Þjóðviljinn - 15.09.1985, Blaðsíða 7
Eintal í kaffískúr
númer tvö
Ef hœgt var að njóta þess
að vera bjartsýnn ó föstudögum
skipti ekki svo miklu möli
þó meinsemdir þjóðfélagsins
vœru afhjúpaðar
f þjóðleikhúsinu
því oftast nœr birtist
hinn einfaldi sannleikur
í öðrum uppfœrslum
í tifi vekjaraklukkunnar
í svipbrigðum strœtóbílstjórans
sjólfu timbrinu
eða jafnvel gulu vín/ettlingunum
með götóttu fingrunum.
Enda var það svo
að í okkar dœmi
voru hinar innri mótsetningar
nœr óvallt best geymdar
við barborðin
þar sem enginn afhjúpar neitt
nema sjólfan sig
(hvorki leikstjóri
né hvíslari)
í fullu samrœmi við það
greip heldur engin samninganefnd
inní mólin
þegar þú fékkst ó kjaftinn,
því síður að útlit þitt nyti
nokkurrar listrœnnar túlkunar
og var þó ekki of seint
að afhjúpa meinsemdirnar
að sjó gegnum veruleikann
þegar föstudagurinn var farinn
með hórgreiðsluna kaupið
og bjartsýnina
allt uppó
slysadeild borgarspítalans
Einar Már Guðmundsson rit-
höfundur hefur undanfarin ár
verið búseffur í Kaupmanna-
höfn og stundað þar skrifiir.
Hann hefur nú flutt sig og sína
yfir hafið til íslands og er nýkom-
inn til landsins. Eiff af hans fyrstu
verkum var að lesa Ijoð sín fyrir
gesti Norraenu Ijöðlistarhátíðar-
innar. Einar las úr Ijöðabökum
sínum þremur, en einnig áður
dbirf Ijdð. Eift þeirra heitir Eintal í
kaffiskúr númer tvö, og fer hér
á eftir með göðfúslegu leyfi
skáldsins.
Sunnudagur 15. september 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7