Þjóðviljinn - 13.11.1985, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 13.11.1985, Qupperneq 7
DJÚÐVIUINN Umsjón MÖRÐUR ÁRNASON Bók eftir Magnús Magnússon: Lesum Biblíuna eins og íslendinga- sögur sjónvarpið þessa þætti Magn- úsarMagnússonar. Upphaf- lega ætlaði Magnús sér að- eins að skrifa bók um efnið en breska sjónvarpið bað hann að gera um það sjónvarps- þætti og varð hann við því. Eflaust á þessi bók Magnúsar Magnússonar eftir að valda ein- hverjum deilum og óhjákvæmi- lega vekur hún ýmsar spurningar. Hvaða leyndardóma hafa forn- leifafræðingar t.d. uppgötvað þarna að undanförnu? Hvernig ríma þær uppgötvanir saman við frásagnir Biblíunnar? Hver verða viðbrögð manna þegar sagan og Biblían eru endurskoðaðar í ljósi nýjustu fornleifafunda? Og þannig má áfram spyrja. En hvað um það. Ljóst er að Magnús Magnússon hefur kannað og unn- ið úr aragrúa lítt kunnra heimilda og birtir niðurstöður sínar á al- þýðlegan, skýran og skilmerki- íegan hátt. Vel má komast svo að orði, að bókin sé einskonar vega- handbók um söguslóðir Biblí- Út er komin hjá Erni og Örlygi bókin Á söguslóðum Biblíunn- ar, eftir hinn nafnkunna sjón- varpsmann í Bretlandi, Magn- ús Magnússon. Segja má, að hér sé skyggnst á bak við og byggt á þáttum, sem sýndir voru í breska sjónvarpinu og gátu sér þar mikið frægðar- orð. Síðan sýndi svo íslenska Magnús Magnússon á blaðamannafundinum: Úr hverskonar jarðvegi er Biblían sprottin? Ljósm. SM. unnar og jafnframt lykill að Austurlöndum nær. A fundi með fréttamönnum, þar sem bókin var kynnt, sagði Magnús Magnússon m.a. að Biblían væri heimur hugmynda en menn vissu ekki svo glöggt um sumar söguslóðir hennar: „Hún er mikið bókmenntaverk og besta leiðin til þess að skrifa þessa bók var að lesa Biblíuna á sama hátt og íslendingasögurnar. Hún segir okkur í raun meira um þá, sem skrifuðu hana, en hina, sem hún fjallar um. Annars geta allir lesið og skilið þessa bók mína á þann veg sem þeir vilja. Ég fór sjálfur á alla þessa staði, sem bókin fjallar um. Það tók fjóra mánuði að safna efninu saman, fjóra mánuði að filma það og sex mánuði að skrifa texta bókarinnar. Það var ákaflega gott og skemmtilegt að hitta fólk- ið á þessum slóðum og eiga við- ræður við það“. Einhver skaut fram spurningu um hvort Magnús væri maður trúaður. Hann svaraði um hæl: Ég trúi á Óðin en er samt ekki Ásatrúar. Hver er svo tilgangurinn með ritun þessarar bókar? Magnús segir hann vera þann að skoða sem nákvæmlegast alla þá þætti í bókmenntum, sögu, félagsmál- um, trúarbrögðum og stjórnmál- um Austurlanda nær, sem lögðu grunn að Biblíunni: „Hún er ekki í neinu tómarúmi. Hún var skrif- uð löngu eftir að þeir atburðir gerðust, sem hún greinir frá. Menn öðlast því aðeins betri skilning á henni í heild að þeir glöggvi sig á menningarlegu sam- hengi þess umhverfis þar sem hún er skrifuð og þess samfélags, sem hún er skrifuð fyrir. Það gerist ekki nema menn kynnist þjóðum og menningarheildum umhverfis hið forna Ísraelsríki en ekki að- eins sögu þess sjálfs. Þannig fáum við meiri fróðleik um sögu Palest- ínu en Biblían veitir. Forsaga þessara þjóða, goðafræði, heims- mynd þeirra og sagnir, átti allt hlut í að móta þá mynd, sem Bib- lían sýnir af þessari löngu liðnu tíð. Það er svo þeirra, sem bókina lesa, að svara því, hvort þessi til- ganur hefur náðst“. Á söguslóðum Biblíunnar er tileinkuð dr. James B. Pitchard, forstjóra Safns Pennsylvaníuhás- kóla. Bókin er mjög vel þýdd af Degi Þorleifssyni, prýdd miklum fjölda korta og teikninga eftir Shirley Felts, sett og prentuð í Leturvali og bundin í Ungverja- landi. Frágangur bókarinnar er allur til fyrirmyndar. -mhg Örn og Qrlygur; Ný íslandsbók Örn og Örlygur hefur sent frá sér landkynningarbók á ensku um ísland og íslendinga eftir Pa- melu Sanders og Roloff Beny. Hún heitir Iceland 66° North. Pamela Sanders er betur þekkt sem eiginkona Brements sendi- herra Bandaríkjanna hér á landi til skamms tíma. Hún hefur starf- að við fréttamennsku og samið skáldsögu og þessi bók er byggð á ferðalögum hennar um landið með ljósmyndaranum Roloff Beny og öðru föruneyti. Að sumu leyti svipar textanum til ferðabóka fyrri alda: svipmyndir úr samtímanum blandast saman við upprifjum sögu og bók- mennta, ekki síst íslendinga- sagna. Roloff Beny var heimskunnur ljósmyndari, ættaður frá Kanada en búsettur í Róm. Hann vann til fjölda viðurkenninga fyrir mynd- ir og bókahönnun. Síðasta verkið sem hann vann var að taka ljós- myndir á íslandi í þessa bók, en hann lést nokkrum mánuðum áður en hún kom út. í ritdómi um þessa bók í „The Good Book Guide” í London segir á þá leið, að í skoðanakönn- un hafi komið í ljós að íslending- ar séu hamingjusamasta þjóð heims. „Þessi stórkostlega bók varpar ljósi á hvers vegna þeir eru það”. ~áb Maðurinn er það sem hann vœri Þórarinn Eldjárn. Margsaga Gullbringa 1985. Það er best að taka það fram strax, að Þórarinn Eldjárn er aldrei leiðinlegur og ekkert gerir hann kauðalega. Hitt er svo ann- að mál að stundum getur gaman- ið orðið smátt og metnaðarlítið, kannski einskonar framhald af skólastrákagamni. Dæmi eru um slíkt í þessu smásagnasafni hans og nefni ég helst til Völin á möl- inni, sem er syrpa smárra brota sem einhver úr slektinu Kjögx er skrifaður fyrir, en það fólk er mikið á kreiki í þessum sögum sem einskonar bindiefni. Sumir þessir textar eru örstutt- ir og kannski ekki mikið meira en leikur að tilbrigðum við mögu- leika eins og þann að kalla vegg- fóður í herbergi skoðun. Lesand- inn getur einnig búist við því að undir einföldum og knöppum texta leynist furðu mikill þungi eins og til dæmis á þeirri rúmu blaðsíðu sem kallast Konu sakn- að. Þetta eru prósaþættir ljóð- skálds og við erum oftar en ekki minnt á það. Það kemur fyrir að Þórarinn ofgeri eins og þegar hann kemur einum sérstæðum menningarvita fyrir uppi í gamla slökkviliðsturn- inum við Tjörnina og klæðir turn- inn utan með fílabeini til þess að ekkert fari nú á milli mála. En slíkar syndir eru afar sjaldgæfar í þessari bók. Miklu heldur veit lesandinn af þvi', að Þórarinn kann þá list að koma sínu fram með sparsömum ráðum og ísmeygilegum. í sögunni Yxu víur hefur orðið sá „listræni próf- arkamaður” sem hefur fundið sinn tilgang í lífinu með því að skila bókum frá sér villulaust. Og í leiðinni er sagan skot í fínlegri sveiflu á þann íslenska „taóisma” sem er á leið út í klisju eins og annað (ekkert verk er auvirðu- legt sé þaðunniðaflífiogsál). Og um leið skot á þá, sem þykjast geta verið upp yfir öll „kerfi” hafnir, einkum þjóðfélagið og það jukk allt. En eru raunalega læstir í sitt eigið kerfi (hér er það stafsetningarkerfið blessað) og eru fallnir menn um leið og það hrynur. í sögunni „Litla stund hjá Hansa” segir frá bankastjóra og hagfræðiséníi sem fer að spila á blokkflautu, en slíkt gera ekki virðulegir menn. Sá þáttur segir margt um kunnáttu Þórarins í því að spinna saman háð, leik og dap- urleika. í „Eigandinn” segir frá kennara sem hefur eignað sér reiðhjól á hæpnum forsendum og óttast að það verði frá honum tekið og þar er farið skemmtilega Þórarinn Eldjárn. nærri þeim tóni sem Þórbergur blístraði þegar hann brá á leik. Og eins og svo margir höfund- ar aðrir skrifar Þórarinn um það að skrifa. Tvær sögur kallast á um það stef. Önnur er „Ókvæða við”. Þar hefur einn Kjögxinn orðið, skáid sem hefur sett saman tíu bækur og er beðinn um að gefa út „ömurleg hugarfóstur” látins vinar, sem var mikill raun- vísindamaður og verkfræðiséní. Og heldur en að láta þann leir og það rugl á prent bregður hann á það ráð að brenna bókmennta- arfi vinarins og gefa út afgangs- ljóð úr eigin fórum undir nafni hins látna. Og þá bregður svo við, að afgangsljóðin verða efni í skáldfrægð mikla hinum látna til handa og menn „harma að hann skyldi ekki hafa látið neitt frá sér fara fyrr”. Sú setning sem hér var til vitn- að vísar svo á eftirminnilegustu sögu þessarar litlu bókar „Mað- urinn er það sem hann væri”. En þar hefur ungur höfundur orðið og segir frá lærimeistara sínum ódauðlegum, Skúla W. Skíðdal, sem var sannur „höfðingi í andans ríki” og mikils metinn rit- höfundur. Eins þótt höfuð- einkenni hans væri það, að skrifa aldrei orð heldur láta það vera að semja þau verk sem hann setti saman í huganum „eftir innri bar- áttu og þrotlaust starf”. í þessari sögu fær afar slóttuga afgreiðslu þjóðsagan íslenska um þá merku menn og snillinga, sem hefðu getað náð svo langt ef þeir hefðu bara skrifað eitthvað, um þá snilld sem býr í heilabúum og leyndum skúffum og enginn fær að skoða og prófa og í leiðinni fær tungutak bókmenntafræða og gagnrýni vel lukkaða kveðju. Það er haft eftir Skúla W. Skíðdal að „enginn annar höfundur hefur þorað að velja sér þetta birting- arform”, m.ö.o. - að þegja. Bravó! Og það er mikið gefandi fyrir þessa setningu hér, þegar sögumaður og lærisveinn Skúla er að tala um þau áhrif, sem hann hefur hugsanlega orðið fyrir af sínum meistara: „Þær bækur sem við höfum látið vera að senda frá okkur eru þó í raun gjörólíkar”. Árni Bergmann. Miðvikudagur 13. nóvember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.