Þjóðviljinn - 15.03.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 15.03.1985, Blaðsíða 2
FRETTIR Kennaradeilan á Alþingi Kattaþvottur stjómarinnar Menntamálaráðherra ber kennurum á brýn svik við nemendur og ábyrgð á siðferðislegri upplausn í skólunum Pað verður erfitt í framtíðinni að halda uppi aga og reglu í skólunum þegar kennarar haga sér eins og raun ber vitni og fara ekki að lögum, sagði Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráð- herra í umræðum utan dagskrár í sameinuðu Alþingi í gær. Bar hún kennurum sem yfirgefið hafa skólana það á brýn að þeir hefðu svikið nemendur sína og þær skuldbindingar sem þeir hefðu gengist undir þegar þeir hófu kennslu í haust. Ragnhildur sagði að ríkis- stjórnin hefði gert allt sem hægt væri til að leysa kjaradeilu kenn- ara, og sagði að ekki væri við ríkisstjórnina að sakast þar sem málið væri komið fyrir Kjara- dóm, sem væri óháður aðili. Það var Hjörleifur Guttorms- son sem hóf umræðuna utan dag- skrár með fyrirspurn til forsætis- ráðherra, menntamálaráðherra og fjármálaráðherra. Vitnaði hann fyrst til viljayfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að komið skyldi til móts við sanngjarnar kröfur kennara og að tekið skyldi tillit til röksemda í skýrslu endur- matsnefndar í því sambandi. í ljósi þessa varpaði hann þeirri spurningu til ríkisstjórnarinnar, hvers vegna hún hefði vísað mál- inu í Kjaradóm, úr því að hún lýsti sig jafnframt viljuga til að koma til móts við kennara. Taldi Hjörleifur að sá tvískinnungs- háttur, sem kæmi fram í þessari afstöðu, hefði ráðið miklu um niðurstöðu kennarafundarins í fyrrakvöld, þar sem meirihluti þeirra kennara sem hætt hafa störfum samþykkti að snúa ekki aftur til vinnu að svo stöddu. Þá spurði Hjörleifur forsætis- ráðherra að því hvað ríkisstjórnin hygðist gera til lausnar deilunni. Steingrímur Hermannsson taldi mál þessi svo flókin að eðli- legast væri að vísa þeim til Kjara- dóms. Lýsti hann því jafnframt yfir að mál þetta snerti ekki bara kennara, heldur væri allur vinnu- markaðurinn undirlagður í kjara- deilum sem hann vildi rekja til þess jafnvægisleysis sem stafaði frá verðbólgutímabilinu mikla. Hjörleifur spurði Ragnhildi Helgadóttur um afleiðingar upp- sagna kennara í starfi framhalds- skólanna og jafnframt hvað hennar ráðuneyti hygðist gera til að leysa vandann. Ragnhildur sagði að alvarleg- ustu afleiðingar forfalla kennara kæmu fram í andanum og siðferð- inu í skólanum og þeim áhrifum sem fjarvistir kennaranna hefðu á þá virðingu og traust sem kenn- arastéttin þyrfti að njóta til þess að valda sínu vandasama verk- efni. Ragnhildur sagði að það væri ekki í verkahring fagráðuneytis eins og menntamála- ráðuneytisins að hafa afskipti af meðferð Kjaradóms á málinu. Hins vegar hefði verið unnið meira að málefnum kennara í sínu ráðuneyti en í tíð flestra forvera sinna í ráðherraembætti. Albert Guðmundsson fjár- málaráðherra neitaði að svara fyrirspurnum Hjörleifs, og tóku Steingrímur og Ragnhildur upp varnir fyrir hann og töldu málið á of viðkvæmu stigi til þess að fjár- málaráðherra sem aðila að deilunni bæri að svara fyrir sig. Ríkisstjórnin þvó þannig hend- ur sínar af þessu máli og höfðaði til samvisku og siðferðiskenndar kennara sem sagt hefðu upp störfum. Þau Guðmundur Einarsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Guðrún Agnarsdóttir tóku einnig til máls og lýstu því öll yfir að sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að vísa málinu til Kjaradóms í stað þess að leysa það lýsti bæði stefnuleysi og ábyrgðarleysi ríkis- stjórnarinnar í menntamálum. -ólg. Á Alþingi í gær. Við utandagskrárumræður fór Ragnhildur hörðum orðum um kennara (sjá forsíðufrétt) en Albert sat hins vegar sem fastast og neitaði að svara fyrirspurnum. Mynd E.ÓI. BHM-deilan Fer í dóm á mánudag Úrslit ekki í mars. Kennaramálum ekki hraðað itari Kjaradóms hefur beðið ríki og BHM-félög að leggja fram kröfur sínar, greinargerðir og gögn öll á mánudag og hefur Menntamálaráðuneyti Ekkert ákveðið Engar ákvarðanir hafa verið teknar í menntamála- ráðuneytinu um það stand sem nú er á skólastarfi. Sólrún Jensdóttir skrifstofu- stjóri sagði við Þjóðviljann í gær að skólastjórar hefðu fulla heim- ild til að ráða í lausar stöður, en slíkt gerðist að frumkvæði stjórn- enda skólanna. „Menntamála- ráðuneytið ræður ekki stunda- kennara“. Sólrún sagði engar á- kvarðanir hafa verið teknar um að hætta kennslu eða breyta starfsháttum í skólunum. dómurinn þá umfjöllun um sér- kjarasamninga BHM-ara. Jón Finnsson, varaformaður Kjara- dóms, telur víst að dómurinn nýti sér heimild framlengingar fram í aprfl. Framundan er svo munnlegur málflutningur fulltrúa fjármála- ráðherra og 23 BHM-félaga. Jón bjóst í gær ekki við að mál kenn- ara yrðu afgreidd undan hinum, „þetta tengist allt saman“. For- maður dómsins, Benedikt' Blöndai, er utan landsteina, væntanlegur heim um helgina. -m Uppsagnir SS Lúalegar aðfarir eigenda Magnús L. Sveinsson: Ekki stórmannlegt að segja upp elsta starfsfólkinu. Löglegt athœfi en siðlaust. Pað eru ill tíðindi ef verslunar- eigendur ætla að liggja á því lúalagi að segja fyrst upp starfs- fólki sem hefur lengstan starfsald- urinn eins og mér skilst að hafi átt sér stað í verslun Sláturfélags Suðurlands í Glæsibæ. Hins veg- ar er það svo að í þessu tilviki mun SS hafa lagalegan rétt til þessara aðgerða en í siðferðiiegu tflliti er verslunin komin út á áka- flega hálan ís, sagði Magnús L. Sveinsson formaður Verslunar- mannafélags Reykjavíkur. Fréttir Þjóðviljans í fyrradag um uppsagnir starfsmanna í verslun SS í Giæsibæ vöktu mikla athygli. Magnús L. Sveinsson hélt strax fund með starfsfólkinu og kvað hann þar hafa komið fram að á meðal þeirra sem feng- ið hafa uppsagnarbréf væru elstu starfsmenn fyrirtækisins. „Mér er ekki kunnugt um annað en að þetta fólk hafi skilað góðu verki þau ár sem það hefur þjónað Slát- urfélagi Suðurlands og það er ekki stórmannlegt að segja því upp störfum þegar aldurinn færist yfir og möguleikar til að fá at- vinnu annars staðar minnka", sagði Magnús. „Því hefur verið haldið fram í fréttum að trúnaðarmönnum hafi verið sagt upp. Þar er einhver smámisskilningur á ferðinni því einn þeirra sem fékk uppsagnar- bréf er í trúnaðarmannaráði en ekki trúnaðarmaður félagsins", sagði Magnús L. Sveinsson að lokum. -v. Svo Albert neitar að svara á Alþingi! Ætli kennarar þurfi þá ekki að taka hann í aukatíma í almennum mannasiðum?! Kennarar Þveröfug áhríf Formaður HÍK um rœðu Ragnhildar: virkar öfugt við það sem ætlastertil Við erum hætt að kippa okkur upp við svonalagað, sagði Krist- ján Thorlacius formaður HIK eftir að hafa hlýtt á ræðu mennta- málaráðherra á þingi í gaer. „í hópnum hafa svona orð hinsvegar þveröfug áhrif, virka öfugt við það sem ætlast er til.“ Kristján sagði að kennarar biðu nú Kjaradóms, „ef stjórnvöld koma ekki til móts við okkur. En það þarf ekki að bíða eftir Kjaradómi. Það er enn hægt að semja þótt málið sé komið fyrir dóminn." Eitthundrað og tveir greiddu at- kvœði í fyrrakvöld gegn ályktun um að halda áfram baráttu. Býstu við að þeir taki aftur upp störf? - Ég hef ekki orðið var við slíkt, býst ekki við því og vona að svo verði ekki. - Eru kennarar komnir í aðra vinnu? - Ýmsir þeirra eru komnir í vinnu, en þeir líta fæstir á það sem lausn til frambúðar. -m HP Nýrritstjóri Halldór Halldórsson hefur ver- ið ráðinn ristjóri Helgarpóstsins og mun starfa við hlið núverandi ristjóra, Ingólfs Margeirssonar. Halldór hefur starfað með hléum við blaðamennsku frá því sumar- ið 1967. Hann hefur komið víða við, verið á Alþýðublaðinu, við útVarp og sjónvarp, skrifað reglu- lega greinar í Morgunblaðið, Vísi gamla og Dagblaðið. Árin 1983 og 1984 var hann ritstjóri íslend- ings á Akureyri. Halldór er magister í fjölmiðla- fræði frá bandarískum háskóla. 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. mars 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.