Þjóðviljinn - 15.03.1985, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 15.03.1985, Blaðsíða 5
Alþingi Vaxtalækkun - stöðvun uppboða! Alþýðubandalagið leggurfram þingsályktunartillöguþar sem þess er krafist að vextir verði lækkaðir og að nauðungaruppboðin verði tafarlaust stöðvuð Þingflokkur Alþýðubanda- lagsins hefur lagt fram svo- fellda þingsályktunartillögu um tafarlausa lækkun vaxta og stöðvun nauðungaruppboða. „Alþingi álytkar að fela ríkis- stjórninni að fyrirskipa tafarlausa lækkun vaxta og endurmat á hækkun einstakra húsnæðislána vegna verðtryggingarákvæða eftir að bannað var að greiða vísi- tölubætur á laun frá 1. júní 1983. Ríkisstjórnin skal beita sér fyrir eftirfarandi ráðstöfunum: 1. Að fram fari rannsókn á efna- hagslegum áhrifum lánskjara- vísitölunnar, sérstaklega áhrif- um hennar á fjárhagsafkomu húsnæðiskaupenda og hús- byggjenda eftir að vísitölubæt- ur á laun voru bannaðar með lögum frá 1. júní 1983. 2. Að gerð verði áætlun um endurgreiðslu á þeim upphæð- um af húsnæðislánum, sem eru umfram hækkanir á kaupgjaldsvísitölu og hafa ver- ið inntar af hendi á árinu 1983 og síðar. Mismunurinn bætist við höfuðstól lánanna og komi fyrst til greiðslu þegar lánin eru greidd upp að öðru leyti. Höfuðstóll lánamanna verði lækkaður sem nemur minni hækkun byggingarvísitölu en lánskjaravísitölu frá 1980. Kannað verði hve mikinn kostnað þessi aðgerð hefði í för með sér og gerðar tillögur um fjáröflun í þessu skyni. 3. Að settar verði reglur um endurgreiðslu fasteignaveð- lána til einstaklinga þannig að misgengi vísitalna og raun- vaxtabreytingar valdi ekki þyngri greiðslubyrði en upp- haflega var til stofnað. 4. Að ákvörðun um hámarks- vexti inn- og útlána verði tekin úr höndum Seðlabanka og lánastofnana. 5. Að skammtímaveðlánum og lausaskuldum, sem stofnað hefur verið til vegna íbúða- kaupa og húsbygginga sl. 5 ár, Spurt um... ... innheimtu erfðafjárskatts Helgi Seljan hefur lagt fram fyrirspurn til fjármálaráðherra svohljóðandi: Hver var heildar- upphæð innheimts erfðafjár- skatts á árinu 1984? ... auglýsinga- kostnað banka Kjartan Jóhannsson hefur lagt fram fyrirspurn til viðskiptaráð- herra um auglýsingar banka og sparisjóða. Kjartan spyr hvernig auglýsingakostnaður banka og sparisjóða á síðasta ári hafi skipst milli fjölmiðlanna, ríkisútvarps/- sjónvarps, Alþýðublaðsins, DV, NT, Morgunblaðsins og Þjóðvilj- ans. Hann óskar eftir sundurlið- un miðað við ársfjórðunga. „Hreint neyðarástand er ríkjandi á heimilum, gluggaumslögin bera daglega boð um gjaldfallnar kröfur sem eru óviðráðanlegar", segir m.a. í greinargerð með tillögu Alþýðubandalagsins til lausnar húsnæðisvandanum. verði breytt í lengri lán sem verði ekki til skemmri tíma en átta ára. Meðan rannsókn sú stendur yfir, sem kveðið er á um í þingsá- lyktun þessari, er óheimilt að láta fara fram nauðungaruppboð á íbúðum, enda sé um einu íbúð viðkomandi að ræða. Rannsókn og tillögugerð sam- kvæmt þessari þingsályktun skal lokið fyrir 30. apríl nk. Þangað til skal viðskiptabönkum og Hús- næðisstofnun gert kleift að fresta afborgunum lána. Seðlabankinn endurkaupi lán í þessum tilgangi uns annað hefur verið ákveðið." í greinargerð með tillögunni segir meðal annars: „Alþýðubandalagið hefur lengi varað við afleiðingum hárra vaxta og verðtryggingu fjárskuld- bindinga án samhengis við launa- Iðnaðarráðherra þróun. Þegar bannað var að greiða vísitölubætur á laun hrundi fjárhagur þúsunda hús- byggjenda og íbúðareigenda í landinu, auk allra þeirra sem nú verða að una okurkjörum á leigumarkaði. Nú getur fólk hvorki byggt né borgað skuldir. Hreint neyðarástand er ríkjandi á heimilum, gluggaumslögin bera daglega boð um stórfelld félags- leg vandamál fyrir fjölskyldurn- ar, ekki síst börnin sem alast upp í ægilegri óvissu og öryggisleysi. Þá er hætt við að skapist ný vandamál sem aldrei verða leyst með peningum, hversu há sem lánin eru. Þannig hefur harðstjórn pen- ingaaflanna leikið alþýðuheimil- in. Ríkisstjórnin gefur út Lög- birtingarblaðið nær daglega til þess að tilkynna um eignasvipt- ingu fólksins; áratugastrit er að engu gert með tilflutningi fjár- magns frá fólkinu til milliliðanna og undirheimahagskerfisins. Með ákvörðun ríkisstjórnarinnar í fyrra um „frelsi“ í vaxtamálum hófst stórfelldur tilflutningur fjármuna - milljörðum saman - út úr bankakerfinu í neðanjarð- arhagkerfið. Þar neyðist fólk til að skrifa undir afföll af verð- tryggðum skuldabréfum - jafnvel 25%. Þeir sem kaupa bréfin eru í undirheimunum; bréfin eru á handhafa og engin skattayfirvöld ná til þeirra.“ Fullgilding Afnám misréttis gagnvart konum Ríkisstjórnin hefur lagt fram þingsályktunartillögu um fullgildingu samnings um af- nám alls misréttis gagnvart konum, en ísland undirritaði samninginn á kvennaráð- stefnu SÞ í Kaupmannahöfn 1980 með fyrirvara um fullgildingu. Misrétti gagnvart konum er í samningnum skilgreint sem hvers kyns aðgreining, útilokun eða takmörkun sem byggð er á kyn- ferði, sem hefur þau áhrif eða markmið að takmarka eða gera að engu að konur geti notið eða framfylgt mannréttindum og grundvallarfrelsi á sviði stjórn- mála, efnahagsmála, félagsmála, menningarmála eða á sérhverju öðru sviði. Aðildarríki skulu skila skýrslu til sérstakrar nefndar sem fylgist með framkvæmd samningsins, um ráðstafanir sem þau hafa gert til að framfylgja ákvæðum hans, Samkvæmt greinargerð með þingsályktunartillögunni er ekki talin þörf neinnar lagasetningar né annarra ráðstafana hér á landi til að geta framfylgt samningn- um. Virðir þingið að vettugi „Herra forseti. Fyrirspurn- inni er fljótsvarað. Samstarfs- nefnd um framkvæmd iðnað- arstefnu hefur ekki starfað í tíð núverandi ríkisstjórnar. Þeim hlutverkum sem henni voru ætluð hefur verið sinnt ræki- lega með öðrum hætti.“ Þannig svaraði iðnaðarráð- herra, Sverrir Hermannssin, fyr- irspurn frá Hjörleifi Guttorms- syni um störf samstarfsnefndar um iðnaðarstefnu sem samþykkt var á Alþingi 1982. Rakti Hjör- leifur í ræðu hvernig menn hefðu leitast við að ná víðtækri sam- stöðu á Alþingi, á árinu 1982, um mótun og framkvæmd iðnaðar- stefnu. Spurði Hjörleifur ráð- herra síðan hvaða sinnaskipti hefðu orðið hjá honum, þannig að hann virti nú að vettugi sam- hljóða samþykkt Alþingis um framkvæmd iðnaðarstefnu. Iðnaðarráðherra ræddi frekar málið og greindi meðal annars frá því, að hann hefði sér til fu ltingis þriggja manna Táðgjafarnefnd, sem varaformaður Sjálfstæðis- flokksins ætti meðal annars sæti í. Taldi iðnaðarráðherrann að mál- um þessum hafi nú verið sinnt betur en nokkru sinni áður. Þyrfti hvorki meira né minna en heilan eldhúsdag til að fara yfir það allt í þinginu. Ráðherrann var hinn hressasti að vanda, og taldi sig í HjörleifurGuttormsson. stakk búinn hvenær sem væri til að fara í slíkan eldhúsdag. Þessi svör iðnaðarráðherra eru dæmigerð fyrir viðbrögð ýmissa ráðherra í ríkisstjórninni nú í vet- ur, harla rýr. Ráðherrann hefur að engu samhljóða samþykkt þingsins í tilteknu máli. í stað fjölmennrar fulltrúanefndar, sem í eiga sæti fulltrúar ýmissa samtaka, sem ætlað er að tryggja víðtæka sam- stöðu um þýðingarmikið hagsmunamál, þá unir hann við þriggja manna „ráðgjafanefnd" og upplýsir ekki einu sinni hverjir séu ráðgjafarnir. Núverandi iðnaðarráðherra varðar með öðrum orðum ekki mikið um það, hvaða skoðanir til að mynda samtök launafólks hafa á framkvæmd iðnaðarstefnu. Honum nægir ráðgjöf varafor- manns Sjálfstæðisflokksins og einhverra huldumanna með hon- um. Hjörleifur Guttormsson vitn- aði til umræðna í þinginu á sínum tíma, meðal annars ummæla nú- verandi iðnaðarráðherra, sem hefði sagt meðal annars: „Að fengnu samþykki Alþingis á framkvæmdavaldið engra ann- arra kosta völ en að hlýða og framkvæma eða að leita ásjár Al- þingis á nýjan leik um breytingu og niðurfellingu mála“. Átali Hjörleifur Guttormsson vinnubrögð eftirmanns síns í iðn- aðarráðuneytinu harðlega og taldi að „innanhússnefnd" gæti aldrei komið í staðinn fyrir þá víðtæku samráðsnefnd, sem til hefði verið ætlast, og spurði í lok- in, hverjir hinir tveir nefndar- mennirnir væru og hvar væri að finna fulltrúa frá launþegasam- tökunum. hágé. Myndbönd Leigurnar skráðar og leyfisskyldar Viðskiptaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um verslun- aratvinnu, þannig að þeir, sem stunda útleigu á myndbönd- um, bílum og áhöldum, verði að hafa verslunarleyfi. Gerir frumvarpið ráð fyrir að leigusalar verði að hafa aflað sér verslunarleyfis innan þriggja mánaða frá gildistöku laganna. í greinargerð segir að eðlilegt sé að gera sömu kröfur til þeirra sem stunda leigu lausafjármuna í atvinnuskyni og annarra sem reka verslun, enda svipi þessari starfsemi mjög saman. Leyfis- bindingin stuðlar að því að lög og reglur séu virtar, ella kunna menn að missa leyfin. Þá hefur frumvarpið í för með sér að skylda verður að skrá slík fyrir- tæki, ef það verður að lögum, en eins og málum er nú háttað er það ekki skylt. Föstudagur 15. mars 1985 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.