Þjóðviljinn - 13.11.1985, Síða 2
FRÉTTIR
Okur
Rekjum þetta upp
Rannsóknarlögreglunni verður vel ágengt í rannsókn okurmálsins.
Hallvarður Einvarðsson: Þetta kemur okkur á slóðfleiri okurlánara.
Húsleit um helgina. Þórir Oddsson: Málinufylgt eftir ogþvíhraðað.
Búnaðarbankinn: Látum heyra í okkur
að er unnið í þessu umfangs-
mikla okurmáli fram á nætur
hér hjá okkur og rannsókninni
miðar vel, bæði hvað varðar
gagnaöflun og yfirheyrslur.
Eg vona að svo verði áfram.
Það er viðbúið að í framhaldi af
þessu máli komist rannsóknar-
lögreglan á slóð margra annarra
okurlánara og við erum stað-
ráðnir í að rekja þetta kerfi upp,
sagði Hallvarður Einarsson
rannsóknarlögreglustjóri ríkisins
í samtali við Þjóðviljann í gær.
Hallvarður sagði einnig að
tugir manna væru viðriðnir mál
Hermanns Björgvinssonar, sem
nú er í gæsluvarðhaldi vegna ok-
urbrota, skattasvika og gjald-
eyrisbrota. „Þessir menn koma
úr ýmsum störfum í þjóðfé-
laginu," sagði Hallvarður.
Um helgina gerði rannsóknar-
lögreglan húsleit hjá ónafn-
greindum manni í Reykjavík og
sagði að sú aðgerð hefði verið tal-
svert þýðingarmikil fyrir rann-
sókn málsins. Þar hefðu fundist
gögn sem tengjast okurlána-
málinu.
í sögusögnum manna á meðal
eru margir nefndir til sögunnar
með nafni, þar á meðal þekktir
menn í bankakerfinu, lögfræð-
ingar, kaupmenn og fleiri.
Rannsóknarlögreglan hefur enn
ekki verið tilbúin að staðfesta
slíkt, neitar hvorki né játar.
Þjóðviljinn telur sig hafa heim-
ildir fyrir því að a.m.k. tveir hátt-
settir menn í Búnaðarbankanum
séu viðriðnir málið, en Jón Adoif
Guðjónsson bankastjóri Búnað-
arbankans vildi ekkert um það
Mér er sagt að næsta trompið
hjá Davíð borgarstjóra sé að
kaupa vatn frá Spáni.
segja í gær. „Við eigum eftir að
láta í okkur heyra vegna þessa
máls,“ sagði Jón.
Þórir Oddsson vararannsókn-
arlögreglustjóri sagði í samtali
við blaðið í gær, að þessu máli
verði fylgt eftir og hraðað eftir
mætti, en vildi annars ekki tjá sig
um einstök atriði.
-gg
Landhelgisgœslan
Stendur uppá
Jón
Breytir hinn
eindregni stuðningur
FFSImáli Höskuldar
Skarphéðinssonar?
„Það er ekki mitt að svara fyrir
þetta, heldur yfirmanna minna,“
sagði Gunnar Bergsteinsson for-
stjóri Landhelgisgæslunnar, þeg-
ar Þjóðviljinn innti hann eftir því
hvort hinn eindregni stuðningur
við Höskuld Skarphéðinsson
skipherra, sem fram kom á þingi
FFSÍ um síðustu helgi, ásamt
vantraustsyfirlýsingu á Gunnar,
myndi breyta einhverju varðandi
mál Höskulds.
Það er því Ijóst af þessu svari
Gunnars að nú stendur málið
uppá Jón Helgason dómsmála-
ráðherra, æðsta yfirmann Land-
helgisgæslunnar. Spurningin
stendur um það hvort kæra
Gunnars Bergsteinssonar for-
stjóra gæslunnar verður dregin til
baka og hefndaraðgerðum í garð
Höskuldar hætt eða hvort málið
verður látið halda áfram.
-S.dór
Þingið
Ólafur R. inn
fyrir
Guðmund J.
í gær tók Ólafur Ragnar
Grímsson sæti Guðmundar J.
Guðmundssonar á Alþingi en
Guðmundur er á förum á alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna
strax að loknu þingi Verka-
mannasambands íslands.
Kristín Ólafsdóttir tekur víða til hendinni. Mynd EÓI.
Landsfundur AB
Skarpari pólitík
Kristín Ólafsdóttir: Fleiri til að móta hana
Nú að loknum þessum lands-
fundi, er tækifæri fyrir hinn
almenna flokksmann og stuðn-
ingsmenn flokksins að taka þátt í
mótun þeirrar pólitíkur sem Al-
þýðubandalagið ætlar sér að
fylgja í náinni framtíð,“ sagði
Kristín Ólafsdóttir, nýkjörinn
varaformaður Alþýðubandalags-
ins, í samtali við Þjóðviljann í
gær.
„Þetta finnst mér vera númer
eitt varðandi flokksstarfið fram-
undan, að fá sem flesta til að ræða
það sem ég vil kalla „hugsjónapó-
litík“. Slík umræða þarf að vera
meira áberandi, hún þarf að
koma betur fram í málflutningi
okkar.
Ég tel mikla þörf á því að flokk-
urinn skýri sín mál, ekki síst í ljósi
síðustu stjórnarþátttöku. Þar
þurfti flokkurinn að gera ákveðn-
ar málamiðlanir sem birtast fólki
jafnvel enn í dag sem pólitík
flokksins."
- Nú hefur þú, ásamt öðrum,
talað um að beita þyrfti nýjum
aðferðum í starfi flokksins, getur
þú skýrt þetta nánar?
„Já, það er þá f.f. í tengslum
við það sem ég hef þegar nefnt,
að fá fleira fólk til að taka þátt í
mótun á pólitískri stefnu flokks-
ins. í því sambandi má benda á
skýrslu starfsháttanefndar frá
Landsfundinum. Þar er lagt til að
settir verði á stofn svonefndir
málefnahópar þar sem verði fólk
úr framkvæmdastjórn og þing-
flokki auk annarra flokksmanna
og stuðningsmanna. Sem dæmi
um mál sem þyrfti að taka svona
fyrir og getið er um í skýrslu
starfsháttanefndar má nefna
stjórnkerfisbreytingar, valddreif-
ingu og lýðræði, kvennapólitík,
stóriðju, herinn, Nató og friðar-
baráttu.
Það er ljóst að þetta starf fer
f.f. fram á suðvesturhorninu.
Þess vegna ætla ég að gefa það
sem í mínu valdi stendur til að
tengja félaga út um land við þessa
vinnu. Ég vil bara hvetja alla til
að kynna sér skýrslu starfshátta-
nefndarinnar sem birtist í Þjóð-
viljanum miðvikudaginn 6. nóv-
ember.
Ég tel að við stöndum vel að
vígi með breytingar á innra starfi
flokksins vegna þeirra miklu um-
ræðna sem fram hafa farið á síð-
ustu mánuðum og sjá má í niður-
stöðu af fyrrnefndri skýrslu. Hún
er traustur grunnur til að vinna á í
framtíðinni.
Þá er mér mikið í mun að
kvennastarfið innan flokksins
haldi áfram. Á næstunni verður
aðalfundur hjá Kvennafylking-
unni. Ég geri mér vonir um að frá
Kvennafylkingunni komi veru-
legt frumkvæði um kvennapólitík
í flokknum. Ég veit að víða um
land er mikill áhugi hjá konum í
flokknum, ekki síst eftir Kvenn-
astefnu sem var snemma á þessu
ári og kvennafundi sem voru á 10
stöðum á landinu í sumar. Bæjar-
og sveitarstjórnarkosningar á
næsta ári þarf að undirbúa með
það í huga að konur og ungt fólk
eigi þar stóran þátt.
En mig langar til þess að koma
aftur að málefnahópnum. Ég er
að vona að hann verði sá vett-
vangur sem margir hafa saknað,
til að ræða og meta pólitík flokks-
ins. Ég treysti því að margir fé-
lagar og stuðningsmenn Alþýðu-
bandalagsins séu tilbúnir til að
koma þar til starfa.“
IH
Dagvist
Það vakti athygli að Ólafur tók
ekki sæti í þingsölum fyrr en eftir
að beinu útvarpi lauk kl. 16 en
venjan er að tilkynna slík manna-
skipti í upphafi þingfundar. Var
sú skýring talin líklegust að for-
setar hefðu ekki treyst sér til að
hefja útvarpssendinguna á
auglýsingu fyrir Alþýðubanda-
lagið um þessi mannaskipti. Hafi
svo verið, höfðu forsetar ekki er-
indi sem erfiði, því sá Svavar
Gestsson fyrir í ræðu sinni um
kröftugar stefnuyfirlýsingar frá
landsfundi AB.
-ÁI
Vantar enn fóstrur
að vantar fóstrur og þær hef-
ur alltaf vantað en við erum
að auglýsa, sagði Bergur Felix-
son, framkvæmdastjóri dagvist-
arheimila Reykjavíkurborgar.
í haustbyrjun ríkti ófremdará-
stand á mörgum dagvistarstofn-
unum í Reykjavík. Sagði Bergur
að það hefði blessast enda hefði
fólk lagt sig fram um að láta það
blessast en fóstruskorturinn væri
enn áþreifanlegur. Starfi fóstr-
anna gegndi ófaglært starfsfólk
og væri mun auðveldara að fá það
til starfa. Sagði Bergur ennfrem-
ur að það væri of mikil einföldun
að segja að fóstruskorturinn staf-
aði einungis af lágum launum en
auðvitað ættu þau einhvern þátt í
skortinum. Það kæmi meðal ann-
ars fram í því að aðsókn í fóstur-
skólann væri minni en áður, til
dæmis væri skólinn einum bekk
minni í vetur en undanfarna vet-
ur.
Þjóðviljinn leitaði upplýsinga
um ástandið á þremur dagvistar-
stofnunum í Reykjavík. Yfir-
fóstra á Sunnuborg sagði að á-
standið væri með skárra móti. En
í haust hefðu veriö alveg manna-
skipti að undantekinni einni
fóstru, og kæmi það auðvitað nið-
ur á starfseminni. Á Völvuborg
fengust þær upplýsingar að þar
vantaði tvo starfsmenn en fóstrur
fengjust ekki til starfa þrátt fyrir
margendurteknar auglýsingar.
Sagði forstöðukonan ennfremur
að þegar hringt væri vegna aug-
lýsingar væri fólk fljótt að leggja
á þegar það heyrði hver launin
væru. Forstöðukona Hagaborgar
sagði að ástandið væri rétt að
komast í lag en það vantaði eina
fóstru og tvo ófaglærða starfs-
menn sem byrjuðu í haust og
hefðu hætt.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN