Þjóðviljinn - 22.09.1985, Blaðsíða 20
Skólarannsóknir T Bandaríkjunum
Tölvukennslan þegar úrelt
Nemendur í bandarískum
skólum eyða æ meiri tíma og pen-
ingum í að læra gagnslausa hluti
þannig..
Hvað eiga Adolf Hitler og Al-
bert Einstein sameiginlegt?
Jú, þeir sem fletta upp í Encycl-
opaediu Britannicu leita oftast að
nöfnum þeirra. Næstir á eftir
koma Walt Disney, Leonardo Da
Vinci, arkitektinn Frank Lloyd
Wright, Van Gogh og Laura Ing-
alls Wilder (skrifaði „Húsið á
sléttunni”). En toppstjörnur eins
og Springsteen eða Reagan, -
nei, líklega vita allir allt um þá, því
sárasjaldan opna menn síðurnar
þar sem þeirra afrek eru tíund-
uð... Þessar upplýsingar koma
frá rannsóknarstöð bókaútgáf-
unnar í Chicago.
Hver man ekki eftir sjónvarps-
þáttunum, sem gengu hér fyrir
nærri 15 árum um hana Dísu,
sem átti heima í flösku. Dísa
flöskuandi var mikil vinkona
Larry nokkurs Hagman, sem í
dag gengur undir nafninu JR og
hefur síðan tekið upp ýmsa leiða
siði, sem Dísu flöskuanda myndu
áreiðanlega ekki líka. Nú á að
fara af stað hjá NBC sjónvarps-
stöðinni með nýja Dísuþætti og
verður Jeannie áfram leikin af
Barböru Eden, en á meðan Larry
er að svindla og sukka í Dallas
leikur Wayne nokkur Rogers hin
geðþekka félaga Dísu.
Nýlega var gerð rannsókn á
109 bakveikissjúklingum í
London og batamöguleikum
þeirra. Gerðar voru ýmsar með-
höndlunartilraunir, raunveru-
legar og tilbúnar og ætlunin að
kanna hversu mikil áhrif tiltrú
sjúklingsins á lækninguna hefði. í
Ijós kom að þeir sem fengu vít-
amíntöflur í stað verkjalyfja voru
jafn líklegir til að segjast vera
betri í bakinu og þeir sem raun-
verulega fengu verkjalyf. Sömu
sögu var að segja um tilbúna
geislameðferð o.fl. „Vöðvabólga
og bakveiki er oft almenn þreyta,
þörf fyrir athygli og andlega
slökun. Þessvegna koma niður-
stöðurnar ekki á óvart,” sögðu
læknarnir sem stjórnuðu
rannsókninni.
Fyrrverandi eiginkona Reag-
ans, Jane Wyman, hefur verið
vinsæll blaðamatur í Bandaríkj-
unum eftir að Reagan varð for-
seti. Keppast blöð um að reyna
að fá hana til að úttala sig um
forsetann, jafnt stuðningsmenn
hans sem andstæðingar. Jane
hefur verið utan sviðsljóssins
lengi og borið af sér allar slúður-
sögur um hjónaband þeirra.
„Ég er ekki bitur eða hef átt í
pólitískum illdeilum við Reagan,
- hvorki fyrr né síðar. En mér þyk-
ir ósmekklegt að ræða opinber-
lega um fyrrverandi maka,” segir
hún.
Jane sem var þekkt leikkona á
sínum yngri árum, hafði dregið
sig í hlé frá kvikmyndunum þar til
skömmu eftir að Reagan var kos-
inn forseti. Hún leikur nú aðalhlu-
tverkið í framhaldsþáttunum
„Falcon Crest", sem eru á góðri
leið með að verða vinsælli en
Dallas.
„ Því verður ekki neitað að Jane
er ágæt leikkona. En sú stað-
reynd að hún var fyrri kona
Bandaríkjaforseta hefur ekki
dregið úr vinsældum framhalds-
þáttanna, svo ekki sé sterkar að
orði kveðið,” segir framleiðandi
þáttanna.
eins og t.d. að mata tölvur, sem
verða úreltar löngu áður en þetta
unga fólk kemur út úr skólunum.
Þetta er niðurstaða skóla-
rannsókna á vegum Wiscounsin
háskóla. Allt bendir til þess að
tölvur framtíðarinnar þurfi ekki
að snerta, heldur verði þeim
stjórnað í gegnum taltæki, þ.e.
þær verði mataðar í bókstaflegri
merkingu. Þeim verður sagt fyrir
eins og menn sögðu einkariturum
sínum, á meðan sú stétt var enn
til, og þær hlýða. „Það væri nær
að kenna nemendum að tala,
lesa, stafsetja og hugsa,” segir J.
Patterson hjá tölvudeiid há-
skólans.
Feiminn
lífvörður
Lífvörður hennar hátignar
fékk nýlega liðsauka, en það var
írski úlfhundurinn „Connor”.
Hann er ungur að árum, en fékk
eigi að síður það starf að standa
vörð um drottningamóðurina.
Aumingja hvutti var svo feiminn
að liðsforinginn sem við sjáum
hér á myndunum varð að halda á
honum þegar sjálf frúin mætti til
að kanna lífvörðinn. Eða kannski
er Connor bara sannur íri, sem
nennir ekki að sýna breska kon-
ungsveldinu meiri kurteisi en
nauðsynlegt er...
FYRSTA
FISKELDIS
AISIANDI
í Laugardalshöll dagana18-22. september
Alþjóðleg sýning um íslenskt hagsmunamál
Alþjóðlega fiskeldissýningin í Laugardalshöll er fyrsta
sýning sinnar tegundar hér á landi. Hér er fjallað
markvisst um nýja og ört vaxandi atvinnugrein sem
miklar vonir eru bundnar við. Hér finnur þú á einum
stað alltsem máli skiptir fyrir framtíð fiskeldis á íslandi.
Innlendir og erlendir aðilar kynna framleiðslu sína,
varpað er Ijósi á þá möguleika sem fyrir hendi eru og
gefið er yfirlit yfir [aær leiðir sem færar eru að settu marki.
Markmiðið með sýningunni er að hjálpa mönnum að
finna bestu leiðina, hvetja athafnamenn til dáða og vekja
sem flesta til umhugsunar um þau miklu tækifæri sem
bíða okkar í fiskeldi hér á landi.
ir •
Meðal þess sem kynnt er:
Rafeindabúnaður til mælingar, •
flokkunar og eftirlits
Tölvustýrðir fóðurgjafar •
Tankar, búr og ker •
Lyf og lækningatæki
Öryggisbúnaður
Hreinsibúnaður og dælur
Teljarar, vogir og mælar •
Öryggis- og burðarnet •
Flotbúnaður, þéttibúnaður og skilrúm •
Gæðaeftirlitsbúnaður •
Ráðgjafarþjónusta ■
Myndbandakynningar ■
Svæðakynningar ■
Jarðvarmanýting ■
Landnýting ■
Sýningarsvæðið í Laugardalshöll
Smakkið afurðirnar!
Til að gefa gestum færi á að
kynnast því ágæta hráefni sem
eldisfiskurinn er, munu
matreiðslumeistarar frá Gauki á Stöng
bjóða upp á gómsæta rétti þar sem
eldisfiskurinn er í aðalhlutverki.
Sýningin stendur aðeins í 5 daga
Sýninginstendurfrá 18.-22. september
ogeropinfrákl. 11.00 - 19.00
alla sýningardagana.
™ ----------------------------------—....
_ • ■: • ■ S>„: ■-•••. .S > • •• • V «SV , í ■ :
$ÍMMHÍIÍlIÍfsPilP¥l!raBllÍlSBWwllfÍl*raiœ0ffi8!
alssilslsISllli
f
-'X'-.
Industrial and Drade Fairs International Limited
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN