Þjóðviljinn - 08.03.1985, Side 7

Þjóðviljinn - 08.03.1985, Side 7
Jk sumrin. Mest eru það Svíar sem koma en líka Þjóðverjar. Á vet- uma liggur svo bæjarlífið niðri að mörgu leyti og flestir að heiman í námi. Súsanna er í enskunámi í Ábo í Finnlandi en ég, sagði In- ger, flutti upp í sveit og stunda nú búskap. Við á Álandseyjum eru afskap- lega stolt yfir að á eyjunum er enginn her og herskylda þaraf- leiðandi engin. Álandseyjar sem eru um 6500 talsins tilheyra Finn- landi en hafa heimastjórn og eigin fána. Þó við tilheyrum Finn- landi er sænska okkar móðurmál en við verðum að læra finnsku til að geta lokið stúdentsprófi. Eiginlega höfum við verið alltof löt við að læra finnsku, þar er kannski um að kenna sterkum áhrifum frá Svíþjóð enda stutt þangað. Það er heldur enginn finnskur skóli á eyjunum og alla bóklega framhaldsmenntun verðum við að sækja út fyrir landsteinana. Þeir sem velja verknám hafa hins vegar meiri möguleika á eyjunum sjálfum. Ætli það sé ekki nokkuð jöfn skipting milli þeirra sem fara í framhaldsnám í Svíþjóð og Finn- landi. Nei, við höfum ekki kynnst mörgum íslendingum. Þeir voru líka fámennir á æskulýðsþinginu. Við höfum bara enn sem komið er skoðað borgina hér, farið í búðir og þess háttar. Um síðustu helgi fórum við svo í Hollywood og vorum mest hissa á þeim sið að stelpumar dönsuðu bara við stelpur og strákarnir við stráka. Það var bara einn sem bauð mér upp, segir Susanna, en þegar hann heyrði að ég var útlending- ur var hann horfinn á augabragði, segir hún og hlær. Vinur okkar einn sem fór með reyndi líka ár- angurslaust að bjóða upp íslensk- um dömum en þær fúlsuðu allar við útlendingum, segja þær stöllur og glotta. - Nei, segja þær stöllur og líta hvor á aðra, okkur fannst ekki mikil ölvun þarna. Það skemmtilegasta við þennan stað að okkar mati var klæðaburður- inn. Unglingar hér virðast klæða sig persónulegar en til dæmis í Svíþjóð. í Stokkhólmi eru allir 17 ára unglingar með sams konar hárgreiðslu og í eins fötum. Ung- lingar hérna virðast þora meira að klæða sig sem einstaklingar, sögðu þær Susanna og Inger að lokum. -aró Næstur á vegi Glætunnar varð ungur maður, Ole Markussen, einn af fulltrúum Grænlands á æskulýðsþingi Norðurlandaráðs. Glætan spurði hann um kynni hans af íslendingum og um Græniandi og svaraði hann þessu: Við grænlensku fulltrúarnir höfum eiginlega ekki kynnst ís- lendingum á þinginu. Fyrst og fremst kannski vegna þess að flugvélinni sem við komum með seinkaði og við misstum af kynn- ingunni í upphafi þingsins. Og það hefur verið nóg að gera. En við gáfum okkur samt tíma til að fara á 3 skemmtistaði, Holly- wood, Safarí og Óðal. Mér fannst vera afslöppuð og góð stemmning á Óðali. Það sem stakk mig í augun á hinum stöð- um var þetta hræðilega smink á stúlkunum. Þær voru einhvern veginn svo óeðlilegar og minntu helst á útstillingargínur. Ég hef ekkert komist út fyrir borgarmörkin en var hérna í eina viku fyrir nokkrum árum og fór þá og skoðaði Geysi og hvera- svæði. Ég var nefnilega veður- tepptur hérna, það var svo vont veður á Grænlandi að það var ekki hægt að fljúga þangað. - Ég er frá Narsaq, það er 2 þúsund manna bær á Suður- Grænlandi, en er í menntaskóla í Nuuk. Eftir stúdentspróf ætla ég í Ole Markussen. Ljósm. - E.ÓI. Af Álandseyjum og Grænlandi Um síðustu helgi var haldið á Hótel Loftleiðum Æskulýðsþing Norðurlandaráðs. Þar kom sam- an ungt fólk frá öllum Norður- löndunum og reifað ýmis mál. Eftir þingið hefur sumt af þessu unga fólki setið í Þjóðleikhúsinu og fylgst með gangi mála þar. Glætan náði í 3 fulltrúa af æsku- lýðsþinginu, tvær stúlkur frá Á- landseyjum og einn pilt frá Græn- landi og hafði við þau ör-örstutt viðtöl. Efst á svölum Þjóðleikhússins hitti Glætan tvo fulltrúa Álands- eyja, þær stöllur Súsönnu Skog- berg og Inger Andersson. Þær tóku sér hlé frá áheyrninni til að segja nokkur orð um lífið á Á- landseyjum. - Við erum báðar fæddar og uppaldar í Mariehamn, höfuð- borg Álandseyja. Mariehamn getur þó varla talist annað en bær, þar búa um 10 þúsund manns og við þekkjum svo að segja hvern einasta kjaft á okkar aldri. Lífið þar er mjög árstíða- bundið, þetta er ferðamannabær og mikill ferðamannastraumur á Susanna Skogberg og Inger Andersson háskóla í Danmörku. Á Græn- landi er enga framhaldsmenntun að fá. Allt námsefni er á dönsku og við tölum dönsku í öllum tím- um nema auðvitað í grænlensku- tímum en þeir eru 3 í viku. Ætli það sé ekki svipað að vera ungur hér og á Grænlandi. Nema kannski að atvinnuleysi er þar mikið. Þar er líka erfitt að koma sér upp þaki yfir höfuðið, í Nuuk til dæmis þurfa menn að bíða upp undir 10 ár eftir íbúð. Eru sumir að spá miklum landflótta vegna þessa. Atvinnuleysi er ekki þann- ig til komið að Danir taki vinnu frá okkur.- Grænlendingar hafa forgangsrétt í starf fram yfir Dani ef merintun þeirra er sambærileg. Hins vegar hefur menntunar- skortur hamlað okkur og þess vegna eru margir Danir í störfum sem krefjast háskólamenntunar. En ég hef engar áhyggjur af fram- tíð landsins. Það hefur átt sér stað hugarfarsbreyiing hjá ungum Grænlendingum, þeir afla sér menntunar og ætla sér að búa í sínu landi, Grænlandi, sagði Ole. aró Vinsældalistar Þjóðviljans Fellahellir ( 3) 1. Method of modern love - Hall & Oates ( 5) 2. Solid - Ashford and Simpson ( -) 3. Love and prlde - King ( -) 4. Kao Bang - Indochina ( 8) 5. Invlslble - Alison Moyet ( 2) 6. This Is not America - David Bowie ( 6) 7.1 want to know what love is - Foreigner ( 9) 8. Don’t look any further - Dennis Edwards ( 1) 9. Forever young - Alphaville ( -) 10. You are spinning around like a record - Dead or alive Rás 2 1(1) Save a Prayer - Duran Duran 2 (2) Love and Pride - King 3 (4) Solid - Ashford og Simpson 4 (3) Moment of Truth - Survivor 5 (10) This is not America - David Bowie og Pat Metheny Group 6 (12) Kao-Bang - Indochine 7 ( 8) 1 know hlm so well - Elaine Paige og Barbara Dickson 8(5) Forever Young - Alphaville 9 (5) Shout - Tears for Fears 10 (-) You Spin me Round (Like a Record) Dead or Alive Grammid ( -) 1. Meat is murder - The Smiths ( 1) 2. Hateful of hollow -The Smiths ( 8) 3. She’s the boss - Mick Jagger ( -) 4. Treasure - Coucteau Twins ( -) 5. First circle - Pat Methany Group ( -) 6. High land, hard rain - Aztec Camera ( 2) 7. Dreamtime - Cult ( 6) 8. Pop - Tones on Tail ( 4) 9. Aura - King Sunny Adé and African Beats ( 3) 10. The waking hour - Dali's Car

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.