Þjóðviljinn - 24.10.1985, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 24.10.1985, Blaðsíða 6
KVENNAARATUGUR Rætt við Guðrúnu Guðmundsdóttur um athugun í dag, 24. október, kemur út bókin „Konur - hvað nú?“ yfir- litsrit um stöðu íslenskra kvenna á kvennaáratug Sameinuðu þjóð- anna. Ritstjóri er Jónína Margrét Guðnadóttir cand. mag. en ’85- nefndin og Jafnréttisráð gefa bókina út til að miðla vitneskju og staðreyndum um stöðu kvenna og benda á hvar frekara átaks er þörf til að jafna stöðu kynjanna. Bókin skiptist í 8 meginkafla og fjallar einn þeirra um atvinnu og laun kvenna, en konur hafa helg- að þennan sögulega dag, 24. októ- ber, baráttunni fyrir raunveru- legu launajafnrétti. Það er Guð- rún Guðmundsdóttir, viðskipta- fræðingur og framkvæmdastjóri Þjóðviljans sem fjallar um þetta efni í áðurnefndri bók og féllst hún á að rekja helstu niðurstöður sínar fyrir lesendur Þjóðviljans. 80% kvenna vinna úti. Voru 60% árið 1975 „í dag er það regla en ekki undantekning að konur vinna utan heimilis," sagði Guðrún. „Um 80% íslenskra kvenna á aldrinum 20-60 ára taka einhvern þátt í atvinnulífinu en um 90% karla. Þetta er ekki mikill munur og sýnir að í dag vinna svo til allar konur eitthvað utan heimilis. Við upphaf kvennaáratugarins voru tæplega 60% kvenna með einhverjar atvinnutekjur og eru þá allar tekjur taldar með hversu litlar sem þær eru, jafnvel skóla- fólk í sumarleyfum. En það er ekki aðeins að nú vinna tiltölu- lega fleiri konur úti, heldur hafa þær einnig aukið starfshlutfall sitt. Þetta sést vel ef litið er sér- staklega á atvinnuþátttöku giftra kvenna.“ Fleiri giftar konur vinna úti og lengur „Árið 1963 voru tæplega 30% giftra kvenna með virka atvinnu- þátttöku, þ.e. unnu meira en 13 vikur á ári. Árið 1983 eru hins vegar tæplega 65% giftra kvenna í þessum hópi. Á 20 árum hefur virk atvinnuþátttaka giftra kvenna því aukist um meira en helming en mest varð aukningin á árabilinu 1963-1975 er virk at- vinnuþátttaka giftra kvenna var komin í 56,2% árið 1975. Frá ár- inu 1980 hafa verið unnar upplýs- ingar úr skattframtölum sem sýna starfshlutfall fólks á vinnumark- aði. Þar kemur fram að augljóst er að vinnutími giftra kvenna utan heimilis hefiu- lengst síðustu árin. „Jafnri stöðu á vinnumarkaði þarf að ná á þann hátt annars vegar að áhugi karla verði vakinn og þeir axli sinn hluta barnauppeldis og heimilishalds og hins vegar að bætt verði aðstaða beggja til að sinna tvíþættu hlutverki samhliða á heimili og vinnustað". ára og eldri vinna í dag allan dag- inn utan heimilis en 85,8% giftra karla. Sé hins vegar litið á vinnu karla og kvenna, launaða sem ólaunaða, kemur í ljós að ekki er teljandi munur á heildarvinnu- tíma kynjanna. Konur vinna færri stundir utan heimilisins en fleiri stundir á heimilunum. Heimilisstörfin hvíla ennþá að mestu á herðum kvenna og þar hefur orðið minni breyting á kvennaáratugnum heldur en ég hafði vonast til. Ég hefði ætlað að konur hefðu náð lengra í baráttunni á heimil- unum, þær hafa flykkst út á vinn- umarkaðinn og þær hafa orðið nokkuð sambærilega menntun á við karla. Könnun gerð í upphafi og lok kvennaáratugarins sýnir hins vegar að mjög lítil breyting hefur orðið á þessum 10 árum á verkaskiptingu á heimilunum, ég get nefnt hér nokkur dæmi: Hver baðar börnin? 1976 sögðust 65,5% kvenna alltaf sjá frekar um matarinn- kaupin og 4,2% karla sögðu hið sama. 1984 sjá 65,1% kvenna frekar um innkaupin og 6,2% karla. 7% kvenna sagðist alltaf frekar sjá um bílinn 1976 og 65,5% karla. 1984 sjá 7,6% kvennanna frekar um bílinn og 62,7% karla. 1976 sögðust 64,1% kvenna alltaf frekar hátta og baða börnin og 0,7% karlanna. 1984 eru það enn 52,5% kvenna sem segja að það sé frekar í sínum verkahring en 1,3% karlanna. Þvottur á fatnaði er líka nær eingöngu á herðum kvenna. 1976 sögðust 92,5% þeirra fremur sjá um þvotta og 0,4% karlanna. 1984 sjá 88% kvenna fremur um þvotta og 1,2% karla. Þetta sýnir að hægt miðar í átt að jafnræði á heimilunum. Þó konur afli aukinna tekna fyrir heimilin og þrátt fyrir mikla um- ræðu um tvöfalt vinnuálag kvenna er greinilega ennþá mjög skýr verkaskipting á heimilun- um.“ Konur fá 65% af launum karla „Ef litið er á launamun kynj- anna þá hafa konur í dag 65% af launum karla ef miðað er við ár- sverk. Þegar talað er um ársverk er átt við 40 stunda vinnuviku og meira, en karlar vinna meiri yfir- vinnu, þannig að vinnuvika þeirra er lengri en kvenna. Mis- munandi vinnuvika skýrir samt útivinnandi reykvískra kvenna fullu ársverki en 60,5% útivinn- andi kvenna á Norðurlandi aðeins 13% af giftum konum í Garðabæ hafi unnið fulla vinnu utan heimilis. Þá var hlutfallið 27% í Kópavogi, eða meira en tvöfalt. Þessi samanburður á nágrann- abæjunum, Kópavogi og Garða- bæ, ætti að segja okkur að fjár- hagsleg staða heimilanna ræður Heildarvinnutími kynjanna svipaður „Á meðan heildaratvinnuþátt- taka kvenna í dag er í kringum 80% er atvinnuþátttaka karla um 90% og er þá í báðum tilvikum miðað við árin frá 20 ára til sex- tugs. Tæplega 40% giftra kvenna 15 Þannig voru tæplega 25% giftra kvenna á vinnumarkaði með minna en 13 vikna vinnu árið 1980þegar 35% þeirra unnu allan daginn. Þremur árum síðar, 1983, unnu 17% giftra kvenna minna en 13 vikur en 40% unnu úti allan daginn.“ vestra, þar sem full atvinnuþátt- taka kvenna er algengust. Það er aðeins eitt svæði á landinu sem konur vinna minna utan heimilis en í Reykjavík og það er Reykjanesið, en þar skila 51,4% útivinnandi kvenna fullu ársverki.“ Atvinnuþátttaka kvenna er misjöfn í sveitarfelögum „f könnun Jafnréttisnefndar frá 1976 var atvinnuþátttaka kvenna í Garðabæ 49% en 55% í Kópavogi. Af þeim tiltölulega fáu Garðbæingum sem unnu utan heimilis voru fæstar í fullu starfi eða 27% sem svarar til þess að mjög trúlega miklu um atvinnu- þátttöku kvenna. Mögulega vinna fleiri konur allan daginn utan heimilis en raunverulega kjósa það. Hitt er líka mögulegt að konur sem búa við rýmri efnahag séu heima vegna félagslegs þrýstings en ekki vegna þess að þær vilji það sjálfar - þær telji sig einfaldlega ekki geta afsakað of mikla atvinnu- þátttöku þar sem heimilið hafi nægar tekjur án þess. \ þessu sambandi má benda aftur á tölurnar frá Norðurlandi vestra, þar sem konur skila til- tölulega flestum ársverkum, en það svæði er hið tekjulægsta á landinu." Misjafnt eftir landsvæðum „Þessi aukning á atvinnuþátt- töku og aukið starfshlutfall kvenna nær til landsins alls en er allan tímann minnst í Reykjavík. Sem dæmi má taka að 1983 eru 81% kvenna í Reykjavík með einhverja atvinnuþátttöku en hæst er hlutfallið á Suðurlandi 90%. Það er sama hvort litið er á atvinnuþátttökuna eða starfs- hlutfallið, hvort tveggja er lægra í Reykjavík. Þannig skila 52,3% Fimmtudagur 24. október 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.