Þjóðviljinn - 08.03.1985, Síða 21
Kvikmyndaviðburður
Tarkofskí-hcrtíðin
hefet á morgun
Tarkofskí-kvikmyndahátíð-
in sem sagt hefur verið frá hér
í blaðinu hefst í Háskólabíói kl.
17ámorgun, laugardag, með
sýningu myndarinnar
Bernska ívans. Á
sunnudaginn er svo röðin
komin að Andre Rúbléf, en
hún verður sýnd kl. 21.
Á mánudaginn eru tónleikar í
bíóinu, en þráöurinn verður tek-
inn upp aftur á þriðjudag kl. 21
með myndinni Solaris. Á miðvik-
udag kl. 21 verður Spegillinn
sýndur, fimmtudag kl. 21 Stalker
og á föstudagskvöldið kl. 21 fáum
við að sjá nýjustu mynd meistar-
ans, Nostalgía.
Allar þessar sýningar verða í
Háskólabíó, en síðan er ætlunin
að sýna hverja mynd kl. 17 dag-
inn eftir í Regnboganum, E-sal.
Hátíðinni lýkur um næstu helgi
þegar Tarkofskí kemur hingað til
lands.
Glöggir lesendur munu taka
eftir því að hér að ofan hefur
hvergi verið minnst á sjöundu
myndina sem Tarkofskí hefur
gert, lokaverkefni hans frá kvik-
myndaskólanum í Moskvu.
Ástæðan er sú að hún fékkst
ekki, Tarkofskí er lítið gefinn
fyrir að fólk sjái þessa skólamynd
og sá sem hafði með útleigu
Fræg sena úr Bernsku fvans
hennar að gera beygði sig fyrir
þeim vilja leikstjórans.
En hvað sem því líður er hér
um sanna veislu að ræða fyrir
kvikmyndaunnendur. Það er
ekki á hverjum degi sem kostur
gefst að sjá svo til allar myndir
eins og sama leikstjórans hér á
landi. Fólk ætti því að setja
rauðan hring utan um næstu viku
í almanakinu.
-ÞH
Félagsstofnun stúdenta
Þankar um
draumleik
Mdlþing um Ágúst Strindberg d
morgun
Á morgun, laugardag, kl. 13
hefst í Félagsstofnun
stúdenta við Hringbraut
málþingsem
Stúdentaleikhúsið og Félag
bókmenntafræðinema efna
til. Þankar um draumleik, er
yfirskrift málþingsins, en það
snýstumsænska
leikritaskáldið August
Strindberg, líf hans og list.
í frétt af þessu málþingi er að
finna eftirfarandi þanka um þetta
umdeilda skáld sem á síðustu
árum hefur komist í tísku meðal
leiklistarfólks:
„Var Strindberg alviturt séní
eða geðveikur, getulaus, hrædd-
ur kvenhatari? Svartsýnn og
þungur? Jafnvel djöfull í manns-
mynd? Stóttheitur „persónuníð-
ingur af guðsnáð“? Hvað segir
hann okkur, þessari hamingju-
sömustu þjóð veraldar? Eitthvað
sem við vildum síður heyra?“
Á málþinginu verða þessar
spurningar eflaust til umræðu, en
þar munu taka til máls sr. Gunnar
Kristjánsson, Halldór Björn
Runólfsson, Keld Gall Jörgensen
bókmenntafræðingur, Thor Vil-
hjálmsson og Þórður Kristinsson
heimspekingur. Eins og yfirskrift
málþingsins bendir til verður
verk Strindbergs, Draumleikur, í
miðpunkti umræðunnar, en
ástæðan fyrir því er að Stúdenta-
leikhúsið hyggst flytja það verk á
sumri komanda.
Aðgangur að málþinginu er
öllum frjáls og veitingar verða á
boðstólum. Kannski ekki van-
þörf á því þar sem málþingið
stendur fram undir kvöldmat ef
að líkum lætur.
-ÞH
Alviturt sóní eða geðveikur, getlaus, hræddur kvenhatari?
Fláskólabíó
Tónleikar
RudolfSerkin
Mánudaginn 11. mars nk.
verða haldnir tónleikar á
vegum Tónlistarfélagsins í
Háskólabíói og hefjast þeir kl.
21.00. Þar leikur Rudolf
Serkin, píanóleikari verk eftir
Beethoven, Sónötu op. 13
„Pathetique", Sónötu op. 8la
„Das Lebewohl" og Diabelli-
tilbrigðin.
Tónleikar þessir eru helgaðir
minningu Ragnars Jónssonar í
Smára, sem var einn af stofnend-
um Tónlistarfélagsins, formaður
og líf þess og sál um margra ára
skeið.
Nýlistasafnið
Georg
Guðni sýnir
í dag, föstudag, opnar ungur
myndlistarmaður, Georg Guðni
Hauksson, fyrstu einkasýningu
sína í Nýlistasafninu við Vatns-
stíg. Þar sýnir hann málverk, en
hann hefur áður tekið þátt í
nokkrum samsýningum. Sýning-
in verður opin alla daga kl. 16-20
fram til 17. mars.
-ÞH
Sjón
Á laugardaginn var birtist
hér í blaðinu mynd og frásögn
af f ram lag i sú rreal istans Sjón
tilfundarumíslenska
Ijóðagerð. Sjón er ekki við
eina fjölina felldur í kúnstinni,
og á morgun, laugardag, kl.
14,opnar hann sýnungu á
brúðum í Gallerí Langbrók.
Sýninguna nefnir Sjón „Nobo-
dy’s Baby Dolls“ og gefur þar að
líta brúður sem þiggja nöfn sín af
frægum konum úr sögunni,
þeirra á meðal Gertrude Stein,
Emily Bronté, Flora Tristan og
Billy Holliday.
Sýningin verður opin virka
daga kl. 12-18, en kl. 14-18 um
helgar fram til 24. mars. -ÞH
Gallerí Langbrók
í brúðuleik
Brúður Sjón eru örlítið frábrugðnar þeim sem venjulega sjást í Leikbrúðulandi.
Ár œskunnar og tónlistarinnar
Sinfónía
œskunnar
Áriðíár, 1985, ertileinkað
æskunni og tónlistinni. Þetta
tvennt sameinast í tónleikum
sem haldnirverðaannað
kvöld, laugardag, kl. 19 í
Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Þáverðafyrstu
tónleikar nýstofnaðrar
Sinfóníuhljómsveitar
æskunnar.
Það voru skólastjórar tón-
listarskóla landsins sem ákváðu
nú í janúar að stofna svona
hljómsveit og eru nemendur
þeirra í sveitinni, alls yfir 80 tals-
ins. Eru tónleikamir á morgun
árangur námskeiðs sem ung-
mennin sóttu um hálfsmánaðar
skeið undir stjóm Paul Zukof-
sky. Hefur verið æft þrjá tíma á
dag og sjö tíma um helgar.
Á tónleikunum verða fluttir
þrír þættir úr Wozzeck eftir Al-
ban Berg og Sinfónía nr. 1 í c-
moll eftir Johannes Brahms. Að-
gangur er ókeypis og öllum heim-
Ul. -ÞH
Föstudagur 8. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21