Þjóðviljinn - 24.10.1985, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 24.10.1985, Qupperneq 2
ilUKCTÐi FRETTIR Háskólinn Vaka vann A-listi Vöku vann kosningar til 1. des. nefndar með 49,1% atkvœða 11. boðorðið: Eigi skaltu girn- ast launaskrið náunga þíns. A-listi Vöku fékk 521 atkvæði eða 49,01% og B-listi vinstri- manna 486 atkvæði eða 45,72%, sagði Guðmundur Auðunsson hjá kjörstjórn vinstrimanna en í gær fóru fram kosningar í Há- skóla íslands til 1. des-nefndar. Atkvæði greiddu 1063 af 4328 sem voru á kjörskrá og kjörsókn því aðeins 24,56%. Auðir seðlar voru 51 eða 4,8% og ógildir 5 eða 0,47%. A-listi Vöku er því óneitanlega sigurvegari þótt hægrimenn nái ekki 50% at- kvæða. Kjörsókn er minni en í fyrra og það hefur yfirleitt verið vinstrimönnum í óhag þegar kjörsókn minnkar. í Mbl. í gær, á kjördag sakaði Stefán Kalmansson vinstrimenn um óheiðarleg vinnubrögð fyrir kosningarnar og er það alrangt sem hann segir að kosningarnar hafi snúist um að hafna vinstri- mönnum og misnotkun þeirra á 1. desember og kjósa samfylking- arstefnu Vöku. Vinstri menn fóru í þessar kosningar einmitt með þá stefnu að bjóða Vöku og öllum deildum háskólans til sam- starfs um hátíðahöldin 1. des- ember. -aró KONUR SnÖNIXJM SAMAN 24. október Mætum allar á útifundinn á Lækjartorgi kl. 14 og leggjum áherslu á kröfuna um raunverulegt launajafnrétti. Ávörp: GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR, meinatæknir HILDUR KJARTANSDÓITIR, iðnverkakona MÁLHILDUR SIGURBJÖRNSDÓTTIR, fiskvinnslukona ÞÓRA KRISTÍN JÓNSDÓTTBR, kennari TILHVERS leikþáttur eftir Helgu Thorberg. Flytjendur: Helga Thorberg og Rósa G. Þórsdóttir TÓNLIST Konur flytja tónlist um og eftir konur. FUNDARSTJÓRI: Guðríður Elíasdóttir, varaforseti ASÍ KVENNASMIÐJAN sýning 70 stéttar- og fagfélaga á störfum og kjörum kvenna, verður opnuð í dag 24. október kl. 11 fh. í nýju Seðlabankabyggingunni. Sýningin stendur fram til 31. október. Vigdís Finnbogadóttir forseti tekur við fyrsta eintaki bókarinnar Konur hvað nú? úr hendi Jónínu Margrétar Guðnadóttur ritstjóra bókarinnar. Ljósm. Sig. Konur hvað nú? Eg hlakka tii að lesa bókina, sagði Vigdís Finnbogadóttir forseti þegar Jónína Margrét Guðnadóttir cand. mag og rit- stjóri bókarinnar afhenti Vigdísi fyrsta eintak bókarinnar Konur hvað nú? Konur, hvað nú? er yfirlitsrit um stöðu íslenskra kvenna frá því á kvennaárinu 1975 og til dagsins í dag. í bókinni er úttekt á því hvort og þá hvernig konum hefur miðað áleiðis til jafnréttis á marg- víslegum sviðum þjóðfélagsins síðustu tíu árin. Bókin skiptist í 14 kafla. Sér- fróðir höfundar - allt konur - skrifa um lagalega stöðu kvenna, menntun, atvinnu- og launamál, félagslega stöðu, konur í forystu- störfum, heilbrigði kvenna og heilsufar. Ennfremur eru raktir helstu viðburðir í sögu kvenna og kvennahreyfinga síðustu tíu árin. Þá er og fjailað um listsköpun kvenna. Myndlistarverk og ljós- myndir eftir konur prýða bókina. Konur, hvað nú? er gefin út af Jafnréttisráði og 85-nefndinni og er megintilgangur með útgáfu bókarinnar að afla sér vitneskju og staðreynda um stöðu kvenna í samtímanum til að átta sig á hvar er helst þörf fyrir átak í jafnréttisbaráttunni í nánustu framtíð. -aró Víða vega- skemmdir Annríki er nú hjá Vegagerðinni á Vestfjörðum, eins og verða vill þegar mikið rignir á skömmum tíma. Auk skriðufall- anna á Bfldudal og vegaskemmda í Djúpi, sem skýrt hefur verið frá, kom skarð í veginn við brúna á Hjarðardalsá í Dýrafirði, vatns- flaumur reif frá ræsi á Bfldudals- vegi í Trostansfirði og gróf frá brú hjá Otradal. Síðdegis í fyrradag gekk úrfell- ið yfir Austfirði. Féllu þá aur- skriður á veginn í Kambanes- skriðum og lokuðu Suðurfjarðar- vegi. I gær var unnið að viðgerðum á vegaskemmdunum og var þeim þá víðast hvar lokið en annars í dag, komi ekkert nýtt í ljós. Rétt er samt að brýna fyrir öku- mönnum að gæta varúðar því víða kunna að hafa myndast rásir í vegi, sem geta orðið skeinuhætt- ar sé ekki farið með fullri gát. -mhg 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Börn Trúður Sunnudaginn 27. október kl. 15.00 verður hinn þekkti sænski trúður RUBEN með sýningu í hefðbundnum sirkusstfl í Nor- ræna húsinu. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn og hefst salan klukkustund fyrir sýn- inguna. Verð miðanna er 100 krónur. O/H

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.