Þjóðviljinn - 26.05.1985, Blaðsíða 14
Kennarar, kennarar!
Viö Seyðisfjaröarskóla eru lausar 2 kennarastöður.
1. Staða handmenntakennara (smíðar) Ný oq vel
búin handavinnustofa.
2. íþróttakennarastaða. Gamalt en gott íþróttahús.
Góðar íbúðir með góðum kjörum eru í boði fyrir
báða kennarana.
Upplýsingar gefur skólastjóri Albert Ó. Geirsson í
s'ma 97-2-|72 eða 2365 og formaður skólanefndar
Þordis Bergsdóttir í síma 2291.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ARMÚLA3 SIMI81411
Kerfisfræðingur
Vegna aukinna umsvifa í kerfisvæðingu og tölvu-
kaupa viljum við ráða kerfisfræðing..
Æskilegt er að viðkomandi hafi vald á ensku og nokk-
urra ára starfsreynslu á kerfissetningu.
Sá hugbúnaður sem við komum til með að nota er
m.a. SQL - gagnagrunnur, SSX og VM stýrikerfi.
Nánari upplýsingarveitirStarfsmannastjóri, Ármúla3,
sími 81411.
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lögn efra
burðarlags og klæðningu á 5 stöðum á Vestur-
landi.
(Lengd alls 18,7 km, efra burðarlag 22.000 m3).
Verki skal lokið 31. ágúst 1985.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í
Reykjavík (aðalgjaldkera) og í Borgarnesi frá og með
28. maí n.k.
Skila skal tilboðum á sömu stööum fyrir kl. 14:00 þann
3. júní 1985.
Vegamálastjóri
Áskorun til greiðenda fast-
eignagjalda Mosfellshreppi
Fasteignagjöld í Mosfellshreppi 1985 eru nú öll gjald-
fallin.
Gjaldendur sem ekki hafa gert skil innan 30 daga frá
birtingu áskorunar þessarar mega búast við að óskað
verði nauðungaruppboðs á eignum þeirra sbr. lög nr.
49/1951 um sölu lögveða án undangengins lögtaks.
Mosfellshreppi 24. maí 1985
Innheimta Mosfellssveit
Frá Fjölbrauta
^skólanum við Ármúla
Innritun fyrir haustönn 1985 fer fram í Miðbæjar-
skólanum í Reykjavík, dagana 3. og 4. júní kl. 9-18.
Einnig fer fram innritun í skólanum til og með 7. júní kl.
9-5 daglega.
Við skólann eru starfræktar eftirtaldar brautir: Fisk-
vinnslubraut, fjölmiðlabraut, heilsugæslubraut,
íþróttabraut, málabraut, samfélagsbraut, uppeldis-
braut og viðskiptadeild.
Náminu lýkur ýmist eftir 2 ár eða með stúdentsprófi
eftir 4 ár. Umsóknum þarf að fylgja staðfest afrit próf-
skírteina.
Skólameistari
Blaðberar! Blaðberar!
Óskast sem fyrst viö Háteigsveg - Stórholt.
-Skipholt - Noröurmýri - Seltjarnarnes.
Takið daginn snemma og berið út í góöa
veðrinu!
UÖDVIUINN
Síöumúla 6, Reykjavík.
Sími: 81333.
SÓFINN B>ELDUR
Huliðsheimar
Karlinn í kassanum
Hver er hann? Hvaðan kom hann? Hvert fer hann?
„Karlinn í kassanum" var sér-
stakt hugtak þegar ég var krakki.
Frændi minn ló því í mig, að „kar-
linn í kassanum" væri bróðir
„karlsins á kassanum". En karl-
inn á kassanum var prédikari
niðrá Lækjartorgi sem útmálaði
kvalir helvítis yfir lýðnum. (Ann-
ars minnir mig að segi frá honum í
ævisögu Guðmundar Halldórs
togarasjómanns eftir Jónas stýri-
mann, og er merkileg bók).
Einhverju sinni þegar þessi
frændi minn (sem nú er orðinn
aukafélagi í klúbbnum Hana nú i
Kópavogi - og öll gamansemi úr
honum skekin), var léttkenndur
á gelguskeiði og fór með kvikind-
isskap og strákapörum um borg-
ina, - gekk hann fram á karlinn á
kassanum. Sá þrumaði um það
logandi helvítis gin sem gleypti
alla borgarbúa um síðir, þennan
drekkandi og duflandi lýð sem
ekkert þekkir nema búklegar
girndir og losta. Og svo framveg-
is.
Frændi minn sagðist hafa haft á
sér bandspotta, hnýtt í nærhvíl-
andi strætisvagn og í kassann. Og
almenningsvagninn fór af stað
með eldspúandi prédikarann á
kassanum í eftirdragi. Var svo
mælt, að ekki hefði verið meira
predikað um helvíti þann daginn.
Karlinn í kassanum, bróðir
hins, var hins vegar furðu ljót
teiknuð fígúra í Mánudagsblað-
inu. Þeta var illkvittin skepna,
hálfgerður fasisti í skoðunum og
gífurlega máttugur áróðurskarl í
þátíma fjölmiðlum íslenskum.
Þessir karlar komu mér í hug,
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Reykjavík
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður haldinn laugar-
daginn 1. júní að Hverfisgötu 105. Hefst fundurinn kl. 10.00 árdegis
og er stefnt að því að Ijúka aðalfundarstörfum fyrir hádegi.
Dagskrá:
Kl. 10-12 1. Skýrsla stjórnar ABR fyrir starfsárið 1984-1985.
Erlingur Vigfússon formaður ABR.
2. Reikningar ársins 1984 og tillaga stjórnar um flokks-
og félagsgjöld ársins 1985.
Steinar Harðarson gjaldkeri ABR.
3. Tillögur kjömefndar um stjórn og endurskoðendurfyrir
starfsárið 1985-1986.
4. Tillaga kjörnefndar um stefnuskrárnefnd vegna kom-
andi borgarstjórnarkosninga.
5. Kosning formanns, stjórnar, endurskoðenda og stefn-
uskrárnefndar.
6. Önnur mál.
Kl. 14-17 Vinnufundur um flokksstarfið. Reynsla síðasta starfs-
árs og starfið framundan.
Tillögur kjörnefndar um stjórn, endurskoðendur og stefnuskrár-
nefnd ásamt endurskoðuðum reikningum félagsins liggja frammi á
skrifstofu flokksins frá og með 30. maí.
Félagsmenn í ABR eru eindregið hvattir til að fjölmenna á aðal-
fundinn og á vinnuráðstefnuna eftir hádegið.
Stjórn ABR
AESKULÝDSFYLKINGIN
Skrifstofa Æskulýðsfylkingarinnar
í sumar mun ÆFAB starfrækja skrifstofu að Hverfisgötu 105, 4.
hæð. Hún verðuropin alla virkadagamilli klukkan 15-18. Allirsem
hafa áhuga á að kynna sér starfsemi ÆFAB eru hjartanlega vel-'
komnir í kaffi og spjall. Þeir sem kynnu að hafa áhuga á því að
starfa á skrifstofunni e-n tírna eru beðnir um að hafa samband við
okkur. Síminn er 17 500.
Stjórnin.
þegar ég sá auglýsinguna frá
Húsnæðishópnum á dögunum.
Ég veitti því nefnilega athygli að
á milli þeirra Geirs og Steingríms
á ljósmyndinni er stór svartur
kassi. Og unglingskvikindi sem
ég þekki spurði mig „Úr því þú
vinnur á Þjóðviljanum þá hlýtur
þú að vita hvað er í kassanum, af
því þú er svo pólitískur“. Og ég
setti upp spekingssvip og söng-
laði „Þorsteinn í svörtum kassa,
tra, ralla, la“.
Únglingurinn hugsaði sig um,
leit aftur á auglýsinguna, kvaðst
vera betur að sér í pólitík heldur
en ég. Þessi ríkisstjórn, - og allir
sem henni tengdust væru nú ekki
merkilegri en það sem skrifað
stæði í sjálfri auglýsingunni:
EKKERT!
Þórgísl
Kvennabarátta
Ráðstefna
um
hugmynda-
frœði
Um næstu helgi efna
Kvennaframboðið og Kvenna-
listinn til opinnar ráðstefnu um
hugmyndafræði kvennabar-
áttunnar og fer hún fram í
Valsskálanum við Kolviðarhól.
Ráðstefnan hest kl. 14 laugar-
daginn 1. júní og stendur fram
á sunnudagskvöld.
Á ráðstefnunni verða flutt
fimm framsöguerindi: Sigurveig
Guðmundsdóttir ræðir um
kvennabaráttuna á íslandi fram
til 1968, Kristín Ástgeirsdóttir
brúar bilið frá 1968 til dagsins í
dag, Helga Sigurjónsdóttir ræðir
stefnur og strauma í kvennarann-
sóknum, Inga Dóra Björnsdóttir
um kvennamenningu og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir flytur er-
indi sem hún nefnir: Við vitum
allt um karlveldi! Inn á milli
verða umræður og um kvöldið
verður brugðið á glens.
Þátttöku þarf að tilkynna fyrir
29. maí í Kvennahúsið en þar eru
símar 13725 og 21500.
-ÞH
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 26. maí 1985