Þjóðviljinn - 13.11.1985, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 13.11.1985, Qupperneq 1
LANDSFUNDUR AB MENNING ÞJÓÐMÁL Þingmenn AB Onýtt sýndaiplagg Geir Gunnarsson og Svavar Gestsson neituðu að rœðafjár- lagafrumvarpið • Stjórnarandstaðan fékk 6 tíma fyrirvara á tillögum Þorsteins • Geir Gunnarsson: „Ótœk og óþekkt vinnubrögðu Geir Gunnarsson og Svavar Gestsson mótmæltu með eftir- minniiegum hætti þeim skrípaleik sem settur hefur verið á svið í kringum fjárlagagerð fyrir næsta ár, þegar þeir neituðu í beinni út- varpssendingu í gær að ræða fjár- lagafrumvarpið og ræðu Þor- steins Pálssonar fjármálaráð- herra. Þess í stað rakti Geir hinn fáránlega aðdraganda umræð- Óskabarnið Þróunarfálagið skorið um þriðjung „Andvana fæddur armingi" var einkunn sem Þróunarfélaginu var gefið hér í blaðinu fyrir nokkrum dögum, þegar greint var frá því hversu illa hefði gengið að afla hlutafjár til þess. Nú hefur ríkisstjórnin bætt um betur því í tillögum um niður- skurð í fjárlagafrumvarpinu er framlag ríkisins skorið um þriðj- ung og verður 100 miljónir í stað 150 miljóna. Ólíklegt er því að óskabarn þeirra Steingríms Her- mannssonar og Þorsteins Páls- sonar verði það svar við kröfum tímans um nútímalega uppbygg- ingu atvinnulífsins, sem þeir hafa viljað vera láta. _ ÁI Danmörk Jóakim prins rekinn úr skóla Kaupmannahöfn — Jóakim prins af Danmörku sem var á skólaferðalagi hér á landi i haust hefur nú verið rekinn úr skóla vegna óiáta sem hann stóð fyrir á skólaskemmtun ekki alls fyrir löngu. Bróðir hans, Friðrik krónprins, slapp með áminningu. Jóakim var einn af átta nem- endum Öregaard menntaskólans í Kaupmannahöfn sem voru reknir í viku fyrir að hleypa upp skólaleiksýningu. Voru þeir með frammíköll og skutu að leikend- um sælgætismolum úr baunabyss- um. Á endanum neituðu leikar- arnir að halda áfram undir þess- ari orrahríð. Frétt þessi var birt í Berlingske Tidende í gær en að sögn Reuters var skólastjórinn ekki viðlátinn þegar leitað var staðfestingar hans. Talsmaður dönsku krún- unnar sagði hins vegar að frétt blaðsins „virtist vera rétt“. —ÞH/reuter unnar og Svavar þrumaði yfir landslýð svör Alþýðubandalags- ins við hinum miklu erfiðleikum sem nú steðja að heimilunum í landinu uppúr stjórnmálaály ktun landsfundar AB. Geir rifjaði upp hvernig Sjálf- stæðismenn hótuðu stjórnarslit- um í haust ef Framsökn ekki kyngdi frumvarpi Alberts en skunduðu síðan til Stykkishólms og lýstu plaggið ónothæft! Sagði Geir að eðlilegast hefði verið að stjórnin færi þá frá en því hefði ekki verið að heilsa, því stólaleik- urinn var næstur á dagskrá. Geir sagði að fjárveitinga- nefnd hefði nú í heilan mánuð setið yfir þessu sýndarplaggi meðan 6 manna nefnd stjórnar- liða, sem hann kallaði „slátur- leyfishafa“ hefði leitað samkomulags um boðaðan niður- skurð. Fjárveitinganefnd og þingflokkar stjórnarandstöð- unnar hefðu hins vegar ekkert fengið að vita fyrr en í gærmorg- un þegar takmörkuðum og síð- búnum hugmyndum hefði verið skotið inn á fund fjárveitinga- nefndar. „Slík vinnubrögð að leggja fram fjárlagafrumvarp sem flokkur fjármálaráðherra hafði afneitað og draga síðan að leggja fram boðaðar breytingar þar til sama dag og fjárlagaum- ræðan fer fram, eru með öllu ótæk og óþekkt svo langt sem ég man,“ sagði hann. „Þetta sýnd- arplagg er ekki umræðu virði.“ -ÁI Sjá leiðara og bls. 5 Laugavegur Grjót frá Portó fyrir IV2 miljón Þriðjungur afinn- flutta grjótinu í af- gang. Borgin situr uppi með innflutt grjótfyrir hálfa milj- ón. Göngusvæðið formlega tekið í notk- un á laugardag Borgarsjóður greiddi eina milj- ón fjögurhundruð og sautján þús- und krónur fyrir hellusteina sem fluttir voru inn til landsins frá Portúgal vegna endurbóta á neð- anverðum Laugaveginum. Þetta var upplýst í borgarráði í gær þegar svarað var fyrirspurn frá Sigurjóni Péturssyni um innflutn- ing á grjóti frá Portúgal. Borgaryfirvöld misreiknuðu sig á grjótinnflutningum því um þriðjungur af portúgalska grjót- inu varð afgangs og nýttist ekki í göngugötuna á Laugavegi. Borg- in situr því uppi með grjót sem kostaði í innflutningi nær hálfa miljón en innflutta grjótið sem fór í Laugaveginn kostaði 935 þúsund krónur að því er upplýst var í borgarráði í gær. Framkvæmdum við Laugaveg- inn frá Klapparstíg að Skóla- vörðustíg er nú lokið og verður göngusvæðið formlega opnað við hátíðlega athöfn á laugardaginn, lúðrablástur og tilheyrandi. í til- efni dagsins verða verslanir við Laugaveg og næsta nágrenni opn- að til kl. 16 síðdegis á Iaugardag. -lg- Innflutt grjót frá Portúgal í forgrunni. Grjót uppá hálfa miljón í afgang. Mynd: E.ÓI.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.