim efnum undir stjórn Alþýðu-
bandalagsins í síðustu nkisstjórn.
Spurt var hvort kaupmáttar-
trygging ylli óðaverðbólgu.
Ragnar Arnalds taldi slíka trygg-
ingu nauðsynlega en hliðarráð-
stafanir yrði jafnframt að gera
eins og að lækka vexti og auka
tekjur ríkisins með harðari skatt-
heimtu og tilfærslu einkagróðans
til samneyslunnar.
Spurt var um álit forystu
flokksins á fylgisaukningu Jóns
Baldvins samkvæmt skoðana-
könnunum. Svavar taldi ástæð-
urnar margar en ein þeirra væri
eftirspum fólks eftir galdra-
mönnum, manni sem gæti töfrað
hvítar kanínur upp úr hatti sín-
um. Önnur skýring væri sú að Jón
Baldvin væri ákaflega eftirlátur
íhaldinu og auglýstur upp af
málgögnum þess. Eða í hvaða
málum væri hann andsnúinn
Sjálfstæðisflokknum? Þá taldi
Svavar að Jón Baldvin hefði haft
frítt spil á síðustu mánuðum og
hann hefði komist upp með að
styðja ránsvextina, verslunarf-
relsið og að hann hefði setið hjá í
álmálinu án þess að vera spurður
grimmilega út í þá hluti.
Fyrirspurnirnar á þessum fundi
forystumanna Alþýðubandalags-
ins með félögum sínum í Kópa-
vogi skiptu tugum og enginn
kostur hér og nú að rekja þær
allar. En víst er að margur fór af
fundi fróðari um stefnu flokksins
í landsmálum.
—v.
Svavar Gestsson: Lágmarks-
tekjutryggingin er 14.075 krónur í
dag en ætti að vera 21.000 krónur
miðað við kaupmátt áranna
1980-82. Ljósm. E.ÓI.
ríkisstjórnina vera aðal efnahags-
vandamálið á íslandi í dag. Eina
varanlega lausnin á efnahags-
vandanum væri að koma stjórn-
inni frá. Frelsi fjármagnsins væri
að kollkeyra þjóðarskútuna sem
sæist best á því að sjávarútvegur-
inn væri að líða undir lok vegna
vaxtaokurs banka og sjóða undir
verndarvæng ríkisstjórnarinnar.
Svavar nefndi sem dæmi að ef
vextir sjávarútvegs væru lækkað-
ir um helming mætti hækka kaup
fólksins þar um 30-35% án þess
að tilkostnaður ykist. Þá vék
hann að húsnæðismálunum og
sagði að í þeim geira væru að eiga
sér stað mestu tilfærslur á fjár-
magni sem um getur í sögu lýð-
veldisins. Neðanjarðarhagkerfið
blómstraði á kostnað alþýðu-
heimilanna sem væru í hundraða
vís að missa eigur sínar í kjaftinn
á veðmöngurum. Nefndi Svavar
sem dæmi mann sem tók lífeyris-
sjóðslán upp á 50.000 krónur
1979 og greiddi 15% af launum
sínum í afborganir og vexti árið
eftir en á síðasta ári hefði afborg-
unin numið 31% af launum!
Þama sæju menn ránskjaravísi-
töluna í verki og engar áætlanir
væru uppi um það hjá stórnvöld-
um að stöðva þann leik. Annað
dæmi um fáránleika ránskjaravís-
itölunnar væri sú staðreynd að
brennivínshækkanir stjórnvalda
á síðasta ári hefðu orsakað 27.000
króna hækkun á verði íbúðar í
verkamannabústöðum!
Svavar ræddi ýtarlega um til-
lögur Alþýðubandalagsins til
lausnar þeim vanda sem við væri
að etja. Um leið og tækist að
koma ríkisstjórninni frá yrði að
hafa það að markmiði að 1) flytja
fjármagn frá milliliðum og neð-
anjarðarhagkerfi til almennings
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin
Aðalfundur ÆF Reykjavík
verður haldinn laugardaginn 9. mars nk.
Fundurinn hefst kl. 10.00 fyrir f ' degi og er ætlunin að Ijúka venju-
legum aðalfundarstörfum þá yrir hádegið, meðtaka og ræða
skýrslu fráfarandi stjórnar og jósa nýja.
- skipulagsmál ÆFR
- fjármál/fjáröflun
- útgáfumal
- fræðsluefni og námskeið
- léttmeti (ferðalög, skemmtikvöld...)
Bráðnauðsynlegt er, að sem flestir mæti á þennan fund.
Athygli vakin á
leiklistarnámskeiði!
Þann 12. mars hefst 3ja vikna öðru vísi leiklistarnámskeið, þ.e.
óvenju skemmtilegt. Námskeiðið verður haldið á þriðjudagskvöld-
um og á laugardögum að Hverfisgötu 105. Aðaláhersla verður lögð
á framsögn og leikræna tjáningu. Leiðbeinandi er Margrét Óskars-
dóttir. Þátttökugjaldi verður stillt mjög í hóf svo missið ekki af þessu
einstæða tækifæri. Skráning á flokksskrifstofunni, sími 17500.
Hressi hópurinn