Þjóðviljinn - 28.07.1985, Síða 14
BÆJARROLT
Herstöðvaandstæðingar
- friðarsinnar -
kjarnorkuandstæðingar
Tilkynnið þátttöku í Friðarbúðirnar sem fyrst í síma
17966 eða að Mjölnisholti 14, 3. hæð, Reykjavík.
Skrifstofan er opin alla daga og flest kvöld. Brýnt er að
sem flestir tilkynni sig, hvort sem um lengri eða
skemmri þátttöku er að ræða.
Samtök herstöðvaandstæðinga.
k^RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir að ráða 3 raf-
eindamenntaða starfsmenn til starfa á rafeindadeild
stofnunarinnar.
Deildarstjora. Starfið er fólgið í stjórn rafeindadeildar,
m.a. umsjón með áætlanagerð, hönnun, fram-
kvæmdum og tæknilegum rekstri á fjargæslu- og
fjarskiptakerfum auk umsjónar með starfrækslu raf-
eindastofu deildarinnar. Hér er um mjög fjölbreytt og
sjálfstætt starf að ræða sem krefst alhliða þekkingar
á rafeindabúnaði og tölvum og hugbúnaði almennt.
Leitað er að manni með próf í rafeindaverkfræði/-
tæknifræði eða með sambærilega menntun.
Tæknimaður. Starfið er aðallega fólgið í áætlana-
gerð, hönnun og verkumsjón með framkvæmdum
og tæknilegum rekstri á fjargæslukerfum. Starfið
býður upp á fjölbreytt og áhugaverð verkefni á sviði
rafeinda- og hugbúnaðar. Leitað er að manni með
próf í rafeindaverkfræði/-tæknifræði eða með
sambærilega menntun.
Rafeindavirki. Starfið er fólgið í viðgerðum og dag-
legum rekstri á ýmis konar rafeindabúnaði og býður
upp á fjölbreytt og áhugaverð verkefni. Leitað er að
manni með sveinspróf í rafeindavirkjun, símvirkjun
eða sambærileg réttindi. Laun eru skv. kjarasamn-
ingi við Rafiðnaðarsamband íslands.
Upplýsingar um störfin veitir yfirverkfræðingur raf-
magnsdeildar, tæknisviðs RARIK í síma 91-17400.
Umsóknum er greini menntun og fyrri störf ber að skila
til starfsmannadeildar Rafmagnsveitna ríkisins, fyrir 1.
ágúst 1985.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegur118,
105 Reykjavík.
Mér er minnisstætt viðtal sem
ég heyrði fyrir nokkrum árum við
Vestmannaeying sem hafði misst
nýtt einbýlishús undir hraun í
gosinu, hann hafði stritað árum
saman við að koma þessu húsi
upp. Hann sagði að gosið hefði
kennt sér hversu verðmæti sem
möiur og ryð fái grandað séu lítils
virði. Hann sagðist ekki bera
neina virðingu fyrir steinsteypu
framar.
Mér datt þetta í hug þegar ég sá
viðtal við múrara nokkurn sem er
búinn að vera að basla við að
koma þaki yfir höfuðið og eftir
því sem hann borgar meira á
hann minna í húseign sinni.
Skuldirnar hækka jafnt og þétt
meðan kaupið lækkar og sölu-
verð hússins stendur í stað. Einn
góðan veðurdag verður hann svo
að selja húsið og stendur þá uppi
með skuldir eintómar og húsnæð-
islaus að auki. Svona getur
markaðskerfið leikið fólk grátt.
Hann byrjaði með tvær hendur
tómar.
Þeir sem eru á móti leiguhús-
næðiskerfi eins og það sem Búseti
er nú að fara á stað með kvarta
undan því að engin eignamyndun
sé í íbúðunum sem fólkið fær.
Það þarf að borga ákveðna upp-
hæð til að fá þessar íbúðir á leigu
og borga svo fasta mánaðarleigu
alla sína ævi og á svo ekki íbúðina
þegar það hrekkur upp af. Það er
þó betra heldur en eignaupp-
takan hjá múraranum.
Sjálfur á ég litla íbúð sem ég
keypti í fyrra með tvær hendur
tómar. Eg óttast að fari á sömu
leið hjá mér og múraranum. Eftir
því sem ég strita meir við að
borga því minna eigi ég í íbúð-
inni. Annars er mér alveg sama
hvort ég á íbúð eða ekki. Það eina
sem skiptir mig máli er að hafa
þak yfir höfuðið og eiga ekki
hættu á að þurfa að missa það. í
raun og veru kæri ég mig ekkert
sérstaklega að eiga íbúð, ég vil
bara ekki vera á eilífum flækingi
ár eftir ár. Þess vegna gæti ég vel
hugsað mér að fá örugga leiguí-
búð. Búsetamenn eru að fara að
byggja stórhýsi inn í Grafarvogi,
það er það eina sem ég mundi
setja fyrir mig. Ég vil ekki flytja
Það bjargast,
það bjargast
upp í sveit. Ég get þá alveg eins
farið austur fyrir fjall eða norður í
land. Ég vil búa í miðbæ þar sem
líf er og fjör í kringum mig og
fjölbreytilegt umhverfi, ég er
borgarbarn og vil ekki flytja í
svefnbæ, langt frá uppsprettum
mannlegra samskipta. Þessvegna
ætla ég að halda fast í litlu íbúðina
við Spítalastíg.
Annars er mér farið að óa
hversu margir vinir mínir og
kunningjar flytja nú úr landi, gef-
ast upp eða grípa feita gæs í út-
Iöndum ef hún býðst. Ætli fari
ekki á sömu leið með múrarann.
Ja, ljótt er það. Annars er mitt
mottó: það bjargast, það bjarg-
ast, það ferst ekki neitt. Ég verð
hins vegar að játa að ég fór með
þess trúarjátningu með litlum
sannfæringarkrafti á þriðjudag-
inn þegar ég sá skattseðilinn
minn. Þegar þetta er skrifað á
fimmtudegi skín hins vegar sólin
glatt á himni og ég er að fara út úr
bænum á morgun. Ég kasta því
öllum syndum og sorgum á bak
við mig - í bili.
-Guðjón
ALÞYÐUBANDALAGtÐ
Snæfellsjökull. Magnaðasti blettur í kjördæminu.
Vesturland - Sumarferðalag -
Verslunarmannahelgin
Eins og undanfarin sumur efnir Alþýðubandalagið á Vesturlandi til
útivistar og ferðalags um verslunarmannahelgina. Nú verður farið
um Snæfellsnes og Nesið skoðað undir leiðsögn gagnkunnugra
heimamanna. Gist verður í tvær nætur í svefnpokaplássi á Lýsu-
hóli í Staðarsveit. Brottför er frá Akranesi kl. 9og frá Borgarnesi kl.
10álaugardagsmorgni3. ágúst. Heimkomasíðdegisámánudegi,
5. ágúst. Þau sem í ferðalagið ætla aö fara, láti skrá sig sem fyrst
S' a einhverjum eftirtalinna:
löfu - síma 8811, Grundarfirði, Jónu - síma 1894, Akranesi,
Grétari-síma 7506, Borgarnesi, Skúla-síma 6619, Hellissandi,
Jóhannesi - síma 6438, Ólafsvík, Þórunni - síma 8421, Stykkis-
hólmi, Kristjóni - síma 4175, Búðardal.
Nesti, góðir gönguskór og viðlegubúnaður þarf að vera með í för.
Það er margt sem alltaf er nýstárlegt og gaman að skoða á Snæ-
fellsnesi. Gengið verður á Eldborg ef veður leyfir. Þetta er fjöl-
skylduferðalag. - Allir velkomnir. - Kjördæmisráð.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Sumarferð ABR 17. ágúst
Árleg sumarferð Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður laugar-
daginn 17. ágúst. Að þessu sinni verður ekið um Hvalfjörð og áð
Tilkynning til
miðstjórnarmanna
Alþýðu-
bandalagsins
Framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins hefur ákveðið
að haustfundur miðstjórnar
verði haldinn í Reykjavík dag-
ana 21.-22. september n.k.
Meginefni fundarins verða
utanríkismál.
Miðstjórnarmenn eru beðnir
að festa sér þessa dagsetn-
ingu í minni og hafa í huga að
berist óskir um að á dagskrá
verði tekin mörg mál gæti orð-
ið að hefja miðstjórnarfundinn
föstudagskvöldið 20. sept-
ember.
Þá er miðstjórnarmönnum
bent á ráðstefnu um Þjóðvilj-
ann og ný viðhorf í fjölmiðlun
sem ákveðið hefur verið að
halda eftir hádegi sunnudag-
inn 22. september, en gert er
ráð fyrir að Ijúka miðstjórnar-
fundinum fyrir hádegi sama
dag. - Flokksskrifstofan.
við Saurbæ og á Akranesi við kútter Sigurfara. Þaðan verður ekið
að Leirá. Frá Leirá verður farið um Svínadal og að Reykholti. Síðan
verður ekið um Uxahryggi og áð í Biskupsbrekku á Kaldadalsleið.
Þaðan verður ekið um Þingvelli til Reykjavíkur. Fararstjórn að
þessu sinni verður í höndum Árna Björnssonar og Kjartans Ólafs-
sonar.
Áningastaðir og allt fyrirkomulag ferðarinnar verður nánar kynnt í
Þjóðviljanum síðar en ferðanefnd hvetur alla flokksmenn og stuðn-
ingsmenn að panta miða tímanlega til að auðvelda allan undirbún-
ing. Skráning farþega er í síma 17500. - Ferðanefnd ABR.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Friðarbúðir 7.-10. ágúst
Ailir í friðarbúðirnar
ÆFAB efnir til hópferðar í friðarbúðirnar í Njarðvík miðvikudaginn
7. ágúst og eru allir eindregið hvattir til aö nota þetta einstæða
tækifæri til andófs gegn helstefnu og hermangi á íslandi. Allir sem
áhuga hafa á að taka þátt í undirbúningi fyrir ferðina 7. ágúst eða
vilja kynna sér þetta nánar er bent á að áhugasamir friðarsinnar
ætla að koma saman að Hverfisgötu 105, fimmtudaginn 25. júlí kl.
20 og rabba saman um væntanlegar aðgerðir.
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík.
14SÍÐA — ÞJ( LJINN Sunnudagur 28. júlí 1985