Þjóðviljinn - 22.09.1985, Blaðsíða 13
heldur myndi þvílíkt ástand
draga verulega úr öryggi banda-
manna okkar“. Séð ofan af Pen-
tagon virðast Filippseyjar einar
eftir meðal skjólstæðingalanda
Austur-Asíu þar sem kommúnísk
undirróðurstarfsemi er ennþá
helsta ógnun valdajafnvægisins.
Annars staðar hefur dúndrandi
hagvöxtur ef ekki „efnahagsund-
ur“ með öllu einangrað alla bylt-
ingarflokka, sem annað hvort
hafa þá haldið áfram að hrópa í
eyðimörkinni eða sópað bylting-
unni undir teppið til bráðabirgða.
Á Filippseyjum er öldin önnur.
Atvinnulausir verkamenn í syk-
uriðnaðinum einum saman eru
taldir yfir hálf milljón að tölu. Þar
hefur gerræðislegur autokratinn
Marcos vakið upp magnaðan
skæruhernað kommúnista og
Múhameðstrúarmanna, tvær
römmustu afturgöngur hins
„frjálsa heims“. Nú er Marcos
orðinn 68 ára gamall með biluð
nýrun og hástemmt ef ekki stór-
hættulegt eiginkonufól í farang-
rinum. Skyldi nokkurn furða þó
að Kanar telji hann orðinn illa í
stakk búinn til þess að berja niður
„drauga". Stjómmálaskýrendum
í Asíu jafnt sem Ameríku ber
saman um að byltingarherir
kommúnista á Filippseyjum séu
sprottnir upp úr alinnlendri
frelsishreyfingu án nokkurrar
umtalsverðrar aðstoðar utan frá,
án nokkurra stýritauma frá Pek-
ing eða Moskvu. Og þar stendur
hnífurinn í kúnni. Fólkið í
landinu gæti tekið upp á því að
strika í pólitíkusarreikninginn
eins og í íran hérna um árið.
Því lengur sem Marcos heldur
sér á floti og tekst að sigla hjá
skerjum, þeim mun meiri mun
ábyrgð bandarískra yfirvalda
verða talin fyrir því að hafa styrkt
hann þegar hinn endanlegi, að
flestra viti óumflýjanlegi brotsjór
ríður yfir. Þá mun hatrið á Marc-
osi, magnað upp í fjöldahreyf-
ingu, eðlilega hellast yfir amer-
ískar herstöðvar í landinu. Amer-
ískir hermálasérfræðingar telja
amerískum hagsmunum á Fil-
ippseyjum borgið til bráða-
birgða, eitt til tvö ár til viðbótar,
hvað sem þá tekur við.
Rétt undir
kóreönsku
suðumarki
Auk Filippseyja er S-Kórea
annað Asíulandið þar sem
bandarísk yfirvöld básúna öðru
fremur hernaðarlegt mikilvægi.
Þar situr í forsetastóli maður að
nafni Chun Doo Hwan. Sá er 54
ára að aldri, í blóma lífs síns og
samt hefur hann strengt þess heit
að láta af völdum í febrúar 1988,
rétt undir fyrirhugaða ólympíu-
leika þar í landi. Hvað sem öllum
loforðum viðvíkur þá voru það
engin vettlingatök eða fagurgali
sem hann beitti fyrir sig til þess að
ná völdunum í sínar hendur. Op-
inskáir lýðræðisvinir sem orðið
hafa á vegi hans fengu og fá enn
að finna fyrir því.
Næstu 30 mánuðir munu leiða í
ljós hver verður gæfan eða gæfu-
leysið í framtíð þessarar djúpt
klofnu þjóðar. Ef að meiriháttar
innanlands óeirðir ríða yfir eina
ferðina enn er hætta á að forset-
inn bregði aftur fyrir sig stjórnar-
skrárrofi og herlögum. S-
Kóreönsk yfirvöld eru þó sögð
verða öll af vilja gjörð til þess að
halda friðinn, alla vega fram yfir
næstu ólympíuleika sem ráðgert
er að halda þar í landi. Til mikils
þykir að vinna með að gera þá
sem allra best úr garði, láta þá
brjóta blað í sögu þjóðarinnar,
draga að henni athygli alheimsins
og efla þannig sjálfstraust og
þjóðfélagsvitund almennings.
Vitnað er til Japans þar sem veru-
legur skriður komst fyrst á „efna-
hagsundrið“ og þjóðrembuna
eftir ólympíuleikana í Tokyo
1967.
Yfirvöld í S-Kóreu óttast þó
ekki aðeins undirróðursstarfsemi
innlendra lýðræðissinna, heldur
jafnvel ennþá meira vélráð Kim
II Sung í N-Kóreu til þess að spilla
friðnum. Fáir efast lengur um að
það voru hans menn sem stóðu að
baki sóðalega sprengjutilræðinu í
Rangoon í Birmaníu 1983, sem
drap fjóra s-kóreanska ráðherra í
miðri opinberri heimsókn. Sjálf-
ur forsetinn, Chun, slapp þá
naumlega með skrekkinn. Jap-
önsk blöð segja að blómstrandi
hagvöxtur og aukin viðurkenning
S-Kóreu á alþjóðavettvangi séu
þymir í auga Kim II Sung.
„Leiðtoginn mikli“ fyrir norðan
sem nú hefur lofað fólkinu að dá
sig og elska í 40 ár er stálhertur í
byltingarskólanum. Nú er hann
orðinn 72 ára með ólæknandi æxli
á hálsi, sem ekki er þó illkynjað
og ekki mun fara með hann í
gröfina ef trúa má pólitískum
slúðurdálkahöfundum hér ey-
stra. Kim II Sung hefur eins og
kunnugt er í engu farið dult með
tilraunir sínar til þess að hlaða
völdum á son sinn, Kim Chong II,
sem hann vill gera að eftirmanni
sínum og láta kalla „Hinn ást-
sæla“. Engin andspyma greinan-
leg í Pyongyang, hvað sem gerist
þegar pabbinn deyr.
Draumurinn
um Indókína
Pam Van Dong, forsætisráð-
herra Víetnam er 79 ára og Lee
Duan, aðalritari kommúnista-
flokksins er 77 ára. í nágrannal-
öndunum eru menn farnir að
vona að draumar þessara stíðs-
hetja um sameinaða Indókína
undir víetnömsku forræði fari nú
fljótlega með þeim í gröfina. Þá
komast kannski langþreyttir ví-
etnamskir dátar heim til sín frá
Kampucheu og stríðsdrunurnar
þagna þar um slóðir eftir áralangt
bil.
Hvað sem öðm líður er Al-
þýðulýðveldið Kína sterkasta
kommúnistaríkið í Austur-Asiu,
og það þrátt fyrir ófarirnar í land-
amærastríðinu við Kampucheu. í
Kína er svo að hefjast annar kap-
ituli margslunginnar samtíma-
sögu, sem virðist standa rétt eins
fastur í meltingarvegi fréttaskýr-
endanna og hinir fyrri. Þó virðast
flestir að minnsta kosti á sama
máli um það eitt, að þar í landi
geti hérumbil allt gerst og að
kraftaverkin þar gerist ekki eins
og á Islandi bara þegar miðað er
við fólksfjölda.
Það ku vera
fallegt í Kína
Eftir öllum sólarmerkjum að
dæma ætti Deng Xiaoping að
vera löngu kominn af besta aldri.
Hann hefur samt aldrei verið
sprækari en nú á síðari ámm, —
þ.e.a.s. ef dæma má menn eftir
verkum þeirra. Nú síðast skaut
hann heimsbyggðinni skelk í
bringu með því að tjalda enn ein-
um gæsalöppunum utan um sós-
íalískan rétttrúnað. Hann lagði á
ný ráð um tilraunir með frjálst
framtak í ákveðnum hémðum
meðfram strönd Kínahafsins. Þar
hafa nú ráðamenn og verk-
smiðjustjórar að miklu leyti
frjálsar hendur til þess að reka
blygðunarlaust gróðafyrirtæki
með viðskiptum sínum innbyrðis
og við erlenda kapítalista. Að
undanförnu hafa þó þessi sérs-
töku svæði orðið fyrir gagnrýni
og kurr sem sagður er sprottinn
upp frá innri landshéruðunum og
vera til marks um þá spennu sem
myndast hefur milli ört vaxandi
borgarhéraðanna og staðnaðra
sveitahéraða.
Verður efnahagsstefnu Dengs
haldið til streitu þegar höfundar-
ins nýtur ekki lengur við? Ef
ekki, hvað tekur þá við? Svona er
gjarnan spurt í japönskum dag-
blöðum þegar Kína ber á góma.
Eftirfarandi athugasemd eftir
stjórnmálasérfræðinginn Nishi-
hara Masashi birtist f opinberri
skýrslu í marsmánuðis.l. oggefur
til kynna áhyggjur Japana: „Ef að
efnahagsógöngur Kínverja leiða
til stjórnmálalegs öngþveitis þar í
landi má reikna með að örygg-
ismálum allrar álfunnar verði
stefnt í bráðan voða„
Handan við sundið á Taiwan
sjást svo merki þess að dagar Ku-
omintang, þjóðernishreyfingar
Chiang Kai-sheks séu brátt tald-
ir. Sonur hershöfðingjans,
Ching-kuo, er orðinn 75 ára að
aldri og gengur ekki heill til
skógar. Hér í Japan hafa heyrst
hljóðvakaraddir sjón- og útvarps
sem gera að því skóna, hvernig
innfæddir Taiwanbúar muni ná
undirtökunum á aðkomu-, út-
legðarslektinni frá meginlandinu
og taka völdin í sínar hendur þeg-
ar sonar hershöfðingjans nýtur
ekki lengur við.
Kynþóttaólga
annars staðar
í Indónesíu og Malasíu er kyn-
þáttaólgan helsti friðarspillirinn.
Þar um slóðir hættir kínversku
innflytjenda díasporunni til þess
að safna áberandi meiri auði en
aðrir landsmenn og sigla því
beitivind á ytrimörkum langlund-
argeðs og umburðarlyndis sam-
landa sinna líkt og „guðs útvalda
þjóð“ á meginlandi Evrópu á
öðrum tímum. Auk þess hafa nú
skotið upp kollinum baráttuglað-
ir Muhameðstrúarmenn, gjarnan
menntaðir í íran, sem gripið hafa
til skæruhernaðar til þess að
fylgja eftir kröfum sínum um
sjálfstjóm ef ekki sjálfstæði.
Tuttugu ár em nú liðin síðan
Suharto hóf sig til forsetatignar í
Indónesíu og þó hann hafi síðan
fjórum sinnum efnt til opinberra
kosninga, hefur enginn keppi-
nautur risið meðal andstæðinga
hans, sem nálgast hefur að skáka
honum úr stóli. Núverandi kjör-
tímabil rennur svo út 1988.
Indónesía er í stuttu máli ein
þessara þjóða heims, sem um
áratuga skeið hefur búið við „inn-
anlandsfrið“ undir jámbentum
hæl hermaskínunnar. Súhartó, er
orðinn 65 ára gamall lifrarsjúk-
lingur. Hlaupi hann brátt skeið
sitt á enda, breytir það að flestra
viti litlu af eða á um örlög og
þjóðfélagsástand Indónesíubúa.
Skarð hans mun fyllt með sams
konar stöffi. Fyrrnefndur Nishi-
hara lætur þau orð falla í skýrslu
sinni, að verðfall á hráolíu, er-
lend skuldasöfnun ásamt hrap-
andi siðferðisþreki hafi leitt yfir
Indónesíubúa það allra versta
efnahagsástand sem þekkist í álf-
unni, að Filippseyjum einum
undanskildum.
Kyoto, 12. september 1985
H.S.
Sarnafi/ VIÐHALDSFRÍTT ÞAKEFNI TIL ENDURNÝJUNAR -TILNÝBYGGINGA
FAGTÚN HF. LÁGMÚLA 7, 105 REYKJAVÍK, SÍMI 28230
FRAMLEIÐSLURÁÐ LANDBÚNAÐARINS AUGLÝSIR:
Sláturtíðin fer í hönd. Þau heimili sem hafa frystikistur geta gert
Kaupið dilkakjötið í heilum skrokkum,
þið fáið meira fyrir peningana og kjöt-
ið sagað að ósk ykkar. Kaupið heil
Úr dilkakjöti er hægt að útbúa ýmsa
góða rétti.
Allt kjötið nýtist. Ótal rétti er hægt að
laga úr hverjum hluta skrokksins fyrir
sig.
1. og 11 Hækill Brúnað og notað í kjötsoð.
2. Súpukjöt Ótal pottréttir.
3. Lærissneiðar Pönnusteikt eða glóðað.
2a og 3. Læri Ofnsteikt, glóðað o.fl.
4. Huppar Hakk eða kjötsoð.
5. Hryggur Ofnsteikt, glóðað,
kótelettur.
6. Slög Rúllupylsa eða glóðað.
7. Framhryggur Glóðað í sneiðum.
pottréttir.
8. Háls Kjötsoð, hakk.
9. Banakringla Kjötsoð eða kjötrétti.
10. Bringa Hakk.
11. Hækill Kjötsoð.
ATH.
Innmatur er mjög ódýr og holl
fæða og er lifrin þar efst á blaði.
Framleiðsluráð landbúnaðarins
ENGIN VANDRÆÐI MEÐ
PÍPULAGNIR OG RAFLAGNIR
Vegna þess að í Raðveggjum eru engar stoðir er auðvelt að setja þá upp
þó búið sé að leggja raf magnsleiðslur og pípulagnir, en þetta hefur verið helsta vandamál
sem framleiðendur milliveggjaeininga hafa átt við að stríða.
Sölustaðir
Reykjavik
Innréttingamiðstöðin
Ármúla 17a
Simar 91 -84585. 84461
Akranes
Guðlaugur Magnússon
Skarðsbraut 19
Sími 93-2651
Siglutjórður Akureyri Egilsstaðir Neskaupstaður Vestmannaeyjar Selfoss Keflavík
Bútur hf Bynor Trésmiðja Fljótsdalshéraðs Valmi hf. Brimnes G. A. Böðvarsson Byggingoval
Rónargötu 16 Glerórgötu 30 Fellabœ B-götu 3 Strandvegi 54 Austurvegi 15 Iðdvöllum 10
Sími 96-71333 Simi 96-26449 Simi 97-1700 Simi 97-7605 Simi 98-1220 Simi 99-1335 Sími 92-4500
V E G G I R
FJALAR h/f
Húsavík
Sími 96-41346