Þjóðviljinn - 17.03.1985, Qupperneq 7
- Hver er afstaða Alþýðu-
bandalagsins í kennaradeilunni?
- Launastefna Alþýðubanda-
lagsins er kauphækkun strax án
verðbólgu - og jöfnun lífskjara.
Það gerist ekki á einni nóttu að
við náum kaupmættinum frá
1980-1982 en það getur gerst með
samstilltu átaki. Kennara þarf í
fyrsta lagi að hækka eins og aðra í
launum, en í öðru lagi verður að
tryggja að kennaralaun séu við-
unandi þannig að kennarastarf-
inu sé sýndur fullur sómi og virð-
ing. Samhengið er þetta: Léleg
laun kennara, lakar menntaðir
kennarar, verri menntun barn-
anna, verri framtíð og lakari lífs-
kjör. Eða er hér komið það
gamla einkenni íhaldsins að vilja
halda fólkinu í fáfræði og
menntunarleysi? Núverandi rík-
isstjórn virðist fyrirmunað að
skilja þetta samhengi. En vel að
merkja: Af hverju hefur Albert
sloppið við spurningar fjölmiðla í
þessari deilu? Það er þó hann sem
ber ábyrgð á stefnunni og er að
semja - eða öllu heldur neitar að
semja - við kennara.
- Nú hefur stefna Alþýðu-
flokksins í friðarmálunum gjör-
breyst. Hvaða samstarfstletir eru
við Alþýðuflokkinn í utanríkis-
málum?
- Við Jón Baldvin sjást ekki
samstarfsfletir - eins og er. Fyrir
utan vitlausa stefnu í utanríkis-
málum hefur hann orðið þjóð
sinni til skammar á alþjóðavett-
vangi. En ég er ekki viss um að
stefna Jóns Baldvins sé stefna Al-
þýðuflokksins í utanríkismálum,
samanber viðtalið sem Þjóðvilj-
inn birti nú um helgina við Anker
Jörgensen. Þarna kunna því að
vera möguleikar sem verður að
láta á reyna.
Óöld
- Þið hafið verið að halda fundi
úti á landi. Hvernig er hljóðið í
fólki á landsbyggðinni?
- Svartsýni einkennir marga í
framleiðslugreinunum til sjávar
og sveita. Það er gífurleg óánægja
og sárindi í garð Framsóknar
meðal bænda. Ég undrast það
ekki; hitt er undarlegt að bænda-
forystan virðist ætla að láta leggja
landbúnað í rúst í heilu sýslunum
án þess að hreyfa legg né lið. Eru
þessir menn ekki sumir í Fram-
sóknarflokknum? Það er greini-
lega ekki tekið mikið mark á
þeim þar um þessar mundir. Er
kannski kominn tími til að bænd-
ur grípi til sinna eigin ráða? Það
held ég reyndar.
- Hverju spáir þú um árið
1985?
- Ég get svo sem engu spáð, en
segi þetta: Reynslan frá 1984 á að
kenna okkur að standa saman.
Reynslan frá 1983 á að kenna
okkur að ríkisstjórnin og okur-
vaxtapólitík hennar er stærsta
efnahagsvandamál á íslandi.
Fólk þarf að gera sér ljóst að þeir
sem styðja íhaldið og Framsókn
þeir kusu vaxtaokrið, kusu
kauplækkunina, kusu byggða-
eyðinguna, sjúklingaskattinn,
leiftursóknina. Það er samhengið
milli atkvæðaseðilsins og hinna
pólitísku athafna sem þjóðin
verður að átta sig á í vaxandi
mæli. Og það mun hún gera á
þessu ári. Og líka því, að það er
nóg til skiptanna. Spurningin er
um að skipta jafnar - og Alþýðu-
bandalagið hefur kjark og stefnu
til þess að geta náð í fjármuni og
flutt þá til í samfélaginu frá þeim
ríku til hinna sem nú eru þúsund-
um saman að verða að öreigum á
nauðungaruppboðum stjórnar-
stefnunnar. Nú fara gróðaöflin
ránshendi um allt samfélagið,
framleiðslufyrirtækin og eignir
fólksins, þjóðfélagið er allt í upp-
lausn eftir ránsherferð leiftur-
sóknarinnar. Þeirri óöld verður
að linna, eina aflið sem getur
bundið endi á þessa óáran er Al-
þýðubandalagið og þeir sem
kjósa að verða bandamenn þess
og verkalýðshreyfingarinnar.
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður
haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal, Reykjavík,
laugardaginn 23. mars 1985 og hefst kl. 13.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð
fram tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir í aðalbankanum, Bankastræti 7,
dagana 20. - 22. mars, svo og á fundarstað.
Bankaráð Samvinnubanka íslands hf
NÍU UF?
Líf og starfsorka er dýrmæt-
asta eign hvers og eins, enda
grundvöllur þeirra verðmæta
sem standa undir þörfum ein-
staklinga og fjölskyldna.
Eru þér ljós þau áhrif sem
skyndilegt fráfall þitt myndi hafa
á stöðu þinna nánustu?
Veitir lífeyrissjóður, al-
mannatryggingarkerfi, eða
kjarasamningur stéttarfélags
þíns nauðsynlega grundvallar-
vemd?
Líftrygging verndar fjöl-
skyldu þína gegn fjárhagslegum
áföllum við óvænt fráfall þitt.
Við bjóðum verðtryggingu
allt tryggingartímabilið svo líf-
tryggingin heldur ætíð verðgildi
sínu.
Tryggingaráðgjafar okkar
aðstoða þig við val á tryggingar-
upphæð og tegund tryggingar
svo ömggt sé að þú hafir há-
marksvemd á hagstæðu iðgjaldi.
Verðtryggð líftrygging
ra"LÍFTRYGGlNG
GAGNKVÆMT TRYGGINGAFÉIAG
BRUNABÓTAFÉLAG ISLANDS
Skrifstofur: Laugavegur 103 105 Revkiavík Sími 91 26055 UMBOÐSMENN UM ALLT LAND