Þjóðviljinn - 13.11.1985, Qupperneq 5
IDJÚÐVIIJINNI
Umsjón:
Álffheiður
Ingadóftir
AB - á þingi
Nýsókn
til
betri
kjara
Á landsfundi sínum tók AB á þeim málum sem brenna á alþýðuheimilum og þjóðinni um þessar mundir: Hvað er
ríkisstjórnin og alþingi að gera?
Fjárlagarœða Svavars Gestssonar:
Stœrsta efnahagsvandamál heimilanna erstefna ríkisstjórnarinnar
„Ekki dettur mér í hug að eyða
mörgum orðum að fjárlagafrum-
vörpunum. Geir Gunnarsson
hefur þegar sagt það sem segja
þarf í þeim efnum. Þess í stað
ætla ég að víkja að öðrum við-
burði íslenskra stjórnmála síð-
ustu dagana - landsfundi Al-
þýðubandalagsins og þeim
kaflaskiptum sem hann getur
boðað í íslenskum stjórnmálum á
næstunni. Þar kom fram allt í
senn ný sókn, ný von og nýtt afl til
að gera þær vonir að veruleika."
Þannig hóf Svavar Gestsson tíu
mínútna ræðu sína á alþingi í gær
en þingmenn Alþýðubandalags-
ins töluðu strax á eftir 45 mínútna
ræðu Þorsteins Pálssonar um
fjárlagafrumvarpið. Umræðunni
var útvarpað.
Sterkur samhentur
flokkur
„Andstæðingarnir voru að
gera sér vonir um að Alþýðu-
bandalagið yrði í tætlum eftir
þennan landsfund. Útkoman er
sú að andstæðingarnir hafa orðið
fyrir vonbrigðum: Alþýðubanda-
Iagið er sterkur, samhentur
flokkur. Það var viljinn til sam-
stöðu sem einkenndi fundinn og
stjórnmálaályktunin var sam-
þykkt samhljóða. Sömuleiðis ít-
rekaði fundurinn stefnu flokksins
í utanríkismálum: ísland úr
NATO - herinn burt. Á lands-
fundinum sýndi flokkurinn líka
að hann hefur þrek til að gera upp
mál með eindregnum hætti enda
þótt í þeim felist uppgjör við fyrri
áherslur. Alþýðubandalagið er
flokkur sem þorir að gera upp
málefni og kemur fram sterkari
en áður þar sem samstaða um
hugsjónir þjóðfrelsis og lýðræðis
og jafnréttis, hugsjónir sósíal-
ismans, er ofar öllu öðru.
Burt með okurlána-
stöðvar og ránskjara-
vísitölu
í samþykktum sínum tók
landsfundurinn á þeim málum
sem brenna á alþýðuheimilunum
og þjóðinni um þessar mundir:
Hann vill að okurlánastöðv-
arnar verði bannaðar með lögum
og fundinn annar verðtrygging-
armælir en ránskjaravísitalan.
Hann vill að tekin verði upp ný
skattastefna, skattsektir marg-
faldaðar og meðferð skattamála
bætt. Fundurinn samþykkti þá
stefnumótun að skattar verði
hækkaðir á eignum umfram al-
menna húsnæðisþörf og að skatt-
aeftirlit yrði hert verulega frá því
sem nú er. Þá verði meðferð
skattaafbrotamála flýtt í dóms-
kerfinu. Fundurinn krafðist
aukinnar samneyslu og félags-
legrar þjónustu þannig að skatt-
astefnan verði forsenda betra
velferðarþjóðfélags en áður.
Jafnframt samþykkti fundurinn
að fela flokknum að vinna að því
að skattfríðindi fyrirtækja, stór-
eignamanna og hátekjumanna
verði afnumin.
Bylting í
húsnæðismálum
Þá samþykkti fundurinn álykt-
un í húsnæðismálum. Fyrst að
verja fólk fyrir okurlánurunum
með því að öll skuldabréf verði
skráð á nafn og þau framtals-
skyld. Þannig verði gróðaveitum .
neðanjarðarhagkerfisins lokað.
Alþýðubandalagið vill koma á
heilsteyptu nýju húsnæðislána-
kerfi þar sem bankar, opinberir
sjóðir og lífeyrissjóðir myndi eina
heild, en forsendan verði að hver
einstaklingur þurfi ekki að verja
meiru en tjórðungi dagvinnu-
launa í húsnæðiskostnað. Það
væri bylting í húsnæðismálum á
fslandi. Það dugir heldur ekkert
minna. Og tafarlaust verður að
koma til móts við þá sem nú eru
að verða gjaldþrota. Alþingi má
ekki sitja aðgerðarlaust meðan
heimilin eru á gjaldþrotabálinu.
Kaupmáttartrygging
og ný byggöastefna
Landsfundurinn samþykkti
sérstaka ályktun um kjaramál,
þar sem lýst er stuðningi við bar-
áttu verkalýðshreyfingarinnar
fyrir kaupmáttartryggingu. Þá
var samþykkt ályktun um að
endurmat fari fram á störfum
kvenna sem búa við enn verri
kjör en aðrir á vinnumarkaði.
í stjórnmálaályktun lands-
fundarins var samþykkt að berj-
ast fyrir nýrri byggðastefnu með
auknu valdi heimamanna meðal
annars til þess að ráðstafa opin-
berum fjármunum til samfélags-
legra verkefna.
Landsfundurinn samþykkti
einnig nýja sókn í atvinnulífínu
sem forsendu batnandi lífskjara
til frambúðar. í hinni íslensku at-
vinnustefnu er bent á margþætta
möguleika íslensks þjóðarbús á
öllum sviðum, en sérstaklega í
sjávarútvegi og hátæknigreinum,
til þess að auka verðmæti þjóð-
arframleiðslunnar svo nemur
miljörðum króna. Þannig vísaði
landsfundurinn til bjartari fram-
tíðar út úr kreppu hægri stjórnar-
innar.
En flokkurinn benti einnig á
leiðir til þess að bæta kjörin hér
og nú með því að skipta því jafnar
sem þegar er til. Fundurinn vísaði
til þess að við lifum nú metafla ár
og þar með stórauknar þjóðar-
tekjur. Það á því að vera hægt að
knýja fram kröfur um hærra
kaup og kaupmáttartryggingu.
Burtu með
ríkisstjórnina
Vissulega er það þó talið nær-
tækasta og brýnasta verkefnið í
íslenskum stjórnmálum um þess-
ar mundir að koma ríkisstjórn-
inni frá. í stjórnmálaályktuninni
er því slegið föstu að stærsta efna-
hagsvandamál heimilanna og
framleiðsluatvinnuveganna sé
ríkisstjórnin og stefna hennar.
Nú er verið að sauma svo að fjár-
hag heimilanna að fjölskyldurnar
eru þúsundum saman í hættu fyrir
gróðahyggjunni og afleiðingum
af stefnu hennar.
Alþýðubandalagið boðar nýja
sókn. En í stefnu landsfundar Ál-
þýðubandalagsins birtist líka sú
von sem getur breytt sókninni í
batnandi lífskjör. Það kemur
fram í því að unga fólkið er með
okkur - hefur aldrei verið eins
sterkt á landsfundum Alþýðu-
bandalagsins og nú, það kemur
fram í því að við ætlum að gera
flokkinn að betra baráttutæki
fyrir alþýðu þessa lands og síðast
en ekki síst kemur það fram í
mjög myndarlegri aðild forystu-
manna úr verkalýðshreyfingunni
að forystusveit flokksins.
Breytum vonum
í veruleika
Það er ekkert nýtt að
stjórnmálaflokkar geri sam-
þykktir á landsfundum sínum um
stefnumál og starfshætti. En það
sem ræður þó úrslitum er aflið,
hið þjóðfélagslega afl til þess að
hrinda hinni nýju sókn af stað, til
þess að brcyta vonum í veruleika.
Það afl er í Alþýðubandalaginu.
Þess vegna eiga nú að vera for-
sendur til þess að skapa einingu
hinnar faglegu og pólitísku bar-
áttu til þess að hefja hina nýju
sókn, til þess að breyta vonum í
veruleika.
Það sem hefur háð verkalýðs-
hreyfingunni og stjórnarandstöð-
unni á undanförnum tveimur
árum er einmitt skortur á slíkri
heildarsamstöðu. Nú er tækifæri
til þess að efla hana og styrkja.
Reynslan sýnir að þetta samein-
aða afl og ekkert annað getur
brotið niður múra afturhaldsins.
Þeir umlykja nú alþýðuheimilin í
landinu og skapa svartsýni og
landflótta. En þessa múra er hægt
að brjóta niður ef við stillum sam-
an í cina fylkingu hina faglegu og
pólitisku baráttu. í samþykktum
landsfundar Alþýðubandalagsins
birtast því ekki aðeins óskir held-
ur kemur fram í landsfundinum
ein órofa hcild stefnu og starfs og
loks afl til að hrinda stefnunni I
framkvæmd og það er aðalat-
riðið.“
Miðvikudagur 13. nóvember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5