Þjóðviljinn - 13.11.1985, Síða 5

Þjóðviljinn - 13.11.1985, Síða 5
IDJÚÐVIIJINNI Umsjón: Álffheiður Ingadóftir AB - á þingi Nýsókn til betri kjara Á landsfundi sínum tók AB á þeim málum sem brenna á alþýðuheimilum og þjóðinni um þessar mundir: Hvað er ríkisstjórnin og alþingi að gera? Fjárlagarœða Svavars Gestssonar: Stœrsta efnahagsvandamál heimilanna erstefna ríkisstjórnarinnar „Ekki dettur mér í hug að eyða mörgum orðum að fjárlagafrum- vörpunum. Geir Gunnarsson hefur þegar sagt það sem segja þarf í þeim efnum. Þess í stað ætla ég að víkja að öðrum við- burði íslenskra stjórnmála síð- ustu dagana - landsfundi Al- þýðubandalagsins og þeim kaflaskiptum sem hann getur boðað í íslenskum stjórnmálum á næstunni. Þar kom fram allt í senn ný sókn, ný von og nýtt afl til að gera þær vonir að veruleika." Þannig hóf Svavar Gestsson tíu mínútna ræðu sína á alþingi í gær en þingmenn Alþýðubandalags- ins töluðu strax á eftir 45 mínútna ræðu Þorsteins Pálssonar um fjárlagafrumvarpið. Umræðunni var útvarpað. Sterkur samhentur flokkur „Andstæðingarnir voru að gera sér vonir um að Alþýðu- bandalagið yrði í tætlum eftir þennan landsfund. Útkoman er sú að andstæðingarnir hafa orðið fyrir vonbrigðum: Alþýðubanda- Iagið er sterkur, samhentur flokkur. Það var viljinn til sam- stöðu sem einkenndi fundinn og stjórnmálaályktunin var sam- þykkt samhljóða. Sömuleiðis ít- rekaði fundurinn stefnu flokksins í utanríkismálum: ísland úr NATO - herinn burt. Á lands- fundinum sýndi flokkurinn líka að hann hefur þrek til að gera upp mál með eindregnum hætti enda þótt í þeim felist uppgjör við fyrri áherslur. Alþýðubandalagið er flokkur sem þorir að gera upp málefni og kemur fram sterkari en áður þar sem samstaða um hugsjónir þjóðfrelsis og lýðræðis og jafnréttis, hugsjónir sósíal- ismans, er ofar öllu öðru. Burt með okurlána- stöðvar og ránskjara- vísitölu í samþykktum sínum tók landsfundurinn á þeim málum sem brenna á alþýðuheimilunum og þjóðinni um þessar mundir: Hann vill að okurlánastöðv- arnar verði bannaðar með lögum og fundinn annar verðtrygging- armælir en ránskjaravísitalan. Hann vill að tekin verði upp ný skattastefna, skattsektir marg- faldaðar og meðferð skattamála bætt. Fundurinn samþykkti þá stefnumótun að skattar verði hækkaðir á eignum umfram al- menna húsnæðisþörf og að skatt- aeftirlit yrði hert verulega frá því sem nú er. Þá verði meðferð skattaafbrotamála flýtt í dóms- kerfinu. Fundurinn krafðist aukinnar samneyslu og félags- legrar þjónustu þannig að skatt- astefnan verði forsenda betra velferðarþjóðfélags en áður. Jafnframt samþykkti fundurinn að fela flokknum að vinna að því að skattfríðindi fyrirtækja, stór- eignamanna og hátekjumanna verði afnumin. Bylting í húsnæðismálum Þá samþykkti fundurinn álykt- un í húsnæðismálum. Fyrst að verja fólk fyrir okurlánurunum með því að öll skuldabréf verði skráð á nafn og þau framtals- skyld. Þannig verði gróðaveitum . neðanjarðarhagkerfisins lokað. Alþýðubandalagið vill koma á heilsteyptu nýju húsnæðislána- kerfi þar sem bankar, opinberir sjóðir og lífeyrissjóðir myndi eina heild, en forsendan verði að hver einstaklingur þurfi ekki að verja meiru en tjórðungi dagvinnu- launa í húsnæðiskostnað. Það væri bylting í húsnæðismálum á fslandi. Það dugir heldur ekkert minna. Og tafarlaust verður að koma til móts við þá sem nú eru að verða gjaldþrota. Alþingi má ekki sitja aðgerðarlaust meðan heimilin eru á gjaldþrotabálinu. Kaupmáttartrygging og ný byggöastefna Landsfundurinn samþykkti sérstaka ályktun um kjaramál, þar sem lýst er stuðningi við bar- áttu verkalýðshreyfingarinnar fyrir kaupmáttartryggingu. Þá var samþykkt ályktun um að endurmat fari fram á störfum kvenna sem búa við enn verri kjör en aðrir á vinnumarkaði. í stjórnmálaályktun lands- fundarins var samþykkt að berj- ast fyrir nýrri byggðastefnu með auknu valdi heimamanna meðal annars til þess að ráðstafa opin- berum fjármunum til samfélags- legra verkefna. Landsfundurinn samþykkti einnig nýja sókn í atvinnulífínu sem forsendu batnandi lífskjara til frambúðar. í hinni íslensku at- vinnustefnu er bent á margþætta möguleika íslensks þjóðarbús á öllum sviðum, en sérstaklega í sjávarútvegi og hátæknigreinum, til þess að auka verðmæti þjóð- arframleiðslunnar svo nemur miljörðum króna. Þannig vísaði landsfundurinn til bjartari fram- tíðar út úr kreppu hægri stjórnar- innar. En flokkurinn benti einnig á leiðir til þess að bæta kjörin hér og nú með því að skipta því jafnar sem þegar er til. Fundurinn vísaði til þess að við lifum nú metafla ár og þar með stórauknar þjóðar- tekjur. Það á því að vera hægt að knýja fram kröfur um hærra kaup og kaupmáttartryggingu. Burtu með ríkisstjórnina Vissulega er það þó talið nær- tækasta og brýnasta verkefnið í íslenskum stjórnmálum um þess- ar mundir að koma ríkisstjórn- inni frá. í stjórnmálaályktuninni er því slegið föstu að stærsta efna- hagsvandamál heimilanna og framleiðsluatvinnuveganna sé ríkisstjórnin og stefna hennar. Nú er verið að sauma svo að fjár- hag heimilanna að fjölskyldurnar eru þúsundum saman í hættu fyrir gróðahyggjunni og afleiðingum af stefnu hennar. Alþýðubandalagið boðar nýja sókn. En í stefnu landsfundar Ál- þýðubandalagsins birtist líka sú von sem getur breytt sókninni í batnandi lífskjör. Það kemur fram í því að unga fólkið er með okkur - hefur aldrei verið eins sterkt á landsfundum Alþýðu- bandalagsins og nú, það kemur fram í því að við ætlum að gera flokkinn að betra baráttutæki fyrir alþýðu þessa lands og síðast en ekki síst kemur það fram í mjög myndarlegri aðild forystu- manna úr verkalýðshreyfingunni að forystusveit flokksins. Breytum vonum í veruleika Það er ekkert nýtt að stjórnmálaflokkar geri sam- þykktir á landsfundum sínum um stefnumál og starfshætti. En það sem ræður þó úrslitum er aflið, hið þjóðfélagslega afl til þess að hrinda hinni nýju sókn af stað, til þess að brcyta vonum í veruleika. Það afl er í Alþýðubandalaginu. Þess vegna eiga nú að vera for- sendur til þess að skapa einingu hinnar faglegu og pólitísku bar- áttu til þess að hefja hina nýju sókn, til þess að breyta vonum í veruleika. Það sem hefur háð verkalýðs- hreyfingunni og stjórnarandstöð- unni á undanförnum tveimur árum er einmitt skortur á slíkri heildarsamstöðu. Nú er tækifæri til þess að efla hana og styrkja. Reynslan sýnir að þetta samein- aða afl og ekkert annað getur brotið niður múra afturhaldsins. Þeir umlykja nú alþýðuheimilin í landinu og skapa svartsýni og landflótta. En þessa múra er hægt að brjóta niður ef við stillum sam- an í cina fylkingu hina faglegu og pólitisku baráttu. í samþykktum landsfundar Alþýðubandalagsins birtast því ekki aðeins óskir held- ur kemur fram í landsfundinum ein órofa hcild stefnu og starfs og loks afl til að hrinda stefnunni I framkvæmd og það er aðalat- riðið.“ Miðvikudagur 13. nóvember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.