Þjóðviljinn - 30.07.1985, Qupperneq 4
2. deild
Fljótir
úr fall-
sætinu
UMFN-Leiftur 2-0 (1-0) **
Eftir að hafa setið eina nótt í
fallsæti 2. deildarinnar rifu
Njarðvíkingar sig uppí áttunda
sætið á ný með þýðingarmiklum
sigri á Ólafsfirðingum sem sitja
því einir á botninum á ný.
Njarðvíkingar voru mun betri
aðilinn lengst af og sigurinn var
verðskuldaður. Jón Halldórsson
átti skalla rétt framhjá
Leiftursmarkinu á 10. mínútu og
tíu mínútum síðar átti hann stór-
an þátt í fyrra markinu í leiknum.
Hann braust upp kantinn og
sendi fyrir mark Leifturs, Helgi
Akureyringur Jóhannsson ætlaði
að hreinsa frá en sendi boltann í
eigið mark, 1-0.
Þegar 7 mínútur voru liðnar af
seinni hálfleik munaði minnstu
að Leiftur jafnaði. Helgi Ól-
afsfirðingur Jóhannsson átti þá
þrumuskot í þverslá. En fimm
mínútum síðar kom seinna mark
heimamanna, Guðmundur Sig-
hvatsson skallaði í netið, dett-
andi, eftir innkast, 2-0. Leifturs-
menn reyndu að klóra í bakkann
og komust næst því að minnka
muninn þegar Hafsteinn Jakobs-
son komst í gott færi á 77. mínútu
en Örn Bjarnason markvörður
UMFN náði að bjarga í horn.
Maður leiksins: Guðmundur
Sighvatsson, UMFN.
-SÓM/Suðurnesjum
Frjálsar
Zola Budd
vann létt
Zola Budd vann yfirburðasigur í
3000 m hiaupi í meistarakeppni
enskra áhugakvenna í frjálsum íþrótt-
um í Birmingham á laugardaginn.
Hún hafði forystu allan tímann og
kom í mark 50 metrum á undan næsta
kcppanda, á nýju mótsmeti, 8:50,50
mín. Þetta var fyrsta keppni Zolu á
þessari vegalengd síðan hún tapaði
fyrir Mary Decker-Slaney á Grand
Prix mótinu í London fyrir skömmu.
-VS/Reuter
Knattspyrna
Endurtok
þrennuna!
Geoff Hurst, sem skoraði 3 mörk í
úrslitaleik HM í knattspyrnu fyrir
England gegn Vestur-Þýskalandi á
Wembley 1966, endurtók afrekið þeg-
ar úrslitaliðin frá því fyrir 19 árum
mættust í ágóðaleik á Elland Road í
Leeds á sunnudaginn.
Hjurst skoraði 3 mörk í leiknum og
England vann 6-4. Um 19 þúsund
manns sáu leikinn og ágóðinn, 50 þús-
und pund, rennur til aðstandenda
þeirra sem fórust í brunanum hörmu-
lega í Bradford sl. vor.
-VS/Reuter
Afríka
Fjögur eftir
Marokkkó, Líbýa, Túnis og Alsír
komust um helgina í undanúrsiitin í
undankeppni HM í knattspyrnu í Afr-
íku. Tvær þessarra þjóða komast í
iokakeppnina í Mexíkó en Alsír var
með í síðustu keppni, á Spáni, og kom
mjög á óvart. Marokkó vann Egypta-
land, Líbýa vann Ghana, Túnis vann
Nígeríu og Alsír vann Zambíu í 8-liða
úrslitunum.
-VS/Reuter
ÍÞRÓTflR
2. deild
Algerir yfirburðir
Völsungar fóru létt með lélega Isfirðinga.
Völsungur ÍBÍ 4-0 (2-0) ★ ★★
Völsungar eru komnir á hæla efstu
liða eftir stórsigur á ísfirðingum á
laugardaginn. Heimamenn hefndu ó-
sigursins á ísafirði í fyrri viðureign-
inni sem einnig lauk með sömu
markatölu, 4-0. Mörkin hefðu vel get-
að orðið átta, slíkir voru yfirburðir
heimamanna.
Fyrri hálfleikur var afbragðs vel
leikinn af hálfu heimamanna. Gunn-
ar Straumland gaf tóninn á 15. mín-
útu þegar hann varði stórkostlega úr
eina færi ísfirðinga í leiknum. Löng
sending á markteig hvar ísfirskur
sóknarmaður skaut föstu skoti í
dauðafæri en Gunnar sveif eins og
köttur uppí vinkilinn og varði,
„world-class“ eins og enskurinn segir.
í fyrri hálfleiknum var nánast eitt
lið á vellinum, yfirburðir Völsunga
voru algerir en fyrsta færið kom ekki
fyrren á 29. mín. Kristján Olgeirsson
tók aukaspyrnu á Sigurð Halldórsson
en í erfiðu færi náði Siggi illa til bolt-
ans og skaut framhjá. Skömmu síðar
var Kristján með útpælda stungu á
Jón Leó sem klúðraði illa. En strákur
átti eftir að bæta fyrir mistök sín. A
36. mín. vann Jón Leó boltann af
varnarmanni, sendi á Kristján sem
skaut bylmingsskoti í stöng. Boltinn
barst til Björns Olgeirssonarsem sóp-
aði honum yfir, eins og honum einum
er lagið. Á 40. mín. einlék Helgi
Helgason í gegnum vörn Vestfirð-
inganna, plataði Hreiðar markvörð
en fór aðeins of langt og missti bolt-
ann frá sér. „Ég átti að skjóta", sagði
Helgi vonsvikinn eftir leikinn. Loks á
43. mínútu, þeirri margfrægu, kom
fyrsta markið. Jón Leó renndi boltan-
um fram vinstri kant og Ómar Rafns-
son tók 30 metra sprett. Ómar sendi
áfram á Birgi Skúlason sem fann Jón-
as Hallgrxmsson lausan í vítateignum
og sá var í litlum vandræðum með að
skora, 1-0. Haffsentarnir hjá Völ-
sungum voru enn að fagna þegar ann-
að markið kom. Enn var Jón Leó ark-
ítektinn og að þessu sinni renndi hann
2. deild
Glæsi-Mark!
Annað mark KS eini Ijósi punkturinn.
Borgnesingar nálgast fallbaráttuna.
Skallagrímur-KS 0-2 (0-1) **
Það er farið að halla undan fæti
hjá Borgnesingum eftir gott gengi
undanfarið. Annað tapið í röð leit
dagsins ljós á laugardaginn þegar
Siglfirðingar komu í heimsókn og
stutt er orðið í fallbaráttuna.
Staðan
i 2. deildarkeppninni í
Breiðablik.........11
IBV
KA..........
Völsungur....
KS..........
iBl.........
Skallagrímur
UMFN........
Fylkir......
Leittur.....
11
11
11
11
11
11
11
11
.. 11
knattspyrnu:
6 3 2 21-12 21
1 22-9 20
3 22-11 20
21-14 18
15-16 15
12- 16 13
13- 20 13
7- 16 12
9-14 9
8- 22 8
Markahæstir:
Tryggvi Gunnarsson, KA..............11
Tómas Pálsson, IBV....................8
Jón Þorir Jónsson, Breiðabliki........6
JónasHallgrimsson, Völsungi...........6
Jóhann Grétarsson, Breiðabliki........5
Kristján Olgeirsson, Völsungi........5
Sund
Evrópumet
Hinn 16 ára gamli Jozsef Szabo frá
Ungverjalandi setti Evrópumet
unglinga/ í 400 m fjórsundi karla á
Evrópumeistaramóti unglinga í sundi
sem fram fór í Genf í Sviss um helgina.
Szabo synti vegalengdina á 4:27,71
mín. og bætti eigið met um 2,41 sek.
Szabo hlaut fern gullverðlaun á
mótinu og kom Ungverjum í annað
sætið í stigakeppninni. Austur-
Þýskaland sigraði, hlaut 13 gull, 7 silf-
ur og 9 brons, en Ungverjar hlutu 6
gull, 2 silfur og 2 brons.
-VS/Reuter
Leikurinn var frekar lélegur,
lítið um spil en meira um háloft-
aknattspyrnu. Skallagrímur var
sterkari aðilinn fyrstu 20 mínút-
urnar en komst lítið áleiðis.
Gunnar Jónsson átti síðan tvö
góð skot sem Gísli Sigurðsson
markvörður KS varði en á milli
komst Hafþór Kolbeinsson í
gegnum vörn Skallagríms en
Bjarki Þorsteinsson, hinn 17 ára
gamli markvörður, hirti boltann
af tám hans.
KS skoraði fyrra mark sitt á 37.
mfnútu. Aukaspyrna frá vinstra
kanti, tveir Siglfirðingar
gleymdust í vítateig Skallagríms
og Óli Agnarsson þurfti aðeins að
reka tána í boltann til að skora,
0-1. Mínútu síðar átti Tómas
Kárason gott skot á Skallagríms-
markið en Bjarki varði vel.
Bjarki er nýkominn úr gipsi eftir
fótbrot en fór í markið þar sem
Kristinn Arnarson handarbrotn-
aði gegn KA á dögunum.
Seinni hálfleikur var tíðinda-
lítill, ekkert um að vera við mörk-
in fyrr en Einar Kári Kristófers-
son skaut rétt framhjá marki KS
eftir hornspyrnu á 76. mínútu.
Fimm mínútum síðar gerði KS
útum leikinn með glæsilegu
marki. Mark Duffield fékk bolt-
ann í vítateig Skallagríms, sneri
sér snöggt og skoraði með óverj-
andi hörkuskoti. Eini ljósi pun-
kturinn í leiknum, sannkallað
Glæsi-Mark!
Maður leiksins: Mark Duffi-
eld, KS. -eop/Borgarnesi
Mark Duffield (t.v.) - glæsilegt mark í
Borgarnesi og hann var valinn „Mað-
ur leiksins" í fjórða sinn af fréttaritur-
um Þjóðviljans í sumar. Aðeins Guð-
mundur Baldursson, Breiðabliki, hef-
ur verið valinn jafnoft.
góðum bolta á Kristján sem lamdi
leðrið í markhornið, 2-0.
Á 60. mín. bjargaði Hreiðar með
hetjulegu úthlaupi og tveimur mínút-
um síðar var enn hætta í vítateig ÍBÍ
þegar Jónas feilaði í dauðafæri eftir
sendingu Kristjáns. Þriðja markið
kom á 71. mín. Kristján tók horn-
spyrnu beint á hausinn á Ómari sem
þrykkti boltanum undir þverslána,
glæsilegt mark. Fimm mínútum fyrir
leikslok sendi Sigurgeir Stefánsson
feykigóðan bolta í fætur Jóns Leós
sem hljóp af sér vörnina og skoraði
með föstu skoti í markhornið, 4-0.
ísfirðingar voru ótrúlega lélegir og
virtust lítinn áhuga hafa á leiknum.
Haukur Magnússon var yfirburða-
maður í liðinu, Guðjón Reynisson og
Hreiðar markvörður voru öðrum ögn
skárri. Hjá Völsungum var leikurinn
fyrst og síðast sigur liðsheildarinnar,
allir léku vel og varla sanngjarnt að
taka einn framyfir annan. Vert er þó
að geta frammistöðu nýliðans Skarp-
héðins ívarssonar, hann lék frábær-
lega í miðverðinum og ekki hægt að
sjá að þar væri leikmaður í sínum
fyrsta leik. Sannarlega leikmaður
sem vert er að fylgjast með. Jón Leó
hefur ekki leikið betur með Völsungi,
miklu skynsamara að nýta hraða hans
til að trufla varnarmenn andstæðing-
anna heldur en að hafa hann í mið-
herjahlutverkinu. Góður dómari var
Haukur Torfason, hans einu mistök
voru að sleppa augljósri vítaspyrnu í
lokin þegar Jóni Leó var haldið í
teignum og línuvarðarfáninn dreginn
að húni.
Maður leiksins: Jón Leó Ríkharðs-
son, Völsungi. -ab/Húsavík.
Frakkland
í fyrsta
sinn á
toppnum
Paris St. Germain trónar nú á toppi
frönsku 1. deildarinnar í knattspyrnu
í fyrsta skipti í sögu félagsins. París-
arliðið vann Toulouse 3-1 á útivelli í
þriðju umferðinni á föstudagskvöldið
- Dominique Rocheteau, Robert
Jacques og Safet Susic skoruðu mörk
liðsins. Paris hefur 6 stig eins og
meistarar Bordeaux sem sigruðu Lens
2-1 á heimavelli. Þessi tvö efstu lið
mætast í París í kvöld.
Önnur úrslit í 3. umferð:
Marseilles-Nice 2-1, Strasbourg-
Nantes 1-2, Monaco-Toulon 0-2,
Metz-Sochaux 2-0, Bastia-Rennes 0-
2, Lille-Nancy 3-1, Laval-Brest 0-0 og
Le Havre-Auxerre 3-3. Allir þrír
leikir Laval, liðsins sem Karl Þórðar-
son lék með, hafa endað með marka-
lausum jafnteflum! -VS/Reuter
Grand Prix
„Verður slegið áður
en árið er liðið“
segir Steve Cram um heimsmet sitt í míluhlaupi. tÞrjú heimsmet í Osló.
„Heimsmet mitt í míluhlaupi
verður slegið áður en árið er lið-
ið. Það er ekki víst að ég verði
sjálfur þar á ferð, Sebastin Coe
gæti hæglega náð því aftur sjálf-
ur,“ sagði breski hlauparinn Ste-
ve Cram sem setti glæsilegt heim-
smet í míluhlaupinu á Bislet-
leikunum í Osló um helgina.
Cram hljóp á 3:46,31 mín, en
gamla metið sem Coe setti í ágúst
1981 var 3:47,33 mín.
Tvö önnur heimsmet féllu á
leikunum í Osló. Norska stúlkan
Ingrid Kristiansen setti glæsilegt
met í 10 þúsund metra hlaupi
kvenna er hún hljóp vegalengd-
ina á 30:59,42 mín. Hún var
heilum hring á undan næsta
keppanda og bætti heimsmetið
sem Olga Bondarenko frá So-
vétríkjunum átti, um rúmar 14
sekúndur. Þá setti Said Aouita,
Ólymípumeistarinn frá Mar-
okkó, heimsmet í 5000 m hlaupi
karla er hann hljóp vegalengdina
á 13:00,40 mínútum. Hann bætti
met Davids Moorcroft frá Bret-
landi um 1/100 úr sekúndu.
John Gregorek frá Bandaríkj-
unum vann 3000 m hlaup karla á
7:49,59 mfn, Ade Mafe frá Bret-
landi 200 m hlaup karla á 20,81
sek, Louise Ritter, Bandaríkjun-
um, hástökk kvenna með 1,96
metra, Derek Redmond, 19 ára
Breti, 400 m hlaúp karla á 44,82
mín, Mary Decker-Slaney,
Bandaríkjunum, mfluhlaup
kvenna á 4:19,18 mín, Stefano
Mei, Ítalíu, 1500 m hlaup karla á
3:36,39 mín, Claudette Groen-
endaal, Bandaríkjunum, 800 m
hlaup kvenna á 1:59,14 mín, Ro-
ald Bradstock, Bretlandi, spjót-
kast karla með 90,58 metra,
Mark McCoy, Kanada, 110 m
grindahlaup karla á 13,46 sek,
Fatima Whitbread, Bretlandi,
spjótkast kvenna með 68,42
metra og Colin Reitz, Bretlandi,
3000 m hindrunarhlaup karla á
8:14,95 mín.
Mótið var liður í Grand Prix
keðjunni og það næsta verður
haldið í London næsta föstudag
og laugardag.
-VS/Reuter
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN