Þjóðviljinn - 28.11.1985, Síða 3
FRETTIR
Samvinnuhreyfingin
Snúist gegn forstjóraveldsnu
Bullandi reiði hjá samvinnumönnum vegnaframkomu formanns og varaformanna stjórnar SIS ískipafélagsmálinu.
Vilhjálmur Jónssonforstjóri Olíufélagsins: Pettamál erhreinfásinna.
Bullandi reiði er hjá fjölmörg-
um samvinnumönnum um allt
land vegna framkomu Vals Arn-
þórssonar og Ólafs Sverrissonar,
formanns og varaformanns
stjórnar SÍS í skipamálinu svo
nefnda í síðustu viku. Vilhjálmur
Jónsson forstjóri Olíufélagsins
sagði í samtali við Þjóðviljann í
gær að hann hefði gagnrýnt málið
mjög og sagði að það væri hrein
fásinna. Margir aðrir taka í sama
streng.
Það sem margir gagnrýna hvað
harðast er hvernig Valur Arn-
Grundarfjörður
vnja
endurheimta
Sigurfara
Fyrrum eigandi togarans
boðar til borgarafundar í
kvöld um að stofna
hlutafélag til að
endurheimta skipið.
Heildverslunin Hekla
h.f. hefur sýntþessu máli
áhuga
Ég hef ákveðið að boða til borg-
arafundar hér í Grundarfirði á
morgun, fimmtudag í samkomu-
húsinu, þar sem borin verður
fram tillaga um stofnun hlutafé-
lags til að endurheimta togarann
Sigurfara SH til Grundarfjarðar,
þegar Fiskveiðasjóður býður
hann til kaups, sagði Hjálmar
Gunnarsson útgerðarmaður í
Grundarfirði í samtali við Þjóð-
viljann í gær. Hjálmar átti Sigur-
fara SH en missti hann á
nauðungaruppboði til Fiskvciða-
sjóðs. Sigurfari var eitt af dollar-
askipunum, sem sjóðurinn hefur
verið að eignast að undanförnu.
Þjóðviljinn hefur fyrir því
heimildir að Heildverslunin
Hekla h.f. hafi áhuga fyrir þátt-
töku í þessu hlutafélagi. Hjálmar
var inntur eftir þessu og sagði að
ekkert hefði verið ákveðið í því
máli. Hann sagði að þeir hjá
Heklu væru vinir sínir og „við
höfum rætt margt saman,“ sagði
Hjálmar.
Aðspurður um hvort hug-
myndin væri að breyta Sigurfara í
frystiskip, ef hann fengist aftur,
sagðist Hjálmar ekkert geta um
það sagt, en benti á að það lægi
ljóst fyrir að togaraútgerð stæði
ekki undir sér hér á landi nú, ef
eingöngu er landað í frystihús.
„Það er einnig alveg ljóst að ef
við endurheimtum skipið látum
við söguna síðan í haust ekki
endurtaka sig,“ sagði Hjálmar.
-S.dór
þórsson formaður stjórnar stóð
að málinu. Hann fór til viðræðna
við íslenska skipafélagið um sam-
einingu Skipadeildar SÍS og ísl.
skipafélagsins og fleiri aðila og
var búinn að ganga frá málinu, án
þess að tala við stjórnarmenn
SÍS. Þegar svo fréttist að
stjórnarmenn væru ekki allir
meðmæltir því sem var að gerast
var leitað til sterkustu manna, allt
uppí ráðherra Framsóknar-
flokksins til að vinna málinu
fylgi. Það dugði svo ekki þegar til
stjórnarfundarins kom sl. laugar-
dag. Þar snérust fimm stjórnar-
menn gegn forstjóravaldinu og
felldu tillögu Olafs varafor-
manns, sem studd var af Vali
Arnþórssyni.
Eins og menn muna var mikil
andstaða gegn hugmyndinni á
kaupfélagsstjórafundinum í sið-
ustu viku, sem endaði með því að
kaupfélagsstjórarnir sendu skrif-
lega áskorun til stjórnar SÍS um
að fella tillöguna. Valur Arn-
þórsson sagði um andstöðu
kaupfélagsstjóranna að stjórnar-
menn SÍS ættu ekki að hlusta á
hana heldur taka sjálfstætt á mál-
inu.
Eftir að stjórn SÍS hafi hafnað
tillögu Ólafs og Vals kom
áskorun frá Dagsbrún um að mál-
ið yrði tekið upp og einnig er vit-
að að Valur Arnþórsson átti há-
degisverðarfund með Steingrími
Hermannssyni í fyrradag þar sem
þetta mál var rætt. Valur mun
enn ekki vera búinn að gefa upp
alla von um að taka málið upp
aftur, en einnig er vitað að sam-
vinnuntenn um land allt eru á
verði og eru flestir kaupfélags-
stjórar landsins í þeim hópi.
Það er spá manna sem best
þekkja innviði Sambandsins að
þetta mál eigi eftir að draga dilk á
eftir sér hvað varðar afstöðu
manna til forstjóraveldisins í SÍS.
Menn eru m.a. reiðir yfir því að
æðstu menn SÍS skuli vinna þann-
ig að þeir líti á það sem sjálfsagð-
an hlut að stjórnin samþykki
hvað sem fyrir hana er lagt. Einn-
ig líta menn hornauga afskipti
ráðherra Framsóknarflokksins af
málinu og benda á að Valur og
menn hans hefðu aldrei lagt út í
þetta mál nerna með samþykkti
ráðherranna.
-S.dór
Ægir Geirdal fyrir utan Fjarðarkaffi sem hefur verið lokað vegna brunaskemmda í 4 mánuði rúma: Dugir ekkert annað en
að fara í mál við bæinn. Mynd-E.ÓI.
Hafnarfjörður
Leiklist - MH
Lokasýning
á Kjarval/
Lorca
í kvöld kl. 20.30 hefst síðasta
sýning hjá Leikfélagi MH á
Listin?/Astin?, tveimur stuttum
verkum eftir Kjarval og Lorca.
Nemendur verða nú að hefja
próflestur og gefst því ekki færi á
fleiri sýningum. Urn sýninguna í
norðurkjallara Hamrahlíðar-
skólans sagði leikrýnir Þjóðvilj-
ans, Sverrir Hólmarsson, meðal
annars: „í heild sinni er þetta vel
unnin og áhugaverð sýning sent
gleður augað...“
Verk Kjarvals heitir Einn þátt-
ur, og er í MH færður upp öðru
sinni síðan hann var saminn, og
verk Lorca, Ást Don Þerlímplíns
til Belísu í garði hennar, hefur
ekki áður verið sýnt hérlendis.
Leikstjóri er Ingunn Ásdísar-
dóttir.
Bærinn bakað mér stórtjón
Verkamannaskýlið enn ólagfært 4 mánuðum eftir að kviknaði í. Veitingahúsið
Fjarðarkaffi ekkigetað opnað vegna þessa. Ægir Geirdal: Hef órðið fyrir
stórfelldu tjóni
Bæjaryfirvöld hafa ekki sýnt
því neinn áhuga að sinna
þeirri skyldu sinni að laga hér til
eftir eldsvoðann. Ég hef orðið
fyrir stórfelldu fjárhagslegu tjóni
vegna þess hvernig haldið hcfur
verið á þessum málum og það
liggur ljóst fyrir að þessu getur
ekki lokið á annan veg en með
málaferlum, sagði Ægir Geirdal
veitingamaður í Fjarðarkaffi í
Hafnarfirði í samtali við Þjóðvilj-
ann.
Fjarðarkaffi er til húsa í Verka-
mannaskýlinu við Hafnarfjarðar-
höfn, en skýlið er í eigu bæjar-
sjóðs. Þann 20. júlí í sumar kom
upp eldur í hliðarherbergi við
veitingasalinn og urðu töluverðar
skemmdir á húsinu. Tryggingafé-
lag mat skemmdirnar uppá 150
þúsund krónur en starfsmenn
bæjarins töldu að minnst 1 miljón
þyrfti til að koma húsinu í samt
lag.
Þrátt fyrir að rúmir fjórir mán-
uðir séu liðnir frá því að kviknaði
í húsinu hafa enn engar lagfær-
ingar verið gerðar á húsinu og
lokun veitingahússins hefur
bakað eigandanum stórfellt fjár-
hagslegt tjón.
„Ég hef fengið á mig þrjú
nauðungaruppboð vegna þessar-
ar rekstrarstöðvunar. Auk þess
hef ég orðið að selja mest allt inn-
bú úr staðnum uppí skuldir og hef
verð á sífelldum þönum milli
lánardrottna að bjarga málum.
Ég hef margþrýst á bæjaryfirvöld
að koma húsnæðinu í lag á ný en
ekkert dugað, en ég á 6 ár eftir af
leigusamningi. Málið er nú kom-
ið í lögfræðing og ég hef sagt
leigusamningnum upp og fer
fram á 1.4 miljónir í bætur fyrir
það tjón sem ég hef orðið fyrir og
leigutímann. Bæjarstjóri hefur
rætt um 400 þúsund krónur þann-
ig að þetta mál getur ekki endað
annars staðar en fyrir dómstólun-
um,“ sagði Ægir Geirdal.
-lg
Banaslys
Síðdegis í gær varð banaslys á
Vesturlandsvegi þegar árekstur
varð milli fólksbifreiðar og áætl-
unarbifrciðar. Okumaður fólks-
bifreiðarinnar lést sanistundis, cn
ökumaður og þrír farþcgar áætl-
unarbifrciðarinnar slösuðust.
Áreksturinn varð með þeim
hætti að fólksbifreiðin sem var á
leið suður Vesturlandsveg lenti
framan á áætlunarbifreiðinni sem
var á leið norður. Ekki er vitað
hvað olli því að fólksbifreiðin ók
á röngum vegarhelmingi.
Áreksturinn var mjög harður
og fór áætlunarbifreiðin út af veg-
inum. Ekki er hægt að svo stöddu
að skýra frá nafni piltsins sem ók
fólksbifreiðinni.
Pólarlax
Stækka um helming
Laxeldisstöðin Pólarlax við
Straumsvík hefur óskað eftir
hcimild Hafnarfjarðarbæjar um
að stækka stöðina um helming og
jafnframt óskað eftir vilyrðum
frá bænum á stóru viðbótarlandi
við Straumsvík uppá mögulega
framtíðarstækkun stöðvarinnar.
„Við viljum drífa þessa stækk-
un af í hvelli. Það er verið að
leggja inn teikningar og verður
vonandi byrjað á framkvæmdum
næstu daga,“ sagði Finnbogi
Kjeld einn eigenda stöðvarinnar.
Við stækkunina eykst fram-
leiðslugeta Pólarlax um helming
eða í eina miljón seiða á ári. Stöð-
in hefur gert samning við norska
aðila um stórkaup á laxaseiðum
en Finnbogi vildi ekki skýra nán-
ar frá þeim samningi að svo
stöddu. -Ig-
VARÐVEISLA
OG EFLING ÍSLENSKRAR TUNGU
Menntamálaráðherra boðar til ráðstefnu um
varðveislu og eflingu íslenskrar tungu, sunnu-
daginn 1. desember nk. Ráðstefnan verður
haldin í Þjóðleikhúsinu og hefst kl. 14:00.
Allir þeir sem vilja stuðla að varðveislu og
eflingu tungunnar eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Sverrir Hermannsson