Þjóðviljinn - 17.09.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 17.09.1985, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR 1. deild Besta í 12 ár! Halldór Askelsson skoraðifimmfyrir Þórgegn FH. Þór í þriðja sœti, besti árangurfélagsins. Missti naumlega af UEFA-sœtinu. Það eru liðin tólf ár síðan einn og sami maðurinn lék þann leik sem Halldór Áskelsson lék í viðureign Þórs og FH á Akureyrarvellinum á laugar- daginn. Þá skoraði Teitur Þórðarson reyndar sex mörk fyrir ÍA gegn Breiðabliki en á laugardaginn gerði Halldór 5 marka Þórs sem burstaði FH 6-1. Sigurinn tryggði Þór þriðja sætið í fyrstu deild, besti árangur sem félagið hefur náð á þeim 11 árum sem það hefur leikið í deildakeppninni. En í leikslok sló samt þögn á fagn- andi akureyska leikmenn og áhorf- endur - þær fréttur bárust úr Reykja- vík að IA hefði sigrað Fram og þar með varð draumur Þórs um sæti í UEFA-bikarnum í fyrsta sinn að engu. Sjö mörk og þau komu einsog hér segir. 1- 0. FFI-ingar höfðu ekki snert knöttinn frá því Þórsarar byrjuðu á miðju þar til hann lá í markinu 50 sekúndum síðar. Óskar Gunnarsson rennir á Halldór sem snýr baki í markið á vítateigslínu. Hann snýr sér og stingur sér glæsilega á milli þriggja varnarmanna og sendir boltann beint í samskeytin fjær. 2- 0. Halldór fær boltann á víta- teigshorni, leikur meðfram víta- teignum og fyrir miðju marki skýtur hann yfir Úlfar Daníelsson mark- vörð. Þarna naut hann góðs af rokinu sem var í fangið. 3- 0. Kristján Kristjánsson sendir inní vítateiginn á Halldór sem enn snýr baki í markið. Hann snýr sér, leikur á varnarmann og rúllar boltan- um örugglega í markhornið. Þrenna á 25 mínútum! 4-0. Hlynur Birgisson er með bolt- ann við hliðarlínu og rennir á Krist- ján. JHann sendir fyrir markið á Nóa Björnsson sem kemur á siglingu, tekur boltann með sér og rennir hon- um nett í hornið. Ekkert auðveldara! 4-1. Kristján Gíslason fær boltann á miðju vallarins, rennir sér framhjá varnarmönnum Þórs sem standa Þór-FH 6-1 (4-0) **** Mörk Þórs: Halldór Áskelsson 50. sek, 14. mín, 25., 78. og 86. mín. Nói Björnsson 41. mín. Mark FH: Kristján Gíslason 54. mín. Stjörnur Þórs: Halldór Askelsson *** Nói Björnsson * Árnl Stefánsson * Jónas Róbertsson * Krlstján Kristjánsson • Siguróli Kristjánsson • Júlíus Tryggvason • Stjörnur FH: Úlfar Daníelsson *• Jón E. Ragnarsson * Dýrl Guðmundsson * Dómari: Þorvarður Björnsson *** Áhorfendur 650 gaddfreðnir og horfa á, og eina mark FH er staðreynd. 5- 1. Þórsarar taka við sér eftir dauðan kafla. Kristján er óvaldaður á vinstra kanti en í stað þess að leika upp sendir hann strax inn miðjuna á Halldór. Hann kemst í gegn og skýtur, Úlfar ver en Halldór nær bolt- anum og potar inn sínu fjórða marki. 6- 1. Það er fullkomnað - fimmta mark Halldórs! Kristján leikur utanaf kanti og inná markteig og lyftir þar boltanum fyrir markið. Ölfar kýlir hann frá, en Halldór er á mark- teignum og skallar til baka í netið! Þórsarar voru með mikla yfirburði gegn rokinu og rigningunni í fyrri hálfleik og þá var Halldór yfirburða- maður á vellinum. Úlfar varði vel frá honum tvívegis og einu sinni frá Jón- asi Róbertssyni, og Halldór átti að auki stangarskot á 37. mínútu. Á 26. mínútu reyndi á Baldvin Guðmunds- son markvörð Þórs í eina skiptið í leiknum. Hörður Magnússon komst þá einn í gegnum vörn Þórs en Bald- vin sá við honum. Leikurinn jafnaðist í seinni hálf- leik, Úlfar aftraði sjálfsmarki á 53. mínútu, en síðan gerðist fátt við mörkin nema þegar skorað var. FH átti meira í leiknum frameftir hálf- leiknum án þess að skapa sér teljandi færi. í lokin spratt svo Halldór upp á nýjan leik og fimm mörkin hans og þessi stórsigur hans bundu viðeigandi endi á besta keppnistímabil Þórsara í 1. deild til þessa. -K&H/Akureyri 1. deild Þijú á 7 mínutum ÍA fékk silfrið og UEFA-sætið. Ómar markakóngur Þrjú Skagamörk á sjö mínútna kafla tryggðu fráfarandi íslands- meisturunum sæti í UEFA-bikarnum næsta haust. Fram skoraði á undan og aftur skömmu fyrir leiksiok en það var ekki nóg. Heldur snautlegur endir hjá Safamýrarstrákunum að lenda aðeins í fjórða sæti 1. deildar eftir að hafa náð átta stiga forystu um miðbik mótsins. Það var ekkert gefið eftir á Laugar- dalsvellinum á laugardaginn, silfrið í húfí hjá báðum og ÍA dugði ekkert nema sigur til að komast í Evrópu- keppni. Enda var leikurinn viðburð- aríkur strax frá byrjun. ÍA sótti undan rokinu í fyrri hálfleik og sótti nær látlaust fyrstu 20 mínúturnar. Friðrik Friðriksson varði þá oft stór- vel, jafnvel frá eigin varnarmönnum. En gegn gangi leiksins náðu Fram- arar forystu. Þeir fengur aukaspyrnu rétt utan vítateigs ÍA og úr henni skoraði Pétur Ormslev stórglæsilegt mark í blávinkilinn nær, 1-0. ÍA hélt áfram að sækja og óörugg Framvörnin gaf eftir svo um munaði. Hörður Jóhannesson og Karl Þórðar- son tættu hana í sig hvað eftir annað og á sjö mínútna kaflanum áður- nefnda stóð ekki steinn yfir steini. Jón Áskelsson skoraði sitt fyrsta mark í ár með viðstöðulausu hörku- skoti af 10 metra færi eftir hornspyrnu Fram-ÍA 2-3 (1-3) ★ ★★ Mörk Fram: Pétur Ormslev 21. min. Ómar Torfason 84. mín. Mörk lA: Jón Áskelsson 33. mín. Júlíús Ingólfsson 36 mín. Karl Þórðarson 40. mín. Stjörnur Fram: Friðrik Friöriksson ** Guðmundur Torfason * Ómar Torfason * Pótur Ormslev * Steinn Guöjónsson * Stjörnur ÍA: Karl Þórðarson •• Birklr Kristinsson * Guðjón Þórðarson * HörðurJóhannesson * Ólafur Þórðarson * Dómari Óli Ólsen *•* Áhorfendur 771 L deild Karls og fyrirgjöf Olafs Þórðarsonar, 1-1. Guðmundur Torfason skaut í hliðarnet Skagamarksins eftir fyrir- gjöf Ómars á næstu mínútu en rétt á eftir náði ÍA forystu. Árni Sveinsson sendi fyrir frá vinstri og Júlíus Ingólfs- son skoraði af markteig, 1-2. Og fjór- um mínútum síðar átti Hörður glæsis- endingu bakvið varnarmenn Fram, Karl Þórðarson slapp inní vítateiginn, sneiddi hjá úthlaupandi Friðriki og skoraði, 1-3. Síðari hálfleikur var nær látlaust pressa að marki ÍA. Fram-sóknin var fjörug og hættuleg fyrsta korterið, Birkir Kristinsson varði tvisvar frá Ómari, Guðmundur Torfa skaut tvisvar framhjá úr góðum færum og Skagamenn björguðu á línu frá Guðmundi Steinssyni. En eftir því sem á leið urðu sóknir Fram flausturs- kenndari og hættuminni. Birkir gerði þó virkilega vel að verja með fótun- um í horn lúmskt skot Guðmundar Torfa af markteig. Ómar náði loks að skora þegar sex mínútur voru til leiks- loka eftir fyrirgjöf Viðars Þorkels- sonar, 2-2. Það mark breytti þó engu fyrir Fram en færði Ómari altjent markakóngstitilinn. -VS Dæmigert hjá Vfldngi! ÍBK með tvö í lokin. Sigurmark með síðustu spyrnu íslandsmótsins Alveg var það dæmigert fyrir Vík- inga að enda þetta íslandsmót á því að fá á sig tvö mörk í lokin og tapa 3-2. Þeir stefndu í sinn þriðja sigur er þeir skoruðu tvö mörk á fjórum mínútum og náðu 2-1 forystu skömmu fyrir leikslok en Keflvíkingar hrósuðu sigri og komust þar með uppfyrir KR-inga og í fímmta sætið. Leikurinn var nokkuð opinn og fjörugur, dauðir kaflar á milli, en yfir- leitt nóg að gerast., Mörkin létu þó á sér standa, mikið af skotum beggja hittu ekki rammann. Ögmundur Kristinsson í Víkingsmarkinu varði þrívegis mjög vel og Þorsteinn Bjarnason markvörður ÍBK mátti líka grípa til sparihanskanna, sérstak- lega þegar hann varði óheyrilega bombu Jóhannesar Bárðarsonar í horn. Loks 20 mínútum fyrir leikslok kom mark. Ragnar Margeirsson var búinn að reyna mikið, til að reyna að ná markakóngstitlinum og til að hafa áhrif á erlendu útsendarana, en þarna fékk hann sendingu frá Frey Sverris- syni, reif sig í gegn og skoraði af miklu harðfylgi, 0-1. Nú hófst stórskotahríð á báða bóga, Ragnar 'gerðist enn hungraðri í mörk, en það var Ámundi Sigmundsson sem jafnaði eftir auka- spyrnu Andra Marteinssonar á 79. mínútu, 1-1. Og fjórum mínútum síð- ar voru Víkingar komnir yfir, Einar Einarsson gaf á Andra Marteinsson sem skoraði af markteig. Staðan 2-1 og Víkingssigur blasti við. En nú var Ragnar kominn í gang. Fimm mínútur eftir - hann reif sig aftur í gegnum Víkingsvörnina, 2-2. Nú sótti ÍBK án afláts og á allra síð- ustu stundu lyfti Ragnar boltanum skemmtilega yfir varnarmenn Vík- ings, Björgvin Björgvinsson kom í grenjandi siglingu, tólk boltann með sér og hamraði hann í netið framhjá hringluðum Ögmundi, 2-3. Þetta var síðasta spýrna íslandsmótsins og endaði 23ja marka geysifjöruga lok- aumferð á viðeigandi hátt. -VS SSmm. Sigurmark Vfblsmanna gegn Þrótti - markið sem sendi Þrótt niður f 2. deild. Einar Ásbjörn Ólafsson, sem sést ekki á myndinni, tók aukaspyrnu vinstra megin við markið og boltinn fór I boga framhjá vamarveggnum og Guðmundi Erlingssyni markverði sem misreiknaði stefnu hans. Mynd: E.ÓI. H > Æ UP ' t K Jp3F 'iiJÍÍÉ m %*** I Ife ’ ÆmW mm * f | M m igS 1. deild Gleði í Garðinum Víðismenn áfram í 1. deild. SenduÞróttniður. Ólafur bjargaði á línu á undraverðan hátt í lokin. Það var mikið barist á Garðsvelli sl. laug- ardag, þar sem gert skyldi út um það hvort 1. deildar liðanna, Víðir eða Þróttur, félli niður í 2. deild. Þrótturum nægði jafntefli í leiknum til að halda l.-deildar sæti sínu, en Víðis- mönnum dugði ekkert annað en sigur. Þrátt fyrir norðangarrann var leikurinn skemmti- legur og spennandi á að horfa. Marktækifær- in voru að vísu ekki mörg, en það var aðallega að þakka góðum varnarleik beggja liða. Þaö var ljóst þegar í upphafi leiksins að hvorugt liðanna ætlaði sér að gefa sitt eftir, þó taugaspennan væri mikil. Ifyrri hálfleik léku Víðismenn undan vindi. Fátt markvert gerðist framan af í leiknum, sóknirnar voru hættulausar og fremur fumkenndar. Á 12. mín. átti Sverrir Brynjólfsson, Þrótti, þrum- uskot af löngu færi rétt yfir mark Víðis. Þremur mínútum síðar var Loftur Ólafsson felldur innan vítateigs Víðis og Eyjólfur dóm- ari dæmdi vítaspyrnu. Það var Daði Harðar- son sem tók spyrnuna, en Gísli Heiðarsson markvörður Víðis varði, en missti boltann frá sér og fyrir fætur Péturs Arnþórssonar sem sendi hann beint í netið. Staðan orðin 0-1 fyrir Þrótt, og nú máttu Víðispiltarnir fara að sækja í sig veðrið. Það gerðu þeir líka, og á 27. mín. fengu þeir aukaspyrnu úti við hliðar- línu á vallarhelmingi Þróttar. Það var Ólafur Róbertsson sem tók hana og sendi boltann inn á vítateig, þaðan sem Grétar Einarsson skallaði hann inn í markteig Þróttar og þar var fyrir Guðjón Guðmundsson, sem sendi boltann í markið með glæsilegri „hjólhest- aspyrnu”. Staðn orðin 1-1. Aðeins 6 mínút- um síðar tók Víðir forystuna þegar Grétar Einarsson lék upp hægri kant, gaf fyrir, á Einar Ásbjörn sem skoraði með hörkuskoti af stuttu færi. Það sem eftir var fyrri hálfleiks höfðu Víðismenn yfirhöndina en þó tókst þeim ekki að skapa sér nein færi. Þróttarar byrjuðu síðari hálfleik með mikl- um krafti og strax á 47. mín. jafnaði Sverrir Brynjólfsson fyrir Þrótt úr frekar óvenjulegu færi. Sverrir var staddur við hliðarlínu vítat- eigs og gaf boltann fyrir, og má segja að hann hafi síðan fokið í markið framhjá varaar- mönnum og markverði Víðis. Eftir þetta var jafnt sótt á báða bóga, en sem fyrr var ekki mikið um góð marktækifæri. Loks dró þó til tíðinda á 65. mínútu þegar Einari Ásbirni var brugðið rétt fyrir utan vítateig Þróttar og réttilega dæmd aukaspyrna. Þrír Víðismenn bjuggu sig undir að taka spyrnuna, tveir þeirra hlupu yfir boltann og sá þriðji Einar Víðir-Þróttur 3-2 (2-1) ★ ★★★ Mörk Víðis: Guðjón Guðmundsson 27. mín. Einar Á. Ólafsson 33. og 65. mín. Mörk Þróttar: Pétur Arnþórsson 12. mín. Sverrir Brynjólfsson 47. mín. Stjörnur Viðis: Einar Á. Ólafsson *** Gisli Eyjólfsson ** Ólafur Róbertsson ** Guðjón Guðmundsson * Klemens Sæmundsson * Stjörnur Þröttar: Sverrir Brynjóifsson ** Loftur Ólafsson • Pétur Arnþórsson * Dómari Eyjólfur Ólafsson *** Áhorfendur 700 Asbjörn spyrnti honum hnitmiðað framhjá varnarvegg Þróttara og í markið. Mjög vel gert hjá Einari. Nú sáu Þróttarar sitt óvænna og tóku tvo varnarmenn útaf og settu sóknar- menn inná í þeirra stað. Sóknir þeirra fóru nú heldur að þyngjast og Víðismenn hopuðu í vörn. Hinir síðarnefndu áttu þó eina skyndi- sókn þegar Klemens Sæmundsson hljóp upp vinstri kant og gaf fyrir á Grétar Einarsson sem var og lengi að þvælast með boltann og endaði með því að markvörður Þróttar náði honum af tám hans. Nokkru fyrir leikslok má segja að hjörtu aðdáenda Víðis hafi sleppt úr slagi þegar einn Þróttara skallaði að marki Víðis, en á einhvern yfirnáttúrulegan hátt tókst Ólafi Róbertssyni að bjarga á línu og má segja að þar með hafi Ólafur sent Þrótt niður í 2. deild, því það sem eftir var leiks voru Þróttarar hálf-þróttlausir. „Reynslunni ríkari” Guðjón Guðmundsson kvaðst mjög ánægður með leikinn og sagði Víðismenn hafa tvíeflst við mótlætið, vítaspyrnuna og klaufamarkið. Einnig áleit hann það hafa verið hvetjandi að þurfa að vinna leikinn. Að lokum sagðist hann hlakka til að spila aftur í fyrstu deild að ári, nú væru þeir reynslunni ríkari. Sigurður Ingvarsson aðstoðarþjálfari sagði að þrátt fyrir allar hrakspár hefði þeim tekist að haida 1. deildarsætinu. Menn höfðu haft orð á því að Víðir ætti ekkert erindi í 1. deild, „En ég held að Víðir hafi afsannað þetta, þó illa gengi í einum leik, reyndum við að hugsa sem minnst um það, en því meira um að gera betur næst”, sagði Sigurður að lokum. -ÞBM/Suðurnesj um Víkingur-ÍBK 2-3 (0-0) **** Mörk Víkings: Ámundi Sigmundsson 79. mln. Andri Marteinsson 83. mín. Mörk IBK: Ragnar Margeirsson 70. og 85. mín. Björgvin Björgvinsson 90. mín. Stjörnur Vfkings: Ögmundur Kristinsson ** Ámundi Sigmundsson * Andri Martelnsson * Einar Einarsson * Jóhann Þorvaröarson * Stjörnur ÍBK: Gunnar Oddsson *• Björgvin Björgvinsson • Ragnar Margeirsson * Þorsteinn Bjarnason * Dómari Þóroddur Hjaltalin * Áhorfendur 245 Lokastadan f 1. deild fslandsmótslns f knattspyrnu: Valur 11 5 2 28-12 38 lA . 18 11 3 4 37-20 36 ÞórA . 18 11 2 5 33-21 35 Fram . 18 10 4 4 37-26 34 IBK . 18 9 2 7 31-23 29 KR . 18 8 5 5 32-26 29 FH . 18 5 2 11 23-41 17 Vfðir .. 18 4 4 10 21-38 16 Þróttur „18 3 4 11 18-32 13 2 1 15 17-38 7 Markahæstlr: ÓmarTorfason, Fram 13 Guðmundur Þorbjörnsson, Val.. 12 Ragnar Margeirsson, IBK 12 Hörður Jóhannesson, [A 11 GuðmundurSteinsson, Fram.... 10 HalldórÁskelsson, Þór 9 Lokastaðan I 2. deild fslandsmótsins f knattspyrnu: ÍBV.................18 11 6 1 45-13 39 Breiðablik..........18 11 4 3 31-15 37 KA................. 18 11 3 4 36-17 36 KS................. 18 7 4 7 25-25 25 Skallagrímur....... 18 7 4 7 27-39 25 Völsungur...........18 7 3 8 28-25 24 UMFN............... 18 5 4 9 14-29 19 ÍBl................ 18 3 8 7 16-27 17 Fyiklr............ 18 4 3 11 19-25 15 Lelftur.............18 3 3 12 18-44 12 Markahæstir: TryggviGunnarsson.KA.............................16 Tómas Pálsson, (BV...............................14 JópÞórir Jónsson, Breiðabliki...................11 Hlynur Stefánsson, (BV............................9 Ómar Jóhannsson, IBV..............................9 10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 17. september 1985 ÍÞRÓTTIR V. Þýskaland UEFA-bikarinn Atli byrjar vel Páll rekinnfrá Dankersen! Essen skellti meisturunum úti. Lemgo vann Kiel. Kristján skoraði átta en Hameln tapaði Frá Jóni H. Garðarssyni fréttamanni Þjóðviljans í V.-Þýskalandi: Atli Hilmarsson byrjar vel með sínu nýja félagi, Gunzburg, sem er nýliði í Bundesligunni í handknattleik. Gunz- burg cr spáð fallbaráttu í vetur, en liðið hóf tímabilið vei með 23:18 sigri á Reinedorfe Fusche frá Bcrlín á laugardaginn. Staðan er 13:7 í hálf- leik og Atli átti mjög góðan leik og gerði 5 marka Gunzburg. Essen vann óvæntan útisigur gegn meisturum Gummersbach.m 18:15, en meistararnir leiddu 8:7 í hléi. Al- freð Gísiason sneri sig illa fyrir leikinn en lék þó fyrri hálfleikinn og skoraði eitt mark. Hann lék síðan í vöminni til að byrja með eftir hlé, þar til hann varð að hætta alveg. Fraatz átti stjörnuleik með Essen og skoraði 10 mörk. Lemgo kom ekki síður á óvart með því að sigra Kiel, lið Jóhanns Inga Gunnarssonar, 24:23. Sigurður S v«insson gerði 5 marka Lemgo, 3 úr vítaköstum, en hann var tekinn úr umferð allan leikinn. Lemgo var 10:13 undir í hálfleik og komst fyrst yfir 21:20 rétt fyrir leikslok. Páll Ólafsson var rekinn frá Dank- ersen eftir að stjórn félagsins hafði neitað að standa við gerða samninga og óvíst er hvað hann gerir nú. Dank- ersen tapaði 29:21 fyrir Göppingen. Grosswallstadt vann Hofweier 27:10, Dortmund og Dússeldorf skildu jöfn 10:10, en leik Hándewitt og Schwa- bingen var frestað. f 2. deild skoraði Kristján Arason 8 mörk, 4 víti, fyrir sitt nýja félag sem tapaði 24:23 fyrir Longerich á úti- velli. Longerich skoraði sigurmarkið á lokasekúndunum. Bjarni Guð- mundsson og félagar í Wanne-Eickel sigruðu Flenzburg örugglega, 26:20. - VS Valur og Nantes í dag Byrjar kl. 18 I dag hefja íslensku félögin þátttöku í Evrópumótunum í knattspyrnu á þessu hausti. Vals- menn taka á móti Nantes frá Fra- kklandi á Laugardalsvellinum og hefst þessi fyrri viðureign liðanna í 1. umferð UEFA-bikarsins kl. 18. Nýkrýndir Islandsmeistarar Vals ættu að geta staðið uppí hár- inu á hinu geysisterka og létt- leikandi franska liði sem skartar m.a. þremur frönskum landsliðs- mönnum og einum argentín- skum. Vahid Halihodzic, júgó- slavneski markakóngurinn, er í leikbanni og það ætti að auka möguleika Valsmanna á hagstæð- um úrslitum. - VS V. Þýskaland Góður leikur Lárusar Jafnaði með skalla. Bestur ásamt Herget. Stuttgart slakt í Hamborg Frá Jóni H. Garðarssyni fréttamanni Þjóðviljans í V.-Þýskalandi: Bayer Uerdingen mátti sætta sig við jafntefli, 3:3, gegn nýliðum Hannover á heimavelli í Bundesligunni í knatt- spyrnu á laugardaginn. Uerdingen sótti nær allan leikinn og hefði getað unnið stórt en fyrrum félagi þeirra, Englendingurinn Wayne Thomas, gerði þeim lífíð leitt og skoraði tvö mörk, fyrsta og síðasta mark leiksins. Lárus Guðmundsson jafnaði, 1:1, með failegum skalla á 34. mín. eftir sendingu frá Friedrich Funkel, sem brenndi af vítaspyrnu rétt á eftir. Bommer kom Uerdingen í 3:2 eftir' miðjan seinni hálfleik með tveimur mörkum en Thomas jafnaði skömmu síðar. Lárus átti mjög góðan leik og var bestur hjá Úerdingen ásamt Herget. Lárus fékk 2 í einkunn hjá Welt am Sonntag en 3 hjá Bild og Kicker. Hann og Atli Éðvaldsson léku báðir allan leikinn með Uerding- en en Atli fékk 5 í einkunn hjá Kicker og Bild, 4 hjá Welt. Úrslit í Bundesligunni: Frankfurt-Kaiserslautern.........1:1 Dusseldorf-WerderBremen..........1:4 Saarbrúcken-Schalke..............3:2 Uerdingen-Hannover...............3:3 Bochum-Dortmund..................6:1 Köln-Bayern Múnchen..............1:1 HamburgSV-Stuttgart..............2:0 Núrnberg-Mönchengladbach.........2:4 Mannheim-Leverkusen..............1:0 Hinn orðheppni Otto Barek, þjálf- ari Stuttgart, gerði mikla lukku á blaðamannafundi eftir lélegan leik liðsins í Hamborg. „Það er með sókn- ina hjá mér einsog gamlan bfl, annað- hvort kaupir maður nýjan eða gerir við þann gamla!” sagði hann, rólegur og yfirvegaður að vanda. Hamburger Landsliðsval Manjir fjarri góðu gamni Tony Knapp landsliðseinvaldur ís- lands í knattspyrnu tilkynnti 16 leik- menn sem skipa landsliðshópinn fyrir HM leikinn gegn Spáni í Sevilla í næstu viku. Athygli vekur að margir þeirra leikmanna sem best stóðu sig á nýloknu Islandsmóti eru ekki í hópn- um. í honum er hinsvegar einn nýliði, Ólafur Þórðarson frá Akranesi, sem reyndar hefur leikið 2 landsleiki gegn Færeyingum. Hann lék mjög vel með 21 árs landsliðinu gegn Skotum og Spánverjum í vor, sem og Guðni Bergsson úr Val sem að sjálfsögðu er í 16 manna hópnum - væntanlega líka í byrjunarliðinu. Markverðir eru Bjarni Sigurðsson, Brann, og Eggert Guðmundsson, Halmstad. Aðrir leikmenn: Arnór Guðjohn- sen, Anderlecht, Ásgeir Sigurvins- son, Stuttgart, Atli Eðvaldsson, Uer- dingen, Guðmundur Þorbjörnsson, Val, Guðni Bergsson, Val, Gunnar Gíslason, KR, Janus Guðlaugsson, FH, Ólafur Þórðarson, ÍA, Pétur Pétursson, Hercules, Sigurður Grét- arsson, Luzern, Sigurður Jónsson, Sheff.Wed., Sævar Jónsson, Val, Teitur Þórðarson, Öster, Þorgrímur Þráinsson, Val. Þarna eru fjarri góðu gamni menn á borð við Ragnar Margeirsson, Þor- stein Bjarnason, Guðmund Torfa- son, Ómar Torfason og Guðmund Steinsson - enda hefur Knapp sama og ekkert séð til þeirra í sumar. Landsliðið undir 21 árs leikur kvöldið áður í Huelva í Evrópu- keppninni. Guðni Kjartansson hefur valið eftirtalda 16 leikmenn: Markverðir: Birkir Kristinsson, ÍA, og Friðrik Friðriksson, Fram. Aðrir leikmenn: Björn Rafnsson, KR, Gunnar Oddsson, ÍBK, Halldór Áskelsson, Þór, Hlynur Stefánsson, ÍBV, Ingvar Guðmundsson, Val, Jón Erling Ragnarsson, FH, Kristinn Jónsson, Fram, Kristján Jónsson, Þrótti, Loftur Ólafsson, Þrótti, Mark Duffield, KS, ÓmarTorfason, Fram, Pétur Arnþórsson, Þrótti, Siguróli Kristjánsson, Þór, og Þorsteinn Þor- steinsson, Fram. - VS Víkingur í bann? hafði yfirburði án þess að sýna stór- leik og nýja stjarnan Grundel gerði bæði mörkin, á 18. og 74. mínútu. Roeleder missti boltann í markið í fyrra skiptið eftir meinlaust skot utanaf kanti. Karl-Heinz Förster er enn meiddur, Buchwald þarf því að leika í vörn Stuttgart og við það vant- ar kraft á miðjuna. Ásgeir Sigurvins- son og Allgöwer voru slakir á miðj- unni og Ásgeir fékk 4 í einkunn í öllum blöðum. Bayern gctur sjálfum sér um kennt að sigra ekki í Köln eftir yfirburði í fyrri hálfleik og forystumark frá Áugenthaler. Strákalið Kölnar komst inní leikinn eftir hlé og vendipunktur- inn var þegar hinn 19 ára gamli Hás- sler kom inná á 73. mínútu. Hann lagði upp jöfnunarmark fyfir Dickel á 78. mínútu. Bremen heldur sínu striki, vann 4:1 í Dússeldorf eftir að hafa lent 1:0 undir. Gladbach vann góðan útisigur frammi fyrir 50 þúsund áhorfendum í Núrnberg og lögreglumaðurinn Kunz skoraði þrennu fyrir Bochum sem burstaði Dortmund 6:1. Tíu efstu lið Bundesligunnar eru þessi: Bremen............7 5 2 0 21:8 12 Gladbach..........7 4 2 1 15:9 10 Mannheim...........7 3 3 1 9:6 9 Bayern.............6 3 2 1 9:4 8 Bochum...........7 4 0 3 16 13 8 Kaiserslautern.....7 3 2 2 9:9 8 Uerdingen..........7 3 2 2 11:13 8 Hamburger..........6 3 1 2 11:7 7 Núrnberg...........7 3 1 3 14:12 7 Stuttgart..........7 3 1 3 11:10 7 Spánn Frábær leikur Péturs Frá Sigurdóri Sigurdórssyni frétta- manni Þjóðviljans á Spáni: Pétur Pétursson átti sannkallaðan stjörnuleik með Hercules gegn Athlet- ico Bilbao í 1. deildinni í knattspyrnu á laugardaginn. Pétur lagði upp öll marktækifæri liðsins, sem voru ein 7- 8 n\jög góð, og hinn frægi Mario Kem- pes sóaði þeim flestum með því að skjóta í stangir, slá eða framhjá! Hercules mátti sætta sig við 0:1 tap og voru það í hæta máta ósanngjörn úrslit. Pétri var mikið hampað fyrir leik sinn, sérstaklega í sjónvarpinu þar sem mikið var gert úr því að hann myndi leika með íslandi gegn Spáni í næstu viku. Spánverjar eru mjög smeykir við þann leik, þeir þurfa a,ð sigra til að komast í úrslit HM, en eru nú sennilega með sitt lakasta landslið í ein 10 ár. Þeir vita að ísland verður með geysisterkt lið og eru rnjög hræddir um að komast ekki í úrslita- keppnina í Mexíkó af þeim sökum. Frakkland Nantes tapaði Nantes, mótherjar Vals í UEFA- bikarnum í kvöld, töpuðu 2:1 fyrir Bordeaux í frönsku 1. deildinni í knattspvrnu á föstudagskvöldið. Landsliðsmennirnir William Ayache og Jose Toure voru báðir í leikbanni og léku ekki með Nantes en hinsvegar voru Jean Tigana og Leonard Specht á ný í liði Bordeaux eftir langvinn meiðsli. Pierre Morice skoraði glæ- simark úr aukaspvrnu fyrir Nantes en Marc Pascal og Bernard Lacombe tryggðu Bordeaux sigur eftir sending- ar frá Alain Giresse, sem þarna lék sinn 501. leik fyrir Bordeaux. Paris St. Germain vann enn, nú Le Havre 2:1 á útivelli. Nancy vann Lens 2:1. paris St.G. h efur 20 stig, Borde- aux 15, Nantes 15, Lens 14 og Nancy 14. - VS/Reauter 3. deild Selfoss meistari Sigraði Einherja samanlagt 3:2 Mœtti ekki í lyfjapróf í Noregi Víkingur Traustason kraftlyftinga- maður frá Akureyri hcfur verið svipt- ur guliverðlaunum þeim sem hann vann á Norðurlandameistaramótinu í kraftlyftingum sem fram fór í Noregi um helgina. Víkingur mætti ekki í lyfjapróf sem hann var boðaður f. Af þessum sökum á hann yfir höfði sér 18 mánaða bann frá keppni á alþjóðlegum vcttvangi, en þar sem Kraftlyftingasambandið íslenska er ekki aðili að ISÍ mun það ekki hafa áhrif á þátttöku hans í kraft- lyftingamótum hérlendis. _ vs Selfyssingar tryggðu sér meistarat- itil 3. deildar á laugardaginn er þeir sigruðu Einherja frá Vopnafírði 2:0 f sfðari úrslitaleik liðanna á Selfossi. Bæði lið ieika f 2. deild að ári. Vopnfirðingar höfðu unnið fyrri leikinn 2:1 og þeir mættu greinilega til leiks með því hugarfari að halda for- skotinu. Það vara þeim dýrkeypt því þeir náðu sér aldrei á strik og fengu varla marktækifæri í leiknum. Selfys- singar sóttu mjög allan tímann og Páll Guðmundsson skoraði beint úr auka- spyrnu í fyrri hálfleiknum. í þeim síðari tryggði gamli markakóngurinn Sumarliði Guðbjartsson svo heima- mönnum titilinn er hann skoraði, 2:0. Selfyssingar eru vel að þessu komn- ir. Þeir töpuðu aðeins einum leik í 3. deildinni í sumar, fyrri leiknum gegn Einherja, og höfðu tryggt sér sæti í 2. deild löngu áður en keppni í SV- riðlinum lauk. - VS Þrlðjudagur 17. september 1985 |pJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.