Þjóðviljinn - 15.09.1985, Blaðsíða 12
SUNNUDAGSPISTILL
Ónœmistœring
Veiran
finnst
jafnvel
í tárum
Viðtal við Robert Gallo,
einn helsta sérfrœðing
á sviði ónœmistœringar.
„Kynlífið verður
að halda áfram"
Þótt grænu aparnir séu vinaleg dýr, bíta þeir og klóra.
Einn mesti sigurinn í rann-
sóknum á eðli ónæmistæring-
ar (AIDS) var þegar mönnum
tókst að einangra veiruna
sem veldursjúkdómnum. Það
gekk þó ekki sögulaust fyrir
sig, þvíað tveiraðilarnáðu
þessum mikla árangri svo að
segja á sama tíma: bandaríski
vísindamaðurinn Robert •
Gallo, sem starfar við krabba-
meinsdeildina í Bethesda í
Maryland, og franskirvísinda-
menn, sem starfa við
Pasteur-stofnunina í París.
Svo virðist sem Frökkunum
hafi í upphafi tekist betur að
skilgreina veiruna og „ætt-
færa“ hana, en því miður hef-
ur ekki verið farið heiðarlega
með þessi mál, og hafaýmsir
aðilar í Bandaríkjunum beitt
ýmis konar bellibrögðum til að
vísa á bug rannsóknum
Frakkanna og eigna Robert
Gallo allan heiðurinn. Hefur
það gengið svo vel, að í fjöl-
miðlum í Norður-Evrópu er
varla minnst á vísindamenn
Pasteur-stofnunarinnar og
Robert Gallo talinn hafa ein-
angrað og skilgreint veiruna
fyrsturmanna.
En hvað sem segja má um þetta
heldur ömurlega mál, verður
ekki um það deilt að Robert
Gallo er einn af þeim sem eru í
fararbroddi í rannsóknum á
ónæmistæringu. Nýlega birtist
langt og ítarlegt viðtal við hann í
þýska virkuritinu „Der Spiegel"
og fara hér á eftir nokkrir kaflar
úr því. Robert Gallo staðfestir
fyrst að ónæmistæringarveiran,
Ónæmistæringarveira séð í smásjá.
12 SÍOA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. september 1985
sem hefur nafnnúmerið HTLV-3
í Bandaríkjunum, hafi nú fundist
í tárum manna, en telur að smit-
hættan verði naumast meiri fyrir
það. Hins vegar sé sýnt að
augnlæknar verði að hreinsa sín
tæki mun betur en áður hefur ver-
ið gert. Nokkru síðar spyrja blað-
amenn „Der Spiegel":
Lætur þú sjálfur gera blóð-
rannsókn til að leita að ónæmis-
tæringarveiru?
Á sex mánaða fresti eins og
tíðkast í rannsóknarstofu okkar.
í Þýskalandi eykst nú einnig
ótti við að veiran kunni að
breiðast út meðal vændiskvenna.
Þýskar portkonur eru nú aftur
farnar að krefjast þess að við-
skiptavinir þeirra brúki smokka.
Er ástæða fyrir þessum ótta, og
eru smokkar tryggir?
Ég er maður náttúruvísind-
anna og ekki kynlífsfræðingur.
En þú getur þó sagt okkur
hvort veiran er, eins og sumir
halda, smávaxnari en bilið í
frumeindabyggingu gúmmísins.
Smokkarnir eru öruggir,
gúmmí hleypir engri veiru í gegn.
En ég hef heyrt frá því sagt, að
meðal manna sem leggja stund á
samræði með smokkum, komi
það fyrir að smokkarnir bresti.
En fyrst þið spyrjið mig, þá er
þessi vörn að sjálfsögðu gagnleg.
Eins og þið vitið breiðist ónæm-
istæring í Afríku einkum út með-
al manna, sem hafa venjulegt
kynlíf. Við höfum nýlega lokið
við rannsóknir á ónæmistæringu í
Afríku í samvinnu við belgíska
vísindamenn. í Afríku tíðkast
ekkert sódómí, það er „tabú“. 98
af hundraði smitana verða meðal
manna af yfirstétt, miðstétt og
efri miðstétt, meðal manna sem
eru eins og þið og ég. í mörgum
Afríkuríkjum er eins auðvelt að
fá sér vændiskonur í hópum og að
fá sér bjór í Þýskalandi eða
espresso-kaffi á Ítalíu. Það er í
sambandi við hefðbundið fjöl-
kvæni ættarhöfðingja.
Lauslœti
og smitun
Áttu von á svipuðum tölum
fyrir vesturlönd, þótt kynlífsvenj-
ur séu hér öðru vísi?
Nei. Ég held að smitunin hér sé
meira í ætt við rússneska rúlettu.
Við mikið lauslæti eykst hættan
skelfilega. Þeir menn sem stunda
venjulegt kynlíf eru ekki mjög
lauslátir, og því er veiran enn
sáralítið útbreidd meðal þeirra. í
Bandaríkjunum og einnig í
Þýskalandi eru jafnvel þeir
hommar, sem hneigjast ekki
mjög til lauslætis þegar í mikilli
hættu, vegna þess að veiran er nú
þegar svo útbreidd meðal
homma.
Hvað snertir menn, sem
stunda venjulegt kynlíf og hafa
hemil á lauslætinu, er smitunar-
hættan af völdum þessarar veiru
ákaflega lítil. Hún vex þó stöðugt
þangað til eitthvað verður gert.
Ég er bjartsýnn og ber traust til
vísindanna. Ég trúi því enn að við
náum undirtökunum og málin
þróist ekki eins og í Afríku.
Má búast við því að túristar og
menn sem ferðast um í viðskipta-
erindum breiði veiruna út um
heimsins hálfur?
Að sjálfsögðu. Hvernig haldið
þið að hún hafi annars borist
hingað?
Uppruni
Veiran er nýkomin til Þýska-
lands, til Evrópu og til Banda-
ríkjanna, hún er nýkomin til
Vestur-Indía og til Asíu. En hún
erekki lengur ný af nálinni í ýms-
um hlutum Mið-Afríku.
Eru sannanir fyrir því?
Ef þið rannsakið bandarísk
blóðsýni, sem eru eldri en frá
1975, er ekki hægt að finna þar
nokkur merki ónæmistæringar-
veiru...
Eru enn til blóðsyni frá árinu
1975?
Vissulega og jafnvel enn eldri.
En til eru blóðsýni frá vissum
hlutum Mið-Afríku, sem eru frá
1970, sem sé fimm árum eldri, og
sýna smitun af ónæmistæringar-
veiru. í síðasta lagi árið 1970 voru
því í Mið-Afríku og hvergi annars
staðar í veröldinni menn sem
höfðu tekið þessaveiru. Ýmislegt
bendir svo til þess að árið 1960 og
árið 1965 hafi engir menn á þess-
um slóðum verið búnir að smit-
ast. Þetta bendir til þess að ein-
hvern tíma á seinni hluta sjöunda
áratugarins hafi veiran HTLV-3
borist frá grænu öpunum, sem
höfðu hana þegar í blóðinu, og til
manna.
Hvernig gat slíkt orðið?
Þessari spurningu velti ég fyrir
mér í tvö ár og fann ekkert svar.
En í morgun komu til á
rannsóknastofuna menn, sem
voru alveg nýkomnir frá Kins-
hasa, og þeir sögðu einum rómi:
„Góði, maður, í Kinshasa þarf
maður ekki annað en fara á
markaðinn". Þar eru grænu ap-
arnir alls staðar og hafðir til
matar. Menn fara að sjálfsögðu á
apaveiðar, og segja síðan frá því
hvernig dýrin bíta og klóra.
Þannig sýktust menn?
Af biti og klóri að sjálfsögðu.
En líka þegar menn éta græna
apa hráa og hafa eitthvert sár í
munninum. Sannfæring mín er sú
að ef menn ætla að éta græna apa,
bíta þeir á móti.
Nú eru liðin fimmtán ár, og
spurningin er sú hvort ónæmis-
tæringarveiran berist út fyrir þá
hópa scm hingað til hafa verið í
mestri hættu í Bandaríkjunum og
Evrópu.
Hún hefur þegar gert það, en
ég held að ekki sé þó nein ástæða
til ótta. Það sem um er að ræða er