Þjóðviljinn - 29.03.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR
Þjóðhátíðargjöfin ’74
Ominn liggur undir skemmdum
Stefán Jónsson: Borgin ber alla skömm af þessari
meðferð. Hrafninum vel við haldið á Húsavík
Það er borgin sem ber ábyrgð á
þessu og á alla skömm af með-
ferðinni, sagði Stefán Jónsson,
fyrrverandi þingmaður í samtali
við Þjóðviljann um teinæringinn
Örn, sem Reykjavíkurborg þáði
1974 af Norðmönnum. Báturinn
liggur undir skemmdum undir
segli við Korpúlfsstaði.
Það var sumarið 1974, á ellefu
alda afmæli byggðar á íslandi að
tvær þriggja manna áhafnir sigldu
Erninum og Hrafninum hingað
til lands. Bátamir voru smíðaðir í
Árdal í Noregi með sama lagi og
bátar hafa verið smíðaðir þar í
þúsund ár. Eina vélin sem var um
borð var eldavél, segir í frétt
Þjóðviljans um þennan atburð
1974.
Reykjavíkurborg þáði Örninn
af Oslóarborg, Bergen og Þránd-
heimi, en Sjómannafélag Húsa-
víkur og Landeigendafélag Þing-
eyinga þáðu Hrafninn af æsku-
lýðssamtökunum sem börðust
gegn inngöngu Noregs í EBE.
Hrafninum hefur verið vel við
haldið á Húsavík en hið sama er
ekki hægt að segja um Örninn.
„Borgin þáði bátinn með sem-
ingi,“ sagði Stefán Jónsson, sem
fylgdist grannt með þessari sigl-
ingu hingað á sínum tíma.
„Seinna var hann sendur með
fraktskipi vestur um haf en í
flugvél voru sendir á eftir honum
ljóshærðir menn sem stóðu keikir
með hyrnda plasthjálma meðan
bátnum var siglt eftir einhverju
fljótinu þar vestra. Á botninn
hafði þá verið sagað gat og settur
í bátinn utanborðsmótor. Síðan
var báturinn fluttur til baka og
gert við gatið, en hann verður
auðvitað aldrei samur eftir það.“
Við þetta má bæta að með í
vesturfarahópnum 1978 voru þeir
Markús Örn Antonsson og Sig-
urður A. Magnússon en förin var
farin í tilefni 200 ára afmælis
Bandaríkja N-Ameríku. Síðan
mun báturinn ekki hafa verið sjó-
settur.
-ÁI
Vopnafjörður
Móbnæla
ratsjárstöð
Friðarhópur: Undirlœgjuháttur
íslenskra stjórnvalda einsdœmi
Vér fordæmum það að ísland sé
látið hýsa „augu og eyru“
hinnar amerísku vígvéiar og vitn-
um til staðhæfingar bandarískra
og breskra herfræðinga, að ef til
átaka komi muni fyrsta verk and-
stæðingsins vera að svipta þessa
Húsa-
leiga
hækkar
Húsaleiga hækkar nú 1. apríl
um 6% samkvæmt ákvæðum laga
frá árinu 1984. Hér er um að ræða
íbúðar- og atvinnuhúsnæði.
Reiknast þessi hækkun á þá leigu
sem er í marsmánuði og gildir til
júníloka.
Miðstjórnar-
fundur
Miðstjórn Alþýðubandalags-
ins er boðið til fundar föstudag-
inn 29. mars kl. 20.00. Aðalefni
fundarins er Kjarabaráttan
1985, aðferðir og áherslur. Fund-
inum verður fram haldið laugar-
daginn 30. mars.
Ranghermi
í viðtali
í viðtali í blaðinu á laugardag-
inn var, er það ranghermt að
Ragnar Kjartansson sé formaður
Myndhöggvarafélagsins. Ragnar
er og hefur lengi verið í stjórn
þess félags, en formaður þess er
Helgi Gíslason. Eru hlutað-
eigendur beðnir afsökunar á
þessum mistökum.
vél „sjón og heyrn“, segir meðal
annars í opnu bréfí Friðarhóps í
byggðum Vopnafjarðar til for-
sætisráðherra og utanríkisráð-
herra íslands.
í bréfinu eru ráðherrarnir
beðnir að beita sér gegn áformum
um hernaðaruppbyggingu á ís-
landi og mótmælt þeim ummæl-
um forsætisráðherra að Vopn-
firðingar vilji ratsjárstöð á Dýja-
fjall fái þeir veg yfir Hellisheiði í
staðinn. Ennfremur segir í bréfi
friðarhópsins að engin stjórnvöld
um gjörvöll Vesturlönd hafi lotið
lægra en þau íslensku með því að
láta óátaldar áætlanir um að
flytja hingað 48 kjarnorkus-
prengjur án samráðs við íslensk
stjórnvöld. - aró.
Undir þessu segli að húsabaki að Korpúlfsstöðum er þjóðhátíðargjöf Oslóar, Bergen og Þrándheims til Reykjavíkurborg-
ar: teinæringurinn „Örn" sem þrír menn sigldu hingað frá Noregi 1974. Ljósm. EÓI.
Mjólkurauglýsingar
Textanum verður breytt
Gunnar Steinn í Auglýsingaþjónustunni: Við munum breyta textanum í
auglýsingunum. Manneldisráð birtir athugasemdir sínar
Eg held að þetta mál leysist far-
sællega, málið hefur ekki ver-
ið kært og við munum gera þær
breytingar á texta auglýsinganna
sem farið verður fram á, sagði
Gunnar Steinn Pálsson forstjóri
Auglýsingaþjónustunnar í gær
um mjólkurauglýsingamálið.
Þjóðviljanum barst í gær
greinargerð Manneldisráðs um
auglýsingarnar. Þar segir að
helstu rangfærslur í auglýsing-
unni séu þessar:
Birt er tafla yfir ráðlagða dags-
skammta (RDS) af kalki, þar sem
gefnar eru rangar og of háar tölur
bæði fyrir eldri konur og mjólk-
andi mæður.
í auglýsingunni er ráðlagður
dagsskammtur jafnframt talinn
jafngilda lágmarksþörf, en í
rauninni er RDS samkvæmt skil-
greiningu verulega fyrir ofan lág-
marksþörf alls þorra heilbrigðra
einstaklinga.
í samræmi við þessa ýktu þörf
fyrir kalk, er ráðlögð mjólkur-
neysla langt umfram það sem
hollt getur talist, einkum fyrir
þessa tvo hópa kvenna.
í auglýsingunum er því haldið
fram að í mjólk sé D vítamín í
hæfilegu magni og þar af leiðandi
nýtist kalk mjólkurinnar betur en
úr öðrum fæðutegundum. f raun-
inni er afar lítið D vítamín í
mjólk.
Því er haldið fram að alvarlegir
hrörnunarsjúkdómar hljótist af
minni mjólkurneyslu og sérstak-
lega að hægt sé að koma í veg fyrir
beinþynningu á efri árum með
því að drekka næga mjólk alla
ævi. Að dómi sérfræðinga er
beinþynning hrörnunarsjúkdóm-
ur, sem ekki er hægt að rekja
beinlínis til kalkskorts, enda þótt
nægilega kalkrík fæða sé tvímæla-
laust mikilvæg fyrir heilbrigði
beina og tanna. Rannsóknir hafa
þó enn ekki sýnt að mikil mjólk-
urneysla geti komið í veg fyrir
beinþynningu.
-S.dór
Föstudagur 29. mars 1985 ÞJÓÐVIUINN — SÍÐA 3
Skólasafnverðir
Verðlauna bamabækur
Félag norrænna skóla-
safnvarða ákvað á fundi sín-
um í júní sl. að efna til árlegra
barnabókaverðlauna. Hefur Fé-
lag skólasafnvarða á íslandi til-
nefnt til verðlauna bækurnar Sitji
Guðs engar eftir Guðrúnu Helga-
dóttur og Húsdýrin okkar eftir
Stefán Aðaisteinsson.
3ja manna dómnefnd velur
verðlaunahafann og er hún í ár
skipuð fulltrúum Svíþjóðar,
Danmerkur og Noregs. Verða
verðlaunin veitt í fyrsta sinn á
ráðstefnu norrænna skóla-
safnvarða í Finnlandi í sumar.
-HG