Þjóðviljinn - 29.05.1985, Qupperneq 1
Pétur Pétursson fellur á markteig Skota, Alex McLeish hefur brugðið honum. Vítaspyrna - en Teitur Þórðarson, sem sést attar, fyrir miðri mynd, let Jim
Leighton, lengst til vinstri, verja frá sér. Mynd: É.OI.
Sorglegt
Draumurinn að engu
Mexíkódraumur íslands hefði hœglega getað lifað lengur. Vítaspyrna og
fjöldi fœra forgörðum. „Islendingurinrí' skoraði sigurmark Skota á 87. mín.
ísland lék mjög vel og var betri aðilinn
Hendi á Archibald
„Það er alveg klárt að boltinn fór í
höndina á Steve Archibald í fyrirgjöf-
inni,“ sagði Sævar Jónsson í samtali
við Þjóðviljann eftir leikinn. „Ég var
rétt hjá og sá þetta greinilega. Hann
teygði upp höndina og kom við boll-
ann.“
Þorgrímur Þráinsson tók í sama
streng og sagði að þetta hafði alveg
sett þá úr sambandi.
Svekktir
íslensku strákarnir voru almennt
mjög svekktir yfir tapinu, en ánægðir
með leikinn í heild.
Janus Guðlaugsson, sagðist vera
svekktasti maður í heimi. „Það var
ægilegt að tapa. Þetta var besti leikur
okkar og við áttum fullt af færum.
Þetta var allt mjög gott hjá okkur og
ég naut þess að spila þennan leik. Við
bara sváfum aðeins í lokin og þá tap-
aðist leikurinn. Nú þurfum við bara
að ná okkur upp fyrir næsta leik.“
Sigurður Grétarsson sagði sárgræti-
legt að tapa þessu. „Ég fékk gott færi í
lokin.en varnarmaður lá í mér og ég
náði ekki að skjóta vel. Það hefði ver-
ið stórkostlegt að jafna í lokin. ís-
lenska liðið hefur oft átt góða kafla,
en ekki jafn heilsteyptan leik. Nú er
bara að vinna Spánverjana."
Nýliðinn
Eini nýliðinn í liðinu var Eggert
Guðmundsson hafði þetta að segja:
„Það var mjög gaman að fá þennan
möguleika. Þetta er minn fyrsti leikur
hér á landi og var mjög gott að spila
með liðinu. Ég hélt satt að segja að
íslenskt landslið gæti ekki spilað
svona vel. Það hefði enginn sagt neitt
þó við hefðum unnið 2 eða 3:1. Mark-
ið var gott, en ég hefði átt að taka
þennan bolta, en það fór sem fór.“
„Það er agalega leiðinlegt að þetta
skyldi enda svona,“ sagði fyrirliði
liðsins, Teitur Þórðarson. „Allir
stóðu sig vel og léku frábærlega."
Varðandi vítaspyrnuna sagði Teitur:
„Ég er alveg klár á því að Jim
Leighton hafði farið af stað of
snemma, en það er voðalegt að vít-
aspyrnan skuli hafa mistekist. En þó
að við höfum tapað held ég að flestir
áhorfendur hafi kunnað að meta góð-
an leik og ég vil þakka þeim fyrir góð-
an stuðning.“
Skotar ánægðir
Fyrirliði Skota, hinn eitilharði Gra-
eme Souness kvaðst hafa búist við
líkamlega hörðum leik. „Við áttum
ekki von á mjög kerfisbundnu spili.
Þetta var jafn leikur og gat endað á
hvorn veginn sem var. Við eigum nú
góða möguleika á að komast til Mex-
íkó. Þetta var mjög mikilvægur sigur
og okkur sjálfum að kenna ef við
komumst ekki áfram. Við vonum að
íslendingar geri okkur greiða á móti
Spánverjum, en þeir hafa getu til
þess.“
Miðjumaðurinn litli, Gordon
Strachan taldi sigurinn verðskuldað-
an. „Við áttum betri færi og sköpuð-
um mun meiri hættu inn í vítateign-
um. Nú krossum við fingur og vonum
það besta. íslendingar eru mjög
sterkir og ákveðnir og erfitt að vinna
þá, en það tókst núna.“ Jock Stein var
ekki alveg sammála: „Á heildina litið
þá vorum við heppnir. Óhappaatvik-
ið er Siggi meiddist hafði meiri áhrif á
okkur. Við vissum að þetta yrði erfitt.
Bæði liðin fengu góð tækifæri og mar-
kverðirnir voru mjög góðir. Þetta gaf
2 stig og nú verður leikurinn gegn
Wales hreinn úrslitaleikur, því ég tel
íslenska liðið geta gert Spánverjum
lífið leitt. Liðið ykkar er „excellent",
skapið gott og alltaf haldið áfram.
Þetta var góður endir á vertíðinni, og
menn eru þreyttir.“ Stein vildi að lok-
um þakka íslendingum fyrir mót-
tökurnar, þetta hafi verið mjög góð
ferð og allt eins og best getur verið hjá
framkvæmdaaðiium.
Vinnum Spán
Tony Knapp, þjálfari kvað strák-
ana hafa verið stórkostlega. „Ég
kenni í brjósti um þá að hafa tapað,
þeir áttu að vinna. Island getur verið
hreykið að liðinu, það er óhætt að
segja það og ef við leikum eins og í
dag, þá vinnum við Spán.“
- gsm
Það var grátlegt, hreint og
beint sorglegt, að sjá á eftir
tveimur stigum suður yfír
Atlantsála í gærkvöldi. Sjaldan
eða aldrei hefur íslenskt lið leikið
jafn sannfærandi á Laugardal-
svellinum og í gærkvöldi, sjaldan
eða aldrei hefur jafn sterkt lands-
lið og það skoska verið jafn hepp-
ið að sleppa með stig úr Laugar-
dalnum og í gærkvöldi. Jock
Stein, skoski landsliðseinvaldur-
inn, hefði ekkert getað sagt við
því þótt ísland hefði hrósað svo
sem 3-1 sigri og gert Mexíkóvonir
hans að engu. I staðinn er íslenski
Mexíkódraumurinn að engu orð-
inn, draumur sem svo sannarlega
hefði getað þróast uppí veruleika
með sigri í gærkvöldi.
Fyrsta korter leiksins gerðist lítið,
ísland átti þær sóknir sem eitthvað
kvað að, en næstu 10 mínútur á eftir
sóttu Skotar linnulaust. Eggert Guð-
mundsson sem lék í fyrsta sinn á
Laugardalsvellinum varði mjög vel
frá Andy Gray úr dauðafæri og sló
síðan í horn frá Graeme Sharp.
En þetta leið hjá og á 26. mínútu
kom leiðinlegt atvik. Graeme Soun-
ess fyrirliði Skota sparkaði Sigurð
Jónsson hrottalega niður á miðjum
vellinum - brot sem hefði verð-
skuldað rautt spjald. Sigurður var
borinn af leikvelli og Ómar Torfason
kom í hans stað.
Fyrsta hættulega færi íslands var
það albesta. Vítaspyrna. Ómar sendi
inní vítateig og á markteignum var
Pétur Péturson felldur af Alex
McLeish. Sovéski dómarinn benti á
vítapunktinn! Teitur Þórðarsson fyr-
irliði stillti upp knettinum og skaut, of
ónákvæmt og Jim Leighton varði!
Hræðilegt.
Hálfleikur, staðan 0-0 og í heild
leikurinn búinn að vera í nokkru
jafnvægi.
Skotar pressuðu talsvert til að
byrja með í seinni hálfleik og á 58.
mínútu skaut Jim Bett í þverslá eftir
að Eggert hafði misst af fyrirgjöf. En
þá snerist leikurinn algerlega við. Sig-
urður Grétarsson kom inná fyrir Teit
og það verkaði eins og vítamíns-
sprauta fyrir íslenska liðið. Tækifærin
komu á færibandi - McLeish bjargaði
skalla frá Atla á línu á 61. mín, Janus
Guðlaugsson þrumaði af 20 m færi á
65. mín. en Leighton varði naumlega
í horn. Á 67. mínútu sendi Sigurður
innfyrir vörn Skota, Atli var dauða-
frír, einn gegn markverði, en
Leighton bjargaði meistaralega með
úthlaupi og strax á eftir varði hann
þrumuskot frá Ómari af 25 m færi. Á
72. mín. var hætta hinum megin,
þvaga í vítateig fslands en Sharp hitti
ekki boltann.
Þegar þrjár mínútur voru eftir kom
kjaftshöggið. Löng sending inní ís-
lenska vítateiginn, Steve Archibald
virtist snerta knöttinn með hendi og
það var Jim Bett sem fékk hann utan
við vinstri vítateigshornið og þrumaði
óverjandi í netið. Já, það var „ís-
lendingurinn" Bett sem gerði íslenska
Mexíkódrauminn að engu.
fslenska liðið geystist í sókn og
mínútu eftir markið var Sigurður bú-
inn að brjótast inná markteig, hann
renndi boltanum í átt að horninu fjær
- en hárfínt framhjá stönginni. Þar
með var það búið, og í lokin slapp
Gordon Strachan uppað íslenska
markinu hægra megin og skaut rétt
framhjá. Flautað af, vonbrigði - en
íslenska liðinu klappað lof í lófa fyrir
góðan leik.
lslenska liðið sýndi heilsteypt-
an og sannfærandi leik, og það
’sem mest var um vert að nú náði
það að skapa sér mikið af mark-
tækifærum. Þau hefur oft skort.
Vörnin var sterk og Eggert stóð
sig ágætlega í markinu - nema
hvað hann var óöruggur með háu
fyrirgjafirnar. Þriggja manna
vörn í fyrri hálfleik, fimm á miðj-
unni, en í þeim seinni dró Janus
sig afturfyrir miðverðina sem
„sweeper“. Sævar, Magnús og
Þorgrímur skiluðu allir sínu vel.
Miðjumennirnir voru heldur mis-
tækari, Árni, Guðmundur og
Ómar áttu allir sína góðu og
slæmu punkta. Atli var drjúgur
og baráttuglaður að vanda.
Frammi unnu Teitur og Pétur
vel, Teitur var sérstaklega virkur
í að leggja boltann út á samherj-
ana, og Sigurður stóð sig stórvel
þær 35 mínútur sem hann lék.
Sigurður Jónsson var að komast
ágætlega í gang þegar hann slas-
aðist. Heildarsvipurinn góður,
engin ein stjarna heldur unnu all-
ir fyrir alla, og allir voru greini-
lega staðráðnir í að selja sig dýrt.
Þeir hafa ástæðu til að vera
svekktir, landsliðsmennirnir, útí
að ná ekki að nýta sér undirtökin
og færin til sigurs.
Liðin voru þannig skipuð:
ísland: EggertGuðmundsson, Þorgrím-
ur Þráinsson, Magnús Bergs, Sævar Jóns-
son, Janus Guðlaugsson, Árni Sveinsson,
Sigurður Jónsson (Ómar Torfason 26.
mln) Atli Eðvaldsson, Guðmundur Þor-
björnsson, Teitur Þórðarson (Sigurður
Grétarsson 57. mín), Pétur Pétursson.
Skotland: Jim Leighton, Richard Go-
ugh, Maurice Malpas, Roy Aitken, Alex
McLeish, Willie Miller, Gordon Strachen,
Graeme Souness, Andy Gray, (Steve Arc-
hibald 73. mín) Jim Bett, Greame Sharp.
Gordon Strachan og Jim Bett
voru bestu menn Skota, hættu-
legir og útsjónarsamir á miðj-
unni. Strachans var oft ekki nógu
vel gætt. Vörnin var sterk með
Miller sem lykilmann og
Leighton var frábær í markinu.
Skotar geta þakkað honum að
eiga enn ágæta möguleika á að
komast til Mexíkó.
Vallarmetið var ekki slegið, áhorf-
endur voru 15,270. Sovétmaðurinn
Anatoly Milchenko dæmdi þokka-
lega. Dæmdar voru 13 aukaspyrnurá
skoska liðið fyrir brot, 12 á það ís-
lenska. fsland fékk 4 hornspyrnur en
Skotland 6. íslenska liðið átti 16
markskot í leiknum, það skoska 11.
Jim Leighton þurfti að verja 11 skot,
Eggert Guðmundsson 4.
-VS
Sigurður
Rifin
liðbönd?
,„Sigurður Jónsson er að iíkindum
með rifín liðbönd í ökkla," sagði Sig-
urjón Sigurðsson iæknir íslenska liðs-
ins eftir leikinn í gærkvöldi. Þar með
lítur ekki út fyrir að hann geti leikið
gegn Spánverjum þann 12. júní.
„Mér þykir mjög ieiðinlegt að hafa
slasað Sigurð, þetta var algjört óvilja-
verk,“ sagði Graeme Souness fyrirliði
Skota í samtali við Þjóðvifjann eftir
leikinn.
-gsm
UMSJÓN: VtÐIR SIGURÐSSON