Þjóðviljinn - 26.05.1985, Blaðsíða 19
A BEININU
Ókunnugt
hvað Danir
oorga
í kaup
Jón Ingvarsson
stjórnarformaður
Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna
ó beininu
Hvernig stendur á því aö
dönsk fiskvinnsluhús sem
selja Coldwater, verk-
smiöju SH í Bandaríkjunum
fiskblokkir fyrir sama verö
og íslensku húsin, getur
borgaö helmingi hærra
kaup til starfsfólksins síns
en þau íslensku og einnig
helmingi hærra verö fyrir
fisk til verkunar en hér gild-
ir?
Jón Ingvarsson forstjóri ís-
bjarnarins og stjórnarformaður
SH situr á beininu í dag og svarar
þessari spurningu og fleirum en
Jón sagði m.a. í ræðu á aðalfundi
SH sem lauk í gær, að verði
eignartilfærslan frá fyrirtækjum í
sjávarútvegi ekki stöðvuð hið
snarasta verði ekki annað séð en
stór hluti fyrirtækja í sjávarútvegi
gefist upp innan tiltölulega
skamms tíma. En fyrst spyrjum
við um dönsku fiskvinnslufyrir-
tækin í framhaldi af frétt Þjóðvilj-
ans sl. fimmtudag.
- Mér er alls ókunnugt um það
kaup sem Danir greiða sínu fisk-
verkunarfólki. Mér er einnig ó-
kunnugt um hversu há launa-
tengd gjölddönskfiskvinnslufyr-
irtæki þurfa að greiða. Um fisk-
verðið veit ég heldur ekki. Ég
veit hins vegar að það hráefni
sem selt er á hæsta verði á upp-
boði í Danmörku er ekki fram-
leitt í fiskblokkir heldur selt sem
ferskur fiskur á mjög háu verði.
Hvorki Sölumiðstöðin né Cold-
water selja fiskafurðir fyrir Dani.
Coldwater kaupir hins vegar
töluvert magn af þorskblokk frá
Danmörku og þá á sama verði og
frá íslandi, þ.e. markaðsverði.
Sú þorskblokk sem Danir selja til
Bandaríkjanna er aðallega fram-
leidd á Bornholm. Sá fiskur er
veiddur í Eystrasalti við afar hag-
kvæm skilyrði og er því ódýr í
innkaupi.
Þú vilt ekki kannast við að þið
borgið hærra verð fyrir dönsku
blokkina?
- Nei alls ekki.
Hvernig stendur á því að SH
hefur verið að tapa frystihúsum
úr samtökunum á undanförnum
árum og framleiðslan hjá ykkur
minnkar þrátt fyrir aukinn afla.
Er Sambandið að keyra yfir ykk-
ur?
- Staðreyndin er sú að á undan-
förnum árum hefur einkafyrir-
tækjum í hraðfyrstiiðnaðinum
fækkað og þessi fækkun hefur að-
allega komið fram hjá SH. Sam-
dráttur í framleiðslu SH á sér
nokkra skýringu vegna þessa. Á
sama tíma hefur fjölgað í togara-
flota landsmanna en sú fjölgun
hefur einkum átt sér stað hjá öðr-
um en félagsaðilum SH. Auk
þess eru alltaf sveiflur milli ára í
framleiðslunni.
Hvað með gæðamálin? Hvern-
ig stendur á því að starfsmenn hjá
Coldwater segja að gæði hráefnis
hafi ekkert batnað hjá frystihús-
um SH í 20 ár, jafnvel hrakað?
- Hafi einhver starfsmaður
sagt þetta, þá er það á misskiln-
ingi byggt. Þvert á móti hefur það
komið fram á þessum aðalfundi
hjá forstjóra Coldwater, að gæð-
in hafa aukist að undanförnu.
Þú óttast ekki að við séum að
dragast afturúr í gæðum?
- Nei nema síður væri.
Hvernig stóð á því að SH leitaði
ekki tilboða í fískútflutning sinn
fyrr en á síðasta ári og tók þá ekki
einu sinni lægsta tilboði?
- Að mati stjórnenda SH voru
ekki aðstæður til að bjóða út
flutningana fyrr en á síðasta ári.
Hagkvæmasta tilboði var að sjálf-
sögðu tekið.
Hvert runnu þær 90 miljónir
sem spöruðust með þessum út-
boðum?
- Til frystihúsanna að sjálf-
sögðu með minnkandi flutnings-
kostnaði.
Eignatilfærslan frá fiskvinnslu
síðustu misserin hefur verið
rnikið til umræðu og þér var tíð-
rætt um þessi mál í ræðu þinni á
aðalfundinum. Sérð þú fram á að
fyrirtækin verði eignalaus á næst-
unni miðað við óbreytt ástand?
- Já.
Hver er ástæðan að þinu mati
fyrir þessari þróun?
- Fyrst og fremst eru það hin
slæmu rekstrarskilyrði sem þessi
atvinnugrein hefur þurft að búa
við á undanförnum árum. Einnig
má benda á það að fjármagns-
kostnaður hefur aukist verulega
og það hefur auðvitað lent með
fullum þunga á hraðfrystiiðnað-
inum og sjávarútveginum og þá
einkum hjá þeim aðilum sem
hafa fjárfest.
Gengismál hafa einnig verið
mikið rædd á þessum aðalfundi
ykkar. Er það ykkar skoðun að
gengi íslensku krónunnar sé rangt
skráð?
- Já við erum inni á því að tekj-
um sjávarútvegsins hafi iðulega
verið haldið niðri með ó-
raunhæfrigengisskráningu. Þegar
kostnaðurinn við að framleiða er
meiri heldur en það gjald sem við
fáum fyrir framleiðsluna þá
hlýtur eitthvað að vera rangt í
þessu þjóðfélagi sem byggir af-
komu sína af svo miklum hluta á
sjávarútvegi og fiksvinnslu.
Miðað við óbreytt ástand hvað
getur frystiiðnaðurinn og fisk-
vinnslan haldið lengi út?
- Það er ómögulegt að segja.
Þetta er auðvitað misjafnt. En
ástandið er orðið mjög ískyggi-
legt víða. Er almennt mikil
svartsýni ríkjandi í herbúðum
fiskvinnslunnar.
Ég held að það sé almennt hjá
mönnum nokkuð mikil svartsýni.
Þið sjáið ekki fram á neina
birtu í bráð?
- Nei, ekki nema stjórnvöld
taki sig á og bæti þessi rekstrar-
skilyrði.
Hvað er það sem þarf að bæta?
- Það er margt, afar margt.
Bæði þarf með ýmsu móti að
lækka tilkostnaðinn og létta af
ýmsum pinklum sem að eru á
sjávarútveginum. Það er ekki síst
nauðsynlegt að fá rétta skráningu
á gengi krónunnar.
Norðmenn og Kandamenn,
helstu keppinautar okkar á
Bandaríkjamarkaði hafa vcrið
með víðtæk undirboð á markaðn-
um undanfarið. Hvcrnig standa
íslensku fyrirtækin gagnvart
þcssum viðskiptum?
- Að sjálfsögðu veldur það
okkur áhyggjum hvað sam-
keppnisstaða Kanadamanna er
sterk varðandi verðið. Við höfum
hingað til og gerum enn, byggt
okkar stöðu á betri gæðum en
þeir.
Þú trúir því að gæðin muni
halda okkur uppi á þessum mark-
aði?)
- Ég er sannfærður um að við
munum halda þessum markaði ef
rétt verður að málum staðið og
við verðum áfram í forystu á sviði
vöruþróunar og gæða.
-Jg-
Sunnudagur 26. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19