Þjóðviljinn - 13.11.1985, Side 14

Þjóðviljinn - 13.11.1985, Side 14
LANDSFUNDURINN Anna Hildur: Vona að fólk í forystunni læri hvert af öðru. Mynd: EÓI. Skoðanir um landsfund Sterk staða ungs fólks Sunnlendingar kjósa í miðstjórn: Kolbrún Skarphéðinsdóttir og Margrét Frímannsdóttir frá Stokkseyri, Katrín Sól Högnadótt- ir, Þorlákshöfn. Mynd: EOI. Anna Hildur Hildibrandsdóttir: Pað er rúmt í flokknum Mér fínnst landsfundurinn hafa heppnast mjög vei og held að flokkurinn hafí komið sterkur útúr honum, sagði Anna Hildur Hildibrandsdóttir, - og ég er mjög ánægð fyrir okkar hönd í Æskulýðsfylkingunni, við höfum náð miklu fram hér á fundinum. Ég er ánægð með að verkalýðs- hreyfmgarmenn tefla fram ung- um manni í ritarastöðuna, það hjálpar okkur vonandi að ná til ungs fólks í verkalýðsmálum. - Það er líka full ástæða til að vera ánægður með að flokkurinn stendur sameinaður eftir fund- inn. f>að á eftir að efla okkur í baráttunni, - og það gerir okkur í ÆF auðveldara að ná til ungs fólks, flokkurinn sameinaðist þrátt fyrir mörg sjónarmið, og þetta sýnir að það er rúmt í flokknum. Heldurðu að deilur og átök á þessum fundi hafi veikt flokkinn eða eflt? - Ég held að ef það tekst að spila vel úr því hvernig forysta flokksíns er samsett eigi þessi fundur eftir að efla flokkinn. Hér er pláss fyrir margar skoðanir, flokkurinn er víður. Eitthvað sem þér finnst bera hœrra en annað á fundinum? - Ég hef verið upptekin í kjör- nefndinni og þessvegna ekki fylgst nógu vel með umræðum um einstök mál, - en það sem mér finnst merkast er þessi ár- angur sem ungt fólk hefur náð. Hann er afleiðing af virkni í okk- ar röðum undanfarið, okkar starf hefur skilað árangri. Pað var ko- sinn ungur ritari, og við höfum fengið fast sæti í framkvæmdast- jórninni, og þar að auki var ko- sinn einn varamaður frá okkur. Við eigum sjö menn beint í miðst- jórnina og getum fengið kosna fleiri, - staða ungs fólks er sterk í flokknum. Hvernig leggst nýforysta íþig? - Mér finnst hafa náðst hérna gott samkomulag, sem var virki- lega þörf á, og er ánægð. Menn úr verkalýðshreyfingunni koma inn til starfa meira en áður, og einnig þau öfl sem hafa haft sig í frammi uppá síðkastið og kenna sig við ný sjónarmið. Það náðist að sam- eina þetta í eina forystu, og ég vona svo sannarlega að þetta fólk geti unnið saman og lært hvert af öðru. -m Suður-Afríka Frelsi undan aðskilnaðarsvipunni Landsfundurinn styður Afríska þjóðarráðið Framsækið og frjálshuga fólk um allan heim gengur nú í lið með hinni vaxandi og breiðu hrey- fíngu sem krefst afnáms aðskiln- aðarstjórnarfarsins í Suður Afr- íku. Landsfundur Alþýðubanda- lagsins 1985 vekur athygli á því að stór meirihluti íbúa Suður Afríku nýtur ekki frumstæðustu borg- aralegra lýðréttinda. Peim íbúum landsins sem ekki eru hvítir er bannað með lögum að eiga nokk- urt land að undanskildum þeim hrjóstrugu eyðilendum sem ein- kenna hin svonefndu „heima- lönd”. Afríska þjóðarráðið er viður- kennt sem hin leiðandi samtök bæði innanlands af hinum svarta meirihluta og það nýtur vaxandi viðurkenningar erlendis. Um leið og Alþýðubandalagið lýsir yfir stuðningi við Afríska Þjóðarráðið, skorar það á ríkis- stjórn íslands að fylgja fordæmi ríkisstjórnar Svíþjóðar og ann- arra ríkisstjórna að viðurkenna Afríska Þjóðarráðið sem hinn lögmæta fulltrúa hins undirokaða svarta meirihluta í Suður Afríku. Landsfundurinn tekur undir þá kröfu að Nelson Mandela, leið- toga Afríska Þjóðarráðsins og öðrum pólitískum föngum verði sleppt úr fangelsi í Suður Afríku. Éin mikilvægasta stoð ríkis- stjórnar hvíta minnihlutans eru þær erlendu fjárfestingar og þeir alþjóðlegu auðhringar sem fjár- magna uppbyggingu hersins og lögreglunnar í Suður Afríku. Með því að slíta þessi tengsl væri þessari stoð kippt undan aðskiln- aðarstjórnarfarinu. Alþýðubandalagið heitir að leggja málstað svarta meirihlut- ans lið með því m.a. að þrýsta á um að ríkisstjórn íslands fram- kvæmi það viðskiptabann á Suður Afríku sem hún ásamt öðr- um ríkisstjórnum hefur sam- þykkt að beita sér fyrir. Síðan í september á síðasta ári þegar núverandi uppsveifla í bar- áttu hins svarta meirihluta í Suður Afríku hófst hafa yfirvöld í Suður Afríku brugðist við kröf- um fjöldans með víðtækum kúg- unaraðgerðum. Yfir 700 svartir hafa verið myrtir það sem af er þessu ári, mikill meirihluti þeirra voru ungir mótmælendur sem skotnir hafa verið af lögreglusvei- tum. Ríkisstjórnin hefur hand- tekið þúsundir. Hún hefur dregið fyrir rétt helstu leiðtoga Samein- uðu Lýðræðisfylkingarinnar og sakað þá um landráð. Þann 20. júlí s.l. var lýst yfir neyðarástandi á mörgum þéttbýl- issvæðum. Hersveitir hafa verið kvaddar til að aðstoða lögregluna við að bæla réttlátar og óvopnað- ar mótmælaaðgerðir svarta meirihlutans. í raun hafa mót- mælaaðgerðir breiðst út jafnvel enn meir eftir yfirlýsinguna um neyðarástand, til svæða sem hingað til hafa verið tiltölulega friðsöm. Það sem hinn svarti meirihluti er að berjast fyrir er frelsi undan svipunni, gegn því nútímaþræla- haldi sem aðskilnaðarstjórnarf- arið grundvallast á. Verkafólk með svartan hörundslit hefur ekki frelsi til að ferðast að vild milli landsvæða eða velja sér þau störf sem það óskar, né til að semja um kaup fyrir vinnuafl sitt þeim sem hæst býður. Það er opinberlega skil- greint sem „farandverkafólk” og „útlendingar” í sínu eigin landi og það verður að bera á sér vegabréf sem hægt er að ógilda hvenær sem er. Stofnun og starfsemi verkalýðsfélaga hinna svörtu er svo takmarkað með lagasetning- um að þeim er gert ókleift að verja hagsmuni verkafólks. Rétt- urinn til verkfalls er í raun ekki til staðar og þau verkföll sem eiga sér stað eru í raun hreinar upp- reisnir. Þau markmið og þær kröfur sem svarti meirihlutinn er að berjast fyrir hafa verið settar fram í stefnuskrá sem þekkt er sem „Frelsisskráin” (Freedom Charter). Hún var upphaflega samþykkt á mjög fjölmennu þingi í Suður Afríku árið 1955, sem kallað var saman af Afríska Þjóðarráðinu (ANC), og þremur öðrum samtökum sem er fólk af indverskum ættum, fólk af blönd- uðum uppruna og hvítir. Frelsisskráin hefur á undan- förnum árum verið samþykkt og endursamþykkt af sífellt fleiri samtökum í Suður Afríku. Þegar í upphafi Frelsisskrár- innar er það tekið fram að „Suður Afríka tilheyrir öllum sem þar búa, svörtum jafnt sem hvítum, og að engin ríkisstjórn getur með rétti gert kröfu til trausts og virð- ingar nema hún byggi á vilja allrar alþýðunnar.” Frelsisskráin setur einnig fram kröfu um myndun „lýðræðislegs ríkis, byggðu á vilja fólksins.” í þessu sambandi hefur Afríkan- ska Þjóðarráðið sett fram kröfu- na um „einn maður, eitt at- kvæði”, sem svarti meirihlutinn hefur gert að sinni aðalkröfu. Ríkisstjórn Pieter Botha hefur lýst því opinberlega yfir eins og fyrri ríkisstjórnir, að hún sé ein- ungis fulltrúi hins hvíta kynþátt- ar. Það ofbeldi sem aðskilnað- arstjórnarfarið beitir og þær fán- ýtu umbætur sem það hefur stað- ið fyrir, miða aðeins að því að viðhalda yfirráðum, forréttind- um og hagsmunum sem hinir hvítu búa við og tryggja fyrirtækj- um hræódýrt vinnuafl. Þessum aðstæðum verður ekki breytt nema með afnámi aðskiln- aðarstjórnarfarsins, á því er ekki hægt að gera umbætur. 14 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 13. nóvember 1985

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.