Þjóðviljinn - 13.11.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348.. Helgarsími: 81663.
MÓÐVIUINN
Miðvikudagur 13. nóvember 1985 262. tölublað 50. árgangur
Borgarfjörður
1000 jólagæsir
Slátrun að Ijúka í gœsasláturhúsinu í Reykholtsdal.
Uppgangur hjá gœsarœktarmönnum á Vesturlandi.
Tekur víða yfir hefðbundinn búskap
Slátrun á jólagæsum hjá gæs-
asláturhúsinu í Reykholtsdal í
Borgarfirði er að ljúka en alls
verður um 1000 gæsum slátrað á
þessu hausti. Það er Gæsarækt-
arfélag Yesturlands sem rekur
sláturhúsið og jafnframt útung-
arstöð sem er staðsctt á Hvann-
eyri.
Gunnar Örn Guðmundsson
héraðsdýralæknir í Borgarfirði
sem hefur umsjón með gæsaslátr-
uninni sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að gæsaeldið í Borg-
arfirði hefði gengið mjög vel í
sumar. Upphaflega voru flutt inn
egg frá Noregi úr fjórum stofnum
og eggjunum ungað út á Hvann-
eyri og dreift til bænda í nágrenn-
inu. Gæsaræktarbændur í
sveitinni stofnuðu síðan með sér
félagsskap sem rekur útungunar-
stöðina og hið nýja sláturhús.
->g-
Félagamir Matthías Einarsson og Sveinbjörn Grétarsson að störfum í fiskimjölsverksmiðjunni í Örfirisey. Ljósm. Sig.
Sláturleyfishafarnir
Menningin undir hnífinn
Miskunnarleysi í niðurskurði.
Pjóðarbókhlaða, Listasafn, Kvikmyndasjóður og Ríkisútvarp skorin við trog.
Sjúkrahús og heilsugæsla fá sinn skammt líka
Sex manna nefnd stjórnar-
flokkanna, sem Geir
Gunnarsson nefndi „sláturleyfis-
hafana“ á Alþingi í gær, beitti
hnífnum ekki gegn auðsöfnun
milliliða og verslunarauðvalds
frekar en við var að búast heldur
snerist gegn menningar- og
rannsóknastarfsemi með við-
komu hjá sjúkrahúsum og heilsu-
gæslustöðvum.
Breytingarnar sem Þorsteinn
Pálsson boðaði í ræðu sinni á Al-
þingi í gær frá upphaflegu frum-
varpi Alberts Guðmundssonar
voru í raun sáralitlar miðað við
stórkarlalegar yfirlýsingar Stykk-
ishólmsfundarins. Tekjuhlið
frumvarpsins lækkar um 0.9% og
útgjöldin um 1,7% sem ekki
skiptir neinum sköpum í ríkis-
fjármálum. Hins vegar mun
niðurskurðurinn skipta sköpum
fyrir viðkomandi menningar- og
þjónustustofnanir en fram-
kvæmdir og framlög til þeirra eru
lækkuð um samtals 179 miljónir
króna.
Samkvæmt tillögunum eru
framlög til Þjóðarbókhlöðu
lækkuð um 6 miljónir, Listasafns
íslands um 15 miljónir, Há-
skólans um 5 miljónir,
Raunvísindastofnunar.um 6 milj-
ónir, Kvikmyndasjóðs um 16
miljónir, Félagsheimilasjóðs um
11 miljónir og Iðnlánasjóðs um
12 miljónir. Þá er fyrirhugað að
lækka lántöku til Ríkisútvarpsins
um 15 miljónir og þróunarfélagið
er skorið um þriðjung, þ.e. 50
miljóir. Bygging sjúkrahúsa og
heilsugæslustöðva er skorin um
35 miljónir króna.
-ÁI
Loðnubrœðsla
Nógur er kvótinn
að er unnið hér allan sól-
arhringinn frá því að loðn-
an kemur og þar til hún er
búin, sagði Gunnar Þorgeirs-
son yfirverkstjóri í Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjunni í Ör-
firisey.
Starfsfólk verksmiðjunnar
eru um 30 manns og þar af eru
11 á hvorri vakt sem eru 12
tímar. Starfsmennirnireru allt
karlmenn nema kona í mats-
eldinni. Sagðist Gunnar bara
vita til þess að ein stúlku hefði
sótt um vinnu hjá SF en þá var
allt fullráðið.
Byrjað var að bræða loðn-
una rétt fyrir 20. október og
verður haldið áfram svo lengi
sem Ioðna veiðist því „nógur
er kvótinn," sagði Gunnar,
„en það fer eftir tíðarfarinu
því við erum svo langt frá mið-
unum.“ Þegar loðnan er búin
er mannskapnum sagt upp og
verksmiðjan hreinsuð. Kaup-
ið er ekkert að hrópa húrra
fyrir, 97 krónur og 47 aurar á
tímann, en að sögn Gunnars
er hægt að vinna svo lengi að
úr verði kaup með yfirvinnu
og næturvinnu. Loðnan sem
veiðst hefur, hefur yfirleitt
verið góð, þ.e.a.s. feit því hún
er verðlögð eftir fitu og þess
vegna Iagt kapp á að veiða
hana núna áður en hún grenn-
ist.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Fær aðgang að tölvubanka
Rannsóknastofnunin hefur gertsamning við breskan tölvubanka sem geymir
upplýsingar um matvœlalöggjöf viðskiptalanda okkar á Vesturlöndum
Rannsóknastofnun fískiðnað-
arins hefur nývcrið gert
samning við breskan tölvubanka
um notkun á upplýsingum um
matvælalöggjöf í öllum viðskipta-
löndum Islendinga á Vestur-
löndum. Ástæðan fyrir þessu er
sú, að sögn dr. Öldu Möller í
ræðu sem hún hélt á Fiskiþingi í
gær, að hlutverk Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins er m.a.
að gefa allar upplýsingar um nær-
ingargildi fisks og heilnæmi, en
rannsóknir á því sviði geta bæði
verið flóknar og tímafrekar.
Dr. Alda sagði að á þessu ári
hefðu birst nokkrar greinar í
læknatímaritum um hollustu fisks
og að þeim færi fjölgandi sem
telja fisk almennt holla og ljúf-
fenga fæðu, sé til hráefna og
framleiðslu vandað. Hún sagði
að því væri nú lag fyrir okkur að
vekja áhuga erlendis á aukinni
fiskneyslu. Við gætum skapað
okkur sérstöðu vegna þess að
okkar fiskur er minna mengaður
en annar fiskur um þessar mund-
ir. Aukaefni ættu í flestum tilfell-
um að vera óþörf við vinnslu hér
á landi, enda vilja margir forðast
slík efni.
-S.dór
Dýrtíðin!
Frá því ríkisstjórnin tók við í maí 1983 hefur verð á 1 kg af
ýsuflökum hækkað um 191,3%. Á sama tíma hafa meðallaun
iðnaðarmanna samkvæmt upplýsingum Kjararannsóknar-
nefndar hækkað um 67,6% (svarta súlan). Þjóðviljinn mun á
næstu dögum taka fleiri vöruflokka til samanburðar.