Þjóðviljinn - 08.03.1985, Page 8
GLCTAN
Hl Starfslaun
'SÍflf handa listamönnum áriö 1985
Hér meö eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa ís-
lenskum listamönnum árið 1985. Umsóknirskulu hafa borist
úthlutunarnefnd starfslauna, menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, fyrir 10. apríl n.k. Umsóknirskulu auðkennd-
ar:
Starfslaun listamanna:
í umsókn skulu eftirfarandi atriði tilgreind:
1. Nafn, heimilisfang, fæðingardagur og ár, ásamt
nafnnúmeri.
2. Upplýsingar um náms- og starfsferil.
3. Greinargerð um verkefni, sem liggur umsókn til grund-
vallar.
4. Sótt skal um starfslaun til ákveðins tíma.
Verða þau veitt til þriggja mánaða hið skemmsta, en eins
árs hið lengsta, og nema sem næst byrjunarlaunum
menntaskólakennara.
5. Umsækjandi skal tilgreina tekjur sínar árið 1984.
6. Skilyrði fyrir starfslaunum er að umsækjandi sé ekki í
föstu starfi, meðan hann nýtur starfslauna, enda til þess
ætlast að hann helgi sig óskiptur verkefni sínu.
7. Að loknu verkefni skal gerð grein fyrir árangri starfslauna.
Tekið skal fram að umsóknir um starfslaun árið 1984 gilda
ekki í ár.
Menntamálaráðuneytið,
6. mars 1985.
flAUSAR STÖÐUR HJÁ
I REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Skrifstofumenn hjá Innkaupastofnun. Vélritunar-
og málakunnátta áskilin.
• Skrifstofumaður hjá Innkaupastofnun. Starfiö er
m.a. fólgið í sendiferöum.
Upplýsingar veita Sigfús Jónsson og Sævar Fr.
Sveinsson í síma 25800.
• Rafmagnseftirlitsmaöur í innlagningadeild Raf-
magnsveitu Reykjavíkur. Iðnfræðingsmenntun
áskiiin.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri R.R. í síma
686222.
• Bókasafnsfræðingur (deildarstjóri) óskast viö
nýtt útibú í efra Breiðholti.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Borgarbóka-
safns í síma 27155.
Umsóknum ber aö skila til Starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00
mánudaginn 18. mars 1985.
Sjúkraþjálfarar
Þroskahjálp á Suðurnesjum óskar að ráða 2 sjúkra-
þjálfara við endurhæfingarstöð félagsins að Suður-
völlum 9 í Keflavík. Laun skv. kjarasamningum BHM.
Viðkomandi þurfa helst að geta hafið störf 15. ágúst
nk.
Allar nánari upplýsingar veita Margrét Garðarsdóttir
sjúkraþjálfari í síma 92-3330 eða Sigríður Þórarins-
dóttir yfirsjúkraþjálfari í síma 92-2781.
Stjórnin.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
PÓSTUR OG SÍMI
óskar að ráða YFIRUMSJÓNARMENN M/SÍMRITUN
til starfa í Neskaupstað og á Höfn.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá stöðvarstjórum í
Neskaupstað og á Höfn.
LAUSAR STÖÐUR
Viftureimar, platínur, kveikjuhamar og þéttir,
bremsuvökvi, varahiólbaröi, tjakkur og nokkur verkfæri.
Sjúkrakassi og slökkvitæki hafa hjálpaö mörgum
á neyöarstundum.
UMFERÐAR
RÁÐ
Meistarakeppni
í diskódansi
Nú um helgina verða undan- - Tónabær í Reykjavík föstu-
rásir í íslandsmeistarakeppninni í daginn 8. mars kl: 20.00-01.00
diskódansi um land allt. Keppt - Dynheimar á Akureyri föstu-
verður á eftirtöldum stöðum: daginn 8. mars kl: 20.00-01.00
- íþróttahúsið á Egilsstöðum
laugardaginn 9. mars kl: 20.00
- Kiwanishúsið í Vestmanna-
eyjum laugardaginn 9. mars kl:
20.00
Úrslitakeppnin verður síðan
haldin laugardaginn 16. mars í
Tónabæ. Glæsileg verðlaun
verða veitt og sem dæmi má
nefna:
1. Sólarlandsferð til Rhodos m/
Samvinnuverðum & Landsýn
2. 20.000 kr. fataúttekt frá tísku-
vöruversluninni Goldie.
3. Aðgöngumiðar á „Litlu Hryll-
ingsbúðina“
Auk þessa verða veittir bikarar
og verðlaunapeningar fyrir verð-
launasæti bæði fyrir einstaklings-
og hópdans.
Þessi íslandsmeistarakeppni er
nú haldin 4. árið í röð og mun
úrslitakeppnin fara fram í Tóna-
bæ eins og venjulega. Keppnin
hefur notið mikilla vinsælda á
undnaförnum árum og oft hafa
færri áhorfendur komist að en
vildu. í ár mun sjónvarpið taka
keppnina upp og sýna hana í sér-
stökum dansþætti einni vikur
eftir úrslitakeppnina.
Æskulýðsráð Reykjavíkur og
Tónabær standa fyrir þessari
keppni í samvinnu við Danskenn-
arasamband íslands.
Allar upplýsingar varðandi
keppnina eru veittar í Tónabæ í
síma 35935.
Lukku Láki hættur að reykja!
Lukki Láki: strá í stað sígarettu.
Það voru ánægjulegar fréttir
sem birtust nýlega í tímariti Al-
þjóða heilbrigðisstofnunarinnar,
„World Health", þess efnis að
teiknimyndahetjan Lukku Láki
væri hættur að reykja. „Það var
ekki svo auðvelt að breyta þessu“
er haft eftir Maurice de Bevere
sem teiknar Lukku Láka undir
nafninu „Morris“.
„Sjáðu til, Lukku Láki er gerð-
ur eftir hinni dæmigerðu vestra-
ímynd sem við höfum séð í bíó
þar sem hetjurnar vöfðu sínar
eigin sígarettur og reyktu þær.
Lukku Láki ferðast um vestrið,
berst m.a. við ræningja og óald-
arlýð, alltaf með sígarettu ding-
landi í munnvikinu. „Það var
slæmt fordæmi fyrir unga fólkið
að fyrirmynd þess, hetjan, var síf-
ellt reykjandi. Mér fannst betra
að Lukku Láki reykti ekki fram-
ar“.
Lukku Láki, sem er þekktastur
evrópskra kúreka, er „fæddur" á
fimmta áratugnum þegar fínt
þótti að reykja og áður en sam-
hengið á milli reykinga og sjúk-
dóma var uppgötvað.
En sígarettan, sem hefur allan
þennan tíma verið eins og hluti af
Láka, er nú farin og í hennar stað
er komið strá. Það er ósennilegt
að hin nýja ímynd kúrekans komi
til með að valda aðdáendum hans
vonbrigðum og hafa neikvæð
áhrif á bóksöluna. „Þvert á móti
kann svo að fara að hún aukist“,
segir listamaðurinn, „vegna þess
að sumir foreldrar munu telja
það gott að hann reykir ekki
lengur, þá sé hann betri hetja. Ég
býst ekki við að missa lesendur -
alls ekki“.
Það er aldrei of seint að hætta!
Nágrannar
Hér á eftir fara nokkrar
heimspekilegar hugleiðingar Pét-
urs frá Holti um nágranna.
Eitt af hryllilegustu fyrirbær-
um plánetu jarðar eru tvímæla-
laust nágrannarnir (því miður).
Þessi skolpræsiskvikindi stunda
bókstaflega persónunjósnir og
það af miklu kappi. Sem dæmi
get ég tekið kvikindi sem býr
héma við hliðina á mér. Það hef-
ur sett á braut umhverfis jörðu
gervihnetti sem skipta tugum, í
Ijósi þess að geta fylgst með
hverju fótspori allra nágrann-
anna hér í hverfinu. Þessi tegund
kvikinda nefnist „sníkjudýr“ og
Hér er fjörið
Friðarviku félagsmiðstöðv-
anna lýkur nú í kvöld með
dansiböllum og uppákomum:
FÖSTUDAGUR 8. mars:
í Árseli treður hljómsveitin NT
eða No Times upp með frum-
samda tóniist frá kl. 8 til 11.30.
í Bústöðum verður hátíðaball í
tilefni friðarvikunnar með dans-
og tískusýningu frá kl. 8 til 12.
er mjög útbreidd í Suður- og
Vestur-Evrópu. Hún varð til á
endurreisnartímabilinu, eða
endurfæddist réttara sagt, því að
þessi tegund grófst undir ís á ís-
öldinni en varð síðan aftur út-
breidd þegar prófessor Dúrgen
fann síðustu frumuna af þessu
tagi í Suður-Evrópu af tilviljun,
og byrjaði að fjölga þessum kvik-
indum á ný. Þau hafa fjölgað sér
svo ört að allt að 65% jarðarbúa
teljast „sníkjudýr“. „Snýkjudýr-
in“ svokölluðu þekkjast á því að
þau em með grængulan gröft á
vinstri handlegg og einnig á því
að þau egnast mjög er þau heyra
orðið ííígghhíííí.
Hið hreinræktaða mannkyn er
nú að gera ráðstafanir um það
hvemig eigi að eyða „sníkjudýr-
unum“ og það kemur sem fyrst og
fremst til greina er að hið
hreinræktaða mannkyn verði
flutt á plánetum Gopplas og látið
bíða þar uns plánetan jörð verður
sprengd með geislavirku efni er
kallast x,13M en þetta efni eyðir
aðeins „sníkjudýmnum". Dýr
gróður, byggingar og vatn hald-
ast óskert og mannkynið getur
snúið aftur og verið hamingju-
samt.
Pétur frá Holti
Óvæntur glaðningur við dyrnar.
í Fellahelli er friðarvikuball frá
kl. 8 tU 12.
Tónabær verður lagður undir
forkeppni meistarakeppni ung-
linga í diskódansi frá kl. 8 til 11.
í Þróttheimum verða á dagskrá
ýmis skemmtiatriði frá hinum fé-
lagsmiðstöðvunum kl. 8 tU 12.
LAUGARDAGUR 9. mars:
í Agnarögn dansiball og diskótek
frá kl. 9 til 1.
í Traffic er dansiball á föstudags-
kvöld kl. 9 tU 2. Á laugardags-
kvöld er dansiball og seinni hluti
dagskrár um tískuna ’85.
Nú fer hver að verða síðastur
að sjá Draugasónötuna í MS.
Sýning sunnudagskvöld kl.
20.30.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 8. mars 1985