Þjóðviljinn - 13.11.1985, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 13.11.1985, Qupperneq 9
HEIMURINN Undirbúningur leiötogafundarins í Genf sem hefst í næstu viku er nú að komast í hámark. Ekki hefur skort á dramatíska atburði og ber þar einna hæst mál sovétmannsins Júrtsénkós sem gerðist landflótta í sumar en sneri aftur heim í haust. Hér hefur skopteiknari gert sér mat úr þessu máli. Starfsmenn CIA eru að undirbúa Reagan fyrir fundinn og segja: ...og þó Gorbatsjof falli á kné og biðji um landvistarleyfi kemurðu ekki með hann hingað til Bandaríkjanna. Mið-Ameríka Nást samningar? Luxemborg, Managua— Horfur eru sagöar hafa minnkað á því að undirritaður verði samning- ur um að koma á friði í Mið- Ameríku þann 20. þm. eins og til stóð. Að þeim samningi hyggjast aðildarríki Efnahags- bandalags Evrópu standa ásamt svonefndum Conta- dora-ríkjum og sex löndum í Mið-Ameríku. Ástæðan er sú að illa gengur að koma á samkomulagi með síðasttalda ríkjahópnum. EBE-ríkin tóku undir friðar- viðleitni Contadora-ríkjanna fjögurra — Mexíkó, Venezuela, Kólumbíu og Panama — en á- greiningur ríkjanna sex sem frið- urinn á að ná til er enn svo mikill að óvíst má telja hvort hægt verði að undirrita samninginn í þessum mánuði. Annars vegar stendur Nicarag- ua sem neitar að fallast á ákvæði samningsins um niðurskurð her- afla nema Contadora-ríkjunum Líbería Tvisynt um örlög forsetans Abidjan — Svo virtist í gær- kvöldi sem hersveitir hollar Samuel Doe forseta Líberíu hefðu að mestu brotið á bak aftur tilraun sem gerð var til valdaráns í landinu í gær. Enn var þó óljóst hvað í raun og veru gerðist í gær eftir að fyrrum yfirmaður herafla landsins, Thomas Quiwonkpa, lýsti því yfir að hann hefði steypt Doe af stóli. Fréttastofur og erlendir sendi- menn í Monrovíu, höfuðborg Lí- beríu, fylgdust með atburðum í gegnum þrjár útvarpsstöðvar sem reknar eru í landinu. Um tíma í gærmorgun voru þær allar á valdi Quiwonkpa og hans manna Vestur-Þýskaland Herínn þrítugur Bonn — í gær var þess minnst í Vestur-Þýskalandi að 30 ár eru liðin frá því her landsins var stofnaður. Mjög blendnar til- finningar bærast með þjóð- verjum í garð hersins og valda því ófagrar minningar um framferði þýska hersins í síðari heimsstyrjöldinni. Úti fyrir varnarmálaráðuneyt- inu í Bonn söfnuðust saman um 150 manns og höfðu meðferðis afmælistertu úr plasti en í stað kerta sköguðu upp af henni eftir- líkingar af eldflaugum. Varnár- málaráðherrann, Manfred Wörner, heiðraði fyrstu sjálfboð- aliðana sem gengu í herinn í nóv- ember árið 1955. Margir mótmælenda létu í ljósi þá skoðun að það væri rangt af vesturþjóðverjum að halda uppi fastaher. Forseti Vestur- Þýskalands, Richard von Weizacker, og framkvæmda- stjóri Nató, Carrington lávarður, voru ekki á sama máli er þeir héldu ræður við hátíðarhöldin í Bonn í gær. Carrington sagði að það væri erfitt verk að viðhalda friði og nauðsynlegt fyrir vestræn ríki að halda í við sovétmenn í hernaðarmætti. Hátíðarhöldunum verður haldið áfram í dag. en þeir lýstu því yfir að þeir hefðu tekið völdin til að frelsa þjóðina úr áþján „ótta og grimmdar". Að sögn erlendra sendimanna brugðust íbúar höfuðborgarinnar við fréttinni á þann hátt að fjöl- menna út á götur og safnaðist fagnandi mannfjöldi saman úti fyrir aðalstöðvum stjómarand- stöðuflokksins Líberíska sóknar- flokksins. Sendimennirnir sögðu að svo virtist sem átök hefðu orðið við forsetahöllina. Þegar líða tók á daginn virtust fylgismenn Doe forseta vera búnir að ná amk. tveimur útvarpsstöðvum á sitt vald. Ónafngreindur maður sem kvaðst vera talsmaður Doe hvatti íbúa landsins til að berjast gegn Quiwonkpa. Var talið að sveitir úr lífverði forsetans og stórskota- liði hersins hefðu gripið til vopna gegn uppreisnarmönnum. Doe komst til valda í vopnaðri uppreisn fyrir fimm árum en þá höfðu afkomendur frelsaðra blökkumanna frá Bandaríkjun- um ráðið lögum og lofum í landinu í 133 ár. Ekki naut Doe mikilla vinsælda. Honum voru mislagðar hendur við stjórn landsins auk þess sem hann þótti einráður. Bandaríkjamenn eiga mikilla hagsmuna að gæta í landinu og lögðu bandarísk stjórnvöld hart að Doe að efna til frjálsra kosninga. Kosningarnar fóru loksins fram 15. október sl. en opinber úrslit þeirra voru þau að Doe var kjörinn forseti með 51% at- kvæða. Andstæðingar hans þrír vildu ekki sæta þeim úrslitum og héldu því fram að umfangsmikil kosningasvik hefðu verið við- höfð. I því nutu þeir stuðnings erlendra blaðamanna og annarra sem urðu sjónarvottar að svindli með atkvæðaseðla. Nokkrum sinnum á valdaferli Doe hefur verið reynt að steypa honum úr stóli og myrða hann. Eftir eina valdaránstilraunina fyrir tveimur árum var Thomas Quiwonkpa eftirlýstur og hverj- um þeim sem haft gat uppi á hon- um lifandi eða dauðum heitið 400 þúsundum króna í verðlaun. Qu- iwonkpa tókst að komast úr landi og var hann í útlegð þangað til í gær. Líbanon Sjálfcmorðsáras í Beirút Beirut—Oþekktur maður gerði sjálfsmorðsárás á kirkju í austurhluta Beirut í Líbanon með því að aka pallbíl hlöðnum sprengiefni að bygg- ingunni þar sem leiðtogar kristinna manna í Líbanon héldu fund. Fjórir létust í árás- inni að frátöldum ökumannin- um og 19 slösuðust. Talið er að í bílnum hafi verið 400 kíló af sprengiefni. Bílstjór- inn ók framhjá vörðum við bygg- inguna og hófu þeir þá skothríð sem olli því að bíllinn sprakk í loft upp örfáa metra frá skotmarki sínu. Stór hluti kirkjunnar hrundi en minni skemmdir urðu á þeim hluta sem hýsti fund hægrisinn- aðra kristinna manna sem nefna sig Líbönsku fylkinguna. Samtök þessi hafa lýst yfir and- stöðu sinni við friðaráætlun sem sýrlendingar hafa samið og átti að taka gildi í landinu fyrir 10 dögum. Framkvæmd þeirrar áætlunar hefur strandað á and- stöðu falangista og annarra sam- taka kristinna hægrimanna sem telja hana riðla þeim valdahlut- fóllum sem ríkja í Líbanon en þau eru mjög hagstæð kristnum. Engan fundarmanna sakaði al- varlega en Camille Chamoun fyrrum forseti Lfbanon og Dany sonur hans fengu skrámur og for- maður flokks falangista, Elie Karameh, og tveir fundarmenn til viðbótar voru fluttir á sjúkra- hús með minniháttar meiðsl. takist að fá Bandaríkin til að láta af stuðningi við Contra-skærulið- ana í landinu. „Hvernig er hægt að krefjast þess af ríki sem liggur undir árásum að það semji um afvopnun og niðurskurð he- rafla?“ spurði Miguel dÉscoto utanríkisráðherra Nicaragua á blaðamannafundi í Luxemborg í gær. Á hinn bóginn eru svo önnur ríki Mið-Ameríku, þe. Hondur- as, Costa Rica, Guatemala, E1 Salvador og Panama. Stjórnvöld í Honduras hafa ráðist á stjórnina í Nicaragua fyrir íhlutun í málefni annarra ríkja og að leggja stein í götu Contadora-hópsins. Við lá á fundunum sem haldnir hafa verið í Luxemborg undanfarna daga að fulltrúar ríkjanna sex gengju á dyr en Contadora-hópnum tókst að halda þeim við efnið og fá rík- in til að fallast á ýmis atriði samn- ingsdraganna, svo sem að þau muni berjast gegn „hryðjuverk- astarfsemi", vinna að brottflutn- ingi allra erlendra herja af svæð- inu og virða pólitísk stefnumið hvert annars. Yfirstandandi fundalotu átti að ljúka í gærkvöldi og töldu sumir sendimenn frá Rómönsku Amer- íku von til þess að samningar næðust. Embættismenn EBE voru á hinn bóginn svartsýnir á að takast myndi að brúa bilið á milli Nicaragua og nágrannaríkja þess. 0g þetta Uka... ...Alan Garcia forseti Perú hvatti í gær ríki Rómönsku Ameríku til að leggja ágreiningsefni sin tii hliðar og taka höndum saman í barátt- unni gegn Alþjóða gjaldeyris- sjóðnum sem haida ríkjum álfunn- ar í efnahagslegum heljargreipum vegna mikillar skuldabyrði. Sagði Garcia að stjórn sín hefði ákveðið að halda sjóðnum utan við þá við- reisn efnahagslífsins sem nú væri hafin í Perú... ...Þeir sem drekka fimm boila eða meira á dag af kaffi eru í þrefalt meiri hættu á að verða hjartasjúk- dómum að bráð en þeir sem láta þenna vinsæla drykk aiveg vera. Þannig hljóða niðurstöður rannsókna sem gerðar hafa verið á 1.130 hvítum bandarískum karl- mönnum en þær hafa staðið yfir í aldarfjórðung... ERLENDAR FRÉTTIR haraldsson/REUIER ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Svíþjóð Upphlaup herforingja Frá Birni Guðbrandssyni, fréttaritara Þjóðviljans í Gautaborg: Tólf foringjar í sænska flotanum hafa opinberlega lýst yfir óánægju sinni með meðferð ríkisstjórnarinnar á kafbátamálunum svokölluðu. Telja þeir ríkisstjórnina ekki taka málin nægjanlega alvarlega og að hún sé of upptekin við að halda uppi eðlilegum samskiptum við sovét- menn. Reyndar hefur ekkert bent til þess að meintir kafbátar séu endilega sovéskir, ef undan er skilið kafbátsstrandið úti fyrir Karlskrona fyrir þremur árum. Lennart Bodström fyrrverandi utanríkisráðherra lenti einmitt í embættisvandræðum er hann benti á þá staðreynd í sænska þinginu í fyrravetur. Hortugheit herforingjanna hafa almennt mælst illa fyrir hjá stjórn- málamönnum, bæði þeim sem styðja stjórnina og þeim sem eru í stjórnarandstöðu. Líklegt er að með þessu sé flotinn að kría út meiri peningásænsku fjárlögunum. Það mun einstætt að háttsettir foringjar í sænska hernum standi svo uppi í hárinu á kjörnum stjómvöldum, svo einstætt að gárungarnir tala nú um „herforingjauppreisn" í Svíþjóð. Kafbátamálin í Svíþjóð hafa kostað einn ráðherra embættið og nú hyggjast herforingjar knýja fram auknar fjárveitingar til hermála í krafti kafbátaleitarinn- ar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.