Þjóðviljinn - 17.09.1985, Blaðsíða 4
ÍÞRÓTTIR
2. deild
Meistarar
með glæsibrag
Eyjamenn kvöddu 2. deild meðfimm
mörkum
ÍBV-UMFN 5-0 (3-0) ★ ★★
Það var fagnaðarhátíð í Eyjum .á
laugardaginn. ÍBV er komið í 1.
deildina á ný eftir tvö löng ár í 2. deild
og bjartir tímar eru framundan. Það
var svo sem nær 10ö prósent öruggt að
ÍBV kæmist upp fyrir leikinn við
Njarðvíkinga en sigurinn tryggði lið-
inu meistaratitil 2. deildarinnar.
Njarðvíkingar veittu frekar litla
mótspyrnu en þó gerðist lítið þar til á
18. mínútu að Jóhann Georgsson,
jafnbesti maður ÍBV í sumar, þrum-
aði rétt framhjá samskeytum gest-
anna. Tveimur mínútum síðar náði
svo ÍBV forystunrii. Sigbjörn Óskars-
son fékk stungu innfyrir vörnina, lék
á markvörðinn en lét síðan Tómas
Pálsson um að ýta boltanum yfir
marklínuna, 1-0. Þremur mínútum
síðar fékk ÍBV aukaspyrnu við víta-
teig UMFN og úr henni skoraði Jó-
hann beint með glæsilegu aukaskoti,
2-0. Á 26. mínútu sýndi Örn Bjarna-
son í marki UMFN stórkostlega
markvörslu er boltinn stefndi í blá-
hornið eftir viðstöðulaust skot Sveins
Sveinssonar. Jóhann gerði síðan sitt
annað mark í leiknum á 37. mínútu
með lúmsku skoti utan vítateigs, 3-0.
Yfirburðir ÍBV héldu áfram eftir
hlé og á 53. mín. skallaði Elías Frið-
riksson rétt framhjá stöng. Á 55. mín-
útu tók Ómar Jóhannsson auka-
spyrnu skammt frá hliðarlínu, eina 25
metra frá marki. Flann gerði sér lítið
fyrir og skoraði beint úr henni eins og
honum einum er lagið, 4-0. Fimm
mínútum síðar var Tómas felldur í
vítateig UMFN. Vítaspyrna - og úr
henni skoraði hann sjálfur, 5-0. Eftir
þetta dofnaði yfir leiknum, Njarðvík-
ingar náðu sínum eina sóknarkafla í
leiknum og einu sinni þurfti Þorsteinn
Gunnarsson að verja skot eftir þvögu
í vítateig ÍBV. Þremur mínútum fyrir
leikslok fékk svo Tómas gullið tæki-
færi til að skora sitt þriðja mark í
leiknum og sitt 15. í sumar er hann
komst einn í gegn en Örn varði skot-
hans.
Maður leiksins: Jóhann Georgsson,
ÍBV. -JR/Eyjum
2. deild
Lokaði mafkinu og Blikar komnir í 1. deildina á ný
Völsungur-Breiöablik
0-1 (0-1) ***
Breiðablik er á ný komið í 1. deild.
Eftir rúman 50 mínútna seinni hálf-
leik mátti vel merkja á fagnaðarlátum
Breiðabliksmanna að eitthvað merki-
legt hafði gerst. Vafalítið hefur þjálf-
arinn Jón Hermannsson faðmað
Svein Skúlason markvörð fastar og
lengur en aðra leikmenn því Sveinn
var hetja þeirra í leiknum og honum
geta Kópavogsbúar þakkað 1.
deildarsætið.
Blikar byrjuðu mun betur á renn-
andi blautum vellinum og fyrstu mín-
útur gerðu Völsungur lítið annað en
að renna á rassinn í rigningunni. Á
17. mín. hafði hinn stórhættulegi
framherji Jón Þórir Jónsson betur í
vítateig Völsunga, lék á tvo varnar-
menn og skoraði af öryggi. Eftir
markið drógu Blikar sig aftur og
Völsungar þéttu sóknaraðgerðir sínar
og fengu mörg góð færi.
Blikar komu ákveðnir til leiks eftir
hlé. Hákon Gunnarsson fékk góða
sendingu innfyrir vörn Völsunga en
Gunnar Straumland náði að verja. Á
55. mín. var Hákon gróflega felldur
en ekkert dæmt. Nú fór leikurinn að
fara duglega í skapið á Blikum og gula
spjaldið var nánast orðið regnhlíf
fyrir Hauk Torfason dómara (úr
KA!). Gunnar var þriðji Blikinn til að
líta gula spjaldið á58. mín. og þremur
mín. síðar leit hann það rauða fyrir
grófa og vanhugsaða tæklingu á Jón-
asi Hallgrímssyni.
Nú voru það Völsungar sem óðu i
færum og síðustu mínúturnar hljóta
að hafa verið Jóni Hermannssyni
þjálfara erfiðar. Á 83. mín. var Ómar
með sendingu á Jónas sem stóð einn á
markteig en Sveinn varði kollspyrnu
hans. Fjórum mínútum síðar varði
Sveinn hreint ótrúlega skalla Jónasar,
og þá var sýnt að Völsungar myndu
ekki jafna. Mínútu síðar var Jónas
enn á ferð með skot sem Sveinn varði
að sjálfsögðu. Á síðustu mínútu tók
Helgi Helgason mikla og glæsilega
einleikssyrpu. Hann lék á hvern varn-
armann Blika af öðrum, komst að
endamörkum og gaf fyrir. Á mark-
línu við fjærstöng var Jónas mættur
en á hreint óskiljanlegan hátt tókst
honum ekki að skora. Þar með voru
Blikar komnir í 1. deild og sjötti 0-1
ósigur Völsunga var staðreynd.
Leikurinn varð aldrei góður, til
þess var alltof mikið í húfi fyrir
Breiðablik. En liðið hafði heppnina
með sér og það gerði gæfumuninn.
Sveinn og Hákon voru bestir Blika.
Helgi var yfirburðamaður hjá Völs-
ungi. Gunnar Straumland átti mjög
góðan leik í sínum síðasta leik fyrir
félagið.
Maður leiksins: Sveinn Skúlason,
Breiðabliki.
-ab/Húsavík
2. deild
2. deild
Tveir útaf!
Fylkir-Leiftur 6-1 (2-0) **
Loks þegar þeir voru fallnir í 3.
deild fóru Fylkismenn að skora mörk.
Sex stykki í sögulegum leik gegn hinu
botnliðinu, Ólafsfirðingum, á Árbæj-
arvellinum á laugardaginn. Rauða
spjaldið fór tvisvar á loft og vakti það
furðu í bæði skiptin. Jón Bjarni Guð-
mundsson hjá Fylki var rekinn útaf
eftir aðeins 15 mínútur og markvörð-
ur Leifturs síðan 10 mínútum fyrir
leikslok.
Eftir 3 mínútur höfðu Óskar Theo-
dórsson og Jón Bjarni skoraði fyrir
Fylki og staðan 2-0. Falleg mörk og
vel að þeim unnið. Helgi Jóhannsson,
eini leikmaður Leifturs sem spilaði af
áhuga, minnkaði muninn með skalla
eftir aukaspyrnu á 57. mín, 2-1. Krist-
inn Guðmundsson skoraði fallegt
mark með þrumuskoti tveimur mín-
útum síðar, 3-1, og síðan gerði Óskar
sitt annað mark úr tvítekinni víta-
spyrnu, 4-1. Þegar hér var komið
sögu fór Kristni að leiðast þófið og
skoraði tvö gullfalleg mörk á sömu
mínútunni, 6-1, og skoraði því 3 mörk
alls. Hann var bestur hjá Fylki ásamt
Óskari og Antoni Jakobssyni.
Maður leiksins: Anton Jakobsson,
Fylki. -Logi
2. deild
KA gerði sitt
Allt á floti og pollur skoraði!
!
Tryggvi Gunnarsson úr KA
skoraði á Siglufirði og varð marka-
hæstur í 2. deild með 16 mörk.
KS-KA 1-2 (0-1) **
I vatnsveðri og við erfiðar aðstæð-
ur gerðu KA-mcnn það sem þeir
þurftu til að eiga möguleika á 1.
deildarsætinu, sigruðu, en það
reyndist ekki duga til og þeir leika
áfram í 2. deild. Heimamenn þurftu
að gata völlinn með loftpressu til að
reyn að veita einhverju af vatninu í
burt en það gagnaði lítið.
Þetta var hörkuleikur og mesta
furða hvað liðin náðu að sýna á
köflum við þessar aðstæður. Ansi oft
gerðu pollarnir á vellinum leik-
mönnum lífið leitt og með dyggilegri
aðstoð eins þeirra náði KA forystunni
á furðulegan hátt eftir 15 mfnútna
leik. Þorvaldur Þorvaldsson sendi
boltann frá eigin vallarhelmingi
innfyrirvörn KS. Sendingin varætluð
framherjum KA en var of löng, en
boltinn lenti í polli í vítateig KS og
spýttist frmhjá forviða Gísla mar-
kverði og í netið, 0-1!
KS hafði verið heldur hættulegri
aðilinn framað þessu en það sem eftir
var hálfleiks var leikurinn jafn og ein-
kenndist af miðjuþófi og sulli í poll-
um. ÓIi Agnarsson komst einn
innfyrir vörn KA á síðustu mínútunni
en Þorvaldur Jónsson, sem var mjög
öruggur í marki KA, varði vel.
KS sótti meira í seinni hálfleik en
gekk illa að skapa sér færi. KA náði
sinni fyrstu alvörusókn í hálfleiknum
á 60. mínútu og komst á í 0-2. Enn
kom pollur við sögu og uppúr þvæl-
ingi í kringum hann fékk Steingrímur
Birgisson boltann í vítateig KS, sendi
á Tryggva Gunnarsson við mark-
teiginn og hann skoraði sitt 16. mark í
deildinni.
Átta mínútum síðar löguðu
Siglfirðingar stöðuna í 1-2. Hörður
Júlíusson var upphafsmaðurinn og
boltinn barst til Colins Thackers sem
skoraði með góðu skoti af stuttu færi.
Eftir þetta fjaraði leikurinn út en
harkan og baráttan entust til leiks-
loka. Dæmigerður leikur þessara
liða, eiii 6 gul spjöld fóru á loft - og
áhorfendur sneru heim af þessum síð-
asta leik sumarins á Siglufirði blautir
og þungir.
Maður leiksins: Njáll Eiðsson, KA.
-rb/Siglufirði
Tvísýnt í
Borgamesi
Skallagrímur-ÍBÍ 2-1 (1-1) ★ ★★
Borgnesingar lyftur sér uppí 5. sæti
2. deildarinnar með sigri á Isfirðing-
um í fjörugum og tvísýnum leik á
laugardaginn. Bæði lið fengu fjölda
færa í leiknum en úrslitin réðust á 73.
mínútu þegar Björn Axelsson skoraði
sigurmark heimamanna uppúr þvögu
eftir að Hreiðar Sigtryggsson hafði
varið skot Gunnars Jónssonar.
Sæbjörn Óttarsson skaut í þvers-
lána á marki ÍBÍ á 18. mín. en strax á
eftir skoraði Jóhann Torfason fyrir
ísfirðinga eftir fyrirgjöf Jóns Odds-
sonar, 0-1. Á 30. mín. fékk Skalla-
grímur aukaspyrnu á vítateigslínu og
uppúr henni jafnaði Ólafur Jóhann-
esson þjálfari liðsins með skalla, 1-1.
Bjarki Þorsteinsson, hinn ungi mark-
vörður Skallagríms sem er með nagla
í öðrum fætinum eftir fótbrot í vor,
sýndi snilldarmarkvörslu í seinni hálf-
leik og það var síðan Björn sem
tryggði heimamönnum sigur með
markinu sem áður er getið.
Maður leiksins: Bjarki Þorsteins-
son, Skallagrími.
-eop/Borgarnesi
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN
Enska knattspyrnan
Man. UM stefnir á met
s /
Atta sigrar íröð. Atta stigaforysta. Enn skorar McAvennie
Manchester United hefur sett stefnuna á eítt glæsilegasta
metið í ensku knattspyrnunni. Haustið 1960 vann Totten-
ham fyrstu 11 leiki sína í 1. deild og á laugardaginn sigraði
Manchester United í áttunda skiptið í jafnmörgum leikj-
um. Það var líka sætur sigur, 3-0 gegn nágrönnunum og
erkióvinunum Manchester City, og það á heimavelli þeirra
síðarnefndu, Maine Road.
Ríflega 51 þúsund áhorfendur sáu Man. Utd halda
knattspyrnusýningu sem hæglega hefði getað endað með
fleiri mörkum. Strax á 6. mínútu komst Mark Hughes inní
sendingu til Alex Willams markvarðar Man. City sem
neyddist til að fella hann og úr vítaspymunni skoraði Bry-
an Robson, 0-1 Man. Utd fékk mörg dauðafæri áður en
bakvörðurinn Arthur Albiston kom liðinu í 0-2 á 17. mín-
útu með óverjandi skoti af 20 metra færi. Leikurinn jafn-
aðist eftir hlé en Man. Utd náði yfirhöndinni á ný þegar
leið á seinni hálfleik og á 73. mínútu skoraði Mike Dux-
bury eftir að Frank Stapleton hafði skotið í þverslá, 0-3.
Peter Barnes átti stórleik á kantinum hjá Man. Utd og
sýndi gegn sínu gamla félagi að það voru mistök að telja
hann útbrunninn, aðeins 28 ára gamlan.
John Aldridge kom Oxford yfir gegn Liverpool eftir 15
mínútna leik í fyrstu viðureign þessara liða í deildakeppn-
inni. Liverpool, með Steve McMahon ígóðuformi á miðj-
unni, náði góðum tökum á leiknum og komst yfir með
mörkum frá lan Rush og Craig Johnston. En Alan Kenne-
dy sendi boltann í eigið mark áður en yfir lauk og úrslitin
því 2-2.
Everton kom sér f annað sætið, átta stigum á eftir Man.
Utd, með sigri á Luton, sem veitti öfluga mótspyrnu.
Kevin Sheedy náði að skora á 44. mínútu og tveimur
mínútum fyrir leikslok tryggði Graeme Sharp meisturun-
um sigur, 2-0.
Sigurður Jónsson og félagar í Sheff Wed. duttu niður í
sjöunda sætið við 1-0 tapið gegn Arsenal á Highbury.
Lundúnaliðið er hinsvegar á uppleið og það var Ian Allin-
son sem skoraði sigurmark þess úr vítaspyrnu á 29. mín-
útu. Leikurinn þótti leiðinlegur og lítið sást til Sigurðar.
Frank McAvennie skorar enn fyrir West Ham. Hann
gerði fyrsta markið gegn Leicester og er markahæstur í 1.
deild með 7 mörk. Alan Devonshire og Tony Cottee sáu
um hin.
Chris Hughton tryggði Tottenham mikinn heppnissigur í
Nottingham og Ray Clemence hélt liðinu á floti með stór-
brotinni markvörslu.
Kerry Dixon og Paul Canoville skoruðu mörk Chelsea
gegn Southampton og Chelsea virðist líklegt til alls í vetur.
David Geddis, fyrrum leikmaður Ipswich, kom í heim-
sókn með Birmingham og gerði eina mark leiksins á Port-
man Road.
Paul Culpin, markakóngur sem Coventry keypti frá utan-
deildaliði í sumar, gerði sitt fyrsta 1. deildarmark gegni
Aston Villa. Steve Hodge jafnaði fyrir Villa.
George Reilly 2, Neil McDonald og Jeff Clarke skoruðu
fyrir Newcastle en Steve Mackenzie svaraði fyrir heillum
horfið botnlið WBA.
Luther Biisset og Nigel Callaghan tryggðu Watford sigur
á OPR.
Portsmouth er óstöðvandi í 2. deild - Nicky Morgan,
Kevin Dillon og Paul Wood skoruðu gegn Stoke. _VS
Urslit
f ensku knattspyrnunni:
1. deild:
Arsenal-Sheff. Wed...........1-0
Aston Villa-Coventry.........1-1
Chelsea-Southampton..........2-0
Everton-Luton................2-0
Ipswich-Birmingham...........0-1
Manch. City-Manch. Utd.......0-3
Newcastle-W.B.A..............4-1
Nottm.Forest-Tottenham.......0-1
Oxford-Liverpool.............2-2
Watford-Q.P.R................2-0
WestHam-Leicester............3-0
2. deild:
Barnsley-Shrewsbury..........2-0
Blackburn-Wimbledon..........2-0
Bradford City-Hull...........4-2
Crystal Palace-Fulham........0-0
Grimsby-Carlisle.............1-0
Leeds-Sunderland.............1-1
Middlesbro-Nonvich..........-... 1-1
Millwall-Brighton............0-1
Oldham-Charlton..............2-1
Portsmouth-Stoke.............3-0
Sheff.Utd.-Huddersfield......1-1
3. deild:
Blackpool-York City..........0-2
Bournemouth-NottsCounty......0-0
Bristol Rovers-Lincoln.......0-0
Bury-DerbyCounty.............1-1
Cardiff-Bristol City.........1-3
Doncaster-Brentford..........1-0
Gillingham-Chesterfield......1-1
Plymouth-Newport.............2-0
Rotherham-Reading............1-2
Walsall-Bolton...............2-0
Wigan-Darlington.............5-1
Wolves-Swansea City..........1-5
Efst: Reading 18, Walsatl 12, Wigan
12, Bury 10. Neðst: Bolton 5, Dariing-
ton 5, Bristol Rovers 3, Wolves 3.
4. deild:
Aldershot-Mansfield..........1-2
Halifax-Orient...............2-1
Hartlepool-Rochdale..........2-0
Hereford-Burnley.............2-2
Northampton-Crewe............0-1
Peterborough-Swindon.........3-0
PortVale-Cambrigde...........4-1
PrestonN.E.-Stockport........1-2
Southend-Scunthorpe..........2-1
Torquay-Chester..............0-3
Tranmere-Colchester..........3-4
Wrexham-ExeterCity...........1-1
Efst: Southend 14, Peterborough 13,
Rochdale 13, Colchester 12.
Staóan
1. deild:
Manch. United... 8 8 0 0 21-2 24
Everton 8 5 1 2 16-9 16
Arsenal 8 5 1 2 11-8 16
Liverpool 8 4 3 1 18-8 15
Chelsea 8 4 3 1 11-6 15
Newcastle 8 4 2 2 14-14 14
Shetf.Wed 8 4 2 2 11-11 14
Tottenham 8 4 1 3 16-7 13
Watford 8 4 1 3 17-12 13
Birmingham 8 4 1 3 7-10 13
Q.P.R 8 4 0 4 10-11 12
Aston Villa 8 2 4 2 10-10 10
West Ham 8 2 3 3 11-10 9
ManchesterCity 8 2 2 4 8-15 8
Southampton .... 8 1 4 3 9-10 7
LutonTown 7 1 4 2 8-11 7
Nottm. Forest.... 8 2 1 5 8-11 7
IpswichTown .... 7 2 1 4 4-10 7
Oxford 8 1 3 4 12-16 6
Coventry 8 1 3 4 9-13 6
Leicester 8 1 3 4 6-16 6
W.B.A 8 0 1 7 6-23 1
2. deild:
Portsmouth 8 6 2 0 18-4 20
Blackburn 8 4 3 1 12-7 15
Oldham 7 4 2 1 13-7 14
Brighton 8 4 2 2 11-8 14
Wimbledon 8 4 2 2 6-6 14
Charlton 6 4 1 1 12-7 13
Huddersfield 8 3 4 1 13-10 13
Barnsley 8 3 3 2 10-7 12
Sheffield United 6 2 3 1 9-7 9
Bradford City 6 3 0 3 10-9 9
Leeds United 8 2 3 3 10-14 9
Millwall 6 2 2 2 9-8 8
Norwich City 7 2 2 3 10-10 8
Crystal Palace... 6 2 2 2 8-8 8
GrimsbyTown... 8 1 5 2 11-12 8
Fulham 6 2 1 3 5-6 7
Stoke City 8 1 4 3 10-12 7
Middlesborough 7 1 3 3 3-8 6
HullCity 6 0 4 2 8-12 4
Shrewsbury 8 0 4 4 8-15 4
Carlisle 6 0 2 4 4-12 2
Sunderland 7 0 2 5 4-14 2