Þjóðviljinn - 08.03.1985, Page 24
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Föstudagur 8. mars 1985 56. tölublað 50. órgangur
DJOÐVIUINN
Smárafhlöður
20 ungböm á sjúkrahús
Stórhœttulegt að gleypa litlar rafhlöður. Fjöldi slíkra dœma á síðustu mánuðum.
Um 20 ungabörn hafa verið
flutt á sjúkrahús hérlendis á
síðustu mánuðum eftir að hafa
gleypt smárafhlöður. í öllum til-
fellum hefur farið betur en á
horfðist. Þetta kemur fram í grein
eftir Þröst Laxdal barnalækni í
nýjasta tölublaði Heilbrigðis-
mála.
Hér er fyrst og fremst um að
ræða rafhlöður úr myndavélum,
úrum og heyrnartækjum en í sí-
auknu mæli úr alls kyns tölvuspil-
um sem hvarvetna ryðja sér til
rúms, ekki síst meðal barna og
unglinga.
I rafhlöðunum eru ýmis kvik-
asilfursambönd, einkum kvika-
silfuroxíð sem auk eiturverkun-
arhættu eru mjög ætandi. Einnig
innihalda sumar rafhlöðurnar
kvikasilfurklóríð sem er mun
eitraðra.
Mest er hættan ef rafhlaðan sit-
ur einhvers staðar föst og efni
þessi komast í beina snertingu við
slímhúð. Getur sáramyndun í vé-
linda orðið á mjög skömmum
tíma vegna þrýstings, segir í grein
Þrastar.
Hann segir að tilgangslaust sé
að gefa uppsölulyf og jafnvel ó-
æskilegt. Þó lítil hætta sé á fylgi-
kvillum eftir að rafhlaðan hefur
skilað sér geti þeir verið mjög al-
varlegir og því fyllsta ástæða til að
fylgjast með þessum börnum. Því
er brýnt að almenningur geri sér
grein fyrir því hvaða hætta er hér
á ferð fyrir óvita. - lg.
Skák
Helgi-Larsen aftur í bið
/ 5. umferð tapaði Helgifyrir Lars Karlsson og Jóhann á lakari stöðu í biðskák gegn Pinter
Helgi Ólafsson og Bent Larsen
tóku í gær til við biðskák þeirra
úr 4. umferð skákmótsins í Kaup-
mannahöfn. Eftir harða baráttu
beggja fór skákin aftur í bið og
hefur Helgi peð meira en samt
telja menn skákina jafnteflislega.
Og síðan fór Helgi beint úr bið-
skákinni í 5. umferð og tefldi við
Svíann Lars Karlsson og þá tap-
aði Helgi. Jóhann Hjartarson
tefldi í 5. umferð gegn efsta
manni mótsins, Ungverjanum
Pinter og fór skák þeirra í bið.
Hefur Jóhann lakari stöðu.
Aðeins tveimur skákum lauk í
5. umferð, Karlsson vann Helga
og Plastett vann de Firmian. Aðr-
ar skákir fóru í bið.
Úrslit 4. umferðar urðu þau að
Smyslov sigraði Karlsson, Plast-
ett sigraði Mortensen, Jóhann
Hjartarson sigraði de Firmian,
Pinter og Carsten Hoi gerðu jafn-
tefli og skák Helga og Larsen og
Christiansen og Hoi fóru aftur í
bið.
Pinter frá Ungverjalandi er
efstur með 3.5 vinninga en annars
er staðan mjög óljós vegna fjölda
biðskáka.
- S.dór
Eggjabœndur
Kópavogur
Opið skolpræsi
í íbúðahverfi
íbúðareigandi trúlega tengt skólp-
lögn við regnvatnslögn
Það hefur einhverjum hús-
byggjanda orðið á mistök og
hann tengt skolplögn við
regnvatnslögn, sagði Stefán Stef-
ánsson tæknifræðingur hjá Kóp-
avogsbæ til skýringar á opinni
skolplögn skammt austan við
Snælandsskóla.
Við höfum verið að leita að
þessu undanfarið og notum til
þess útilokunaraðferð. Við setj-
um litarefni í brunna en það er
lengi á leiðinni. Það getur líka
komið fyrir að við verðum að fara
inn í hús og setja litarefni í kló-
settin. Það er greinilegt að í þessu
tilfelli hefur skolp úr húsi verið
tengt við regnvatnslögn.
Slíkt gerist oft í nýbyggingar-
hverfum en hér getur eins verið
um viðgerð á gömlu húsi að ræða.
Leitin hefur borið okkur langt
upp á Álfhólfsveg og það segir sig
sjálft að litarefnið er lengi að ber-
ast þaðan og niður í Snæland. En
við vonumst til að málið leysist á
næstu vikum, sagði Stefán Stef-
ánsson. _ aró
Eggjadreifingastöðin og Holtabúið
hœkka og lœkka á víxl
Eyþór Elíasson framkvæmda-
stjóri íseggs sagði í gær að ákveð-
ið hefði verið að gefa kaup-
mönnum afslátt frá fyrri hækkun
fyrst Holtabúið hækkaði ekki til
jafns við þá, en það er rétt að
þessi hækkun okkar hefur ekki
gengið yfir hjá öðrum.“ Ég held
að það sé ekki tímabært að kalla
þetta verðstríð, en við skulum
bíða og sjá til hvað gerist í næstu
viku”. - |g.
Aðeins örfáum metrum austan við Snælandssskóla í Kópavogi opnast þetta klóakrör út í skurð. Leið barna úr hverfinu í
baksýn liggur um þetta svæði. Ljósm. E.ÓI.
Mikil samkeppni er nú meðal
stærstu eggjaframleiðenda í
landinu. Eggjadreifíngastöðin
ísegg hækkaði á dögunum kg.
verðið um 30% en hefur nú gefíð
kaupmönnum afslátt af þeirri
hækkun þar til jafns við Holtabú-
ið á Hellu sem hækkaði sín egg
um 20%. Ljóst er hins vegar að
egg munu hækka frekar í verði á
næstunni.
„Þeir báðu okkur að fara með
eggjaverðið uppí það sama og
þeir hækkuðu en við sáum ekki
ástæðu til að hækka þau um þetta
mikið í einu stökki. Eg á hins veg-
ar ekki von á því að verðið lækki
frá því sem nú er heldur hækki
eitthvað á næstunni“, sagði
Gunnar Jóhannsson hjá Holta-
búinu sem er stærsti söluaðili sem
stendur utan við eggjadreifinga-
stöðina ísegg.
Kennarar
Aftur
(■ dag)
A fundi framhaldsskólakenn-
ara og samninganefndar ríkisins f
gær var ákveðið að hlutar bcggja
samninganefndanna hittust aftur
í dag til að ræða hina nýju skýrslu
frá endurmatsnefnd og gildi
hennar í samningaviðræðunum.
Ekki er rætt um hið almenna
tilboð ríkisins til BHM-félaganna
(5%-boðið), heldur eingöngu
sérmál kennara og vilyrði ríkis-
manna um að semja betur við þá
en aðra í BHM-hópnum. „Við
erum að reyna að breyta þessum
orðum í fé“ sagði Kristján Thorl-
acius formaður HÍK við Þjóðvilj-
ann eftir fundinn í gær. — m
Veröstríð hafið