Þjóðviljinn - 08.03.1985, Síða 15

Þjóðviljinn - 08.03.1985, Síða 15
Ábyrgðin á bömunum og byltingunni Gladys Baez segirfrá byltingunni íNicaragua, starfi sínu og lífi sem skœruliði og móðir fjögurra barna Þetta er smávaxin en saman- rekin kona með glampa í augum sem gefur til kynna einbeittan vilja og kraft, sem mótast hefur af mikilli lífsreynslu. Andlitið er kringluleitt og glaðbeitt og kol- svart hárið myndar umgjörð um andlitið með tveim síðum fléttum sem falla niður á bringuna. Um hálsinn hefur hún band með stórri og klunnalegri stjörnu úr harðviði þar sem á er máluð and- litsmynd af Che Guevara og ham- ri og sigð. Stjarnan er gjöf sem hún fékk frá félögum sínum úr þjóðfrelsisher Sandínista 1978, árið fyrir fall harðstjórans Somoza. Þeir höfðu mótað þessa stjörnu með höndunum í sömu fangabúðunum og hún hafði sjálf verið pyntuð 11 árum áður. Hún er kona um fertugt, fjögurra barna móðir og naut þess heiðurs, eins og hún sagði sjálf, að verða fyrsta konan í Nicaragua til þess að halda til fjalla og taka sér vopn í hönd með þjóðfrelsis- her Sandínista. Það var árið 1967, tólf árum fyrir fall harðstjórans Somoza. Hún á nú sæti á þjóð- þingi Nicaragua fyrir flokk Sand- ínista og er í stjórn kvennasamt- akanna í Nicaragua og héraðs- stjórn fyrir León/Chinandega- Íérað í norðvesturhluta landsins. [ún er mótuð af skóla stríðsins og hinni ósérhlífnu baráttu skær- uliðans, en grunnskólaprófi lauk hún fyrst fyrir ári síðan. Lífshlaup hennar hefur verið ævintýraleg saga hetjudáða og fórna, sigra og ósigra. Þegar leið á samtal okkar var eins og smám saman opnaðist fyrir okkur heimur rísandi þjóðar sem staðráðin væri í að varpa af sér aldalangri kúgun. Hún talaði af öryggi og staðfestu og við fund- um að á bak við orðin bjó þján- ingarfull barátta heillar heimsálfu sem er að losa sig úr fjötrum. Gladys Baez er vissu- lega verðugur fulltrúi sinnar þjóðar og orð hennar eiga erindi til okkar allra: Framhald af bls. 16 Föstudagur 8. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.